Morgunblaðið - 21.11.1986, Page 23
mi .JMiOVó'y . :: Jf Ji'M Hr -iC"
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
23
Hjálparstöð RKI fyrir börn og unglinga:
„Reynslan hefur sýnt
að þörfin er fyrir nendi“
- segir Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Rauða krossins
REKSTUR Rauðakrosshússins við Tjarnargötu 35 er eitt af þeim
fjölmörgu verkefnum sem Rauði kross íslands hefur með höndum.
Þar er rekin hjálparstöð fyrir börn og unglinga, sem eiga við fíkni-
efnavandamál að stríða. Um þessar mundir er ár liðið frá því rekstur
hjálparstöðvarinnar hófst og af þvi tilefni ræddi Morgunblaðið við
Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóra Rauða krossins, um starfsemina.
Jón var fyrst spurður um tildrög að bæta þjónustuna og 14. desemb-
þess að farið var út í þennan rekst-
ur;
„Á aðalfundi Rauða krossins í
fyrra var samþykkt tillaga sem fól
í sér að gerð yrði könnun á því með
hvaða hætti Rauði krossinn gæti
komið til hjálpar þeim unglingum,
sem hafa ánetjast fíkniefnum og
aðstandendum þeirra. í kjölfar
þessarar samþykktar var svo
ákveðið að gera tilraun með rekstur
hjálparstöðvar fyrir þessa krakka
og sú starfsemi hófst í gamla Sól-
heimahúsinu við Tjamagötu í
desember í fyrra.
Það er athyglisvert varðandi
þessa þjónustu okkar, að um 30%
þeirra sem þangað hafa leitað hafa
ekki leitað annað og það segir okk-
ur ákveðna sögu. Langflestir
þessara krakka koma af fúsum og
fijálsum vilja. Þeir koma að eigin
frumkvæði og án þess að nokkur
sendi þá. Þetta er með öðrum orðum
ekki meðferðarhæli eða stofnun
sem fólk er sent á, heldur eins og
nafnið segir, hjálparstöð fyrir böm
og unglinga í erfiðleikum. Við höf-
um fimm manns í fullu starfi þama
og forstöðumaðurinn, Ólafur Odds-
son, hefur langa reynslu af því að
umgangast ungiinga sem lent hafa
út af sporinu. Hann þekkir þessa
krakka og þau þekkja hann þannig
að það ríkir ákveðinn trúnaður
þama á milli.
Við þetta má svo bæta að við
emm sífellt að þreifa fyrir okkur
og reyna að finna nýjar leiðir til
er næstkomandi hefst nýr þáttur í
þessari starfsemi sem felst í því að
við munum hafa sérstaka símaþjón-
ustu þar sem þjálfaðir sjálfboðaliðar
verða til taks frá klukkan 14 til 18
á daginn, sem krakkamir geta þá
hringt í og leitað ráða og aðstoðar.
Með þessu vonumst við til að geta
náð til fleiri. Stöðin verður eftir sem
áður opin allan sólarhringinn og
menn geta auðvitað hringt þangað
hvenær sem er.
Á þessu tímabili sem liðið er frá
því þeir fyrstu komu þama hafa
komið alls 80 unglingar, 120 sinn-
um, sem þýðir að sumir hafa komið
oftar en einu sinni. Sumir hafa
komið til að leita ráða og hafa
stoppað stutt, aðrir hafa þurft að
vera þama í tvo til þijá sólarhringa
eða jafnvel lengur. Skipting á milli
kynja er svipuð og meðalaldurinn á
strákunum er 17 ár, en á stúlkunum
16 ár. Flestir þessara krakka hafa
ánetjast fíkniefnum en eru ekki
forfallnir, þannig að það er hægt
að bjarga þeim og mörgum þeirra
hefur verið bjargað. Önnur ástæða
fyrir því að krakkar hafa komið
þama er óregla á heimilunum, sem
hefur valdið því að bömin hafa
hrökklast að heiman. Við vitum líka
um nokkur tilfelli þar sem ungar
stúlkur hafa komið vegna kjmferð-
islegrar áreitni. Reynslan hefur því
sýnt og sannað, að það full þörf
fyrir starfsemi af þessu tagi og
þess vegna höfum við ákveðið að
reyna að halda áfram, að minnsta
í KVÖLD verður óperan Tosca
flutt aftur eftir þriggja vikna
hlé. Guðmundur Emilsson tekur
við hljómsveitarstjórn af
Maurizio Barbacini og Robert
W. Becker tekur við hlutverki
Scarpia af Malcolm Amold.
