Morgunblaðið - 10.02.1987, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987
finningstölurnar 7. febrúar 1987.
Heildarvinningsupphæð: 4.631.331
1. vinningur var kr. 2.320.095,-
Þar sem enginn fékk fyrsta vinning, færist hann yfir á fyrsta
vinning í næsta útdrætti.
2. vinningur var kr. 694.908,- og skiptist hann á milli 194ra
vinningshafa sem fá kr. 3.582,- hver.
3. vinningur var kr. 1.616.328,- og skiptist á milli 6414 vinn-
ingshafa, sem fá 252 krónur hver.
Upplýsinga-
sfmi:
685111.
T-KORT
tmtm<
©
iðnaðarbankinn
Fréttabréf af Snæfellsnesi:
Tók upp rófur í janúar
Breiðuvík.
JANÚARMÁNUÐUR hefur verið
með eindæmum góður, mikil hlý-
indi, snjólaust og jörð að verða
klakalaus. Þann 27. janúar tók
ég upp rófur, sem eftir urðu í
garðinum í haust og voru þær
óskemmdar. Slíkt mun ekki hafa
gerst hér áður. Jörð er að byija
að lifna.
Á Litla-Kambi í Breiðuvík gerðist
það fáum dögum fyrir jól að 3 kind-
ur heimtust, með þeim hætti að þær
komu sjálfar heim í tún á næsta
bæ, en túnin liggja saman, aðeins
girðing á milli. Kindumar vom 1
ær og 2 lömb, en ærin átti ekki
lömbin, heldur vom þau undan öðr-
um ám bóndans. Kindurnar litu vel
út og vom í góðum holdum. Ingólf-
ur Guðmundsson bóndi á Litla-
Kambi sagði að kindumar hefðu
verið í eins góðum holdum og féð
sem búið var að kappgefa síðan það
var tekið í hús í október.
Bændur em almennt óánægðir
með skerðingu fullvirðisréttarins,
þar sem hún er framkvæmd á mjög
óréttlátan hátt, og það er skoðun
manna að það þurfi að endurskoða
og laga hið bráðasta ef ekki eigi
illa að fara.
Vegamál
Vegir hér em mjög blautir núna,
sérstaklega þar sem ofanburðurinn
er lítill og lélegur, nýbúið er að
hefla Utnesveg og afleggjarana of-
an að Hellnum og Amarstapa, og
hefur það ekki gerst áður að Utnes-
vegur hafi verið heflaður í janúar-
mánuði. Einnig er vegurinn ofanað
Arnarstapa hálf ófær vegna bleytu
og vöntunar á góðum ofaníburði.
Nú er mikil umferð um þennan
veg því fólk héðan frá Hellnum fer
margar ferðir á dag milli pláss-
anna, það er fólk sem vinnur á
Amarstapa við fiskverkun og kem-
ur það sér illa að þurfa að keyra
þennan slæma veg, og eins er með
stærri bíla sem flytja salt og fisk
til og frá.
Útgerð
Tveir þilfarsbátar hafa róið frá
Amarstapa með línu síðan um miðj-
an janúar, Bjarmi 9 tonna heima-
bátur og Ólafur 15 tonna frá
Vestmannaeyjum. Afli hefur verið
góður og hefur borist á land síðan
um miðjan janúar 35 til 40 tonn.
Bjarni Einarsson á Eyri tekur fisk-
inn eins og áður. Ingjaldur Indriða-
son Stóra-Kambi sem hefur verið
með fiskverkun og hefur frystiað-
stöðu hefur fengið allan steinbít hjá
Bjarna sem veiðst hefur til verkun-
ar. Ingjaldur flakar steinbítin og
roðflettir, svo em flökin sett í fryst-
ir. Ingjaldur sagðist búast frekar
við að hann færi á Frakklandsmark-
að.
Talsvert hefur veiðst af steinbít
á línuna. Ein trilla hefur farið einn
róður með færi og fékk tæp 100
kg. Einn maður var á bátnum. Mik-
ill áhugi virðist vera hjá mönnum
að gera út trillur frá Amarstapa á
komandi vori og sumri.
Ingólfur Guðmundsson oddviti
sagði að 10 umsóknir hefðu borist
til sín um lóðir undir sumarbústaði
við Amarstapa og 4 umsóknir um
árshús.
Menn vonast fastlega eftir að
haldið verði áfram að bæta höfnina
á Amarstapa.
Bjami Einarsson fiskkaupmaður
er nýbúinn að kaupa þilfarsbát;
Stapatind, 15 tonn. Báturinn er
nýkominn og verður hann gerður
út frá Amarstapa. Hann hefur að-
eins prófað með dragnót en lítið
fengið.
Hjörleifur Kristjánsson Amarfelli
hefur nú nýlega hafíð matsölu í
veitingahúsinu Amarbæ sem hann
byggði á síðastliðnu ári og hafði
þar hótel á síðastliðnu sumri.
Nú hefur hann fengið ráðskonu
í bæinn, og matreiðir hún fyrir sjó-
mennina og aðra þá sem vilja fá
sér þar mat.
F.G.L.
AMSTRAD
Fjölbreytt og vandað námskeið í notkun
Amstrad CPC 464/6128.
Dagskrá:
* Grundvallaratriði við notkun Amstrad.
* Amstrad Basic.
* Töflureiknirinn Multiplan.
* Gagnasafnskerfið D-base II.
* Helstu atriði við notkun stýrikerfisins CP/M.
* Umræður og fyrirspurnir.
Tími: 17., 19.f 24. og 26. febrúar kl.
20—23.
Innritun í símum 687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Borgartúní 28, Reykjavík.
ALLT í RÖÐ OG REGLU!
Ef þú ert þreytt(ur) á óreiöunni
og uppvaskinu í kaffistofunni
þá er Duni kaffibarinn lausn á vandanum.
Duni er ódýrasti barinn í bænum
Duni kaffibarinn sparar bæði tíma og pláss.
Hann getur staðið á borði eða hangið á vegg.
- hann kostar aðeins kr. 3.721.-
(Innifalið í verði:
Málmstandur,
2000 mál, tíu höldur
og 500
teskeiðar.) FAIMIMIR HF
■^vwet^
Bíldshöfða 14, sími 672511
Björgunarsveitir — Bændur
Verktakar — Veiðimenn
HOlVlDAki kynnir fjórhjóla-
farartækið með drifi áöllum hjólum, sem
fer allt. ★
9R3504a :
★
Eigum nokkur fjórhjól fyrirliggjandi
Vél, 25 hestöfl
Sprengirúm 350 cc
4- gengis benzínvél
5- gírar, 1 afturábak
Rafstart
Vökvafjöðrun
Vökvabremsur
Hjólbarðar 24x9-11
Benzíntankur 10,5 I
Tengill fyrir 12 volt
15A
Hæðfrá jörðu 16 sm
Þyngd 259 kg
Síðast en ekki
síst driföxlar
og hjöruliðir
vandlega lokaðir.
Verð kr.
235.300,-
staðgreitt
Honda á íslandi — Vatnagörðum 24, sími 38772.