Morgunblaðið - 03.01.1987, Side 42
42
1 ^
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987
Coldwaterog físksalan vestan hafs
oggæðieru
undirstaða
mikiis árangurs
jrODAY’S SPECIALS
o f , LUNCfí ~~
^eafood e ,
***
,, . dinner
S°Up " °Ur9Cp°m"V ‘~h
• 5í£5. ,
MIKILL fjöldi fólks vinnur við
sölu á íslenzkum fiski í Banda-
ríkjunum. Hér fara á eftir
viðtöl við nokkra aðila, sem
að sölunni standa, allt frá
starfsmanni Coldwater til
stjórnenda og starfsmanna
veitingahúsa. Venjuleg leið
fisksins eftir að hann fer frá
íslandi liggur í gegn um fry-
stigeymslur og verksmiðju
Coldwater til umboðsmanna,
heildsala, veitingahúsa og
verzlana. Um þessar mundir
eru nokkrar breytingar að
eiga sér stað i fiskssölu og
neyzlu í Bandaríkjunum. Fisk-
neyzlan er að aukast, en
neyzla á djúpsteiktum fiski
er að minnka. Ennfremur hef-
ur framboð á bolfiski verið
af skornum skammti. Við sölu
á fiski til veitingahúsa og
verzlana er stöðugt framboð
talið það mikilvægasta fyrir
utan gæði. Hins vegar eru
gæði ekki nægjanleg, ef fram-
boð er óstöðugt. Veitingahús
og verzlanir byggja sölu sína
og kynningu á langtímasjón-
armiðum með miklum auglýs-
ingakostnaði. Sé fiskurinn,
sem auglýstur er, ekki til, er
auglýsingaherferðin fallin.
Gæðin skipta Bandaríkja-
menn æ meira máli og þeir
aðilar, sem rætt var við fyrir
vestan töldu íslenzka fiskinn
ótvírætt þann bezta. Mörg
veitingahúsanna sjá sér hag í
þvi að geta auglýst íslenzkan
fisk og í verzlunum er þess
getið að hann sé íslenzkur;
vörumerkið Icelandic" er vel
þekkt vestan hafs og er talið
tryggja gæðin. Þess vegna er
okkur mikilvægt að hafa lang-
tímasjónarmið í huga við
fisksöluna vestur um haf.
Skortur á fiski í einhvern tíma
getur haft ófyrirsjáanlegar
afleiðingar á markaðsstöðuna
og hreinlega kippt fótunum
undan þeim árangri, sem
náðst hefur með áratuga
löngu starfi og miklum til-
kostnaði, sem hefur skilað sér
! í miklum árangri umfram 'í
aðra innflytjendur fisks í
Bandaríkjunum. Viðskiptin
við Long John Silver’s eru af
þessu tagi, en salan þangað
er ein sú mikilvægasta hjá
Coldwater.
Mörgum veitingahúsum þyk-
ir hagur i því að auglýsa
íslenzkan fisk á matseðlum
sínum. Hérerauglýstur
kvöldverður úr islenzkum
fiski, sórstaklega matreidd-
um af matreiðslumelstara
hússins. Verðið er 210 krón-
ur.
JackZinga,
aðstoðar svæðis-
forstjóri
LongJohn
Siluer's:
Afkoman
1985
var mjög
góð
„ÉG BER ábyrgð á rekstri 113
veitingahúsa í eigu Long John
Silvers og um 83 veitingastaða,
sem eru reknir undir nafni fyrir-
tækisins, en í eigu annarra.
Umráðasvæði mitt nær yfir 5
ríki, Pennsylvania, Maryland,
Virgina, Vestur Virginia, Ohio
og New York. Hlutverk mitt er
að sjá um að allir þættir í rekstri
þessara veitingahúsa, séu eins
og til er ætlazt. Reksturinn hefur
gengið ágætlega og síðasta ár
kom mjög vel út. Sala hefur
aukizt verulega og afkoman er
góð. Efnahagur hefur batnað hér
og atvinnuleysi minnkað. Við
höfum kynnt nýja rétti, sem hafa
Jack Zinga
verið okkur hagkvæmir og við
höfum aukið fjölbreytni. Þar að
auki höfum við vandað mjög til
auglýsinga og leggjum sífellt
meiri áherzlu á gæði, vinalega
framreiðslu og umhverfi. Allt
þetta er farið að skila arði,“ sagði
Jack Zinga, aðstoðarsvæðisfor-
stjóri hjá Long John Silver’s.
