Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987 Minning: Sigurður Olvir Bragason háseti Fæddur 7. janúar 1965 Dáinn 25. desember 1986 Jólin á heimilum okkar voru dap- urleg og þrungin óvissu eftir að okkur var tilkynnt á jóladagsmorg- un, að flutningaskipið Suðurland hefði farist langt norður af landi á jólanótt. Af fyrstu fréttum var helst að ráða að öll áhöfn skipsins hefði komist í björgunarbáta, sem væru fundnir, en engin skip í nánd. Þyrla af dönsku varðskipi komst á slys- stað eftir hádegi og bjargaði fímm mönnum. Sex létust og undir kvöld var víst að meðal þeirra var Ölvir, systursonur okkar, rétt rúmlega tvítugur að aldri. Hann fæddist á Sauðárkróki 7. janúar 1965, yngsta barn Sigur- laugar Sveinsdóttur og Braga Þ. Sigurðssonar, vélsmiðs. Hin eldri eru Styrmir, bakari að mennt, bú- settur á Bakkagerði, Brynja, sjúkraliði, gift Ómari Imsland, raf- tæknifræðingi, nú í Óðinsvéum, og Margrét, kennari á Bakkagerði, Minning: Gertrud Friðriks- son prófastsfrú Fædd 15. febrúar 1902 Dáin 27. desember 1986 Það var fyrir mörgum árum. Hádegi. Ég hafði verið boðaður til fundar ásamt konu minni og org- anista á heimili prófasts, til þess að ræða um 100 ára afmæli Háls- kirkju í Fnjóskadal. Við knúðum dyra, og undrunarsvipurinn á and- liti prófastsfrúarinnar sýndi okkur, að hún hafði ekki vænzt gesta á þessari stundu. í undrun sótti hún bónda sinn, sem með opinn faðm kom á móti okkur og sagði: „Þið hér, en gaman að hitta ykkur!" Þar með var ljóst að séra Friðrik A. Friðriksson hafði gleymt að gesta var von, og það líka að tilkynna konu sinni, að hann hafði boðið þeim í mat. Hún var nýkomin frá kennslu, en með undrahraða breytti hún snarlborði í veizluborð. Ég veit ekki, en þessi mynd sækir svo fast að mér, er ég minnist þessarar sérstæðu konu. Hversu oft stóð hún ekki í sömu sporum, að maður hennar, lista- maðurinn séra Friðrik, eldhuginn, fékk hugdettu, en gleymdi í önn dagsins að segja henni frá. En alltaf, alltaf kunni hún á því tök að láta sem það er honum hafði dottið í hug væri vilji þeirra beggja. Sé talað um konu, sem stutt hafi mann sinn, vemdað hann og borið í faðmi, þá kemur mér ætíð frú Gertrud Éstrid Elise í hug. Já, hún var dönsk, en ein þessara kvenna sem ísland má þakka fyrir að hafa eignazt að dóttur. Hún var af gamalgróinni menntaætt í Kaupmannahöfn. Sem ungur stúdent hélt hún út hingað til íslands, réðst í kaupa- vinnu, til þess að kynnast landi og þjóð betur, og í teignum var guðfræðingurinn Friðrik Aðal- steinn Friðriksson. Ástin tengdi hjörtu þeirra saman, og 4. júní 1925 gengu þau fagnandi útí sum- ar sameiginlegra daga. Hún fylgdi honum til Vesturheims, til Quill Lake- og Vatnasafnaða í Sask- atchewan í Kanada, hún fylgdi honum til Baime, Washington, og hún fylgdi honum, 1933, til Húsavíkur. Það var 1955, að við hjónin komum á ókunnan stað, Háls, en fyrir vináttu sonar þeirra prófasts- hjóna fundum við aldrei til þess, slík var umhyggja og elska for- eldra hans. Franskur málsháttur segir: Hvar er konan? Við fundum það fljótt, að slíkur fiðlustrengur í höndum skaparans, sem séra Frið- rik var, hljómaði svo undur skært af því að hann átti mikla konu, Géritrud. í hógværri elsku gerði hún bónda sinn svo stóran, að aldr- ei gleymist. Hún birtist ekki aðeins honum sem elskandi faðmur, held- ur og okkur, prestum hans, sem móðir. Það var sama hvenær við áttum erindi við heimilið, þá reyndist hún hollvinur, gefandi af mikilli lífsreynslu og þroska. Við áttum dýrðardaga á heimili sonar hennar og tengdadóttur síðasta sumar norður í Mývatns- sveit. Við áttum morgna, er hún ræddi við okkur um lán sitt, lífið og tilveruna. Hún gekk með okkur fagnandi í skóga nýrra lunda, hreifst af vexti, og við fundum, hve vænt henni þótti að ísland var að fríkka. Þó var hún ætíð dóttir Danmerkur, með lotningu talaði hún um ættmenn sína, og vindla- reykur hennar bar að vitum okkar lífsstíl frá annarlegri strönd. Þó höfum við aldrei hitt jafn íslenzka konu og hana. Brennandi áhugi hennar á öllu er til framfara