Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANUAR 1987 Fiskverð hækkar um 8% að meðaltali: Hækkunin talin greiða fyrir lausn á yfir- standandi kjaradeilu SAMKOMULAG um hækkun lágmarks fiskverðs að meðaltali um 8% náðist í Verðlagsráði sjávarútvegsins á gamlársdag. Aður höfðu fulltrúar kaupenda, fiskvinnslunnar, náð samkomulagi með odda- manni um 6% hækkun að meðaltali. Að ósk fulltrúa seljenda, sem rökstudd var með því, að hærra verð gæti auðveldað lausn kjara- deilu útvegsmanna og sjómanna, urðu nefndarmenn sammála um að hækka verðið um 8%. Það þýðir um 200 milljónum krónum meiri útgjöld fiskkaupenda en ella hefði orðið með hækkun verðsins um 6%. Eftir þetta verður frysting rekin með tapi, söltun með lítils háttar hagnaði og útgerð með 10 til 11% hagnaði að mati Þjóð- hagsstofnunar. Hún metur jafnframt að með þessu hafi tekjur sjómanna hækkað í samræmi við launataxta verkafólks í landi. útgerðar myndi við þetta batna um 2 til 3% og yrði hún rekin með 10 til 11% hagnaði. Afkoma bátaflot- ans myndi batna eitthvað meira vegna hækkunar á stórum þorski og ufsa umfram meðaltalið. Loks gat Bolli þess, að með þessari hækkun mætti segja að tekjur sjó- manna hefði breytzt frá því í júní á síðasta ári í samræmi við tekjur landverkafólks. Þar með væri talin 2% hækkun á laun í landi í marz- mánuði næstkomandi. Þá væri ekki tekið tillit til hækkunar lægstu launa enda væru laun sjómanna langt yfir lágtekjumarkinu. Hér fara á eftir viðtöl við nokkra af forystumönnum í sjávarútvegi: Samkvæmt ákvörðun yfirnefndar hækkar fiskverð að meðaltali um 8%. Mest hækkar verð á grálúðu eða um 27%. Verð á ufsa yfír 75 sentímetra að lengd hækkar um 20% og 10% á minni ufsa, þorskur hækkar að meðaltali um 7% en stærsti þorskurinn meira, ýsa hækkar um 6% og karfi um 5%. í yfímefnd sátu að þessu sinni Bolli Þór Bollason, aðstoðarforstjóri Þjóðhagsstofnunar sem oddamað- ur, Ami Benediktsson og Friðrik Pálsson af hálfu kaupenda og Kristján Ragnarsson og Oskar Vig- fússon af hálfu seljenda. í bókun nefndarmanna vegna ákvörðunar verðsins segir, að á fundi nefndar- innar þann 30. desember hafí náðst samkomulag um fískverð milli full- trúa kaupenda og oddamanns. Endanlegri afgreiðslu hafí síðan verið frestað til klukkan 11 á gam- ársdag. A fundinum, sem þá hófst, hafí verið ákveðið að sameiginlegri ósk deiluaðila í kjaradeilu útgerðar- manna og sjómanna að taka málið upp að nýju og freista þess að ná allsherjarsamkomulagi, sem greiddi fyrir lausn kjaradeilunnar. Slíkt samkomulag hafí nú náðzt. Bolli Þór Bollarson, aðstoðarfor- stjóri Þjóðhagsstofnunar, sagði í samtali við Morgunbkaðið, að end- anlegt mat á stöðu mála eftir þetta samkomulag lægi enn ekki fyrir. Fyrir þessa breytingu hefði frysting að mati stofnunarinnar verið rekin með 1 til 1,5% hagnaði, söltun með 7 til 8% hagnaði og útgerð með 7 til 8% hagnaði. Eftir þetta virtist staða frystingar versna um 3% og hún yrði því rekin með um 2% tapi. Staða söltunar myndi versna meira vegna verðhækkunar á stærri þorskinum eða um 4,5%. Hún yrði því eftir þetta rekin með 2,5 til 3,5% hagnaði. Vinnslan í heild yrði því rekin um það bil án hagnaðar. Staða Guðjón A. Kristjánsson: Hlýtur að auðvelda útgerð að ganga til kjarasamninga „ÞESSI fiskverðshækkun færir útgerð fyrst og fremst 8% tekju- aukningu við löndun innan lands og hlýtur því að auðvelda lausn Magnús Gunnarsson: Verkfall sjómanna gæti valdið óbætanlegn Ijóni „SÖLTUNIN verður eftir þetta rekin með smávægilegum hagn- aði. Með þessari fiskverðs- ákvörðun var gengið eins langt og unnt var til að liðka fyrir kjarasamningum sjómanna og útgerðarmanna. Við treystum