Morgunblaðið - 10.02.1987, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987
Bann við efna-
vopnum verður
tæpast samþykkt
Genf, Reuter.
BANDARÍKJASTJÖRN mun krefjast þess að settar verði
afdráttarlausar reglur um eftirlit áður en samið verður
við Sovétríkin um bann við framleiðslu efnavopna.
Kenneth Adelman, forstöðu-
maður Afvopnunarstofnunar
Bandaríkjanna, skýrði á föstudag
frá afstöðu stjómvalda á af-
vopnunarráðstefnu 40 rílg'a, sem
stendur yfir í Genf. Vestrænir
sendimenn kváðust telja litlar
líkur á að samkomulag um bann
við framleiðslu efnavopna yrði
undirritað á þessu ári.
Háttsettir sovéskir embættis-
menn hafa sagst vongóðir um að
stórveldin komist að slíku sam-
komulagi fyrir næsta haust, en
þá hyggjast Bandaríkjamenn
hefja framleiðslu efnavopna á ný.
Adelman sagði efnavopnabirgðir
Bandaríkjamanna ófullnægjandi
vöm gegn sívaxandi ógn frá
hendi Sovétmanna á þessu sviði.
Bandaríkjamenn stöðvuðu fram-
leiðslu eftiavopna árið 1969.
Vestrænir hemaðarsérfræð-
ingar telja Sovétmenn eiga á
milli 200.000 til 500.000 tonn
af eiturefnum til hemaðamota
og em birgðir þessar m.a. annars
geymdar í ríkjum bandamanna
Sovétríkjanna austan jámtjalds-
ins.
Sovétmenn hafa lýst sig „í
grundvallaratriðum‘‘ samþykka
málamiðlunartillögu Breta sem
gerir ráð fýrir að sérhveiju ríki
beri að heimila eftirlit innan 72
klukkustunda eftir að krafa þess
efnis er sett fram. Bandaríkja-
stjóm telur hins vegar að ekki
megi líða meira en einn sólar-
hringur þar til eftirlit fer fram.
Fulltrúar frá kjamorkuveldun-
um fimm, (Bandaríkjunum,
Sovétríkjunum, Kína, Frakklandi
og Bretlandi) sitja ráðstefnuna í
Genf en ríkin hafa freistað þess
að ná samkomulagi um bann við
framleiðslu efnavopna allt frá því
á sjöunda áratugnum.
Adelman kvað Sovétstjórnina
ekki sýna nægilegan samnings-
vilja og gilti þá einu hvort um
væri að ræða efnavopn eða önnur
afvopnunarmál. Hann sagði
Bandaríkjastjóm hafa fyrir því
óyggjandi heimildir að Sovét-
menn hefðu hafíð þróun háþró-
aðra vamarvopna löngu áður en
geimvamaráætlun Ronalds
Reagan forseta komst í hámæli.
Hann sagði 10.000 sovéska
vísindamenn vinna að smíði leysi-
vopna og að einum milljarði
Bandaríkjadala væri varið til
þessa verkefnis á ári hveiju.
Ku Klux Klan, enn að
Reuter.
Að undanförnu hefur komið til átaka á nokkrum
stöðum í Bandaríkjunum vegna skoðanaágreinings
milli manna um kynþáttamál. Samtökin Klu Klux
Klan, virðast lifa góðu lífí og í síðustu viku fóru
um 100 meðlimir samtakanna í mótmælagöngu í
Atlanta vegna morðs á 15 ára hvítum dreng, sem
sagt er að fjögur svört ungmenni hafi myrt. Á
sama tíma efndu aðilar er beijast fyrir mannrétt-
indu til fundar í borginni.
Heilbrigðisráðherra Ítalíu um alnæmi:
Sá sem sýkist getur
sjálfum sér um kennt
Torino, frá Brynju Tomer, féttaritara Morgainblaðsins.
CARLO Donat Cattin, heilbrigð-
isráðherra Ítalíu, sagði í þingum-
ræðum um alnæmi á miðvikudag,
að hver sá sem héðan í frá sýkt-
is af alnæmiveirunni gæti sjálf-
um sér um kennt, þar sem
upplýsingar um sjúkdóminn
væru þegar kunnar alþjóð. Full-
yrðing þessi hefur valdið miklu
fjaðrafoki á ítalska þinginu og
hafa sósíalistar og kommúnistar
sameinast gegn heilbrigðisráð-
herra og skoðun hans á málinu.
Alnæmi er óneitanlega umdeildur
sjúkdómur og skoðanir manna á
upplýsingastreymi um eðli sjúk-
dómsins, smithættu og öðru eru
jafn misjafnar og mennimir eru
margir. Fyrr í vikunni var alnæmi
til umræðu á ítalska þinginu og sú
skoðun heilbrigðisráðherra, að hver
sá sem héðan í frá smitist af veir-
unni geti sjálfum sér um kennt,
hefur valdið miklu fjaðrafoki. Ráð-
herrann, sem er í Kristilega
demókrataflokknum, segir að gera
verði ráð fyrir því að almenningur
viti nú hvemig veiran getur borist
milli manna og því verði hegðunar-
mynstur fólks að miðast út frá því.
