Morgunblaðið - 09.12.1986, Síða 86
86
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
Málverkauppboð í Kaupmannahöfn:
Þrjú íslensk mál-
verk eru á uppboðinu
ÞRJÚ islensk málverk eftir Jó-
hannes Kjarval, Jón Stefánsson
og Kristínu Jónsdóttur verða
boðin upp i dag hjá uppboðs-
fyrirtækinu Arne Bruun Ras-
mussen i Kaupmannahöfn.
Uppboðið á íslensku málverkun-
um verður klukkan 13 í dag.
Málverkin eru Þingvallamynd eftir
Kjarval, sem metin er á 80-90.000
danskar krónur eða um 430.000 til
480.000 íslenskar krónur, Uppstill-
ing með eplum og könnu á borði
eftir Jón Stefánsson sem metið er
á 50-70.000 danskar krónur eða
um 270-370.000 íslenskar krónur,
og Goðafoss eftir Kristínu Jóns-
dóttur sem metið er á 8-12.000
danskar krónur eða um 42-63.000
íslenskar krónur.
Málverkið Uppstilling með eplum
og könnu á borði eftir Jón Stef-
ánsson sem verður boðið upp i
Kaupmannahöfn i dag.
•y
Kiúnda af bestu
gerð og sérstakiega
faliegurfrágangur.
Ekta siikisatín,
undurmjúkt og létt.
Náttúruefni sem
„andar“.
Pósthússtræti 13, sími 22477,
í hjarta Reykjavíkur á homi Pósthússtrætis og Kirkjustrætis.
síður og
1
OB AUGtySINQAÞlONUSTAN / SIA
Alþýðubandalagið á Suðurlandi leggur fram lista:
Margrét Frímanns-
dóttir í efsta sæti
MARGRÉT Frimannsdóttir
oddmlisviti á Stokkseyri mun
skipa efsta sæti á framboðslista
Alþýðubandalagsins á Suðurl-
andi fyrir næstu alþingiskosning-
ar en framboðslisti flokksins var
samþykktur á kjördæmisþingi
flokksins um helgina i framhaldi
af forvali sem var 4. og 5. des-
ember. Margrét tekur sæti
Garðars Sigurðssonar sem verið
hefur alþingismaður Alþýðu-
bandalagsins á Suðurlandi síðan
1971 en gaf ekki kost á sér í
þetta skipti.
í forvalinu greiddu 199 flokks-
bundnir Alþýðubandalagsmenn
atkvæði og voru gild atkvæði 193,
en 288 voru á kjörskrá. Úrslit urðu
þau að Margrét fékk 157 atkvæði
í efsta sætið sem var 81% greiddra
atkvæða, en alls fékk Margrét 182
atkvæði. Ragnar Óskarsson kennari
og forseti bæjarstjómar Vest-
mannaeyja fékk 122 atkvæði í 1.-2.
sætið, Unnar Þ. Böðvarsson skóla-
stjóri í Reykholti í Biskupstungum
fékk 56 atkvæði í 1.-3. sæti, Mar-
grét Guðmundsdottir bóndi Vatns-
garðshólum í Mýrdal fékk 78
atkvæði í 1.-4. sæti, Anna Kristín
Sigurðardóttir forstöðumaður, Sel-
fossi, fékk 55 atkvæði í 1.-5. sæti,
og Elín Björg Jónsdóttir skrifstofu-
maður, Þorlákshöfn, fékk 73
atkvæði í 1.-6. sæti.
Úrslit forvalsins voru látin ráða
röð sex efstu manna á framboðs-
iista flokksins en sæti 7 til 12 skipa:
7. sæti: Þorsteinn Gunnarsson
blaðamaður, Vestmannaeyjum; 8.
sæti: Hilmar Gunnarsson verka-
maður, Kirkjubæjarklaustri; 9.
sæti: Hansína Stefánsdóttir skrif-
stofumaður, Selfossi; 10. sæti: Dóra
Kristín Halldórsdóttir bóndi, Snjall-
steinshöfða; 11. sæti: Amór Karls-
son bóndi, Biskupstungum; 12.
sæti: Þór Vigfússon skólastjóri,
Selfossi.
Mjög ánægð með
úrslitin og listann
- segir Margrét Frímannsdóttir
„ÉG er mjög ánægð með úrslitin
og listann og tel hann vera sterk-
an,“ sagði Margrét Frímanns-
dóttir varaþingmaður og oddviti
á Stokkseyri en hún varð í efsta
sæti í forvali Alþýðubandalags-
ins á Suðurlandi um framboðs-
listann fyrir alþingiskosningar-
nar í vor.
„Ég á von á því að baráttan verði
hörð á Suðurlandi," sagði Margrét.
Ég trúi því samt að Alþýðubanda-
lagið haldi sínu hér þó það sé erfítt
að segja fyrir um það.“
- Telur þú að það hafí skaðað
Alþýðubandalagið á Suðurlandi að
hafa ekki lengur Vestmannaeying
í fyrsta sætinu?
„Það hefur ef til vill áhrif í Vest-
mannaeyjum þvi Garðar Sigurðsson
hafði mikið persónufylgi. En
kannski styrkist flokkurinn uppi á
landi í staðinn," sagði Margrét
Frímannsdóttir.