Morgunblaðið - 12.12.1986, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
Trunt, trunt ogtó-
bak í fjöllunum
Hugleiðingar vegna jómfrúrræðu varaþingmanns heilbrigðisráðherra
eftir dr. Þorstein
Blöndal
Eins og fram kom í grein í Morg-
unblaðinu 2. desember 1986 (Nátt-
tröll í samtímanum) mælti Bessí
Jóhannsdóttir nýlega fyrir tillögu
til þingsályktunar um afnám einok-
unar ríkisins á innflutningi og sölu
áfengis og tóbaks (164. tillaga til
þingsályktunar). Rökstuðningurinn
er kostnaður við birgðahald ríkis-
ins, en einnig er vísað til að stefna
stjórnarinnar sé að draga úr umsvif-
um ríkisins.
Vorið 1985 flutti þáverandi flár-
málaráðherra frumvarp til laga,
sem fólk í sér afnám einkasölu ríkis-
ins á tóbaki. Frumvarpið varð aldrei
að lögum vegna þess að í meðförum
þingsins kom í ljós að hugmyndin
var vanhugsuð og hefði aldrei átt
að koma fram.
Tóbak (og reyndar einnig áfengi)
er engin venjuleg vara og um það
mega ekki gilda venjulegar við-
skiptareglur eins og Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin hefur bent á.
Ég vil nú rekja helstu röksemdimar
fyrir þessu.
Innflutningur: Tóbakstegund-
um mun fjölga, ef innflutningur
verður gerður fijáls. Eftirlit með
innflutningi verður erfiðari, ef toll-
afgreitt verður um allt land, en
eftirlit er nauðsynlegt til að unnt
sé að fylgja reglugerð um viðvaran-
ir á tóbaki. Erfiðara verður að kveða
á um hámark skaðlegra efna í tób-
aki. Torveldara verður að hamla
gegn innflutningi nýrra tóbaksteg-
unda eins og lyktblandaðs neftób-
aks og grisjutóbaks.
Framleiðsla: Ef einkaréttur
ríkisins á framleiðslu tóbaksvara
verður afnuminn skapast möguleik-
ar á auknum tóbaksiðnaði innan-
lands og þar með væru atvinnusjón-
armið farin að vinna gegn
tóbaksvömum.
Dr. Þorsteinn Blöndal
Verð og sala: Ekkert er minnst
a'verðlagningarstefnuna í þessum
tillögum, en verðið hefur afgerandi
Commodore
FER SIGURFOR
UM ALLAN HEIM
Yfir 6.000.000 eintaka seldar
Heimilistölvan sívinsæla fæst nú í nýjum
búningi, og jafn fjölhæf sem fyrr
GLÆSILEG JÓLAGJÖF
Á GÓÐUVERÐI
ÁRMÚLA11 SlMI 681500
ÚTSÖLUSTAÐIR: REYKJAVlK: Þór hf„ Armúla 11 Bókabúð Braga við Hlemm HAFNARFJÖRÐUR: Kf. Hafnfirðinga HVOLSVÖLLUR: HÖFN: EGILSSTAÐIR: Kf. Rangæinga Kf.A Kf. Hóraösbúa AKUREYRI SAUÐÁRKRÓKUR: BLÖNDUÓS: ISAFJÖRÐUR: KEA - Hljómdeild Kf. Skagfiröinga Kf. Húnvetninga Póllinn
KEFLAVlK: Stapatell hf. REYÐARFJÖRÐUR: Kf. Héraðsbúa BORGARNES: Kf. Borgfirðinga
VESTMANNAEYJAR: Kjarni sf. SEYÐISFJÖRÐUR Stálbúðin AKRANES: Bókaskemman
„Eftir seinna heims-
stríðið myndaðist hér
því miður mjög sterk
reykingahefð og varla
er nokkur fjölskylda í
landinu, sem ekki hefur
fengið að kenna á af-
leiðingum þess.
