Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987 Coldwaterog fisksalan vestan hafs Michael Geroux, aðstoðarfor- stjóri Parkway: Gæði og stöðugt framboð skiptir okk- ur mestu máli „FYRIRTÆKIÐ veltir um millj- arði króna á ári og selur til um 600 viðskiptavina, allt frá sjúkra- húsum til fínna veitingastaða. Það er 20 ára gamalt, sjálfstætt einkafyrirtæki, en er í tengslum við Nuggett í Californíu. Við byrjuðum í sölu á kjöti, en höfum fært okkur meira og meira yfir í almenna frysta matvöru og leggjum áherzlu á sem fjöl- breyttasta þjónustu. Fisksalan hjá okkur er aðeins um 5% af heildinni, en nemur þó um 550 lestum á ári, sem við kaupum af Coldwater. Fisksalan fer stöðugt vaxandi, mikið af fiskinum fer í skóla og við reynum okkar bezta í sölu, kynningar- og gæðamál- um,“ sagði Michael Geroux, aðstoðarforsljóri söludeildar Parkway heildsölunnar í Pitts- burg. „Það, sem skiptir okkur mestu máli við fiskkaupin, eru gæði fisk- ins, stöðugt framboð og góð Michael Geroux þjónusta. Lee Hasselman, umboðs- maður hér í Pittsburg, hefur staðið sig frábærlega vel og vörumerkið Icelandic er þekkt um allt fyrir gæði. Nú gerir fólk mikið af því að prufa eitthvað nýtt. Ef það er í lagi, reynir það aftur, annars ekki. Þeir, sem leggja áherzlu á gæði hráefnis og matar, gera það bezt, en ekki endilega þeir, sem eru með stærstu skammtana. Nú hefur verð á nautakjöti lækk- að vegna offramleiðslu, en verð á fiski hækkað. McDonalds höfðar til bamanna og leggur áherzlu á af- greiðslu um lúgu í bíla. Þessir möguleikar eru líka fyrir hendi í fiskinum. Vænlegast er þó til ár- angurs, að koma gæðafíski inn í skólana. Ungur nemur, gamall tem- ur og bömin halda áfram að borða fisk, þegar þau vaxa úr grasi. Cold- water er þetta fyllilega ljóst og hagar sér samkvæmt því. Þar hugsa menn til framtíðarinnar," sagði Michael Geroux. Charlie Waggett Charlie Waggett, heildsali í Pittsburg: Núeruallirdagar orðnir „fiskdagar" „ÉG hef keypt fisk frá Cold- water í tæp 30 ár. Ég er mjög ánægður með fiskinn frá þeim og þjónustuna og verð það vænt- anlega þar til þeir segjast ekki eiga það til, sem mig vantar. Stöðugt framboð skiptir mestir máli, síðan gæði og loks verð. Veitingahúsin byggja afkomú sína og auglýsingaherferð á ákveðnum tegundum af fiski. Verði hann svo ekki til einn góð- an veðurdag, er dæmið búið og viðskiptin úr sögunni," segir Charlie Waggett, heildsali I Pitts- burg. Charlie Waggett rekur tiltölulega litia heildsölu og byggir viðskiptin með fískinn mikið á litlum veitinga- húsum og börum, sem sérhæfa sig í fisksölu. Hann segist aðallega selja flök frá Coldwater auk fisks frá öðmm seljendum, rúmlega 3,5 lest- ir á mánuði. 7 manns starfa í heildsölu hans og veltir hún um 82 milljónum króna á ári. „Fiskát er að aukast verulega hér. Aður fyrr var fiskur bara borð- aður á föstudögum, en nú eru allir dagar orðnir fiskdagar. Það eru miklir möguleikar í fisksölu hér, menn verða bara að gæta þess, að framboð sé stöðugt og gæði séu í lagi. Fólk er farið að hugsa meira um heilsufarið og hollustu mata- ræðis en áður og það kemur fiskselj- endum til góða, svo fremi sem þeir standi sig,“ sagði Charlie Waggett. Sue Deen og Sue Ross í