Morgunblaðið - 03.01.1987, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987
11
Þjóðleikhúsið:
Litla sviðið opnað með blysf ör
LITLA svið Þjóðleikhússins
var formlega opnað þriðjudag-
inn 30. desember með sýningu
á nýju íslensku leikriti, „í smá-
sjá“ eftir Þórunni Sigurðar-
dóttur.
Litla sviðið er í, svokölluðu, Jóns
Þórsteinssonar húsi, en það hús
er bakvið Þjóðleikhúsið, að Lindar-
götu 7. Áður en leiksýningin hófst,
gengu leikarar, og annað starfs-
fólk Þjóðleikhússins blysför frá
Þjóðleikhúsinu og að Lindargötu
7. Þar tóku kyndilberar sér stöðu
sitthvoru megin við dyr hússins á
meðan frumsýningargestir gengu
í húsið.
Starfsfólk Þjóðleikhússins gengur blysför eftir Lindargötu.
jSk. il
| 8i|l fl
w' 1
i i 1 W i J
Blysförin komin á leiðarenda, að Lindargötu 7, og býr sig undir að
taka á móti frumsýningargestum.
Dagsbrún og VSI:
Þrír samn-
ingafundir
millijóla
og nýárs
VERKAMANNAFÉLAGIÐ
Dagsbrún og Vinnuveitenda-
samband íslands áttu með
sér þrjá samningafundi milli
jóla og nýárs um nýjan kjara-
samning, en Dagsbrún átti
ekki aðild að samningi Al-
þýðusambands íslands og
Vinnuveitendasambandsins,
sem gerður var í byijun des-
ember. Til næsta samninga-
fundar hefur verið boðað á
mánudaginn kemur 5. jan-
úar.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, sagði að
nokkuð hefði miðað í samkomu-
lagsátt á þessum fundum.
Langur samningafundur fram á
nótt hefði verið haldinn 29. des-
ember og annar styttri daginn
eftir. Þá hefði verið ákveðið að
fresta viðræðum fram yfir ára-
mótin og yrði fundur á mánudag-
inn kemur. Guðmundur sagði að
hann byggist við að á þeim fundi
myndu línur skýrast á annan
hvom vegin, en samningar Dags-
brúnar eru nú lausir, þar sem
þeir runnu út um áramótin.
Skagafjörður:
Vinnuslys
við Gras-
kögglaverk-
smiðjuna
UNGUR maður slasaðist við
vinnu sína við Grasköggla-
verksmiðjuna á Vallhólmi í
Skagafirði á mánudags-
morgun síðastliðinn. Maður-
inn var fluttur á sjúkrahúsið
á Sauðárkróki og þaðan á
Borgarspítalann í Reykjavík.
Ekki er alveg ljóst með hveij-
um hætti slysið bar að höndum,
en maðurinn var einn við vinnu
sína. Að sögn lögreglunnar á
Sauðárkróki bendir flest til að
maðurinn hafi slegist utan í
vörubílspall og vankast við það,
en hann mun hafa legið meðvit-
undarlaus í einhvern tíma áður
en hann komst sjálfur í síma til
að gera viðvart um atburðinn.
Líðan hans er nú sögð eftir atvik-
um.
STOÐVUN
KAUPSKIPA-
FLOTANS
Vegna yfirvofandi verkfalls undirmanna á kaupskipum vekur EIMSKIP athygli viðskiptavina sinna á eftirfarandi:
# Boðað verkfall Sjómannafélags Reykjavíkur hjá undirmönnum á kaupskipum hefst á miðnætti aðfarar-
nótt þriðjudagsins 6. janúar 1987 hafi samningar þá ekki tekist.
# Á undanförnum mánuðum hafa ítrekaðar tilraunir verið gerðar til þess að
ná samningum við forystumenn Sjómannafélags Reykjavíkur og afstýra vinnustöðvun.Þærtilraunir hafa
ekki borið árangur. Komi til verkfalls munu íslensk kaupskip stöðvast eitt af öðru í janúar.
# EIMSKIP bendir viðskiptavinum sínum á að vera viðbúnir verkfalli, og gera ráðstafanir til að vörur
komi með þeim skipum félagsins sem lesta í erlendum höfnum á næstunni.
# Af hálfu EIMSKIPS verður áfram lagt kapp á að sanngjarnir samningar náist sem allra fyrst við viðsemj-
endur fyrirtækisins. Vonast er til þess að óþægindi af væntanlegri vinnustöðvun verði sem minnst og að
flutningsþjónusta EIMSKIPS komist sem fyrst í eðlilegt horf.
EIMSKIP