Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987 Enska knattspyrnan: Nicholas skoradi tvö og Arsenal hefur leikid 18 leiki í röð án taps - Everton fylgir fast á eftir SKOSKI landsliðsmaðurinn Charlie Nicholas skoraði tvö marka Arsenal f 3:1 sigri gegn Wimbledon á nýárs- dag og liðið er enn með fjögurra stiga forskot i 1. deild ensku knattspyrnunn- ar. Everton fylgir fast á eftir, vann Aston Villa sannfær- andi 3:0, og hafa leikmenn liðsins skorað 12 mörk í síðustu þremur leikjum. y Liverpool er enn í þriðja sæti, en Chelsea og Man- chester United sigruðu í mikilvægum leikjum f botn- baráttunni. í Skotlandi vann Rangers Celtic 2:0 og skilja nú aðeins þrjú stig iiðin af á toppi skosku úrvalsdeild- arinnar. Charlie Nicholas skoraði í fyrsta leik Arsenal á keppn- istímabilinu og síðan ekki söguna meir fyrr en gegn Wimbledon á fimmtudaginn. Hann átti stórleik, skoraði á 22. og 68. mínútu og fékk dæmda vítaspyrnu, sem Martin Hays skoraði úr á 60. mínútu. Carlton Fairweather skoraði eina mark gestanna skömmu fyrir leikslok. Rúmlega 36 þúsund áhorfendur voru á Highbury og fögnuðu gífurlega í leikslok, en Arsenal hefur nú leik- ið 18 leiki í röð án taps. Gott hjá Everton Everton fylgir Arsenal eftir eins og skugginn. Aston Villa hélt samt ^ í við meistarana 1985 í fyrri hálf- leik, en Alan Harper kom heima- mönnum á bragðið skömmu eftir hlé með góðu marki. Trevor Steven bætti öðru við á 57. mínútu og Kevin sheedy skoraöi þriðja markið 11 mínútum fyrir leikslok. Meistarar Liverpool heimsóttu Nottingham Forest. Völlurinn var mjög þungur og fátt markvert gerðist í fyrri hálfleik. Hinn 18 ára framherji Forest, Phil Starbuck, skoraði fljótlega í seinni hálfleik og allt stefndi í sigur heimamanna. Gestirnir áttu í miklum erfiðleikum • Peter Shilton er nefbrotinn og hefur ekkí leikið með Southamp- ton að undanförnu. Liðið hefur færst æ neðar á töflunni, en í dag fær Southampton Manchester Unfted ( heimsókn. og sérstaklega gekk þeim illa að stöðva hinn fljóta Franz Carr á kantinum. En lan Rush jafnaði af stuttu færi fjórum mínútum fyrir leikslok og Liverpool er í 3. sæti, 9 stigum á eftir Arsenal. Spurs í 5. sæti Tottenham vann Charlton 2:0 í jöfnum leik. Nico Claesen skoraði á 14. mínútu, en eftir það sóttu heimamenn stíft. Tottenham varð- ist vel og tveimur mínútum fyrir leikslok skoraði varamaðurinn Tony Galvin seinna markið. Tæp- lega 20 þúsund áhorfendur voru á leiknum. Fyrri hálfleikur hjá Sheffield Wednesday og Norwich var markalaus. Leikurinn var lélegur, en Gary Shelton skoraði fyrir Wed- nesday á 80. mínútu. Kevin Drinkell bjargaði stigi fyrir Norwich, þegar hann skoraði á síðustu sekúndum leiksins. Luton vann á útivelli Coventry átti leikinn gegn Luton, en tókst ekki að nýta sér yfirburðina. Skömmu fyrir hlé skor- aði Brian Stein fyrir gestina og reyndist það eina mark leiksins. Tony Cottee skoraði tvívegis í góðum sigri West Ham gegn botn- liði Leicester. Hann hefur þar með skorað 20 mörk á tímabilinu. Alan Dickens og Frank McAvennie skoruðu hin mörk heimamanna, en Steve Moran skoraði eina mark Leicester. United á uppleið, en erfitt hjá City Manchester United mjakast hægt og sígandi af fallsvæðinu. Peter Jackson skoraði sjálfsmark á 4. mínútu og Norman Whiteside breytti stöðunni í 2:0 fyrir heima- menn fjórum mínútum síðar. Darren Jackson skoraði fyrir Newcastle á 20. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Varamaðurinn Frank Stapledon bætti þriðja marki United við fljótlega eftir hlé og Jesper Olsen átti síðasta orðið mínútu fyrir leikslok. Rúmlega 43 þúsund áhorfendur voru á Old Trafford. Ekki gengur eins vel hjá hinu liði Manchester og er City enn í fall- sæti. John Barnes skoraði fyrir Watford í fyrri hálfleik og það var ekki fyrr en á síðustu mínútu leiks- ins að Imre Varadi jafnaði fyrir gestina. Öruggt hjá Chelsea Chelsea komst í 3:0 eftir hálf- tíma gegn QPR. John McNaught skoraði tvö og Roy Wegerle eitt. John Byrne skoraði eina mark QPR á 57. mínútu. Portsmouth er á toppnum í 2. deild, en forskot Celtic í skosku úrvalsdeildinni er nú aðeins 3 stig eftir að liðið tapaði 2:0 fyrir Glas- gow Rangers, sem er í 2. sæti. • Charlie Nicholas átti stórleik með Spurs á fimmtudaginn, skoraði 2 mörk og fókk dæmda vítaspyrnu gegn Charlton. Knatt- spyrnu- úrslit 1. deild: Arsenal —Wimbledon 3:1 Charlton Athletic — Tott. Hotspur 0:2 Chelsea — Queens Park Rangers 3:1 Coventry City — Luton Town 0:1 Everton — Aston Villa 3:0 Manchester Utd. — Newcastle United 4:1 Nottingham Forest — Liverpool 1:1 Oxford United — Southampton 3:1 Sheffield Wednesday — Norwich City 1:1 Watford — Manchester City 1:1 West Ham United — Leicester City 4:1 2. deild: Birmingham City — Plymouth Argyle 3:2 Brighton — Millwall 0:1 Derby County — Blackburn Roversfrestaö HuddersfieldTown — GrimsbyTown 0:0 Hull City — Barnsley 3:4 Ipswich Town — Leeds United 2:0 Oldham Athletic — Sheffield United 3:1 Portsmouth — Reading 1:0 Stoke City — Shrewsbury Town 1:0 Sunderland — Bradford City frestað West Bromw. Albion — Crystal Palace 1:2 Markahæstir: 1. delld: Clive Allen, Tottenham 28 lan Rush, Liverpool 21 John Aldridge, Oxford 21 2. deild: WayneClarke, Birmingham 19 Mich Quinn, Portsmouth 19 Kevin Wilson, Ipswich 18 Duncan Shearer, Huddersfieid 15 TrevorSenior, Reading 14 Ron Futcher, Oldham 14 Brian Davison, Derby 13 Teddy Sheringham, Millwall 13 Staðan 1. deild: Arsenal 23 14 6 3 39:12 48 Everton 23 13 5 5 46:20 44 Liverpool 23 11 6 6 41:24 39 Nott. Forest 23 11 5 7 46:32 38 Tott. Hotspur 23 11 5 7 37:27 38 Norwich City 23 10 8 5 32:32 38 LutonTown 23 10 6 7 25:23 36 West Ham United 23 9 7 7 37:40 34 Watford 23 9 6 8 39:29 33 Sheffield Wed. 23 8 9 6 37:32 33 Coventry City 22 9 6 7 24:23 33 Wimbledon 23 10 2 11 31:31 32 Oxford United 23 7 8 8 28:37 29 Manchester Utd 23 7 7 9 30:27 28 QPR 23 7 6 10 24:30 27 Chelsea 23 6 7 10 28:42 25 Southampton 23 7 3 12 36:45 24 Charlton Athletic 23 6 5 12 24:34 23 Aston Villa 23 6 5 12 30:50 23 Manchester City 23 5 8 10 23:34 23 Newcastle 23 5 6 12 24:40 21 Leicester City 23 5 6 12 25:42 21 2. deild: Portsmouth 23 4 6 3 32:15 48 Oldham Athletic 22 3 5 4 38:21 44 Derby County 22 13 4 5 33:20 43 Ipswich Town 23 1 7 5 40:25 40 Stoke City 23 1 3 9 37:25 36 Plymouth Argyle 23 9 8 6 34:31 35 Leeds United 23 0 4 9 29:30 34 Crystal Palace 23 1 1 11 33:38 34 Millwall 22 9 5 8 27:21 32 West Br. Albion 23 9 5 9 30:25 32 Birmingham City23 8 8 7 33:32 32 Sheffield United 23 8 7 8 32:33 31 GrimsbyTown 23 7 0 6 22:24 31 Sunderland 22 6 9 7 26:28 27 Shrewsb. Town 23 8 3 12 20:30 27 Brighton 23 6 7 10 23:28 25 Hull City 22 7 4 11 24:40 25 Reading 22 6 6 10 31:37 24 Huddersf. Town 21 6 4 11 26:36 22 Barnsley 22 4 7 11 21:30 19 Bradford City 21 5 4 12 29:41 18 Blackburn 20 4 5 11 17:27 17 Skotland Úrvalsdeild: Celtic 27 17 7 3 51:18 41 Rangers 26 17 4 5 47:14 38 Dundee United 26 15 6 5 42:21 36 Aberdeen 27 13 10 4 39:19 36 Hearts 26 14 7 5 43:22 35 Dundee 26 11 5 10 40:34 27 St. Mirren 26 8 9 9 26:29 25 Motherwell 27 5 9 13 27:44 19 Falkirk 26 6 6 14 22:42 18 Clydebank 27 5 6 16 22:53 16 Hibernian 26 4 7 15 19:46 15 Hamilton 26 2 6 18 21:57 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.