Chambersburg: Bestifiskurinn frá Coldwater í CHAMBERSBURG hittum við tvær konur, sem skipa stóran sessj starfsemi Long John Silv- er. Onnur þeirra stjórnar veit- ingastaðnum þar, Sue Deen, en hin er svæðisstjóri og heitir Sue Ross. Hjá Long John Silver er megin áherzlan lögð á gæði f isks- ins og alúðlegt umhverfi og framreiðslu. Þær stöllur eru sammála um, að bezti fiskurinn komi frá Coldwater og það sé báðum aðilum mjög mikilvægt að samskiptin haldist áfram. Þær lýsa hér á eftir í stuttu máli starf- semi veitingastaðarins i Cham- bersburg, en hún er með sama hætti og á hinum 1.400 stöðun- um, sem reknir eru á vegum Long John Silver. „Það er mjög mismunandi hve mikið við seljum hér í Chambers- burg á dag, 350 til 700 skammta, en það er um 113.400 kíló á ári. Föstudagar og laugardagar eru jrfirleitt svokallaðir fiskdagar, en það fer nokkuð eftir landshlutum og flölda kaþólskra á hveijum stað. A þessum stað seljum við aðeins íslenzkan físk nú, en Long John Silver kaupir fisk frá fleirum en íslendingum, en við fáum mest frá Coldwater. Þaðan kemur bezti fisk- urinn og hann bragðast yfirleitt öðruvísi líka. Sumu fólki, um helm- ingi viðskiptavina okkar, er ljóst að bezti fiskurinn kemur frá íslandi og biður sérstaklega um hann. Fólk skiptir alltaf meira og meira máli hvað það borðar, sérstaklega hvað varðar gæði og er tilbúið til að borga eitthvað meira fyrir gæðin. Umræðan um að fískát sé heilsu- samlegt hefur haft mikil áhrif og margir eru að draga úr neyzlu á nautakjöti og það hefur aukið neyzlu á kjúklingum og físki. Við matbúum fískinn á ýmsa vegu, djúpsteiktan, steiktan og sums staðar bakaðan og oftast með frönskum kartöflum." Þið eruð hér í nábýli við ham- borgarastaði, pizzuhús og kjúkl- ingasölu, hvemig gengur Bjarti Mohr, sölumaður hjá Coldwater: Samstarf íslendinga og Færey- inga báðum mikil vægt INNAN Coldwater eru ýmsar deildir. Ein þeirra er S-deildin og henni stjórna þeir Bjarti Mohr og Pálmi Ingvarsson. Bjarti er frá Færeyjum og hefur meðal annars starfað þar hjá Föroya Fiskasölu. Hann telur samstarf Fiskasölunnar og Coldwater báð- um aðilum mjög mikilvægt og það skili Færeyingum tvimæla- laust hæsta mögulega verðinu fyrir fiskinn. Því væri það rétt- ast að íslendingar og Færeyingar tækju upp samstarf á öðrum mikilvægum fiskmörkuðum í Evrópu. Bjarti var spurður um starf hans og hvaða skoðun hann hefði á fyrirkomulagi fisksöl- unnar í Bandaríkjunum: „Ég starfaði áður hjá Föroya Fiskasölu, en lauk viðskiptafræði frá Verzlunarháskólanum í Kaup- mannahöfn 1984. Að loknu prófínu var ég já Fiskasölunni í 7 mánuði, en það hafði verið talað um að full- trúi frá henni yrði hjá Coldwater í ákveðinn tíma til að fá betri skiln- ing á markaðnum hér og auka samvinnuna við Coldwater; auka BJarti Mohr upplýsingastreymið frá markaðnum til Fiskasölunnar og fyrstihúsanna í Færeyjum. Ég kom hingað í jan- úar 1985 og verð hér í tvö ár. Ég fæst mest við sölu á skelfiski hér. Verð á skelfiski, hörpudiski og rækju, hefur verið mjög sveiflu- kennt. Sumarið 1985 var reynt að áætla í hve miklum mæli væri hægt að selja þessar afurðir undir merki Icelandic fremur en í samkeppni við almennar, ódýrari afurðir. I því