Morgunblaðið - 10.02.1987, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 10.02.1987, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987 55 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691100 KL. 13-14 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS LU mth zs If Þessir hringdu . . . Barnaefni um helgar? Síla, hringdi og vill spyija forr- áðamenn ríkisútvarpsins hvort vænta megi þess, að komið verði til móts við yngstu áhorfendur sjónvarpsins og farið að sýna bamaefni á laugar- og sunnudög- um? ! íranann burt Ásmundur Guðmundsson, Akranesi, hringdi og sagði: Ég hlustaði á fólk svara spumingunni hvort taka ætti við flóttafólki eða ekki í útvarpinu einn morgun í síðustu viku. Við munum þau læti er urðu vegna hingaðkomu Gervasone, hins franska. Hann kom til landsins á röngum pappír- um eða pappírslaus. Hann hafði brotið íslensk lög, var meðhöndl- aður í samræmi við það og sendur til síns heima. Nú er á landi hér írani, hann kom til landsins á ferðamannapappírum eftir því sem sagt er. Vera hans hér þróað- ist upp í það að biðjast hælis sem pólitískur flóttamaður. Ef við tök- um við honum umyrðalaust, emm við þar með búnir að kalla jrfir okkur skriðu af fólki, alls staðar að úr heiminum á ferðamanns- pappímm, sem biðst svo hælis sem pólitískir flóttamenn eftir komuna til landsins. Það er stórhættuleg stefna, arfleifð okkar er í stór- hættu, tungumál líka. Þar að auki getum við búist við hryðjuverka- fólki í bland, auk annarra sem stunda margvísleg misferli. Af slíku höfum við nóg. Við höfum ekki efni á að auka við slíka starf- semi. Við eigum að losa okkur við þennan Irana til þess lands sem hann vill sjálfur fara til. Þakkirtil Bylgjunnar Eyjólfur, hringdi og vildi þakka útvarpsstöðinni Bylgjunni, fyrir skemmtilega umfjöllun um hunda í þætti Hallgríms Thor- steinssonar, Reykjavík síðdegis, sl. miðvikudag. Sagði Eyjólfur að þar hefði m.a. komið fram að sam- kvæmt nýútkominni skrá yfír hundanöfn í Reykjavík, þá væri aðeins einn Snati á þessu svæði. Hver er hinn óheppni? Lilja, hringdi og sagðist hafa í höndunum kuldastígvélapar, frá Gefjun, loðfóðrað, með rennilás. Væri annað stígvélið nýtt og nán- ast ónotað nr. 38 eða 39, hitt stígvélið væri gamalt og mikið notað nr. 42-44. Skipti hefðu greinilega átt sér stað og biður hún þann herramann, ér hefur verið svo óheppinn að glata öðru nýja kuldastígvélinu sínu að hafa samband í síma 681698. Hálspúðar óskast Erla, hringdi og sagðist vera búin að leita mikið að sænskum plasthálspúðum sem hún hafði heyrt um fyrir jól, en ekki getað fundið. Þessir púðar ættu að vera sérhannaðir fyrir þá sem bakveik- ir væru. Ef einhver getur liðsinnt Erlu er viðkomandi beðinn um að hafa samband við Velvakanda. Blöðá spítölum 7279-0340,hringdi og sagðist hafa orðið mjög undrandi þegar hún komst að því, er hún heim- sótti sjúkling á Vífilstaðaspítala, að þangað kæmi ekkert dagblað og ekki væru þau heldur seld þar. Hún spyr hvemig á þessu standi, hvort ekki séu keypt blöð á spítalana? Ekki dægurlög í símann Ragnheiður, hringdi og sagð- ist ekki kunna vel við það, þegar spiluð væru erlend dægurlög í síma fyrirtækja, á meðan við- skiptavinirnir biðu eftir af- greiðslu. Vildu hún hvetja til þess að menn væru dálítið þjóðlegir og spiluðu helst íslensk lög eða góða sígilda tónlist. Hver tapaði barnaúri? Kona, hringdi og sagðist hafa fundið bamaúr. Þeir