Morgunblaðið - 12.12.1986, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
Tvær góðar
Toma 35 mm myndavélar
á einstaklega hagstæðu verði
Toma AW 818 (sjálfvirk)
Litir: Svart,
rautt, silfur.
Aðeins 4.200 kr.
Toma AF 35 (Manual)
Litir: Svart,
rautt, gylit,
bleikt.
Aðeins 2.800 kr.
Ársábyrgð
FRAMKÖLWN
A'niimiiiiii
%*iwm*r**w**M
AusniFsmmn zst <- # 021300
(Sendum í póstkröfu)
Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsóknar. Stjómandi er Robert Darling.
Aðventuhátíð í Hverafferðiskirkiu
Hveragerði. ° V
Aðventuhátíð var haldin í Hveragerðiskirkju annan sunnudag í
aðventu. Þar komu fram tvær lúðrasveitir, tveir kórar og ung stúlka
lék einleik á orgel kirkjunnar. Sóknarpesturinn séra Tómas Guð-
mundsson fiutti ávarp og stjórnaði því sem fram fór. Kirkjan var
troðfull af gestum. Að lokinni athöfninni var boðið kirkjukaffi.
Séra Tómas Guðmundsson hafði
allan undirbúning á hendi fyrir
þessa velheppnuðu aðventuhátíð og
sijómaði henni. Lúðrasveit Þorláks-
hafnar lék nokkur lög undir stjóm
Róberts Darling. Því næst söng
Skólakór Hveragerðis og var sami
stjómandi. Þá lék Skólahljómsveit
Hveragerðis, stjómandi var Krist-
ján Ólafsson. Ung stúlka, Kristín
Anna Þórarinsdóttir, lék einleik á
orgel kirkjunnar. Kirkjukór Hvera-
gerðis- og Kotstrandarsókna söng
sex lög undir stjóm Róberts Darl-
ing.
Að lokum sungu báðir kóramir
við undirleik beggja lúðrasveitanna
og tóku kirkjugestir undir í sálmin-
um fagra „Heims um ból“.
Hvert sæti var skipað í kirkjunni
og stemmningin góð á þessari hátíð-
arstund. Að henni lokinni buðu
safnaðarsystur kaffí og smákökur
af miklum myndarskap að venju.
Fréttaritari Mbl. hitti sóknar-
prestinn að lokinni athöfninni og
spurði hvort hann hefði frá nokkru
sérstöku að segja frá kirkjustarfínu.
Hann svaraði: „Já, nú í haust kom-
um við Trúmann Kristjansen
skólastjóri bamaskólans okkar
saman um að skólabörnin kæmu í
heimsókn í kirlquna og fengju þar
fræðslu. Þetta var svo gert síðustu
tvær vikumar í nóvember. Kom
hver kennari með sína bekkjardeild
í tveggja stunda heimsókn. Fjallað
var um trúmál og kirkjusiði og
margt fleira. Einnig var rætt um
frið í heiminum og vildum við undir-
strika áhrif friðarársins sem er að
líða og hefur verið heldur hljótt um.
Vom þessir heimsóknartímar sér-
lega ánægjulegir. Fyrsta sunnudag
í aðventu komu svo öll skólabömin
til messu í kirkjunni ásamt mörgum
foreldrum. Vom sálmamir valdir
við bama hæfí og tóku þau virkan
þátt í sögnum. Tólf ára böm tóku
þátt í flutningi talaðs orðs.“
Að svo búnu kvaddi ég og hélt út
í kuldann og hálkuna, ánægð og
með yl í sálinni eftir góða stund í
kirkjunni. Sigrún.
Barnakór grunnskóla Hveragerðis. Stjórnandi er Robert Darling.
FRAMLAG OKKAR TIL JÓLABAKSTURSINS í ÁR,
KÓKOSBOLLUKREM OG TERTUKREM
/ tilefni jólanna gef-
um við nú 20%
afslátt af kókos-
bollukremi og tertu-
kremi.
Áður kr. 75.-
Nú kr. 59,50.
Fæst í næstu matvöru■
verslun
V A L A
1