því, að það verði metið og sam- komulag náist. Langt sjómanna- verkfall gæti orðið til óbætanlegt tjóns,“ sagði Magnús Gunnars- son, framkvæmdastjóri Sölusam- bands íslenzkra fiskframleið- enda. Magnús sagði, að fiskvinnslan sýndi með þessari ákvörðun meiri samstarfsvilja en oft áður. Sam- þykki um 8% hækkun í stað 6% gerði útslagið og færi með frysting- una niður fyrir núilið marg umrædda og saltfiskverkun yrði rétt ofan við það. Það væri því kominn tími til að fískvinnslunni yrði gefíð tækifæri til að rétta sig af. á kjaradeilu sjómanna og útvegs- manna. Það lá á borðinu sam- komulag með fulltrúum kaupenda og oddamanni um 6% hækkun fiskverðs. Það tókst að ná 8% hækkun til að liðka fyrir kjarasamningunum. Við teljum að með 8% hækkun fiskverðs hafi sjómenn aðeins fengið upp í það, sem þeir lögðu fiskvinnsl- unni til með 1,7% hækkun fisk- verðs í júní á síðasta ári. Hins vegar hefði fiskverð þurft að hækka um allt að 14% til þess að tekjur okkar hækkuðu hlut- fallslega jafnmikið og kauptaxt- ar fiskvinnslufólks,“ sagði Guðjón A. Kristjánsson, forseti Kristján Ragnarsson: Olíuverð hefur hækkað verulega Friðrik Pálsson: Samþykkt til að liðka fyrir kjarasamningnm „ÁSTÆÐA þess, að við sam- þykktum að hækka fiskverð um 8% en ekki 6% eins og við höfðum reyndar náð samkomulagi um, var fyrst og fremst sú, að við- kvæm deila um kaup og kjör sjómanna stendur yfir. Þar sem ákvörðun um fiskverð lenti á sama tíma, blandaðist þetta sam- an. Eftir að samkomulag um fiskverð lá fyrir þann 30. des- ember óskuðu fulltrúar sjó- manna og útvegsmanna eftir því, að málið yrði tekið upp að nýju og við samþykktum það til að liðka fyrir kjarasamningun- um,“ sagði Friðrik Pálsson, forstjóri Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna. „Útgerðarmenn og sjómenn settu fram ákveðnar óskir um breytingar á samkomulaginu, sem þýddu að verð hækkaði úr 6% í 8% og við, fulltrúar kaupenda, samþykktum þær með smávægilegum breyting- um. Þetta gerðum við í trausti þess, fulltrúar sjómanna og útvegsmanna hafí ekki farið fram á þessa breyt- ingu nema þeir ættu von á, að hún auðveldaði lausn á kjaradeilu þeirra. Þetta skilur frystinguna eft- ir í tapi, en það lá fyrir, að næðist ekki að ákveða fískverð á þessum tíma, hefði það slæm áhrif á kjara- deiluna, sem bitnuðu á fiskvinnslu og fiskverkafólki. Þetta er erfíð aðstaða, en við erum ákveðnir að vinna okkur út úr henni. Það er hins vegar langþráð von, að fryst- ingin fái að sýna hagnað. Það vantar mikið fé til uppbyggingar og tækjakaupa," sagði Friðrik Páls- son. „ÞESSI fiskverðsákvörðun stuðl- ar að lausn kjaradeilu okkar og sjómanna og er mjög jákvæður þáttur í þessu máli. Hins vegar kemur árangurinn í ljós á næstu dögum. Þá verður að geta þess, að verð á hverri lest oliu í Rott- erdam var á gamlársdag 22% hærra en verð á þeirri olíu, sem hér er til í birgðum. Við slíkar aðstæður er samningsstaða út- gerðar erfið,“ sagði Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ. Kristján sagði, að undanfama mánuði hefði verð á olíu verið 115 til 120 dalir á hveija lest. Á að- fangadag hefði það verið komið upp í 137 dali og 148 á gamlársdag. Verð á þeirri olíu, sem til væri í, birgðum hér, væri hins vegar 121 dalur fyrir hveija lest. Mikil óvissa ríkti um frekari þróun verðsins og því væri mjög erfítt fyrir útgerðina að fara að semja um að láta af hendi hluti, sem síðar kæmi í ljós að ekki væri raunhæft. Til þessarar stöðu yrði að taka tillit í núverandi samningum. „Sjómenn hafa með hækkun físk- verðs fengið launahækkanir eins og aðrir. Síðasta ár skilaði þeim meiri tekjum en flest fyrri ár. Þeir hafa notið góðærisins 