Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987
Oskemmtileg reynsla, sem
ég vildi ekki þurfa að
ganga aftur í gegn um
Keflavík.
TVÍTUG stúlka úr Keflavík,
Harpa Högnadóttir, starfsmaður
Islensks markaðar í Chicago í
Bandarikjunum var handtekin
við störf sín þar í borg daginn
fyrir gamlársdag. Harpa var tek-
in af lögreglu útlendingaeftirlits-
ins, færð til yfirheyrslu og síðan
flutt í fangelsi. Henni voru gefn-
ir tveir kostir, að bíða í fangelsi
þar til réttað yrði í máli hennar
eða fara úr landi með fyrstu
ferð. Harpa valdi seinni kostinn
og kom heim á nýársdag.
„Þetta var óskemmtileg reynsla
sem ég vildi ekki þurfa að ganga
í gegnum aftur," sagði Harpa í
samtali við Morgunblaðið á heimili
sínu í Keflavík í gær þegar hún
rakti atburði síðustu daga.
„Ég hóf störf hjá íslenskum
markaði í Chicago í byrjun septemb-
er. Aður fór ég í bandaríska
sendiráðið og skýrði frá erindi mínu
til Bandaríkjanna og fékk vega-
bréfsáritun í samræmi við það. Ég
vissi því ekki hvaðan á mig stóð
veðrið þegar þrír lögreglumenn
komu að afgreiðsluborðinu eftir
hádegi á þriðjudaginn og báðu mig
að koma með sér. Þeir virtust vita
allt um mig, sögðu að kæra hefði
borist um að þar ynnu ólöglegir
innflytjendur, en við erum tveir Is-
lendingar sem vinnum þarna. Hin
slapp vegna þess að hún er titluð
framkvæmdastjóri og þeir sögðu
að einhver yrði að sjá um versiun-
ina.“
„Það var farið með mig í bygg-
ingu sem útlendingalögreglan
hefur, þar var ég yfirheyrð og látin
staðfesta með eiði að rétt væri eft-
ir mér haft. Mér var skýrt frá
möguleikum mínum, að um tvo
kosti væri að velja, bíða í fangelsi
þar til málið kæmi fyrir rétt eða
fara úr landi með fyrstu ferð og
ákvað ég að taka seinni kostinn."
„Þá var ákveðið að ég yrði höfð
í fangelsi þar til ég fengi ferð heim.
Tvö fangelsi voru nefnd, River Side
fangelsið og Metropolitan City
Center Chicago. Einn lögreglu-
mannanna sagði að River Side lægi
betur við vegna þess að þaðan
væri styttra út á flugvöll. En annar
sagði að ég væri enginn morðingi
og var það ofan á að flytja mig í
Metropolitan fangelsið. Þar var mér
sagt að fangelsið í River Side væri
all rosalegt og þakka ég mínum
sæla fyrir að lenda ekki þar.“
Harpa sagði að hún hefði verið
handjárnuð á leiðinni í fangelsið,
hún hefðí verið lafin taka af sér
alla skartgripi og lausamuni úr vös-
unum. í fangelsinu hefði byijað ný
skýrslugjöf og læknisrannsókn.
Hún hefði verið tekin afsíðis af lög-
reglukonu, sem hefði skipað henni
að afklæðast og síðan leitað á sér.
„Þarna var mér boðin samloka sem
ég afþakkaði og var ég þá spurð
hvort fangelsismatur væri ekki
nógu góður handa mér.“
„Ég var bæði hrædd og óstyrk,
þetta sáu konurnar sem voru þama
fyrir og höfðu sumar gaman af og
gerðu hróp að mér. Klefarnir vom
opnir og flestar að horfa á sjón-
varpið. Ég var höfð ein í klefa og
ákvað að blanda mér ekki í hópinn.
Þær vom að koma og skoða mig
og var ég þeirri stundu fegnust
þegar hurðunum var læst klukkan
tíu um kvöldið."
