Morgunblaðið - 03.01.1987, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987
31
Hópur verkfaUsmanna i París sést hér skemmta sér fyrir framan lest sina á gamlárskvöld. Lestin hafði
staðið kyrr og ónotuð um daginn rétt eins og undanfarnar tvær vikur. Verkfall járnbrautarstarfs-
manna setur nú æ meiri svip á franskt þjóðlif og það hefur þegar valdið mjög miklu tjóni í efnahagslífi
landsins.
Elton John skor-
inn upp á hálsi
Sydney, AP.
ELTON John, rokksöngvarinn
sivinsæli, gengst uhdir skurðað-
gerð í næstu viku og hefur hann
af þeim sökum aflýst öllum tón-
leikum, sem hann hafði ráðgert
á þessu ári.
Aðgerðin verður framkvæmd á
einkasjúkrahúsi í Sydney í Ástralíu,
en Elton John hefur nýlokið mánað-
arlöngu hljómleikahaldi í Ástralíu.
Á einum tónleikunum varð hann
að hætta í miðjum klíðum vegna
hálsverkja og einni samkomu varð
hann að aflýsa af sömu sökum.
Elton John hefur þjáðst í hálsi í
rúmt ár og hefur það háð söng-
mennsku hans. Hefur hann gengið
á milli sérfræðinga án þess að hljóta
bót sinna meina og hefur nú fallizt
á að láta opna á sér barkann með
skurðaðgerð til að fá úr því skorið
hvað amar að honum. Helzt er talið
að smáhnúður séu á raddböndun-
um.
Elton hefur af þessum sökum
aflýst 32 tónleikum, sem fyrir-
hugaðir voru í Bandaríkjunum.
Heimildir herma að hann muni ekki
geta komið upp orði í viku eða svo
eftir aðgerðina.
Karin Söder hætt for-
mennsku Miðflokksins
Frakkland:
Lestarferðir lágu að
mestu niðri um áramótin
París, AP, Reuter.
LESTARFERÐIR lágu að
mestu niðri í Frakklandi yfir
áramótin vegna verkfalls
starfsmanna jarnbrautanna þar
í landi, en það hefur nú staðið
í meira en hálfan mánuð. Virð-
ast tilslakanir frönsku sfjórnar-
innar iitlu hafa breytt um gang
verkfallsins.
Francois Lavondes, sáttasemjari
stjómarinnar, sagði í fyrradag eft-
ir fund milli forystumanna verk-
fallsmanna og fulltrúa stjómarinn-
ar, að framkomnar tillögur um að
miða laun verkamanna meira við
starfsgetu en starfsaldur yrðu
dregnar til baka.
Sú skipan, sem ríkt hefði í þessu
tilliti, yrði látin halda sér, þar til
samstaða næðist um nýtt fyrir-
komulag í sameiginlegum viðræð-
um milli verkfallsmanna og
stjómar jámbrautanna um nýtt
launafyrirkomulag, þar sem tekið
yrði tillit „bæði til starfsaldurs og
starfsgetu."
Samkvæmt frásögnum frönsku
blaðanna ríkja miklar efasemdir á
meðal verkfallsmanna varðandi
þessar tilslakanir stjómarinnar.
Verkfallsmenn telja að þær nái
allt of skammt og munu því ekki
snúa aftur til vinnu að svo komnu.
Stokkhólmi, AP. Reuter.
KARIN Söder sagði af sér for-
mennsku Miðflokksins í gær af
heilsuf arsástæðum. Hún var
fyrsta konan til að veita sænsk-
um stjórnmálkaflokki forystu.
Söder var kosinn formaður Mið-
flokksins í júní í fyrra og tók við
af Thorbjöm Fálldin, sem hafði
sagt af sér fyrr um vorið. Hún var
lögð inn á sjúkrahús um miðjan
desember sl. vegna ofnæmis fyrir
lyfjum, en nokkm áður féll hún í
yfirlið á vinnustað sínum vegna
ofþreytu.
Olíuverð:
Sovétstjórnin styður
ákvörðun OPEC-ríkja
Helsinki, Reuter.
HÁTTSETTUR starfsmaður finnska olíufyrirtækisins Neste Oy, sem
er ríkisrekið, sagði í gær að svo virtist sem Sovétstjórnin hygðist
styðja þá ákvörðun olíuframleiðsluríkja að koma verðinu upp í 18
dollara á fatið. Sovétríkin eiga ekki aðild að OPEC, samtökum olíu-
f ramleiðslurikja.
