Morgunblaðið - 18.01.1987, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 1987
29
SPARISKfRIEINUM
RÍKISSJÓÐS
Jk/Il íkissjóður hefur nú aftur sölu spariskírteina,en
þau eru ein besta fjárfesting sem landsmönnum hef-
ur staðið til boða um áratuga skeið.
Hefðbundin spariskírteini með tvenns kon-
ar binditíma og 6,5% ársvöxtum.
Hefðbundin spariskírteini bera 6,5% ársvexti
umfram verðbólgu, vexti sem þér eru tryggðir til
tveggja eða fjögurra ára, allt eftir því hvaða bindi-
tími hentar þér. Að binditíma liðnum getur þú inn-
leyst bréfin og þá er ríkissjóði einnig heimilt að
segja þeim upp. Segi hvorugur aðilinn skírteinun-
um upp bera þau þessa góðu vexti til loka lánstím-
ans, sem getur lengst orðið fjórtán ár.
Söfnunarskírteini með góða ávöxtun í 6 ár.
Ríkissjóður býður einnig nýtt spariskírteini,
Söfnunarskírteini, með sex ára lánstíma og 6,5%
ársvöxtum umfram verðbólgu. Söfnunarskírteinið
safnar árlega verðbótum, vöxtum og vaxtavöxtum
sem þú færð greidda að lánstíma loknum. Með
Söfnunarskírteini tryggir þú þér góða raunávöxtun
í sex ár. Slíkt vaxtaloforð býður engínn annar.
Kostir spariskírteinanna eru ótvíræðir.
Öryggi spariskírteina rikissjóðs er ótvírætt. Þú
finnur ekki traustari fjárfestingu því að baki ríkis-
sjóði stendur öll þjóðin. Þá hamla kaupin á spari-
skírteinum gegn erlendum lántökum, því þau eru
innlent lánsfé sem nýtist okkur öllum.
Sala spariskírteina rfkissjóðs stendur nú yfir í
Seðlabanka íslands og á öðrum hefðbundnum sölu-
stöðum.
RÍKISSJÓÐUR ÍSIANDS