Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 1
64 SIÐUR STOFNAÐ 1913 l.tbl. 75. árg. LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Áramótin í Noregi: Eldsvoðar og slys á mönnum Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins í Osló. NORÐMENN eru einstaklega kærulausir í meðferð flugelda, að sögn Jan Erik Thoresen, yfir- manns norsku brunamálastofn- unarinnar. Aramótafagnaðurinn reyndist mörgum æði dýrkeypt- ur og fjölmargir slösuðust. í Bergen kviknaði í hári konu einnar þegar drukkinn nágranni hennar skaut að henni rakettu. Konunni tókst að slökkva eldinn af eigin rammleik en hún brenndist illa. í Drammen skammt frá Osló gerðu drukknir unglingar flugelda- árás á lögreglumann. Ungmennin skutu flugeldunum að manninum úr tveggja til þriggja metra íjar- lægð og brenndist hann illa á hálsi. í Kristiansand kviknaði í íbúð þegar íbúamir hugðust komast hjá því að fara út í kuldann og afréðu að skjóta flugeldunum upp um skor- steininn. Flugeldarnir fuðmðu upp í aminum og íbúðin gjöreyðilagðist. Sex íjölskyldur misstu heimili sín í Bæmm skammt frá Osló þegar rak- ettu var skotið inn um glugga á fjölbýlishúsi með þeim afleiðingum að það brann til kaldra kola. Jan Erik Thoresen segir nauð- synlegt að herða viðurlög við gáleysislegri meðferð flugelda. Þær raddir hafa heyrst að banna beri sölu þeirra í Noregi en yfirmenn brunamála telja það óraunhæft því þá myndi almenningur taka að framleiða eigin flugelda með ófyrir- sjáanlegum afleiðingum. Chad: Stjórnin ræðst gegn líbýskum hersveitum Líbýumenn neita aðild að átökunum Morgunblaðið/Ámi Sæberg Flugeldar yfir Reykjavík Mikið var um dýrðir um áramótin og minnast skeið. Ekki sakaði að veður var gott og skyggni Reykvíkingar þess ekki að hafa séð aðra eins ágætt. Allt fór vel fram um áramótin og var flugeldasýningu yfir höfuðborginni um langt fátt um slys. Kína: Námsmenn halda áfram mótmælum Ndjamena, London, Reuter. STJÓRN Chad lýsti yfir því í gærkvöldi að hersveitum hennar hefði tekist að ná á sitt vald bænum Fada, sem er við vin í eyðimörkinni i norðausturhluta landsins. Moumine Hamidi, upplýsingaráð- herra Chad, sagði að bærinn væri nú algerlega á valdi stjómarhers- ins, en bætti því við að líbýskar hersveitir hefðu setið þar ásamt uppreisnarmönnum þijú undanfarin ár. Að sögn Hamidi hrekja nú stjóm- arhermenn hersveitir Líbýumanna brott. Útvarpið í Chad greindi fyrr um daginn frá miklum bardögum í útjaðri bæjarins. í tilkynningu frá hernum sagði að hermenn stjórnar- innar væm staðráðnir í að bijóta FYLKISSTJÓRI Puerto Rico sagði í gær að ýmislegt benti til þess að kveikt hefði verið í hót- eli, sem brann í borginni San Juan á gamlárskvöld. Björgunar- menn voru enn að störfum í rústum hótelsins og að sögn yfir- valda á eynni hafa jarðneskar leifar 95 manna fundist þar. Kennsl hafa verið borin á 27 fórnarlömb eldsvoðans. Að sögn yfirvalda getur verið að hundrað menn hafí orðið eldi að bráð í hótel- miskunnarlaust á bak aftur hemað- arbrölt Moammars Gadhafy leið- toga Líbýu. Átökin við Fada sigla í kjölfar ormstu um borgina Zouar, nyrst í Chad. Stjómin sagði á fimmtudag að herinn hefði fellt tugi Líbýu- manna í átökum þar á miðvikudag. Bardagar þessir þykja bera því vitni að Hissene Habre forseti hafi nú hafið tangarsókn til að ná aftur norðurhluta