Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987 63
• Bjarni Friðriksson júdómaður tekur hér við styrk íþróttaráðs Reykjavíkur úr hendi Júlíusar Hafstein.
Bjarni styrktur
myndarlega af
ÍBR, íþróttaráði
og Flugleiðum
c. /
byl
BJARNI Ásgeir Friðriksson júdó-
maður fókk á þriðjudaginn styrki
frá ÍBR, íþróttaráði Reykjavíkur
og Flugleiðum, í hófi sem efnt var
tii að Fríkirkjuvegi 11. Styrkir
þessir gera honum kleift að
stunda œfingar og keppni að full-
um krafti til undirbúnings fyrir
næstu Ólympíuleika.
Á fundi iþróttaráðs Reykjavíkur
27. maí í sumar var lögð fram sam-
kkt stjórnar Styrktarsjóðs íþrótt-
ráðs frá 23. maí varðandi erindi
arna Friðrikssonar júdómanns
um styrk til æfinga og keppnis-
feröa til undirbúnings fyrir næstu
Ólympíuleika. Ennfremur var lagt
Sundmót
ÍÞRÓTTASAMBAND fatlaðra efn-
ir á morgun til hins árlega
Nýárssundmóts fatlaðra barna
og unglinga. Mótið fer fram f
Sundhöll Reykjavíkur og hefst kl.
15.00. Rétt til þátttöku eiga börn
og unglingar fædd 1969 og síðar,
en keppt verður í flokkum blindra
og sjónskertra, þroskaheftra og
hreyfihamlaðra.
fram bréf ÍBR varðandi erindið svo
og æfinga- og keppnisáætlun
Bjarna fram að ÓL.
Fram kemur í samþykkt úthlut-
unarnefndar að stjórnin hafi
samþykkt að styrkja Bjarna með
kr. 125.000 framlagi á ári á árunum
1986, 1987 og 1988 í samvinnu
við ÍBR, sem styrkir hann um sömu
upphæð, og Flugleiðir.
Flugleiðastyrkurinn til Bjarna er
í formi flugmiða. Hann fær 24 af-
sláttarmiða fram til ÓL 1988. Og
þarf hann aðeins að greiða kr.
10.000 fyrir hvern miða, sama
hvert flogið verður.
Bjarni hefur gert ýtarlega æf-
inga- og keppnisáætlun fram að
OL í Seoul. Hann áætlar að taka
þátt í 12 stórmótum erlendis á
árinu, auk þess fer hann þrívegis
í æfingabúðir til Frakklands og
Svíþjóðar. Heimsmeistaramótið í
júdó verður haldið í september og
verður Bjarni auðvitað þar á meðal
keppenda. Á árinu 1988 áætlar
hann að taka þátt í sjö mótum fram
að Ólympíuleikum.
Þessi styrkveiting kemur sér vel
fyrir Bjarna sem nú getur helgað
sig alfarið íþrótt sinni. Hann á
áræðanlega eftir að sanna það enn
Handbolti:
Heil umferð um helgina
KEPPNIN í 1. deild karla á ís-
landsmótinu í handbolta heldur
áfram um helgina aö loknu jóla-
leyfi. í dag verður einn leikur á
Akureyri, en á morgun veröa fjór-
ir leikir, einn f Hafnarfiröi og þrír
f Höllinni.
KA og Fram leika á Akureyri í
dag og hefst leikurinn klukkan
13.30.
Leikur Ármanns og Stjörn-
unnar byrjar í Höllinni klukkan 14
á morgun, en tveir leikir hefjast
klukkan 20. FH og UBK leika í
Hafnarfirði og Valur og Haukar í
Höllinni. Að þeim leik loknum hefst
viðureign KR og Víkings.
STAÐAN eftir 9 umferðir í 1.
deild karla er þessi:
Breiðablik 97 1 1 204:192 15
Víkingur 97 11 211:191 15
FH 96 1 2 228:196 13
Valur 95 1 3 230:199 11
Fram 9504212:195 10
KA 94 1 4 199:210 9
Stjarnan 9 3 1 5 220:225 7
KR 9 3 06 179:203 6
Haukar 9 2 07 188:224 4
Ármann 90 09 179:217 0
frekar hversu góður júdómaður
hann er.
Opaas efstur í
skíðastökkinu
VEGARD Opaas frá Noregi er nú
f efsta sæti heimsbikarsins í
skíðastökki. Hann sigraði í stökki
af 90 metra palli í Oberstdorf í
Vestur-Þýskaiandi á miðvikudag-
inn og hefur nú 90 stig f keppn-
inni. Ernst Wettori, Austurríki, er
í öðru sæti með 87 stig.
Opaas var aðeins í fjórða sæti
eftir fyrra stökkið en stökk 106,5
m í seinna stökkinu og vann Vest-
ur-Þjóðverjann, Thomas Klauser,
með aðeins 0,1 stigi.
Tveir ungir austurrískir
stökkvarar, Harald Rodlauer og
Oliver Strohmaier, áttu lengstu
stökkin í keppninni. Þeir stukku
109 og 107 metra í fyrra stökkinu
en náðu sér ekki á strik í því seinna
og höfnuðu í 8. og 9. sæti.
Eddie Edwards, 22 ára gamall
Englendingur, var fyrstur Breta til
að taka þátt í skíðastökki heims-
bikarsins er hann stökk 65 metra,
sem var lakasta stökk képpninnar.