OPEC-ríkin hafa samþykkt að
selja olíu á 18 dollara fatið frá og
með 1. febrúar. Ráðamenn olíumála
í Sovétríkjunum ákváðu nú um ára-
mótin að hækka verðið upp í 18,30
dali fatið. Neste Oy hefur um langt
árabil keypt olíu frá Sovétríkjunum
og er verðið nú um 14 dollarar.
í næstu viku hefjast samninga-
viðræður forráðamanna fínnska
olíufyrirtækisins og Sovétmanna.
Kai Hietarinta, aðstoðarforsljóri
Neste Oy, kvaðst í gær efast um
að Sovétmenn myndu krefjast þessa
háa verðs. „Það er augljóslega ekki
hægt að krefjast hærra verðs en
gerist og gengur á markaðinum,"
sagði Hietamita. „Ég er hins vegar
ekki í nokkrum vafa um að Sovét-
stjómin hyggst með þessu styðja
OPEC-ríkin og hækka olíuverðið
verulega," sagði Kai Hietamita
ennfremur.
Karin Söder
I yfírlýsingu, sem Söder sendi frá
sér í gær, kvaðst hún ekki eiga um
annað að velja en afsala sér for-
mennsku í Miðflokknum þar sem
hún yrði að dveljast á sjúkrahúsi
um nokkurra mánaða skeið.
Karin Söder er 58 ára og fyrrum
kennari. Hún tók við ráðherrastarfi
í þriggja flokka samsteypustjóm
borgaralegu flokkanna, sem mynd-
uð var 1976 eftir 44 ára óslitna
stjóm jafnaðarmanna. Hún gegndi
starfí utanríkisráðherra í ríkisstjóm
Thorbjöms Fálldin 1976—1978 og
félagsmálaráðherra 1979—1982.
Miðflokkurinn er nú f stjómarand-
stöðu í Svíþjóð. Flokkurinn, sem
einkum sækir fylgi sitt í strjálbýli,
hlaut 12,4% atkvæða í þingkosning-
unum 1985.
Fljúgandi
furðuhlutir
yfir Alaska
Tókýó, Reuter.
FLUGMAÐUR japanskrar flutn-
ingavélar kveðst hafa séð þijá
fljúgandi furðuhluti við vél sína
á flugi yfir Alaska, að því er jap-
anska fréttastofan Kyodo
greindi frá á mánudag.
Haft var eftir Kanetoshi Ter-
auchi flugmanni að hann hefði séð
stóran hnattlaga furðuhlut og tvo
smærri farkosti, sem líktust geim-
skipum, að kvöldi 17. nóvember.
Terauchi sagði að stóra fyrirbærið
hefði litið út eins og tvö risastór
flugmóðurskip, sem sett hefðu verið
saman.
Að sögn flugmannsins fylgdu
furðuhlutimir flutningavélinni eftir
760 km. vegalengd.
Deilur um stjómarstefnuna
magnast innan Kremlarmúra
Moskvu, Reuter.
ÞÓTT Mikhail Gorbachev, leið-
togi Sovétríkjanna, hafi sýnt
hver heldur um stjórnvölinn
þegar hann fyrirskipaði að and-
ófsmanninum Andrei Sakharov
skyldi leyft að snúa úr útlegð
í Gorki, segja stjómarerindrek-
ar í Moskvu ýmislegt benda til
þess að í Kreml sé nú hart deilt
um stefnu stjórnarinnar.
Erindrekar segja að gleggsta
dæmið um það sé að miðstjóm
sovéska kommúnistaflokksins
hafi ekki haldið formlegan fund
síðan í júní, þrátt fyrir að bæði
Gorbachev og hægri hönd hans,
Yegor Ligachev, hafí sagt að
fundur yrði haldinn áður en þetta
ár væri á enda.
307 menn sitja í miðstjóminni
og markar hún stefnu flokksins.
Stjórnin heldur fundi tvisvar til
þrisvar á ári og undanfarin ár
hefur ætíð verið haldinn fundur
einhvem tíma á síðari hluta árs
en svo verður ekki nú.
Kremlarbændur hafa engar
skýringar gefíð á þessu en opin-
berir fjölmiðlar hafa birt greinar
undanfama mánuði, sem benda
til þess að endurbótasinnar og
afturhaldsöfl innan flokksins deili
um stefnuna í menningar- og
efnahagsmálum og á öðrum svið-
um.
