Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987 Leikritið um Kaj Munk frumsýnt í Hallgrímskirkju LEIKRITIÐ um Kaj Munk, eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur, verður frumsýnt í kapellu Hallgríms- kirkju, sunnudaginn 4. janúar kl. 16.00. Leikritið fjallar um trúar- styrk og eldmóð einstaklings sem fylgir sannfæringu sinni og trú á gildi sannleikans, þótt sá sann- leikur sé í andstöðu við sannfær- ingu fjöldans. Að sögn Guðrúnar Ásmunds- dóttur, sem einnig leikstýrir verkinu er það byggt á ræðum Kaj Munks og sjálfsævisögu. Guðrún segist sjálf kjósa að kalla þetta leikgerð, „því snilldin liggur í hans eigin orð- um.“ „Meðan Danmörk var hemumið land, fékk Kaj Munk ekki að prédika og bækur hans vom ekki útgefnar. En hann prédikaði nú samt, það var bara ekki auglýst," sagði Guðrún ennfremur. „Leikritið byrjar reyndar á síðustu ræðunni sem hann hélt í kirkju sinni á nýárs- dag, þremur dögum áður en hann var myrtur. Hann var skotinn af Þjóðverjum 4. janúar, en það er okkar frumsýningardagur." I leikritinu um Kaj Munk em 16 þátttakendur, en hlutverkin em alls 32, stór og smá, og þar með talin þijú hlutverk Kaj Munks á mismun- andi aldri. Með hlutverk séra Kaj Munks fer Amar Jónsson, en bræð- Úr leikritinu um Kaj Munk i Kapellu Hallgrímskirkju. ffll! y í í i! 1 3, ' Andri Clausen í hlutverki Carstens, Ragnheiður Tryggvadóttir í hlut- verki Lisu Munk og Unnur Ösp Stefánsdóttur í hlutverki Yrsu Munk. umir Ivar Sverrisson og Daði Sverrisson, leika Kaj Munk sem bam. Með hlutverk Lisu Munk, eig- inkonu Kajs fer Ragnheiður Tryggvadóttir. Aðrir leikarar fara með mörg hlutverk. Aðspurð um leikmynd, sagði Guðrún að kirkjan sjálf væri leik- mynd, þau hefðu aðeins látið smíða palla, til að leika á svo áhorfendur mættu sjá þau betur. Búningar em í umsjá Óldu Sigurðardóttur, Láms Bjömsson hannar lýsingu og fram- kvæmdastjóri sýningarinnar er Þorbjörg Daníelsdóttir. Þorkell Sigurbjömsson, tónskáid, hefur samið tónlist fyrir leikritið og verður hún flutt af Herði Áskels: syni og Ingu Rós Ingólfsdóttur. í tilefni af leikritinu kemur ekkja Kaj Munks, Lise, og sonur þeirra til íslands og munu verða viðstödd ffumsýningu. Jón Hjartarson I hlutverki Péturs Munk og Amar Jónsson í hlut- verki Kajs Munk. Séra Ragnar Fjalar Lárusson: Leiklist á að vera hluti af kirkjustarfsemi FRJÁLSIR leikhópar eiga oft í mesta basli með að fá hús- næði fyrir sýningar sínar. Því er von að spurt sé hvort það sé neyðarúrræði að sýna í kirkju. Guðrún Ásmunds- dóttir, höfundur og leikstjóri „Leikritsins um Kaj Munk,“ svarar því neitandi, verkið hafi verið skrifað til að flytja það í kirkju. Þetta sé aðeins enn ein tegund af leikhúsi, okkur íslendingum kannski lítt kunnug. Leikrit Guðrúnar verður sýnt í kapellu Hali- grímskirkju og til að spyija hvort þetta uppátæki væri ekki á skjön við starfsemi kirkjunnar, sneri Morgun- blaðið sér til séra Ragnars Fjalars Lárussonar, annars tveggja sóknarpresta Hall- grímskirkju: „Það má kannski segja að þetta sé dálítið framandi fyrir okkur,“ sagði séra Ragnar Fjal- ar.“ „Að vísu hafa helgileikir verið sýndir í kirkjum hér af og til, en þetta er öðruvísi. Hér er verið að færa upp heilt leik- verk og það er gott og athyglis- vert. Vissulega er leikhús ein tegund af boðun og þá boðun orðsins. Það má líka segja að presturinn standi í sinni vinnu eins og leikarinn á sviðinu við að koma orðinu og boðskapnum til söfnuðar og kórs. Kaj Munk var mjög snjall prédikari. Ég var mjög ungur þegar ég drakk í mig ræður hans, í þýðingu herra Sigur- bjöms Einarssonar, fyrrverandi biskups. Faðir minn var prestur og ræður Kaj Munks voru til á heimilinu. Ég man vel þann dag sem fréttin barst að Munk hefði verið myrtur. Það sló óhug á alla og hún hafði svo mikil áhrif á mig að ég man ennþá hvar ég var þegar ég frétti þetta. Vissulega var þetta píslarvætti og í því varð hann sterkari en ella. Mér finnst leikrit Guðrúnar afskaplega verðugt verkefni og ég hef trú á að það verði sterk boðun. Leikhús í kirkju getur verið gott, því það form hentar vel til að skila því sem verið er að boða. Ég væri þess mjög fysandi, ef þetta gengur vel, að leikhús í kirkju mætti blómstra. Um það erum við sammála í þessari kirlg'u, sér- staklega þar sem við höfum kapelluna. Það hefur verið mikið og vaxandi starf hér síðustu árin, og verður æ fjölbreyttara. Við höfum stóran og góðan kór starfandi hér undir stjóm Harð- ar Áskelssonar, hann er vandaður og góður og laðar fólk til starfa. Síðan kirkjan var vígð hefur margt fólk komið hér til helgisöngs, guðsþjónustu og tónleika. Hér er líka mikil starfsemi fyrir aldraða á tveggja til þriggja vikna fresti yfír vetrartímann, en á sumrin er farið með fólkið í ferðalög. Síðan er hefðbundið starf kven- félagsins. Þær hafa verið ótrúlega duglegar við söftiun á ijármagni til að byggja kirkj- una. Við emm líka með mikið bamastarf héma, svokallaðan kirlg'uskóla. Bömin taka þátt í aðalguðsþjónustu vikunnar, kl. 11 á sunnudagsmorgnum, fram að prédikun. Þá fara þau fram með leiðbeinendum og fá sína fræðslu frammi. En það er gott fyrir bömin að kynnast guðs- þjónustunni þegar þau eru mjög ung. Það sem háir kannski starf- seminni mest í þessari sókn er að það er svo mikiu meira af eldra fólki en yngra. Það hefur því gengið erfíðlega að end- umýja í kvenfélaginu. Það er tiltölulega lítið af yngra fólki í kirkjustarfínu. Ef vel tekst til, getur leikhús laðað fólk að kirkjunni. En það segir sig sjálft að aðeins er hægt að flytja sérstök verk í kirkju. Það þarf ekki endilega að vera helgileiig'aformið, held- ur leikrit sem hafa kirkjulegan boðskap og kirkjan á að stuðla að þvi að fá leikhús inn í sitt starf.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.