„Þetta var andvökunótt og ég
var því lítið búin að sofa þegar
dymar vom opnaðar klukkan sex
um morguninn. Ég fékk morgun-
verð og átti þá stutt spjall við tvær
konur sem voru þama. Ónnur hafði
verið í River Side fangelsinu og
sagði það vondán stað, hún var
ólöglegur innflytjandi og hafði beð-
ið í fangelsi í fjóra mánuði eftir að
dómstóll tæki mál hennar fyrir. Hin
hafði verið í fangelsi í sautján ár
en fyrir hvað veit ég ekki. Mér var
sagt að þarna væm ólöglegir inn-
flytjendur, eiturlyfjasalar og
bankaræningi. Ég giskaði á að hún
væri bankaræninginn."
„Eftir morgunverðinn var ég
færð aftur til stöðva útlendingalög-
reglunnar þar sem ég beið til
klukkan fimm um daginn, að mér
var ekið út á flugvöll. Lögreglumað-
urinn sem flutti mig sagði að hann
skyldi láta líta svo út að við væmm
bara vinir, þannig að ég þyrfti ekki
að skammast mín. Hann sagði jafn-
framt að ég yrði að eiga vini í
lögreglunni. Þá þyrfti svona mál
ekki að koma upp ef ég lenti í vand-
ræðum.“
Harpa sagðist vonast til að geta
farið fljótlega aftur til starfa í
Chicago þrátt fyrir þessa dapurlegu
reynslu og þá ömgglega með rétt
gögn í höndunum.
B.B.
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gær: Um 600 km suðsuðaustur af Hvarfi er
990 millibara djúp vaxandi lægð sem hreyfist norðnorðaustur. Yfir
landinu er 1023 millibara hæðarhryggur.
SPÁ: Allhvöss suðaustanátt og rigning um allt land. Sunnanlands
og vestan verður hiti 3 til 5 stig en lítið eitt kaldara annars staðar.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
SUNNUDAGUR: Suðlæg átt og frostlaust um allt land. Skúrir eða
slydduél sunnanlands og vestan en úrkomulítið norðaustanlands.
MÁNUDAGUR: Vestlæg átt og heldur kólnandi veður. Éljagangur
um vestanvert landið en léttir til austanlands.
TÁKN: í
Q ► Heiðskírt J
Léttskýjað
•B Hálfskýjað
/
Skýjað
JHf^ Alskýjað *
/, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / Rigning
/ / /
* / *
* / * Slydda
/ * /
* # *
* * * Snjókoma
* * *
■JO Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—|* Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 ígær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri -3 alskýjað
Reykjavík 1 skýjað
Bergen -4 léttskýjað
Helsinki -22 heiðskírt
Jan Mayen -6 lóttskýjað
Kaupmannah. -2 skýjað
Narssarssuaq -15 alskýjað
Nuuk -3 skafrenn.
Osló -15 léttskýjað
Stokkhólmur -12 léttskýjað
Þórshöfn 1 léttskýjað
Algarve 17 skýjað
Amsterdam 3 þokumóða
Aþena 16 léttskýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Berlín —5 snjókoma
Chicago 1 snjókoma
Glasgow 4 skúr
Feneyjar 5 þokumóða
Frankfurt 7 skýjað
Hamborg -3 skýjað
Las Palmas 19 hálfskýjað
London 7 skúr
Los Angeles 12 þokumóða
Lúxemborg 4 skúr
Madríd 2 þoka
Malaga 16 léttskýjað
Mallorca 18 hálfekýjað
Miami 12 skýjað
Montreal -5 skýjað
New York vantar
Parls 6 rigning
Róm 18 léttskýjað
Vín 8 skýjað
Washington 1 snjókoma
Winnipeg -10 skafrenn.
Reykjagarður hf.
kaupir kjúklinga-
hluta Holtabúsins
ALIFUGLABÚIÐ Reykjagarður hf.