1986 engu síður en útgerðin," sagði Kristján Ragnarsson. Farmanna- og fiskimannasam- bands Islands. Guðjón sagði, að með hækkun- inni úr 6% í 8% hefði útgerðin fengið um 200 milljóna króna tekju- auka, sem hún hefði alls ekki haft ástæðu til að sækja með fískverðs- hækkun vegna góðrar stöðu. Þess vegna ætti útgerðinni að vera auð- velt að ganga að hógværum kröfum sjómanna, sem fælu í sér að kostn- aðarhlutdeild vegna hás olíuverðs á sínum tíma, yrði skilað til baka, þar sem verðið hefði lækkað aftur. Tækist samkomulag ekki nú í þriggja daga samningalotu, gæti það dregið til harðari deilna sjó- manna og útgerðarmanna en undanfarin ár. „Menn eru að lýsa samningsvilja yfir með því að bíða með aðgerðir gegn þeim útgerðum, sem við telj- um hafa framið verkfallsbrot. Verkfall hófst um allt land um ára- mót, þrátt fyrir hugmyndir Útvegs- mannafélags Vestfjarða um eitthvað annað. Þar hefur nú verið brotin 30 ára gömul hefð, sem felst í því, að formaður félagsins hafi haft fullt umboð til samninga og yfírlýsinga fyrir hönd félagsins. Svo virðist ekki lengur samkvæmt hug- myndum núverandi stjómarmanna félagsins og þegar svo rík hefð er brotin, hlýtur að teljast eðlilegt að tilkynna hana til Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Bylgjunnar, eigi samningar að geta gengið eðli- lega fyrir sig,“ sagði Guðjón A. Kristjánsson. Óskar Vigfússosn: Munar um mismuninn „HÆKKUN fiskverðs um 8% en ekki 6% er innlegg í það, að bet- ur gangi að leysa kjaradeilu útvegsmanna og sjómanna, en ~er þó aðeins lítill hluti dæmisins alls. Ég vildi heldur standa að hækkun verðsins um 8% en að láta 6% hækkun yfir okkur sjó- menn ganga. Það munar um mismuninn, þó hann sé ekki mik- ill,“ sagði Óskar Vigfússon, Árni Benediktsson: Langt gengið til að forða verkfalli „ÞAð er ánægjulegt að sam- komulag allra aðila um fisk- verð skuli hafa náðst. Kaupendur féllust á þessa hækkun fiskverðs fyrst og fremst vegna þess, að hún eyk- ur tekjur sjómanna og i trausti þess, að hún greiddi fyrir lausn kjarasamninga sjómanna og útvegsmanna," sagði Arni Benediktsson, framkvæmda- stjóri Félags Sambandsfrysti- húsa. Ánii sagði, að eftir þetta yrði frystingin rekin með tapi og hefði enga möguleika á því, að ná þessu til baka. Það hefði verið gengið anzi langt til að reyna að forða verkfalli og drætti á því að físk- vinnsla gæti hafízt sem fyrst eftir stopp um jól og áramót. Dráttur á því gæti valdið erfíðleikum á mörkuðum og því að minna færi af físki í frystingu en ella. Kaup- endur treystu því að fískverðs- hækkunin yrði til góðs í þessari erfíðu lq'aradeilu, ella yrðu þeir illa sviknir. formaður Sjómannasambands ís- lands. Óskar sagði, að í endanlegu ákvörðuninni um fískverð væri ekki aðeins um hækkun að meðaltali að ræða, heldur kæmi einnig verð- hækkun á karfa, sem ekki hefði verið í samkomulagi kaupenda og oddamanns og jafnframt meiri hækkun á ufsa. Þó væri langt frá því, að þessi hækkun væri sjómönn- um nægileg; til að laun þeirra fylgdu þróun kauptaxta verkafólks í landi vantaði 4 til 6% upp á. Þar að auki væri nýsamþykkt lágmarks- verð enn undir því verði, sem víða væri greitt fyrir fisk með yfirborg- unum og ylli mjög mismundandi launum sjómanna eftir landshlutum til dæmis. „Nú hefst úrslita samningalotan. Þrátt fyrir aðgerðir útgerðarmanna til að komast framhjá verkfalli hefj- um við nú samninga án kröfu um að skip, sem fóru út með ólöglegum hætti, haldi í land áður en viðræður hefy'ist. Við gerum það að ósk ríkis- sáttasemjara, en að lokinni þessari lotu enim við lausir allra mála,“ sagði Óskar Vigfússon.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.