Reykingar eru gegn
hagsmunum almenn-
ings og ríkisins og það
ber að vinna áfram
gegn þeim á þeirri
braut, sem tóbaks-
varnalögin marka.“
áhrif á neysluna eins og athuganir
landlæknis hafa sýnt. Frjáls sam-
keppni í smásölu og heildsölu leiðir
til samkeppni og lægra verðs. Lágt
verð leiðir til aukinnar sölu, ekki
síst til unglinga, og freistar þeirra,
sem ekki reykja. A íslandi eru tób-
aksauglýsingar ekki leyfðar, og
þarf ekki mikla framsýni til að sjá
hvemig frjáls innflutningur á hvaða
tóbaki sem er yrði til að ákvæðin
um auglýsingar yrðu þverbrotin.
Tóbaksvarnir: Með samþykkt
tóbaksvamalaga vorið 1984 var
mótatkvæðalaust mörkuð sú stefna
að „draga úr tóbaksneyslu og þar
með því heilsutjóni, sem hún veldur
og vemda fólk fyrir áhrifum tóbaks-
reyks". Lögin vom rós í hnappagat
heilbrigðisráðherra og á síðasta ári
féll hundraðshluti fullorðinna
reykingamanna um 6% hjá körlum
en 3% hjá konum. Svo mikið fall
hefur aldrei mælst áður og má
tvímælalaust rekja til laganna.
í Þjóðsögum Jóns Ámasonar er
eftirfarandi tröllasaga: „Einu sinni
vom tveir menn á grasafjalli. Eina
nótt lágu þeir báðir í tjaldi saman.
Svaf annar, en hinn vakti. Sá þá
hinn er vakti, að sá sem svaf skreið
út. Hann fór á eftir og fylgdi hon-
um, en gat naumast hlaupið, svo
að ekki drægi sundur með þeim.
Maðurinn stefndi upp til jökla. Hinn
sá þá hvar skessa mikil sat þar upp
á jökulgnípu einni. Hafði hún það
atferli, að hún rétti hendumar fram
á víxl og dró þær svo upp að bijóst-
inu og var hún með þessu að heilla
manninn til sín. Maðurinn hljóp
beint í fang henni og hljóp hún þá
burt með hann. Ári síðar var fólk
úr sveit hans á grasafjalli á sama
stað; kom hann þá til þess og var
fálátur og ábúðarmikill, svo varla
fékkst orð af honum. Fólkið spurði
hann, á hvem hann tryði og hann
sagði þá trú á guð. Á öðm ári kom
hann aftur til sama grasafólks. Var
hann þá svo tröllslegur að því stóð
ótti af honum. Þó var hann spurð-
ur, á hvem hann tryði, en hann
svarði því engu. í þetta sinn dvaldi
hann skemur hjá fólkinu en fyrr.
Á þriðja ári kom hann enn til
fólksins; var hann á orðinn hið
mesta tröll og illilegur mjög. Ein-
hver áræddi þó að spyija hann að,
á hvem hann tryði, en hann sagðist
trúa á „tmnt, tmnt og tröllin í fjöll-
unum“ og hvarf síðan.
Eftir þetta sást hann aldrei, enda
þorðu menn ekki að vera til grasa
á þessum stað nokkur ár á eftir.“
Fyrsta lýsing á tóbaksreykingum
á íslandi, sem mér er kunnugt um,
er í Reisubók Jóns Indíafara og
sýnir það að víst létu Islendingar
snemma heillast af tóbakströllinu.
Eftir seinna heimsstríðið myndaðist
hér því miður mjög sterk reykinga-
hefð og varla er nokkur fjölskylda
í landinu, sem ekki hefur fengið að
kenna á afleiðingum þess. Reyking-
ar em gegn hagsmunum almenn-
ings og ríkisins og það ber að vinna
áfram gegn þeim á þeirri braut, sem
tóbaksvamalögin marka.Þannig
komast íslendingar smám saman
úr tröllahöndum, en þingmenn
verða þá að varast að styðja 164.
tillögu til þingsályktunar.
HOfundur er yfirlæknir á lungna-
og berklavarnadeiid Heilsuvemd-
arstOðvar Reykjavíkur og fulltrúi
Hjarta verndar I tóbaksvaraa-
nefnd.