í Mosfellssveit hefur keypt kjúkl-
ingahluta Holtabúsins hf. á
Ásmundarstöðum. Kjúklingahlut-
anum fylgir útungunarstöð á
Ásmundarstöðum ogalifuglaslátur-
húsið Dímon á Hellu, auk að
minnsta kosti fjögurra einbýlishúsa
fyrir starfsmenn á Ásmundarstöð-
um og Hellu. Hinir nýju eigendur
taka við rekstrinum nú í byijun
árs. Ásmundarstaðabræður munu
áfram hafa eggjaframleiðslu fyrir-
tækisins með höndum.
Reykjagarður hf. er í eigu Jóns
Bjamasonar á Syðri-Reykjum og
Bjama Ásgeirs sonar hans og fjöl-
skyldna þeirra. Bjami Ásgeir er
framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Reykjagarður hefur verið annað
stærsta alifuglabú landsins, næst á
eftir Holtabúinu. Það er með eggja-
og kjúklingaframleiðslu á Syðri-
Reykjum og Teigi og er jafnframt
stór hluthafi í Hreiðri hf. sem rekur
alifuglasláturhúsið ísfugl í Mos-
fellssveit. Með kaupum á Holtabú-
inu er Reykjagarður orðinn lang
stærsta alifuglabú landsins.
Holtabúið hf. var stofnað á Ás-
mundastöðum á Rangárvöllum fyrir
allmörgum ámm af bræðrunum
Gunnari, Garðari og Jóni Jóhanns-
sonum. Búið hefur lengi verið
stærsta alifuglabú landsins. Bræð-
umir standa nú einnig í umtalsverð-
um rekstri í Reykjavík. Keyptu þeir
Fóðurblönduna hf. sem í framhaldi
af kaupum þeirra réðist í byggingu
fullkominnar fóðurblöndunarstöðv-
ar á Komgarði í Sundahöfn.
Fóðurblandan stendur einnig að
byggingu hveitimyllu á sama stað
í samvinnu við erlenda aðila.
Gunnar Jóhannsson sagði að
kjúklingahlutinn væri um 2/s hlutar
fyrirtækis þeirra á Rangárvöllum
en eggjahlutinn væri um það bil V3
hluti. Sagði hann að þeir bræður
myndu reka eggjahluta búsins
áfram. Gunnar sagði að samkomu-
lag væri um að skýra ekki opin-
berlega frá söluverði kjúklingabús-
ins.
Ræðst af sam-
komulagi við
Sovétmenn
- segir Gunnar
Flóvenz um af-
greiðslu á saltsíld
EKKI hefur verið tekin um það
ákvörðun í Síldarútvegsnefnd
hvernig brugðist verður við
vegna þeirra 19 þúsund tunna
af saltsíld sem fóru í hafið með
flutningaskipinu Suðurlandi um
jólin. Suðurland var sem kunnugt
er að flylja saltsíld til Rússlands
á vegum Síldarútvegsnefndar.
Gunnar Flóvenz framkvæmda-
stjóri Síldarútvegsnefndar sagði í
gær að þetta mál hefði enn ekki
verið formlega rætt hjá nefndinni.
Sagði hann að um afgreiðslu á þess-
um hluta samningsins færi eftir
samkomulagi við Sovétmenn.
Gísliá Upp-
sölum látinn
Á GAMLÁRSDAG lést á sjúkra-
húsinu á Patreksfirði Gísli
Gíslason á Uppsölum í Selárdal.
Gísli var fæddur á Uppsölum 29.
október 1907. Foreldrar hans voru
hjónin Gíslína Bjamadóttur og Gísli
Sveinbjömsson. Eftir fráfall Gísla
bjó Gíslína áfram á Uppsölum með
sonum sínum og eftir að hún féll
frá bjuggu synir hennar þar áfram
og Gísli einn síðustu árin.
Banalega hans var stutt, hann
fór á sjúkrahúsið á Þorláksmessu
og lést viku síðar.
Gísli Gislason