til- efni var stofnuð ný deild innan Coldwater, sem er kölluð S-deildin (skelfiskdeildin). Hún selur, rækju, hörpudisk, lax og saltfísk og við Pálmi Ingvarsson sjáum um hana. Það er mjög þýðingarmikið, bæði fyrir Coldwater og Föroyja Fiska- sölu að hafa hér starfandi mann frá Færeyjum. Það er mikilvægt fyrir viðskiptavini Coldwater að hér sé maður, sem þekkir til til sjávarút- vegs. Ég hef verið á togara, unnið í fiski og hjá Fiskasölunni og er auk þess viðskiptafræðingur. Þessa vegna veit viðskiptavinurinn hvað maður er að tala um. Þú getur sagt honum hvar fískurinn er veiddur og hvernig farið er með hann í veið- samkeppnin? „Við höldum þeim við efnið. Við leggjum áherzlu á að ná til annars aldurshóps en hamborgarastaðimir, aðallega miðaldra og eldra fólks, en erum einnig að vinna að því að ná til yngri aldurshópa og bama. Það skiptir miklu máli upp á framtíð að fá bömin til að borða fisk og gæta þess um leið, að það sé góður fiskur. Við leggjum áherzlu á góðan físk fyrir bömin og berum hann fram í sérstökum bátum, meðal um og vinnslu. Á móti fást betri upplýsingar heim til Færeyja um markaðinn í Bandaríkjunum og ér er þess fullviss að um leið og sam- vinna Coldwater og Fiskasölunnar hefur aukizt, hefur ýmsum mis- skilningi verið útrýmt á þessum tíma og upplýsingastreymið er orð- ið miklu betra. Meðal annars komu 28 stjómendur frystihúsa hingað í fyrra til að skoða fyrirtækið, verk- smiðjumar og Long John Silvers. Þegar þeir fóm heim aftur, skildu þeir markaðinn miklu betur en áð- ur. Því hefur samvinnan orðið mun betri, bæði hvað varðar sölu, gæða- eftirlit og reikningsskil. Ég er viss um að samvinna Cold- water og Fiskasölunnar hefur skilað Færeyingum hæsta mögulga verð- inu á markaðnum hér. Við fáum hærra verð en Norðmenn og Kanadamenn, svo dæmi séu nefnd, vegna þess að fyrirtæki hvorrar þjóðar fyrir sig em í samkeppni sína á milli í stað þess að sameinast í markaðssókninni. Fiskasölan hef- ur ekkert einkaleyfí á fiskútflutn- ingi frá Flæreyjum. En við emm með félagsskap, sem hefur það markmið að vinna að hagsmuna- málum frystihúsanna og þeim er bezt fyrir komið hjá Fiskasölunni. Frystihúsin em ekki sérhæfð í sölu afurða, aðeins í framleiðslu ýmissa fisktegunda og pakkninga. Þau geta ekkiselt fiskinn meða sama árangir og við. Auk þess emm við með sérstakt gæðaeftirlit, sem tryggir viðskiptavinunum, að það sé sama frá hvaða fyrstihúsi fískur- inn kemur, gæðin séu þau sömu. Öll frystihús í Færeyjum utan tvö em innan Fiskasölunnar. Þess tvö gengu úr henni í fyrra, aðalega vegna þess, að þau fóm á hausinn og em rekin fyrir tilstilli hins opin- bera og hafa ömgglega engan hagnað haft af úrsögninni. Við seljum lax frá Færeyjum og staðan í sölu á ferskum og frystum laxi er mjög erfið vegna mikils framboð frá vesturströndinni. Norð- menn em með 90% af markaðnum fyrir ferskan lax hér. Þeir hafa ekki sameinazt í einum sölusamtök- um, heldur selja hver fyrir sig og það hefur valdið vemlegri verð- lækkun. Það verður að leggja áherzlu á að selja laxinn sem mun- aðarvöm. Mikill munur er á fram- leiðslu lax og þorsks og ýsu til dæmis. íslendingar og Færeyingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.