Morgunblaðið - 21.11.1986, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
Óánægja með rannsókn morðsins á Olof Palme:
Nefnd skipuð til að rann-
saka rannsókn málsins
Gonzales fær koss
Felipe Gonzales, forsætísráðherra Spánar, býr sig undir að
smella kúbanska dansmey kossi í þakklætisskyni fyrir sýningu,
sem haldin var honum tíl heiðurs í Tropicana-klúbbnum í Hav-
ana þegar hann var í opinberri heimsókn á Kúbu á dögunum.
Stokkhólmi, frá fréttaritara Morgunbiaðsins,
PALMENEFNDIN, sem sænska
stjórnin kom á fót á sínum tíma
vegna morðsins á Olof Palme,
hefur nú ákveðið að hefja rann-
sókn á því rannsóknarstarfi, sem
fram hefur farið til lausnar mál-
inu. Hefur Hans Holmer lög-
reglustjóri mótmælt þessu en þó
fallizt á að leyfa nefndinni að
fylgjast eftirleiðis með rann-
Erik Liden.
sókninni sjálfri.
Þrír af borgaraflokkunum hafa
ennfremur krafizt þess á þingi, að
kosin verði þingnefnd, sem sam-
hliða Palmenefndinni fái að fylgjast
með rannsókn malsins. Talið er þó,
að stjóm jafnaðarmanna muni
hafna þessari hugmynd og njóti þar
stuðnings kommúnista.
Alþjóðahvalveiðiráðið:
Frydenlund vill úti-
loka Sea Shepherd
Osló, AP.
KNUT Frydenlund, utanríkisráð-
herra Noregs, sagðist vilja úti-
loka Sea Shepherd frá fundum
Alþjóðahvalveiðiráðsins og önn-
ur náttúrurvemdarsamtök, sem
brúka skemmdarverk málstað
sínum til framdráttar. Fryden-
lund sagðist eiga von á því að
Sea Shepherd yrði svipt rétti til
að eiga áheyrnarfulltrúa á næsta
fundi ráðsins.
Frydenlund lét svo um mælt er
hann svaraði spumingum í Stór-
þinginu um hvað norska ríkisstjóm-
in hyggst gera til að vemda norska
hvalveiðimenn gegn skemmdar-
verkum af því tagi, sem unnin vom
á hvalbátunum í Reykjavíkurhöfn
og hvalstöðinni í Hvalfirði.
Frydenlund sagði Norðmenn, ís-
lendinga og aðrar þjóðir nú vera
að bera saman ráð sín um mótleik
gegn Sea Shepherd vegna skemmd-
Afganistan:
Babrak Karmal
dregur sig í hlé
Islamabad, AP.
í AFGANSKA útvarpinu var til-
kynnt í gær að Babrak Karmal,
fyrrum leiðtogi Afganistans,
hefði sagt af sér öllum störfum
innan stjórnarinnar og í kommún-
istaflokknum. Sagði að afganska
stjórnmálaráðið hefði Iýst yfir
velþóknun sinni á þvi að Karmal
settist i helgan stein.
í frétt afganska útvarpsins sagði
að Karmal hefði lagt fram afsagnar-
beiðni að eigin frumkvæði. Karmal
var forseti Afganistans og átti sæti
í stjómmálaráðinu.
Ekki var greint frá því hvers vegna
Karmal hefði ákveðið að segja af sér.
Karmal var leiðtogi landsins þar
til Najibullah tók við af honum fyrr
á þessu ári. Benti þá ýmislegt til
þess að Sovétmenn væm orðnir óþol-
inmóðir vegna þess hversu illa gengi
að bijóta andspymu skæmliða á bak
aftur.
Virðist sem nú hafi tekist að fullu
að koma Karmal frá völdum.
Lindbergh-mál-
ið endurvakið?
San Francisco, AP.
TAKA á upp aftur hið 50 ára
gamla dómsmál varðandi ránið
og morðið á syni Lindberg-
hjónanna, að þvi er nefnd f San
Francisco, er hefur það hlut-
verk að kanna slík deilumál
telur.