Chad á sitt vald. Líbýu- menn sölsuðu norðurhlutann undir sig fyrir þremur ámm. Líbýumenn lýstu yfir því í gær að þeir ættu enga aðild að bardög- unum um Fada. JANA, hin opinbera fréttastofa Líbýu, sagði að Líbýu- menn væm „ekki sekir um íhlutun í þessum landshluta“. inu Dupont Plaza. Miguel Domench, yfirmaður ferðamála á Puerto Rico, sagði í gær að öryggi hefði verið hert i öðmm hótelum í borginni San Juan vegna ásakana opinberra aðilja um að kveikt hefði verið í Dupont Plaza í kjölfar deilna starfsmanna við stjórn hótelsins. Rafael Hernandez Colon, fylkis- stjóri á Puerto Rico, sagði í viðtali við bandarísku sjónvarpsstöðina NBC að starfsmannadeilur í hótel- Peking, AP. UM TVÖ hundruð stúdentar söfnuðust saman í gær við Pek- ing-háskóla og veifuðu kröfu- spjöldum, sem stjórnvöld hafa inu hefðu verið mjög ákafar: „Margt benti til þess að draga myndi til tíðinda í hótelinu, að þar yrðu sprengingar og eldar. Fólki var ráðlagt að halda sig fjarri áður en eldurinn kom upp.“ Embættismenn stéttarfélags hót- elstarfsmanna vísuðu á bug að samband væri milli eldsvoðans og launadeilna. Jafnframt hétu þeir 15.000 dollara launum fyrir vísbendingar um upptök eldsins. 109 menn, sem björguðust úr eldinum, vom fluttir í sjúkrahús. 79 hafa fengið að fara en tveir em taldir í lífshættu. Sjá fréttir á síðu 28. bannað. Þar voru endurbóta- sinnar í stjórninni hvattir til að lýsa yfir skoðun sinni á mótmæl- um stúdenta. Stúdentar fóru í mikla göngu um Peking að kvöldi nýársdags í trássi við bann, sem tók gildi um áramót. „Þögn endurbótasinnanna hefur valdið miklum vonbrigðum,“ sagði á einu mótmælaspjaldinu. „Að minnsta kosti ætti að láta bændur og verkamenn vita að aðgerðir stúd- enta nú beinast hvorki gegn flokkn- um né gegn sósíalisma," stóð á öðm spjaldi. Skömmu eftir miðnætti í gær hundsuðu þúsund stúdentar bann yfirvalda við fundahöldum og fylktu liði við minnisvarða um hetjur al- þýðunnar á Tiananmen-torgi í miðborg Peking. Stúdentarnir höfðu þá gengið í fimm klukku- stundir eftir snævi þöktum götum höfuðborgarinnar. Gripu stúdentar til þessara aðgerða til að mótmæla handtökum stúdenta á fimmtudag. Ganga stúdentanna hófst seint á fímmtudag og fóm þeir þá fimm þúsund saman. Þeir kröfðust þess að 24 stúdentum yrðu leystir úr haldi. Yfirvöld samþykktu en ekki er ljóst hvort öllum var sleppt. Ell- efu þeirra, sem settir höfðu verið í gæsluvarðhald, var tekið sem hetj- um þegar þeir snem aftur á háskólagarðinn við Peking-háskóla eftir miðnætti. Tvö til þijú þúsund manns hylltu þá og bám á öxlum sér. Gangan hélt engu að síður áfram og lauk á áðurnefndu torgi, þar sem stúdentar héldu fyrir í klukkustund. Miðbaugs-Guinea: Átján fórust í flugslysi Madrid, Reuter. SPÖNSK herflugvél, sem var á leið til Spánar frá Mið- baugs-Guineu, hrapaði í hafið undan vesturströnd Afríku í gær. Átján manns voru um borð og fórust allir. Vélin hrapaði skömmu eftir flugtak í Bata, stærstu borg þessarar fyrmm nýlendu Spán- veija. Ellefu spánskir farþegar og fjórir Guineumenn voru um borð ásamt þremur mönnum úr flughernum. Spánveijarnir höfðu verið við trúboðsstörf á eynni. Puerto Rico: Talið að hundrað manns hafi farist í hótelbruna Grunur leikur á íkveikju San Juan, Puerto Rico, AP, Reuter.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.