Morgunblaðið - 12.12.1986, Blaðsíða 80
.STERKT B3RT.
FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
VEItt) í LAUSASÖLU 50 KR.
Fjárlög
hækka um
448 millj-
ónir króna
ÖNNUR umræða um fjárlög
fyrir árið 1987 fer fram í
sameinuðu þingi í dag.
Meirihluti fjárveitinga-
nefndar hefur þegar sent
frá sér 104 breytingartillög-
ur, sem samtals feia í sér
hækkun fjárlaga um 448
milljónir króna. Búist er við
að meirihlutinn komi fram
með fleiri breytingartillög-
ur fyrir þriðju umræðu, sem
verður í næstu viku, og er
liklegt að þá verði hækkunin
orðin um 600 milljónir
króna.
í breytingartillögum meirihlut-
ans er gert ráð fyrir um 24 millj-
ón króna hækkun til byggingar
grunnskóla og íbúða fyrir skóla-
stjóra; um 23 milljón króna
hækkun til byggingar dagvistar-
heimila; um 57 milljón króna
hækkun til byggingar sjúkrahúsa,
heilsugæslustöðva og læknisbú-
staða og um 58 milljónir króna í
'hafnarmannvirki og lendingar-
bætur.
Hafrannsóknarstofnun:
Morgunblaðið/Þorkell
Sjá frásögn á bls. 41.
Blysför á Austurvelli
Skammdegisvöku Þroskahjálpar og Öryrkjabandalagsins í gær lauk með blysför um Austurvöll.
Fullkomin tilraunaeldis-
stöð byggð í Grindavík
Grindavik.
Hafrannsóknarstofnunin hefur sótt um leyfi til bæjar-
yfirvalda í Grindavík til að byggja 280 fermetra stálgrind-
arhús á athafnasvæði Islandslax undir fullkomna
tilraunaeldisstöð.
Bílstjórar á Þrótti:
Vilja fella
samningana
Á FUNDI bílstjóra Sendibíla-
stöðvarinnar Þróttar í Reykjavík
í gærkvöldi var einróma sam-
þykkt áskorun á stjórn og
trúnaðarmannaráð Landssam-
bands vörubifreiðastjóra að fella
nýgerða kjarasamninga ASÍ og
Að sögn Bjöms Bjömssonar
fiskifræðings, sem hefur haft yfír-
umsjón á tilraunum á lúðueldi,
verður þessi stöð byggð í fram-
haldi af lúðueldinu sem hófst í
vor, en verður eingöngu á vegum
Hafrannsóknarstofnunarinnar. „í
stöðinni á að vera fullkomin að-
staða fyrir stjómun umhverfís-
þátta sjávardýra, m.a. hita og
seltusagði Biöm. „Tilraunimar
verða gerðar með tilliti til fiskeldis
í sjó og einnig til að afla upplýs-
inga í fískifræði. Fyrst í stað
munum við einbeita okkur að lúð-
unni, enda teljum við hana vænleg-
asta nýja fískinn í fískeldinu. Sami
háttur verður með söfnun smálúðu
og verið hefur af smábátum. Þá
verða gerðar tilraunir með lax í
sjó og könnuð áhrif á ýsu þegar
hún smverur í e-eemum trollmöskva.
Því er haldið fram að hún missi
hreistur og drepist en okkur langar
til að kanna hvort þetta reynist
rétt. Kannaður verður kjörhiti fyr-
ir ýmsar físktegundir og hrygg-
leysingja með tilliti til vaxtahraða,
en auk þess athugum við ýmsar
gerðir af fóðri. Áætlaður kostnaður
við uppsetningu stöðvarinnar og
búnaðar er um 6 milljónir króna
og hugmyndin að hægt verði að
taka hana í notkun næsta sumar."
í eitt kerið. Af 122 lúðum í því
keri hefðu aðeins þijár drepist á
tveim mánuðum. Þær braggast vel
og sárin undan veiðarfærunum
gróa vel.
Kr. Ben.
Skreiðarmálið:
Uppskipun á
að hefjast í dag
Skreiðarsvikamálið í Nígeríu
er nú til lykta leyst. Árni Bjarna-
son, starfsmaður íslenzku
umboðssölunnar, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að skipið væri
nú laust og líkiega yrði byijað
að skipa skreiðinni upp í dag.
Verðmæti skreiðarinnar er talið
um 280 milljónir króna.
Ámi sagði, að búið væri að semja
um sölu á þessum 35.000 skreiðar-
pökkum, sem málið snérist um og
í gær hefði verið unnið að því að
fá opnaðar ábyrgðir í nærum
(nígeríska gjaldmiðlinum) og búizt
hefði verið við því að það yrði búið
fyrir daginn í dag. Uppskipun á
skreiðinni ætti því að geta hafizt í
dag, föstudag. Hann sagði skilaverð
verða svipað og áætlað hefði verið
er skipið sigldi utan síðla sumars.
Kostnaður vegna tafarinnar kæmi
ekki á seljendur, heldur kaupendur
í Nígeríu og þá, sem valdið hefðu
töfínni á sölu skreiðarinnar.
Að lokum sagði Björn að lúðu-
eldið, sem byijaði síðastliðið vor,
gengi vel eftir að þeir settu sand
Fjármálaráðherra:
Hættir við sexhundruð
milljón króna orkuskatt
ÞORSTEINN Pálsson fjár-
málaráðherra hefur ákveðið
að falla frá orkuskattinum
sem gert hafði verið ráð fyrir
í fjárlagafrumvarpi fyrir árið
1987. Akveðinn skatt átti að
leggja á allt innflutt elds-
neyti, svonefndan orkuskatt,
sem skila myndi rikissjóði sex-
hundruð milljónum króna á
næsta ári.
„Ég hef ákveðið að falla frá
þessari skattlagningu, vegna
þeirra fyrirheita sem gefín voru
í tengslum við kjarasamningana
á dögunum," sagði fjármálaráð-
herra í samtali við blaðamann
Mbl. í gær.
Þorsteinn sagði að útilokað
hefði verið að afla tekna með
þessum hætti eftir að loforð var
gefíð um að verðlagshækkanir á
opinberri þjónustu og óbeinum
sköttum færu ekki fram úr al-
mennum verðlagsbreytingum á
næsta ári. Þessi orkuskattur
yrði því ekki lagður á.