Morgunblaðið - 03.01.1987, Side 17
i
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987
17
frá foreldrum sem eiga böm i opn-
um skóla heidur en þeim sem eiga
böm í öðmm skólategundum. Af
þeim ástæðum megi því rekja þann
mun sem fram kemur á náms-
árangri milli skólategunda. Það er
rétt að vægi neikvæðra svara er
tiltölulega mikið í opnum skóla.
Samanburður á skólategundunum
Úómm tekur af öll tvímæli (þ.e.
tölfræðilega séð) um innbyrðis mis-
mun skólategundanna og einnig
mismun þeirra þriggja skólateg-
unda sem heyra ríkinu til og þeirrar
fjórðu sem er sjálfseignarstofnun.
En um þetta segir dr. Wolfgang:
„Hefði höfundur reynt að prófa
þennan mun tölfræðilega hefðu
líklega allir hefðbundnu skólamir
(að Isaksskóla meðtöldum) myndað
einn flokk og opnu skólamir ann-
an.“ Þetta er deginum ljósara og
enginn ágreiningur um það. En dr.
Wolfgang heldur áfram og segin
„Þetta er athyglisvert út af fyrir
sig en það styður auðvitað ekki
staðhæfinguna um ágæti einka-
skóla í samanburði við ríkisskóla."
Innskot greinarhöfundar „(að ís-
aksskóla meðtöldum)" er að vísu
hugsunarvilla með hliðsjón af því
sem hann hyggst rökstyðja, þ.e. að
samanburður á hefðbundnu skólun-
um að ísaksskóla meðtöldum og
opnum skóla styðji ekki ágæti
einkaskóla í samanburði við ríkis-
skóla.
Ég kannast reyndar ekki við þá
staðhæfingu í umræddri skýrslu að
einkaskólar séu yfir höfuð betri en
ríkisskólar. Það má vel vera að svo
sé. Hins vegar benda niðurstöður
þeirrar rannsóknar sem hér um
ræðir til þess að foreldrar séu yfir-
leitt ánægðari með þá þjónustu sem
veitt er í einkaskóla heldur en í
hefðbundnu skólunum og mun
ánægðari með einkaskóla heldur en
opinn skóla.
Það er augljóst að greinarhöf-
undur leggur sig mjög fram um að
afsaka þá tiltölulega neikvæðu út-
komu sem opinn skóli fær í þessari
rannsókn. Varðandi mismunandi
heimtur svara er það vissulega allt-
af áhyggjuefni þegar ekki nást full
skil. Reyndar má benda á að hlut-
fallslega fleiri svör bárust frá
nýjum skóla en einkaskóla þannig
að ekki er hægt að segja að fjöldi
svara sé síðamefndu skólategund-
inni sérstaklega í vil. Auðvitað er
alls ekki hægt að fullyrða, eins og
dr. Wolfgang gerir, að heimtur hafí
áhrif á útkomuna. Það er hins veg-
ar rétt að þær geta haft áhrif, en
um það vitum við hreint ekki neitt.
Greinarhöfundur víkur allítar-
lega að þeim þætti rannsóknarinnar
sem snertir hina félagslegu hlið
skólamála. Augljóst er að greinar-
höfundur hefur rýnt þar í einstök
atriði af nákvæmni. En þar eins og
svo víða annars staðar í greininni
skortir mikið á nákvæmni. Dr.
Wolfgang flallar t.d. um hlutfall
einstæðra foreldra annars vegar í
ísaksskóla og { ríkisskólunum hins
vegar. Þar segir hann: „ ... hlut-
fallslega færri (9,4% á móti 13,8%)
eru í „einkaskóla". Ef hlutfall ein-
stæðra foreldra ætti að vera jafnt
í báðum skólaflokkunum þyrfti ís-
aksskóla að bætast 7 böm úr
þessum hópi. Nú höfum við áður
nefnt að 5—10 atkvæði geta riðið
baggamuninn um það hvort tafla
er marktæk ...“ Hér verður stjóm-
anda Max Planck-rannsóknarstofn-
unarinnar hált á svellinu, því
samtals voru í könnuninni 96 böm
úr Ísaksskóla. Af þeim vom 9 böm
einstæðra foreldra. Hið rétta er að
flögur böm einstæðra foreldra sem
bættust ísaksskóla myndu jafna
muninn. En e.t.v. er skýringarinnar
á þessari reiknivillu dr. Wolfgangs
að leita síðar í greininni þar sem
rannsóknarmaðurinn virðist telja
5—10 „atkvæði" skipta sköpum.
Reyndar er það einnig rangt hjá
greinarhöfundi að „við“ höfum áður
nefnt að 5—10 atkvæði skipti sköp-
um, því þar sem áður var um þetta
atriði fjallað stóð: „Þegar nánar er
að gáð geta 5—15 atkvæði riðið
baggamuninn ... Hvað skyldi hafa
orðið um þessi fimm „atkvæði" sem
hurfu á leið sinni niður dálkinn?
Spyr sá sem ekki veit.
Dr. Wolfgang Edelstein hefur
haft mikil afskipti af skólamálum
hér á landi og veit heilmikið um
íslensk skólamál. Þó koma fram
gloppur í þessari þekkingu. í grein
sinni segir hann: „Hvers vegna valdi
dr. Bragi þá ekki Tjamarskólann
til samanburðar við hina skólana?
Spyr sá sem ekki veit.“
Ég ætla að ljúka þessari grein
með því að svara þessari einu spum-
ingu sem greinarhöfundur bar
fram. Svarið er einfalt: í fyrsta lagi,
Tjamarskóli er ekki með 7 ára böm;
í öðru lagi, Tjamarskóli var ekki
til þegar rannsóknin var gerð.
Höfundur er doktor í uppeldis-
fræði og dósent við Kennara-
háskóla tslands.
9 á kr. 2.000.000; 108 á kr. 1.000.000; 216 á kr. 100.000;
071 á kr. 10.0007 122.202 á kr. 5.000; 234 aukauinningar á kr. 20.000.
Jar á kr. 907.200.000.
HAPPDRÆTTI
HASKÓLA ÍSLANDS
Vœnlegast til uinnings
ARGUS/SlA