„Coldwater er okkur mjög mikil-
vægt. Við leggjum áherzlu á beztu
möguleg gæði fisksins, sem við selj-
um og Coldwater getur séð okkur
fyrir bezta fáanlega fiskinum og
það er stór hluti velgengi okkar.
Það skiptir okkur mikiu máli, að
gæðin séu jöfn. Stjómendur veit-
ingahúsanna verða að geta treyst
því, að fiskurinn sé alltaf eins, pökk-
un sé eins, gæði séu þau sömu, það
taki sama tíma að þíða flökin,
vökvainnhald verður að vera sama,
þéttleiki og svo framvegis. Allt
þetta hefur Coldwater getað tryggt
og það er okkur mjög mikilvægt,
enda sér Coldwater okkur fyrir
megninu af fiskinum, sem við selj-
um. An þess að leggja áherzlu á
gæði og góða þjónustu, er rekstur
veitingastaða sem okkar vonlaus.
Það eru margir, sem bíða eftir mi-
stökum til þess að geta tekið
reksturinn yfir.
Samkeppni okkar við hamborg-
ara og kjúklinga hefur gengið
nokkuð vel. Hamborgarastaðimir
beijast að mestu hvor við annan.
Þar er mikið um undirboð og sér-
stök gylliboð, sem vissulega eru
þeim kostnaðarsöm auk mikilla
auglýsinga. Við eigum reyndar ekki
í sérstakri samkeppni við aðrar
fískveitingahúsakeðjur, heldur ein-
staka fyrirtæki á ákveðnum stöð-
um. Við teljum okkur einu skrefi
framar en hamborgarastaðirnir. Við
höfum ekki á okkur sama gerfiyfir-
bragðið og hamborgarastaðirnir,
við emm með vinalegri veitinga-
staði og barum matinn fram á
diskum og hji okkur er ekki sami
asinn.
Okkur hefur verið heiður af því
að hafa Magnús Gústafsson og
Friðrik Pálsson í heimsókn hjá okk-
ur, þeir hafa kynnzt rekstrinum hjá
okkur mjög vel og ég held að þeir
muni taka þessa þekkingu með sér
heim til íslands, þar sem hún mun
koma framleiðendum til góða. Fisk-
urinn frá Islandi er okkur mjög
mikilvægur og áríðandi að framleið-
endur þar haldi vöku sinni og viti
hvað við þurfum og hvemig við
þurfum það,“ sagði Jack Zinga.
Stephen Benyo,
heildsalar í Pittsburg
Líkar mjög vel
við Coldwater
„VIÐ höfum sérhæft okkur í út-
vegun matvæla fyrir veitingahús
af öllu tagi síðstliðin 32 ár. Við
reynum að sjá þeim fyrir öllu,
sem þau þurfa af matvælum og
skyldum vörum. Þar skipar fisk-
urinn auðvitað stóran sess. Vié
erum með 18 manns í vinnu og
höfum aukið söluna jafnt og þétt
Við höfum skipt við Coldwatei
allan tímann og líkar það vel
Við erum aðallega þorsk- og
RonaldJ.
Champe,
innkaupastjóri
Eat'n Park:
Aukin áherzla
lögð á íslenzka
fiskinn
„VIÐ erum með fjölmörg fjöl-
skylduveitingahús, sem taka á
ínóti um 46.000 manns á dag og
morgunmaturinn er stærsti þátt-
urinn í sölunni hjá okkur. Við
er með sérstök fiskkvöld á föstu-
dögum og fisksalan er um 4%
af allri sölu. Neyzla fisks hjá
okkur fer vaxandi enda aukinn
Ronald J. Champe