Stjómarerindrekar segja að
Gorbachev hafi sýnt hversu mikið
hann leggur að veði til að koma
á endurbótum þegar hann hringdi
sjálfur í kjameðlisfræðinginn
Sakharov, sem kalla má föður
hreyfingar andófsmanna í Sov-
étríkjunum, og tilkynnti að sjö ára
útlegð hans og konu hans, Yelenu
Bonner, væri lokið.
Þeir segja að Sakharov hafí
fengið slíkar viðtökur þegar að
hann kom til Moskvu að forsvars-
mönnum afturhalds í flokknum
og ráðamönnum KGB, sem vilja
btjóta allt andóf á bak aftur,
standi ekki á sama.
Sakharov hefur verið leyft að
ræða við vestræna blaðamenn að
vild og gagnrýna fangelsanir and-
ófsmanna og innrás Sovétmanna
í Afganistan. Bandarískar sjón-
varpsstöðvar tóku viðtöl við
Sakharov og sjónvörpuðu beint
með aðstoð opinberra starfs-
manna í Moskvu.
„Ef hugsað er til þess hvemig
farið hefur verið með Sakharov,
þá er þessi stefna stjómvalda
vissulega athygli verð,“ sagði
stjómarerindreki nokkur. „Þeir
sem hlynntir eru afturhaldssemi
hljóta að velta vöngum yfír því
hvert stefni og hvað taki við.“
Sakharov hefur bent á að ýms-
ar greinar, sem birst hafa í
sovéskum blöðum síðan Gorbac-
hev tók við völdum, séu svo
berorðar að andófsmenn hefðu
verið dæmdir í fangelsi eða þrælk-
unarbúðir fyrir slík skrif á síðasta
áratug.
Ýmsir vestrænir sérfræðingar
segja að við Gorbachev blasi ýmis
vandamál ef hann ætli að bijóta
andstöðu við stefnu sína á bak
aftur. Þeir benda á að að kom-
múnistaflokkurinn verði að
sameina viðhorf bæði endurbóta-
sinna og afturhaldsafla því enginn
sé stjómarandstöðuflokkurinn.
Gorbachev hefur gagnrýnt
steinrunna flokksmenn og skrif-
finna stjómarinnar fyrir að reyna
að standa í vegi fyrir tilraunum
sínum til að auka hagræðingu í
stjómkerfínu og auka ábyrgð
embættismanna.
Útverðir hugmyndafræði
flokksins og varðhundar menn-
ingar hafa lýst yfír því að þeir
taki auknu fijálsræði í sovéskum
listum með fyrirvara. Sem dæmi
um aukið ftjálsræði má nefna að
verk rithöfunda, sem eitt sinn
voru bönnuð, hafa nú verið gefín
út og meiri áræðni gætir bæði í
leikritum og kvikmyndum, sem
nú koma fyrir sjónir almennings.
í síðasta mánuði var Dinmukh-
amed Kunayev, - bandamaður
Leonids Brezhnev, fyrrum leið-
toga Sovétríkjanna, vikið úr
embætti flokksleiðtoga í Kaz-
akhstan. Stjómarerindrekar segja
að þetta bendi til þess að Gorbac-
hev og stuðningsmenn hans hafí
yfirhöndina.
Þeir segja aftur á móti að mót-
mæli stúdenta í Alma-Ata,
höfuðborg Kazakhstan, eftir að
Kunayev var settur af hljóti að
hafa vakið stjómvöld í Kreml til
umhugsunar. Talið er að þessar
óeirðir hafí jafnvel leitt til þess
að fundi miðstjómarinnar, sem
vænst var nú um jólaleytið, var
frestað.
Að sögn stjómarerindreka er
Gennady Kolbin, arftaki Kunay-
evs, líklegur til að komast í
stjómmálaráðið. Einnig er talið
að Boris Yeltsin, formaður kom-
múnistaflokksins í Moskvu, verði
gerður fullgildur félagi í stjóm-
málaráðinu og fái þar með
atkvæðisrétt.
Yeltsin hefur verið einn berorð-
asti fulltrúi endurbótasinna í
Kreml Ef hann hækkar í sessi í
stjórnmálaráðinu verður litið á
það sem svo að Gorbachev og
stuðningsmenn hans séu stað-
ráðnir í að knýja fram markmið
sín.