Nefndin „The San Francisco
Court of Historical Review and
Appeals", komst að þessari niður-
stöðu á miðvikudag, eftir að hafa
hlustað á frú Hauptman, ekkju
þess manns er tekinn var af lífí,
fyrir bamsmorðið fyrir 50 ámm
og lögmann hennar Robert Bryan.
Bryan heldur því fram, að í ljós
hafi komið nýjar upplýsingar er
bendi til þess, að Hauptman hafi
ekki framið morðið.
George Choppelas, dómari,
sagði er niðurstaða nefndarinnar
var kynnt, að þetta væri ábend-
ing, yfírvöld í New Jersey ríki,
þar sem morðinginn var dæmdur,
væm þeir aðilar er réðu því hvort
málið yrði tekið upp aftur eður ei.
arverka á eignum Hvals hf. á
dögunum. Samtökin hafa lýst
ábyrgð á skemmdarverkunum.
Frydenlund sagði sömu þjóðir íhuga
aðgerðir til að hindra að skemmdar-
verk af þessu tagi verði endurtekin.
Hans Holmer viðurkennir það nú
opinskátt, að of seint hafí verið
gengið til verks við að afgirða morð-
staðinn við Sveavægen í miðborg
Stokkhólms nóttina milli 28. febrú-
ar og 1. marz, þrátt fyrir það að
lögreglan vissi innan 15 mínútna
frá morðinu, að það var forsætis-
ráðherra landsins, sem hafði verið
myrtur.
Holmer hefur hins vegar látið í
ljós mikla gremju yfir því, hve mjög
margir stjómmálamenn og fjölmiðl-
ar hafa gagnrýnt lögreglurann-
sóknina í málinu. Heldur hann því
fram, að engir lögfræðingar eða
stjómmálamenn geti leyst morðgát-
una, ef lögreglan geti það ekki.
Sú gagnrýni hefur komið fram á
þjóðþinginu, að rannsóknin hafi
leitt til þess, að sala fíknefna fari
nú hindrunarlaust fram á götum
og torgum Stokkhólms. Ástæðan
sé sú, að fíkniefnalögreglan hafí
mátt sjá á eftir mörgum af dug-
mestu mönnum sínum til þess að
vinna að rannsókn morðmálsins.
DerSpiegel:
Réttlætanlegt að fóma
fólki fyrir „bróður hval“
- er haft eftir Paul Watson
„Dýravemdunarsinnar gerast róttækir. í Reykjavikurhöfn var tveim-
ur hvalbátum sökkt tíl botns.“ Þannig hefst grein, sem birtist í
vestur-þýska timaritinu Der Spiegel í þessari viku. Þar er réttmæti
slíkra aðgerða dregið í efa og Paul Watson líkt við hugmyndafræði-
lega andstæðinga sína. Fer hér á eftir útdráttur úr greinni.
„Paul Watson hefur áður látið
til skarar skríða gegn „dýramorð-
ingjunum", eins og hann kallar þá.
Watson kveðst vera róttækur. Hann
hefur aldrei farið í launkofa með
að hann skirrist ekki við að beita
ofbeldi til að knýja fram vemdun
dýra.
Morrisey Johnson. Nestor kanadí-
skra selveiðimanna, dregur ekki dul
á það að Watson og félagar hans
séu „morðingjar að upplagi". Vorið
1983 sat Watson fyrir veiðibátum
á skipi sínu „Sea Shepherd 11“ und-
an Nýfundnalandi. Þegar bátamir
birtust setti Watson á fulla ferð og
ætlaði að sigla á þá. Þessi árás var
hvorum tveggju lífshættuleg. Um
borð í skipunum frá Nýfundnalandi
var ekki aðeins eldfím olía, heldur
einnig skotfæri og dýnamít til að
sprengja göt í ísbreiðuna.
