Morgunblaðið - 10.02.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987
5
Útgerð kaupskipa
að komast í samt lag
ÚTGERÐ kaupskipa er nú að
komast í samt lag eftir verkfall
undirmanna. Flest skipin létu úr
höfn þegar á laugardagskvöldið
og fóru ýmist á áætlunarleiðir
eða í sérstaka flutninga, til dæm-
is með sjávarafurðir. Tap vegna
verkfallsins liggur ekki fyrir, en
ljóst er að það mim skipta tugum
milljóna króna.
Öll skip Víkurskipa eru farin af
stað, Eldvík er byijuð að lesta salt-
fisk fyrir Spánveija, Hvalvík er að
losa salt og lestar síðan skreið fyr-
ir Nígeríumarkað og Keflavík er
að lesta saltsfld á Rússland.
Esja og Askja, skip Ríkisskipa
fóru af stað á sunnudag, aðallega
með áburð á Norðurlandshafnir og
taka meðal annars steinull frá
Sauðarkróki til baka. Hekla fer af
stað í dag í áætlun á Vestfirði og
Norðurland. Tap Ríkisskipa er laus-
lega áætlað um 10 milljónir króna
vegna verkfallsins.
Flest öll skip Skipadeildar Sam-
bandsins létu úr höfn á laugardag
og öll áætlunarskipin eru farin.
Dísarfell er farið áleiðis á hafnir á
meginlandi Evrópu. Amarfell er að
losa fóðurbæti en lestar síðan
saltsfld á Svíþjóð. Hvassafell var
að losa í Reykjavík, en heldur síðan
á ströndina og lestar saltsfld á Finn-
land. Skaptafell er byijað að lesta
físk fyrir Bretland og fer utan í
þessari viku. Jökulfell er á strönd-
inni að safna fiski fyrir markað í
Bandaríkjunum. Stapafell er að
dreifa olíu á hafnir landsins og
leiguskipið Jan er farið frá landinu
með gáma, meðal annars ferskan
físk og verður í Hull í dag. Önnur
leiguskip á vegum Sambandsins eru
erlendis eða á leið til landsins.
Allt fór í gang hjá Eimskipafélag-
inu á laugardag. Eyrarfoss fer á
hafnir í Evrópu, Reykjafoss á Norð-
urlöndin, Laxfoss er á leið til
Bretlands með frystan fisk. Mána-
foss fór til ísafjarðar með vömr,
Lagarfoss er að lesta saltsfld, Ljósa-
foss er á ströndinni að safn
frystum físki, Dettifoss er að lest
fyrir Finnland, aðallega fískimji
og saltsfld. Urriðafoss er að losa .
Gmndartanga og lestar síðai
saltsfld. Bakkafoss kom til landsim
í gær og Skógarfoss kemur í dag
Gmndarfoss hefur verið að losa
Sundahöfn. Fjallfoss er í áætlunar-
siglingar í dag og Skeiðsfoss hefui
verið að losa salt í Hafnarfírði og
leiguskipið Baltica er á leið til
Bandaríkjanna.
Sjómenn samþykktu
FÉLAGAR í Sjómannafélagi
Reylqavíkur samþykktu nýgerð-
an kjarasamning við útgerðir
kaupskipa sfðastliðinn laugar-
dag. Atkvæðagreiðsla fór þann-
ig, að 94 voru samningum
fyigjandi og 11 voru á móti. Eft-
ir þetta er enn ósamið við félaga
í SR á skipum Landhelgisgæzl-
unnar, hafrannsóknaskipum og
sanddæluskipum.
Guðmundur Hallvarðsson, form-
aður Sjómannafélags Reykjavíkur,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að gmnnlaun háseta yrðu nú
27.401 króna og fyrsta október
yrðu þau komin upp í 29.078. Nú
verður dagvinna vaktgangandi há-
seta tekin á tímabilinu 06.00 til
20.00 á tví- eða þrískiptum vöktum,
en dagmenn vinna áfram frá 08.00
til 17.00. Greiðsla vegna nætur-
vakta í höfn breytist og kaffítímar
að nóttu til verða felldir niður. Þá
breytist líftrygging þannig, að sótt-
dauði í hafí verður bættur.
Guðmundur sagði, að þetta væri
helztu breytingamar á kjarassamn-
ingi undirmanna á kaupskipum og
hann byggist við því að samningar
þeir, sem eftir væm, drægju dám
af honum.
Það er mat samningsaðila að
launahækkanir til undirmanna hafí
verið 7-8% umfram þær hækkanir,
sem samið var um á hinum almenna
vinnumarkaði.
Kaupskipin:
Viðræður við yfir-
mennina standa yfir
VIÐRÆÐUR um kaup og kjör
yfirmanna á farskipum og við-
semjenda þeirra standa nú yfir,
en samningar voru lausir um
áramót. Farmenn hafa hvorki
boðað verkfall né vísað deilunni
til sáttasemjara.
Guðjón A. Kristjánsson, forseti
Farmanna- og fískimannasam-
bands íslands, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að viðræður við út-
gerðir kaupskipanna hefðu staðið
frá því í desember. Búið væri að
fara yfír ýmsa liði samningsins og
hefði talsvert þokazt. Um launaliði
hefði verið ætlunin að ræða á fundi
í gær og líklegast gæti þetta geng-
ið fljótt fyrir sig.
Menningamálanef nd:
Nefnd um rekstur
íbúðar í París
TVEIR fulltrúar hafa verið til-
nefndir í nefnd fyrir hönd
Reykjavíkurborgar, sem sjá mun
um rekstur íbúðar fyrir íslenska
listamenn í París.
Á fundi menningamálanefndar
sem haldinn var síðastliðinn mið-
vikudag var samþykkt að tilnefna
tvo fulltrúa, þær Elínu Pálmadóttur
blaðamann og Herdísi Þorvalds-
dóttur leikkonu, í nefnd sem sjá
mun um rekstur á íbúð í París. íbúð-
in er ætluð íslenskum listamönnum
til skemmri dvalar. Þriðja fulltrúann
í nefndinni tilnefnir íslenska ríkið.
ÞVEGNAR
GALLABUXUR
OG MARGT - MARGT FLEIRA
&KARNABÆR
§1 P unglingadeild,
Austurstræti 22, Reykjavík
Dettifoss siglir út úr Reykjavíkurhöfn að loknu hinu langa verkfalli.