sem sakna slíks geta hringt í síma 40413. Gullhálsmen tapast Sigga.hringdi og sagðist hafa tapað gullhálsmeni laugardaginn 31. janúar, á Lækjartorgi, við Glæsibæ eða í Sólheimum. Hún biður finnanda vinsamlega að skila því gegn fundarlaunum og hringja í síma 43303. Pistill til umhugsunar íþróttir eru vinsælt sjónvarps- efni, á því er enginn vafí. Hins vegar deila menn oft um hvaða íþrótta- greinar séu skemmtilegastar. Knattspyma og handknattleikur em vafalaust þær greinar sem njóta hylli meginþorra landslýðs. Rflcis- sjónvarpið hefur staðið sig vel hvað þessar greinar varðar, líklega of vel, á kostnað hinna fjölmörgu íþrótta sem það sýnir aldrei frá (t.d. torfærukeppni, svo eitt dæmi sé tekið af mörgum). Þar sem ég er skíðamaður og vil fylgjast með minni íþrótt, og þá helst í sjónvarpi (þó ber þess að geta að flest blöð mættu taka sig á í þessum efnum), verð ég að lýsa óánægju minni með sýningar frá keppni á skíðum. Það var sú tíð að skíðaíþróttin fékk þolanlega um- fjöllun í sjónvarpi (þess ber þó að geta að oftast voru laugardagar valdir til útsendingar þegar flestir voru á skíðum), en nú er svo komið að svo lítið (ekkert) er sýnt frá íþrótt þessari að nauðsynlegt er að kvarta. Langar mig að benda Bjama Felixsyni á það, að tilvalið væri að minnka hlut skautadans (sem virð- ist vera í mjög miklu uppáhaldi hjá honum) þó ekki væri nema um t.d. 10—16 mín. á viku og sýna frá skíðamótum bæði innanlands og utan. Hins vegar langar mig að þakka Heimi Karlssyni fyrir mjög fjöl- breytta og skemmtilega íþrótta- þætti á sunnudögum og einnig fyrir það að fá mjög hæfa þuli utan úr bæ, sem þekkja viðkomandi íþrotta- grein út og inn. Það efni sem Heimir hefur boðið upp á hefur fært manni sönnur á að það eru til fleiri íþrótta- greinar en boltaíþróttir, golf og skautadans. Einn hundóánægður íþróttaglápari. EkkiHrafn Gunnlaugsson Það skal tekið fram að bréf það, er birtist um ágæti sjón- varpsins 6. febrúar sl. og undirritað var Hrafn, var að sjálfsögðu ekki eftir Hrafn Gunnlaugsson, dagskrárstjóra sjónvarpsins. Til eru fleiri Hrafnar, en Hrafn Gunnlaugs- son. Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 13 og 14, mánu- daga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundur óski nafíileyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér I dálkunum. Hefur Sjálfstæðisflokkur- inn fallið frá fyrirheit- um um afnám tekjuskatts? Skattgreiðandi spyr: „í allri umræðunni um stað- greiðslukerfl skatta hefur eitt atriði gleymst, en það er hvort væntan- legt frumvarp fjármálaráðherra um staðgreiðslukerfí skatta þýði í raun að Sjálfstæðisflokkurinn hafi end- anlega fallið frá fyrri fyrirheitum um afnám tekjuskatts. Við hátíðleg tækifæri og þegar mikið liggur við (t.d. við atkvæðaveiðar) hefur Sjálf- stæðisflokkurinn gjaman flaggað með Ijálglegum yflrlýsingum um afnám tekjuskatts, enda ber flest- um saman um að sá skattur sé afar óréttlátur. Óþarfí er að fara nánar út í þá sálma hér, en staðreyndin er sú, að tekjuskattur heidur áfram að vera óréttlátur, hvort sem stað- greiðslukerfí við innheimtu hans verður tekið upp eða ekki. Spum- ingin er því þessi: Hefur Sjálfstæð- isflokkurinn, með væntanlegu staðgreiðslufrumvarpi fjármálaráð- herra, endanlega fallið frá fyrir- heitum um afnám tekjuskatts? — Svar óskast fyrir næstu kosningar. REYKJAVÍK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.