Morgunblaðið - 21.11.1986, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
17
Rauðarárjörðin. — Guðlaugur R. Guðmundsson skráði örnefnin.
Náttúruverndarfélag Suðvesturlands:
Skoðunarferð um
Rauðarárland
Á morgun, laugardag, fer Nátt-
úruvemdarfélag Suðvesturlands
kynnisferð um gamla Rauðarár-
landið í Reykjavík. Fjallað verður
um náttúmfar svæðisins fyrr og
nú, sögu þess og ömefni, hvemig
það hefur byggst upp á síðari
ámm og framtíðarskipulag þess.
Farið verður frá Grófartorgi kl.
13.30, frá Háskólabíói kl. 14.00,
frá Náttúmgripasafninu, Hverfis-
götu 116 kl. 14.30 og frá Skjala-
safni Reykjavíkurborgar,
Skúlatúni 2, kl. 14.40. Áætlað er
að ferðinni ljúki við sömu staði
milli kl. 16.00 og 17.00. Fargjald
verður 200 kr., frítt fyrir böm í
fylgd fullorðinna. Allir em vel-
komnir. Þetta er kjörin ferð fyrir
íbúa svæðisins, þá sem starfa þar
og aðra sem kynnast vilja því.
Leiðsögumenn verða Sveinn Jak-
obsson jarðfræðingur, Helga
Bragadóttir arkitekt og sögu- og
ömefnafróðir menn.
Leiðin
Við höfum dálítinn formála að
ferðinni um sjálft svæðið. í upp-
hafí ferðarinnar kl. 13.30 verður
gengið frá Grófartorgi suður Ing-
ólfsgötu (Aðalstræti í dag)
gegnum Víkurgarð og farið í
bílinn við norðurenda Tjamarinn-
ar. Þaðan ekið framhjá þeim stað
sem Hólavallaskóli stóð og suður
á Mela. Okkur verður boðið að
líta inn á nýopnaða sýningu á
íslenskum fléttum sem áliugahóp-
ur um byggingu náttúmfræðihúss
stendur að í anddyri Háskólabíós.
Þaðan verður ekið að Náttúm-
gripasafninu, Hverfísgötu 116 og
skoðum við það undir leiðsögn
Sveins Jakobssonar jarðfræðings.
Ferðin um Rauðarárland hefst svo
um kl. 14.40. Farið verður frá
Borgarskjalasafninu, Borgartúni
2, en þar rétt hjá stóð býlið Rauð-
ará. Ekið verður upp þar sem
Rauðaráin rann áður framhjá
Skelli, suður í Amarhólsmýri,
þaðan yfír á Rauðarárholt að
Ámundaborg, síðan niður með
Fúlutjamarlæk að Fúlutjöm um
Kirkjumýri og Rauðarármýri
framhjá Gvendarbmnni, Goshóli
og niður í Rauðarárvík. Þaðan
farið að Borgarskjalasafninu. Þar
verða til sýnis fyrir hópinn gömul
og ný Reykjavíkurkort þ.á m.
mjög merkilegt kort frá 1899 sem
geymt er í Árbæjarsafni og sýnir
m.a. vel Rauðarárlandið.
Svæðið sjálft
• Jörðin Rauðará var landlítið og
lengst af var stór hluti hennar
mýrardrög, fúafen, blásnir melar
eða Klappaholt. Auk heimatúns-
ins, sem við bestu skilyrði gaf af
sér um 100 hesta, var nægjanleg
torfrista, stunga og móskurður.
Einnig nokkrar flömnytjar s.s.
flömgrös, mumkjami og bjöllur.