Kanadískri víkingasveit tókst að
fara um borð í „Sea Shepherd II“,
þrátt fyrir að skipið væri vafið raf-
mögnuðum gaddavír, og handtaka
áhöfnina. Skipstjórinn var ekki
handtekinn fyrr en degi síðar við
landamæri Kanada að Bandaríkjun-
um. Hann hafði komið sér frá borði
áður en kanadíska lögreglan kom
á vettvang.
Tæpara stóð þegar Watson sigldi
skipi sínu á spánska hvalveiðiskipið
„Sierra" undan ströndum Portúgal
árið 1979. Honum var fullljóst að
um 39 Afríkubúar vom í áhöfn
„Sierra“. Engu að síður sökkti
Watson skipinu. Tilviljun réði því
að ekki hlaust manntjón af. „Si-
erra“ sökk nokkrum mínútum eftir
að áhöfnin hafði forðað sér í björg-
unarbátana.
Þessi aðgerð minnir óþyrmilega
á aðferðir hugmyndafræðilegra
andstæðinga Watsons. 10. júlí í
fyrra sökktu útsendarar frönsku
leyniþjónustunnar (DGSE) skipi
umhverfísvemdarsamtakanna
„Greenpeace" í höfninni í Auckland
á Nýjasjálandi. Hollenskur ljós-
myndari af portúgölskum uppruna,
Femando Pereira, lét lífíð þegar
skipið sprakk í loft upp.
Þama má þó gera skýran grein-
armun. Frakkamir vissu ekki betur
en enginn væri um borð í skipinu
þegar sprengjan sprakk. Watson
lýsti aftur á móti yfir því eftir að
„Sierra" var sökkt að það væri til
vinnandi að fóma mannslífum til
að forða „bróður hval“ frá því að
deyja fyrir hendi veiðimanna. Og
MUnchen AP.
BERNARD W. Rogers, æðsti
yfirmaður herafla NATO,
sagði í gær, að samningar
milli austurs og vesturs um
að flytja allar meðaldrægar
kjamorkueldflaugar burt frá
Evrópu myndu verða „hættu-
legir öryggi" álfunnar.
þessi voru rökin: „Spumingin er sú
hvort hugmyndir þínar um góðan
málstað séu einhvers virði ... þú
gefst ekki upp á r.iiðri leið.“
Paul Watson kveðst hafa bjargað
lífí 200 hvala með því að sökkva
bátunum í Reykjavíkurhöfn. Það
er fallegur draumur því að hvalver-
tíðinni er nýlokið. Og viðgerð
bátanna verður löngu lokið þegar
vertíð hefst að nýju á næsta ári.“
Rogers sagði þetta í ræðu, sem
hann flutti í svonefndri Hans
Seidl-stofnun, sem er rannsókn-
arstofnun í Miinchen. Kvaðst
Rogers telja, að svokölluð „núll-
lausn“ yrði til þess að setja
Atlantshafsbandalagið í verri að-
stöðu en það hefði verið í á
síðasta áratug áður en bandalag-
ið ákvað að koma meðaldrægum
eldflaugum fyrir í Vestur-Evr-
ópu.
Núll-lausnin vara-
söm fyrir V-Evrópu
- segir Rogers, yfirmaður herafla NATO
Reagan Bandaríkjaforseti og
Gorbachev, leiðtogi Sovétríkj-
anna, ræddu um það á fundi
sínum á íslandi í síðasta mánuði
að útrýma meðaldrægum eld-
flaugum í Austur- og Vestur-
Evrópu og fækka fjölda hvors
risaveldisins um sig í Asíu og
meginlandi Bandaríkjanna af
langdrægum kjamorkueldflaug-
um niður í 100. Ekkert samkomu-
lag náðist þó um þetta á
fundinum.
Símamynd/AP.
Anne Hauptmann, ekkja Bruno Hauptmann, fyrir réttínum í San
Francisco. Að baki henni er mynd af eiginmanni hennar.
Rogers sagði í Munchen, að
brottflutningur meðaldrægra eld-
flauga frá Evrópu myndi hafa í
för með sér „töluverða áhættu“
fyrir þjóðir Vestur-Evrópu.