Elín Ósk Óskarsdóttir syngur
hlutverk Toscu í annað sinn, en þær
kosti út næsta ár.
En það er með þetta eins og flest
annað, að það þarf fjármagn til að
reka svona starfsemi. Þótt kostnaði
hafi verið haldið í algjöru lágmarki
verður heildarkostnaður á yfir-
standandi ári um 4,7 milljónir króna
og þar af hefur Rauði krossinn
greitt um 3,5 milljónir þannig að
það vantar um 1,2 milljónir til að
ná endum saman. Þess vegna höf-
um við ákveðið að fara út í merkja-
sölu næstkomandi föstudag og
laugardag, 28. og 29. nóvember,
til að reyna að afla þeirra tekna sem
á vantar til að bjarga rekstraraf-
komunni á þessu ári. í þessu
sambandi er þó skylt að geta þess,
að við höfum fengið góða aðstoð
frá nokkrum félagasamtökum svo
sem Lionessum, Hvítabandskonum,
Soroptimistum og Kvennadeild
Rauða krossins.
Við gerum ráð fyrir að heildar-
kostnaðurinn á næsta ári verði um
5 milljónir króna og áætlað er að
Rauði krossinn leggi fram að
minnsta kosti 25% af þeim kostnaði
eða um 1,3 milljónir króna. Síðan
gerum við okkur vonir um að ríki
og sveitarfélög, svo og aðrar líknar-
stofnanir og jafnvel einstaklingar
Jón Ásgeirsson, framkvæmda-
stjóri Rauða kross fslands.
komi til hjálpar og brúi þetta bil.
Við höfum nú þegar rætt við form-
ann Fíkniefnanefndar ríkisstjómar-
innar og fengið ágætar undirtektir
svo að við bindum vonir við að ríkið
veiti okkur stuðning á næsta ári.
Það er þeirra hagur líka“, sagði Jón
Ásgeirsson, framkvæmdastjóri
Rauða krossins.
Robert W. Becker f hlutverki Scarpia og Elfn Ósk Óskarsdóttir f
hlutverki Toscu.
Nýr söngvari og hljóm-
sveitarstjóri í Tosca
Elísabet F. Erlingsdóttir skiptast á
að syngja hlutverkið. Kristján Jó-
hannsson kom til landsins á mið-
vikudag og syngur sem fyrr
hlutverk Cavaradossi.
Ellefu sýningar em eftir á Toscu
og verða þær á tímabilinu 21. nóv-
ember til 14. desember.
JÓLASKÓR BARNA
I
KOMNIR FRA JIP
Allir úr skinni, innan sem utan, og
leggi.
Verð frá kr. 1.390,00.
Stærðir frá: 21—33.
Einnig drengjaskór úr skinni og lakki.
Stærðir frá: 21 —33.
Póstsendum.
Verslanimar verða opnar laugardag frá 9.30—4.
Domus Medica,
Egilsgötu 3.
Sími: 18519.
TOPF
---SKÚRTNN
VELTUSUNDI2,
21212
EINKASIMSTOÐ
77/ sölu er 4ra ára EMS 150
einkasímstöð Siemens fyrir
meðalstórt fyrirtæki. Bæjarlínu-
fjöldi er 18 línur og 90 innan-
húslínur, 3 skammvalsminni
samtals 900 númer. 2 skipti-
borð fylgja. Hægt er að fá
stöðina gegn kaupleigusamn
ingi eða með greiðsluskilmál-
um. Allar upplýsingar gefur
Sverrir Jónsson f síma 20580.
®
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Guðmundur Emilsson hljómsveitarstjóri ásamt Kristjáni Jóhannssyni.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals
í Valhöll Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—
12. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og
ábendingum og er öllum borgarbúum boðið að not-
færa sér viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 22. nóvember verða til viðtals Páll Gísla-
son, formaðurframkvæmdanefndar byggingastofnanna
í þágu aldraðra og veitustofnanna Reykjavíkur og Guð-
rún Zoega í stjórn skólamálaráðs, fræðsluráðs og
veitustofnanna.