„Sá sem sýkist af alnæmi hefur
Nafimáfner
8L86-4403
Kennitala
170253-2649
Kennitala
í stað nafnnúmers
Kennitala er 10 stafir, 6 fyrstu tákna fæðingardag, mánuð og ár, 4
síðustu eru fæðingarnúmer og -öld.
Kennitala kemur fram á
skattframtölum
nafnskírteinum
sj úkrasamlagsskí rteinum
bankakortum
V
Vinsamlegast athugið, að skattframtöl þessa árs og skattlagning fer
fram á kennitölum. Hafið því kennitöluna á reiðum höndum.
Hagstofan
sjálfur leitað eftir því," er skoðun
ráðherranns.
Sósíalistar og kommúnistar hafa
sameinast gegn þessari skoðun heil-
brigðisráðherra og fara fram á að
Bettino Craxi, forsætisráðherra
landsins, svari því formlega hvort
þetta sé almenn skoðun ríkisstjórn-
arinnar. Þeir hafa einnig farið fram
á aukna heiibrigðisþjónustu við al-
næmisjúklinga og hafa lagt fram
fyrirspum um áætlanir til vamar
ítölskum föngum, en talið er að í
ítölskum fangelsum séu um 50%
fanga, (alls um 20.000 manns)
sýktir af veirunni. Komið hefur til
tals að aðskilja heilbrigða fanga frá
sýktum og ákveðin fangelsi verði
eingöngu notuð fyrir þann hóp
fanga sem þegar er sýktur.
Almenn umræða um sjúkdóminn
eykst sífellt og á rannsóknarstofum
eru mörg hundruð blóðprufur
rannasakaðar á hveijum degi. Því
verður ekki neitað að töluverð
hræðsla hefur gripið um sig í kjöl-
far aukinnar umræðu um alnæmi
og hræðslan kemur því miður fram
í sefasýki í sumum tilfellum. Vitað
er um fímm heilbrigða aðila sem
látist hafa í kjölfar þessarar
hræðslu. Fyrir um einum mánuði
myrti maður þungaða konu sína og
son og framdi síðan sjálfsmorð.
Þetta gerði hann af ótta við að
vera haldinn sjúkdómnum. Síðan
kom í ljós að hann var heilbrigður
og einnig kona hans og sonur. í
þessari viku átti svipaður atburður
sér stað nálægt Mílanó, er ung hjón
sviptu sig lífi af sömu ástæðu. Þau
létu eftir sig fimm ára son og höfðu,
skv. því sem foreldrar konunnar
segja, farið í fjölmargar blóðrann-
sóknir. „Þær voru aliar neikvæðar,
en dóttir mín og tengdasonur voru
þess fullviss að vera haldin þessum
hræðilega sjúkdómi," segir Rosa
Zambo, móðir konunnar. „Þau
komu til mín með son sinn síðastlið-
inn mánudag og báðu mig að líta
eftir honum meðan þau færu að ná
í niðurstöður síðustu blóðrannsókn-
arinnar. Ég var róleg því ég vissi
að þau höfðu áður farið í sams
konar rannsóknir og niðurstöðurnar
höfðu alltaf verið neikvæðar. Ég
skil ekki hvers vegna þau héldu
áfram að fullyrða að þau væru
sýkt."
Niðurstöðumar úr þessari
síðustu blóðrannsókn ungu hjón-
anna voru einnig neikvæðar. Samt
sem áður fóru þau á hótel skammt
utan við Mflanó, þar sem þau leigðu
sér herbergi. Þau skrifuðu bréf til
ættingja sinna, báðust afsökunar á
gjörðum sínum og báðu um að vel
yrði hugsað um hinn fimm ára
gamla son þeirra. Síðan frömdu þau
sjálfsmorð og eftir situr fimm ára
gamalt bam og aðrir ættingjar
hjónanna, sem í raun geta ekki
flokkast undir annað en raunveru-
leg fómarlömb alnæmi.
Fyrsta kynlífsrann-
sóknin undirbúin í Kína
Peking-. AP.
Undirbúningur fer nú fram
fyrir fyrstu kynlífsrannsóknina
í Kína, að þvi er hin opinbera
fréttastofa Xinhua sagði á
sunnudag.
Xinhua sagði, að 177 manna
hópur hefði verið þjálfaður í þessu
skyni og mundi starfa í Heilongj-
iang-héraði í Norður-Kína. Hópur-
inn mun ræða við íbúa héraðsins
um kynlífsmál, hafa fræðslu með
höndum og veita ráðgjöf.
Fréttastofan hafði eftir Wu Jiep-
ing, varaforseta Kínversku vísinda-
og tæknistofnunarinnar, að þekk-
ing á öllum þáttum kynlífsins og
siðgæði gegndu mikilvægu hlut-
verki í framþróun sósíalískrar
hugsjónar og menningar.
Kynlíf hefur samkvæmt hefð ver-
ið forboðið efni í opinberum
umræðum í Kfna, en á síðustu ámm
hafa dagblöð þar í landi hvatt til
þess, að kynlífsfræðsla yrði aukin
í skólum í því skyni að auka sið-
gæði ungs fólks á þessu sviði.