horfði, verður okkur lengi í minnum, skátastarf hennar, organistastarf og kórstjórn; kennsla og leiðsögn okkur sem ný vorum í starfí. Hún átti þann sveigjanleik sálar, að hún gat rætt við okkur um sultugerð, danska, en líka hin erfiðustu mál heimsbókmenntanna. Víst sveið henni doði sá, sem kirkju er sýnd- ur, gat þá orðið hvöss í orðum, en hún trúði því, að á ný myndi fijálslyndi ríkja, það myrkur, sem einkennt hefir síðustu ár, víkja. Já, hún hafði ákveðnar skoðanir, þorði að halda þeim fram við hvern sem var, og af því var hún stór. 4 böm rétti hún þessari þjoð, böm sem gera veg okkar bjartari, betri. Þau þáttaskil sem urðu í lífi hennar 27. des. sl. eru okkur ekki sorgin ein heldur og gleði, er hún heldur til fundar við þann er hún gaf þjarta sitt í teignum forðum. Við þökkum henni samfylgdina, hreinskilnina, vináttuna, já, allt er hún rétti okkur að gjöf. Guð blessi hana og þá sem hjarta henn- ar sló fyrir. Kristín og Haukur kona Karls Sveinssonar, útgerðar- manns. Ölvir ólst upp í foreldrahúsum á Sauðárkróki og fór flest sumur með fjölskyldunni á æskuslóðir föður síns, austur á Sólbakka í Borgar- firði eystri; hin síðari ár í sumarbú- stað foreldra sinna í landi Sólbakka. Sjórinn átti hug Ölvis allan frá æsku. Heimili hans við Fornósinn stendur við sjávargötu og ungur drengur fór hann að veiða í fjör- unni og bar heim aflann. Af kambinum fylgdist hann með sjáv- arförum og lærði að þekkja báta og skip, sem áttu leið um höfnina; síðar settu bækur um siglingar, skip og sjósókn svip á bókasafn hans. Þegar að loknu skyldunámi réðst hann til Eimskips hf. sem vikapiltur, lengst af á Grundar- fossi, þar sem hann varð síðar háseti og hafði fullt traust yfir- manna sinna. „Hafið bláa hafið/ hugann dreg- ur“, kvað Örn Arnarson. Ýmsum vandamönnum Ölvis þótti ákvörðun hans óráð, og löttu hann frekar en hvöttu, en farmennska var honum engin dægurfluga, heldur ákveðið markmið. Þegar hann hafði tekið þessa ákvörðun eftir ítarlegar um- ræður, studdu foreldrarnir hann með ráðum og dáð. Ölvir sigldi í tvö ár, hann fékk fullnægt útþrá sinni, sá „æsku sinnar draumalönd“. Hann var hamingjusamur með hlutskipti sitt, enda hafði hann sjálfur kosið það. Starf hans og áhugamál fóru saman og veittu honum lífsfyllingu svo einstakt má telja um svo ungan mann. Haustið 1984 settist Ölvir í Verk- menntaskólann á Akureyri og síðastliðið vor brautskráðist hann þaðan af vélstjórnarbraut með mjög góðum vitnisburði. í sumar var hann vélstjóri á fiskibát frá Dalvík en í haust innritaðist hann í Vél- skóla Islands til að ljúka námi sínu, og reyndist fyrirmyndarnemandi, eins og hans var von og vísa. í jóla- 51 fríinu sinu réðst hann síðan sem háseti á Suðurland, eina ferð. Ölvir var gjörvilegur piltur, há- vaxinn og grannleitur, skolhærður og sviphreinn, upplitið glaðlegt, augun grá og skýrleg. Hann var einkar ákveðinn í skoðunum, en hafði sig lítt í frammi. Hann var léttur í lund og jafnlyndur, brá sára- sjaldan skapi og var þó síður en svo geðlítill. Hann var heimakær og einstaklega þægilegur í allri við- kynningu, hafði næmt skopskyn, ræðinn og greiðvikinn. Öll fram- koma hans mótaðist af kurteisi og hógværð; hvarvetna var hann au- fúsugestur. Sagt er að tíminn græði öll sár, og þó eru sum högg svo þung að aldrei grærum heilt. I hugum þeirra sem Ölvi þekktu best hefur veröldin brugðið lit. Sárust er sorg þeirra sem næst honum standa, foreldra og systkina. I þessu skammdegi verða þau að sækja í hugskot sitt minningar um ljúfan pilt. og góðan dreng til að vísa sér veg. Við kveðjum Ölvi frænda okkar með orðum hins vísa höfundar Sól- arljóða, lokaerindi kvæðisins: Hér við skiljumst og hittast munum á feginsdegi fira; drottinn minn gefi dauðum ró, en hinum líkn, er lifa. Herdís Sveinsdóttir, Sölvi Sveinsson. fyrir tölvuprentara o 6 tólW ?to3|*or 00.^[^ðETéa. - o tegund>r ^WupopH entaranUm. - VÓTOO CINFÖtD SK.CT.I y„,b pá sem N°TA MAHGA® ów,ssaN«gund*R EYOUBUWA TE U FYRIR EINN TQtVUPBENTARANN. ii
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.