Hann setti jafnframt nýtt enskt
met í skíðastökki, en gamla metið
var 61 m og var sett fyrir 55 árum.
Staðan í heimsbikarnum er nú
þessi:
Vegard Opaas, Noregi 90
Ernst Vettori, Austurríki 87
Thomas Klauser, V-Þýskalandi 64
Matti Nykaenen, Finnlandi 62
Primoz Ulrga, Júgóslavíu 62
Jens Weissflog, A-Þýskalandi 61
Andreas Felder, Austurriki 47
MiranTepes, Júgóslavíu 39
Findeisen, V-Þýskalandi 38
Jukka Kalso, Finnlandi 38
Andreas Bauer, V-Þýskalandi35
Litla heimsmeistarakeppni
öldunga hefst á morgun
Á MORGUN hefst f Brasilíu litla
heimsmeistarakeppni öldunga í
knattspyrnu, nefnd Pelebikarinn.
Keppnin er opin þjóðum, sem
unnið hafa heimsmeistaratitilinn
tvisvar eða oftar og verða leik-
menn að vera eldri en 34 ára.
Fyrsti leikurinn verður á milli
Brasilíu og Ítalíu, en úrslitaleikur-
inn verður 18. janúar.
AUK fyrrnefndra þjóða taka Ur-
uguay, Vestur-Þýskaland og
Argentína þátt í mótinu. Snillingur-
inn Pele, sem nú er 46 ára, verður
að öllum líkindum aðeins með
Brasilíu í fyrsta leiknum, en gert
er ráð fyrir að Rivelino og Jairzinho
leiki alla leikina. í ítalska liðinu má
nefna Albertosi, Fachetti og Bon-
insegna og helstu stjörnur Þjóð-
verja eru Beckenbauer, Breitner
og Uwe Seller. Villa, Babington,
Kempes og Albrecht leika með
Argentínu og í liði Uruguay eru ’
Forlan, Castillo og Silva, svo ein-
hverjir séu nefndir.
Skíðaganga
í DAG og á morgun klukkan 14
til 15 stendur Skíðafélag
Reykjavíkur fyrir kennslu í skíða-
göngu fyrir almenning við gamla
skálann í Bláfjöllum. Ágúst.«jr
Björnsson kennir og nú er bara
að vona að veðrið setji ekki strik
í reikninginn.
KR-ingaróheppnir:
Hans handarbrotnaði
á móti í Þýskalandi
HANS Guðmundsson handar-
brotnaði f sfðasta leik KR á móti
í Þýskalandi á milli jóla og nýárs
og verður frá æfingum og keppni
um ófyrirsjáanlegan tfma. Hans
og Jóhannes Stefánsson skoruðu
25 mörk hvor á mótinu og urðu
í 3. til 4. sæti yfir markahæstu
menn. Fyrir keppnina hafði Jó-
hann Ingi Gunnarsson, þjálfari
Essen, sagt að Jóhannes myndi
í mesta lagi skora 15 mörk og
ekkert gegn Essen. Veðmál var
sett í gang, þjálfarinn tapaði veð-
málinu og verður að hlaupa 20
hringi í kringum Tjörnina.
Ólafur Jónsson, þjálfari KR, var
mjög ánægður með feröina, en að
sama skapi óhress með að Hans
skyldi meiðast. „Þetta er ein erfið-
asta ferð, sem ég hef farið í, en
hún var mjög skemmtileg og lær-
dómsrík. Það er bagalegt fyrir
okkur að missa Hans aftur, en
hann fékk högg á nákvæmlega
sama blett og í haust, brotið tók
sig upp og hann leikur ekki með
um ófyrirsjáanlegan tíma.
Heilladísirnar hafa svo sannarlega
ekki verið með okkur í vetur, en
við þessu er ekkert að gera.“
Jóhannes Stefánsson vann veð-
mál við Jóhann Inga Gunnarsson,
þjálfara Essen og verður sá síðar-
nefndi að hlaupa 20 hringi t
kringum Tjörnina. Þjálfarinn sagði
að Jóhannes myndi í mesta lagi
skora 15 mörk og þar af 6 af línu,
en ekkert gegn Essen. Jóhannes
varð þriðji markahæsti maður
mótsins, skoraði 25 mörk og þar
af 6 gegn Essen!
KR-ingarnir léku 7 leiki á 5 dög-
um. Þeir töpuðu með nokkrum
mun gegn Essen, Gdansk og Tata-
banja, en áttu að vinna Skoda >
Pilsen, höfðu 2 mörk yfir þegar 4
mínútur voru til leiksloka, en töp-
uðu með einu marki. Þá tóku þeir
þátt í hraðmóti og höfnuðu í 3.
sæti af 6 liðum.
y^SÍXl ÞJÓNUSD GREIÐSLUKORTAÞJC ISLENSKRA GETR Hér eru leikirn Leikir3. janúar1987 na \ DNUSTA AUNA lir!
1 X 2
1 Aston Villa - Nott'm Forest 2 Leicester - Sheffield Wed. 3 Liverpool - West Ham
4 Man. City - Oxford 5 Newcastle - Coventry 6 Q.P.R. - Everton
7 Southámpton - Man. United 8 Wimbledon - Watford 9 Blackburn - Portsmouth
10 Crystal Palace - Derby 11 Sheff. United - W.B.A. 12 Shrewsbury - Ipswich
Hríngdu strax! 688-32! 2
föstudaga kl. 9.00-17:00 laugardagakl. 9.00-13.30