Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987
7
TVyggingabætur
hækkaum 12%
HEILBRIGÐIS- og tryggmgamálaráðherra Ragnhildur Helgadóttir
hefir sett reglugerð um hækkun bóta almannatrygginga. Hækkunin
er 12% á allar bætur nema á heimilisuppbót. þar er hækkunin 50%.
— Þessi hækkun gildir frá 1. desember 1986.
Eftir þessa bótahækkun verða . Vasapeningar, 19.gr. 4.454.
upphæðir einstakra tegunda bóta yasapeningar, 51.gr. 3.744.
þannig: Á árinu 1986 hafa bætur hækkað
Elli og örorkulífeyrir kr. 7.227. þannig:
Tekjutrygging kr. 10.589. l.mars 5,0%
Heimilisuppbót kr. 4.266. l.júní 3,06%
Bamalífeyrir kr. 4.425. 1. sept. 3,39%
Mæðralaun v/1 bams 2.773. l.des. 4,59%
Mæðralaun v/2ja bama 7.267. Og nú aftur frá 1. desember 12%
Mæðralaun v/3ja bama 12.888. almenn hækkun og 50% hækkun
Fæðingarorlof 32.313. heimilisuppbótar.
18 heiðraðir
á nýársdag
FORSETI íslands sæmdi á ný- Bjamason verkstjóra, Vogum,
ársdag eftirtalda íslenska Vatnsleysuströnd, riddarakrossi
ríkisborgara heiðursmerki fyrir störf að bamavemdarmál-
hinnar íslensku fálkaorðu að um. Magnús Kristinsson forstjóra,
tillögu orðunefndar: Reykjavík, riddarakrossi fyrir
Freyju Bjamadóttur fv. störf í þágu þroskaheftra. Sr. Olaf
talsímavörð, Borgamesi, riddara- Skúlason vígslubiskup, Reykjavík,
krossi fyrir störf að félagsmálum. stórriddarakrossi fyrir störf að
Garðar Óskar Pétursson fv. verk- kirkjumálum. Óskar Jónsson,
stjóra, Reykjavík, riddarakrossi Hjálpræðishemum, Reylq'avík,
fyrir störf í þágu skátahreyfingar- riddarakrossi fyrir félags- og
innar. Geir Borg fv. framkvæmda- líknarstörf. Pétur Sigurðsson fv.
stjóra, Reykjavík, riddarakrossi framkvæmdastjóra, Breiðdalsvík,
fyrir viðskipta- og menningarmál. riddarakrossi fyrir störf að at-
Gísla Sigurbjömsson forstjóra, vinnumálum. Sigurð Jónsson fv.
Reykjavík, stjömu stórriddara framkvæmdastjóra, Reykjavík,
fyrir störf í þágu aldraðra. Guðríði riddarakrossi fyrir störf að at-
Guðmundsdóttur oddvita, vinnumálum. Snjáfríði Jónsdóttur
Skeggjastöðum, Bakkafírði, ridd- fv. matráðskonu, Reykjavík, ridd-
arakrossi fyrir fræðslu- og félags- arakrossi fyrir störf í þágu sjúkra.
málastörf. Harald Hannesson Soffanías Cecilsson útgerðar-
hagfræðing, Reykjavík, riddara- mann, Grundarfirði, riddarakrossi
krossi fyrir varðveislu menningar- fyrir störf að sjávarútvegsmálum.
verðmæta. Dr. Harald Matthías- Sverri Ragnars, stórkaupmann,
son fv. menntaskólakennara, Akureyri, riddarakrossi fyrir störf
Laugarvatni, riddarakrossi fyrir að atvinnu- og félagsmálum. Þór-
fræðistörf. Dr. Jakob Jónsson fv. hall Tryggvason fv. bankastjóra,
sóknarprest, Reykjavík, stórridd- Reykjavík, riddarakrossi fyrir
arakrossi fyrir störf að kirkjumál- embættisstörf.
um og fræðistörfum. Jón
Gunnar Kr. Jóns-
son hafnarvörð-
ur Dalvík látinn
GUNNAR Kristinn Jónsson fyrr-
verandi hafnarvörður á Dalvik
lést 28. desember á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri 77 ára
að aldri.
Gunnar Kristinn fæddist 29.
september 1909 að Hóli á Upsa-
strönd, sonur hjónanna Jóhönnu
Þorleifsdóttur og Jóns H. Lyngstað
vélbátaformanns. Hann hóf
snemma störf við og á sjó og var
um tíma í utanlandssiglingum.
Gunnar gerðist um skeið útvegs-
maður í samvinnu við aðra og tók
þátt í samtökum útvegsmanna á
Norðurlandi. Gunnar var mikilsvirt-
ur þátttakandi í félagsmálum og
þá einkum í Slysavarnafélagi ís-
lands og Ungmennafélagi Svarf-
dæla.
Árið 1942 var hann ráðinn hafn-
arvörður við Dalvikurhöfn og
gegndi því starfi í 30 ár eða til
ársins 1972. Jafnhliða því starfaði
hann við olíuafgreiðslu hjá Olíusam-
lagi Dalvíkur.
1959 tók Gunnar við afgreiðslu
Eimskips á Dalvík en lét af því
starfi í september síðastliðnum. Þá
var hann einnig umboðsmaður
Sambands íslenskra fiskframleið-
enda (SÍF) allt frá stofnun þess til
dánardægurs.
Gunnar Kristinn Jónsson hafnar-
vörður Dalvík.
Eftirlifandi eiginkona Gunnars
er Friðrika Ármannsdóttir frá Urð-
um í Svarfaðardal. Þeim varð
þriggja barna auðið.
Með Gunnari Jónssyni er genginn
mikill atorkumaður að hvetju sem
hann gekk. Hann var sérstakur
persónuleiki, strangheiðarlegur
mannkostamaður. Hann átti góð
samskipti við fólk og samband hans
við börn og annað æskufólk hér á
Dalvík voru alveg einstök.
Fréttaritari.
IUNDSBAHKANUMI
ER MED HiFÐBUNDNUM HÆTTI
KJÖRBÓKAREIGENÐUR
FENGU TÆPAR 40 Mlll JÓNIR
m m
UM ARAMOTIN
Kjörbókareigendur hafa gilda ástæðu til þess að
vera ánægðir með uppáhaldsbókina sína
núna um áramótin.
Ársávöxtunin 1986 varð 20,2%, en það jafngildir
verðtryggðum reikningi með 5,5% nafnvöxtum.
Samt er innstæða Kjörbókarinnar
algjörlega óbundin.
Endirinn varð þó allra bestur: Vegna verðtryggingar-
ákvæðis bókarinnar var greidd uppbót á
innstæðurnar nú um áramótin,
samtals tæpar40 milljónir króna.
Kjörbók Landsbankans er góð bók fyrir
bjarta framtíð. mmmr ■ ■ ■ ■ .
Landsbanki
íslands
Banki alira landsmanna
nnaiio ci i
L
••