Morgunblaðið - 10.02.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987
25
Að lokínni vigslu var hinum nývigðu prestum boðið á heimili
biskupshjónanna við Laufásveg ásamt ættingjum þeirra og vin-
um og var þessi mynd tekin við það tækifæri: Talið frá vinstri,
biskupshjónin hr. Pétur Sigurgeirsson og frú Sólveig Ásgeirs-
dóttir, sr. Amfríður Guðmundsdóttir og maður hennar Gunnar
Matthíasson, sr. Gunnlaugur Stefánsson og kona hans Sjöfn
Jóhannesdóttir og sr. Karl Valgarður Matthíasson og kona hans
Sesselja Björk Guðmundsdóttir.
Vígð til prestsstarfa
BISKUP íslands. hr. Pétur Sig- kalli, Gunnlaugur Stefánsson var
urgeirsson, vigði á sunnudag- vígður til starfa sem sóknarprest-
inn þijá guðfræðikandidata til ur í Heydalaprestakalli í Aust-
prestsstarfa. Vígslan fór fram fjarðaprófastdæmi og Karl
í Dómkirkjuimi. Valgarður Matthíasson var vígður
Amfríður Guðmundsdóttir var til starfa sem sóknarprestur í
vígð til starfa sem aðstoðarprest- Staðarprestakalli í Súgandafirði.
ur í Garðasókn í Kjalamespresta-
Hestahvarfið í Öxarfirði:
Eins og jörðin
hafi gleypt þá
- segir Kristián Benediktsson á Þverá
MÁNUÐUR er nú liðinn síðan sjö
hestar f eigu Kristjáns Bene-
diktssonar á Þverá í Öxarfirði
hurfu sporlaust. Hestarnir voru
á túninu við bæinn Þverá og
þaðan voru þeir horfnir allir með
tölu einn morguninn.
„Það miðar ekkert í leitinni að
hestunum, við erum búin að fljúga
hér tvívegis yfír öll nærliggjandi
afréttarsvæði og leita á öllum
mögulegum og ómögulegum stöð-
um en höfum einskis orðið vísari.
Amnað eins hefur ekki áður skeð
hér í sveitinni," sagði Kristján í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gær. Honum hafa borist
vísbendingar frá fólki víða að og
þær verið kannaðar eftir föngum,
en allt kemur fyrir ekki. Nú er ver-
ið að leita í öllum auðum útihúsum
og á eyðibýlum á svæðinu eftir að
kona hringdi til Kristjáns frá Sel-
fossi en hana dreymdi hestana sjö
innilokaða í gamalli hlöðu.
Aðspurður sagði Kristján að lög-
reglan hefði ekkert nálægt málinu
komið, enda teldi hann afar ólíklegt
að hestunum hefði verið stolið og
reyndar hefði hann alltaf útilokað
þann möguleika. Hann sagði að
takmarkið væri að fínna hestana,
hvort sem þeir væru dauðir eða lif-
andi.
Morgunblaðiö/Birgir Ólafsson
Mikið annríki hefur verið á ísafjarðarhöfn að undanförnu.
Mikið annríki
í Isafiarðarhöfn
ísafjörður.
AÐ undanförnu hafa níu græn-
lenskir togarar landað hér.
Grænlenska frystiskipið Polar
Nanoq, sem er í eigu nokkurra
grænlenskra togaraútgerða hefur
verið hér í nokkra daga til að lesta
afla þessarra skipa, en í gær lét
það úr höfn og siglir til Danmerkur
með farminn, sem síðar verður
dreift á Evrópu- og Japansmarkað.
Auk þess er nú verið að landa úr
öðrum þremur grænlenskum togur-
um, alls 4-500 tonn, en sá farmur
fer utan í gámum. Að sögn áhafna
hefur gengið mjög vel hjá þeim í ár.
Gísli Elís.
* Gildir til 7/3
SKfÐAPARADÍSIN
ZLLL AM SEL
Hvernig vœri að skreppa í vetrarfrí til ZELL AM SEE
í Austurríki? Þar er eitt glœsilegasta vetraríprótta-
svœði í Evrópu og þó víðar vœri leitað. Skíðalyftur
við bœjardyrnar flytja skíðaíólk upp í brekkur við
allra hœfi. Þar taka þrautreyndir skíðakennarar við
byrjendum og innan fórra daga er farið að takast ó
við brekkur atvinnumanna.
ísilagt þorpsvatnið er ókjósanlegt fyrir þó sem vilja
bregða sér ó skauta og gönguskíðasvœðið er ein-
staklega skemmtilegt. Veitingahús eru víðs vegar um
skíðasvœðið, ölstofur og diskótek í þorpinu ósamt
glœsilegum gististöðum. Þetta allt
saman og meira til er alveg ótrúlega ódýrt.
Tveggja vikna ferð fyrir fjóra, tveir fullorðnir
og börn 2ja—12 óra, dvalið ó íbúða-
hótelinu HAGLEITNER, kostar ekki nema
kr 20.860*
pr. mann
i. ^4vSaIzburger
■/¥*"& Land
Vetrarfrí í fögru austurrísku
fjallaþorpi er nokkuð sem
seint gleymist.
Allar nánari upplýsingar fást á
söluskrifstofum Flugleiða,
umboðsmönnum
og ferðaskrifstofum.
Upplýsingasími
25100
FLUGLEIÐIR