Heimræði var, en langræði. í dag
er svæðið sem Rauðaráijörðin
náði yfír nær albyggt, þannig að
líklega er hvergi að fínna upp-
mnalegt náttúmlegt svæði, eða
að þar móti fyrir gömlum mann-
vistarminjum. Á röskuð svæði
kemur fljótt ákveðin flóra og fána
sem smám saman myndar ákveðin
vistkerfí er geta haft gildi, t.d.
við kennslu. Þessu hefur því mið-
ur verið alltof lítill gaumur gefinn
hér á landi. Einnig þarf að líta á
manngerð svæði s.s. húsagarða
sem ákveðin vistkerfí og skipu-
leggja fræðslu þar að lútandi
öllum til gagns og ánægju. Rauð-
arárlandið væri hentugt til þeirra
hluta. Útsýni frá svæðinu yfír
sundin er fagurt og úr norðri og
norðvestri blæs hreinu og tæm
úthafslofti. Gott dæmi um gildi
varðveislu eldri húsa og um mikil-
vægi sagnanna sem þeim fylgja,
er Höfði. Minnst verður á fyrir-
tæki á svæðinu þar sem öll
umgengni er til fyrirmyndar.
(Frá NVSV)
Prófkjör Alþýðuflokks á
Vesturlandi
PRÓFKJÖR Alþýðuflokksins á
Vesturlandi verður haldið nk.
sunnudag, 23. nóvember.
Frambjóðendur em: Eiður
Guðnason alþingismaður, Guð-
mundur Vésteinsson forstöðumaður
Sjúkrasamlags Akraness, Málfríður
Hrönn Ríkharðsdóttir kennari á
Akranesi, Sveinn Gunnar Hálf-
dánarson innheimtustjóri Kaupfé-
lags Borgfírðinga í Borgamesi.
Þátttökurétt í prófkjörinu hafa allir
stuðningsmenn Alþýðuflokksins, 18
ára og eldri, sem búsetu hafa í kjör-
á sunnudag
dæminu. Kosið er bindandi kosn-
ingu um tvö efstu sæti framboðs-
lista flokksins við næstu
Alþingiskosningar.
Kjörstaðir em: félagsheimilið
Röst á Akranesi kl. 10.00 til 20.00,
Svarfhóll í Borgamesi kl. 10.00 til
20.00, Miðbraut 7 í Búðardal kl.
14.00 til 18.00, Freyjulundur í
Stykkishólmi kl. 10.00 til 20.00,
Kaffístofa Hraðfrystihúss Gmnda-
Qarðar kl. 14.00 til 18.00, Félags-
heimfli Ólafsvtkur kl. 10.00 til 19.00
og félagsheimilið Röst á Hellissandi
kl. 13!00 til 19.00.
WHITE NIGHTS
Flugvél á leiö (ra London til Tokyo brotlendir
á hertlugvelli i Siberiu og martröð eins lar-
þegans, Kolya Rodchenko, helst. Á meðan
Kolya (MIKHAIL BARYSHNIKOV) er með-
vitundarlaus eftir slysið kemst KGB leyni-
þjónustan að þvi áð hann er hinn frægi rúss-
neski ballettdansari sem flýði til Vesturlanda
átta árurn áður.
Kolya, sem er vanmáttugur i þessari
gildru, stofnar til vináttu við annan vestræn-
an flóttamann, ameriskan blökkumann sem
er steppdansari (GREGORY HINES) og á
að vera „umsjónarmaður" Kolya,
Saman leggja þeir drög að djafri flótta-
áætlun. Stórkostleg dansafriði og Óskars-
verðlaunatónlist Lionel Richie og Phil Coll-
ins eru mjög áhrifamikil i þessari vel gerðu
mynd sem sækir efni sitt til forsiðna heims-
blaðanna.
rn~n ISLENSKUR TEXTI
MUkDERERS' ROW
REMO
CHRISTINE
MIDNIGHT EXPRESS
VIDEOHOLLIN
LÁGMÚLA 7 S. 685333 OPIÐ ALLA DAGA 10-23.30
SJAUMST HRESS EKKERT STRESS BLESS
HEILDSÖLUDREIEING