Morgunblaðið - 10.02.1987, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.02.1987, Blaðsíða 12
VI MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987 Um 40.000 kr. en ekki 34.000 kr. Athugasemd við bréf eftir Indriða H. Þorláksson í Morgunblaðinu föstudaginn 6. febrúar 1987 birtist bréf til fjár- málaráðherra ritað af Heimi Páls- syni framhaldsskólakennara. Ekki er mér kunnugt um hvort fjármála- ráðherra telur ástæðu til að svara skrifum sem þessum og elta ólar við þær rangfærslur sem þar koma fram en vegna þeirra lesenda sem kynnu að leggja trúnað á skrif Heimis tel ég mér skylt að koma á framfæri leiðréttingu á helstu mis- færslum hans. Vera kann að virða eigi Heimi til vorkunnar að hann hefur fyrir sitt leyti lagt trúnað á frásagnir talsmanna BHMR, sem virðast af einhvetjum ástæðum hafa kosið að leyna því sem fram kom af hálfu samninganefndar ríkisins í samn- ingaviðræðunum eða að hylja það í þeim moðreyk að hrekklausar sál- ir missa átta. Ekki verður því trúað að viðmæl- endur okkar hjá BHMR hafí ekki náð að skilja það sem þar fór fram. Sams konar tillögur settar fram með sama hætti í viðræðum við BSRB og aðildarfélög þess hafa verið þar í umfjöllun án nokkurs misskilnings þrátt fyrir að allnokk- uð vanti á að félagar og talsmenn þeirra samtaka hafí öll þau mennt- unarstig sem prýða BHMR. í viðræðum við samninganefnd BHMR lagði samninganefnd ríkis- ins fram tillögur sinar um breyting- ar á samningum BHMR. í stuttu máli voru meginatriði þeirra þessi: 1. Að laun félaga i BHMR hækki á samningstímanum í sömu áföngum og samið var um miili ASÍ og VSI, þ.e. um 2%, 1,5% og 1,5% á tilteknum tímapunkt- um. 2. Að laun félaga í BHMR yrðu tryggð á samningstímanum með launanefnd aðila á hliðstæðar. hátt og gert var í samningum á almennum markaði. 3. Að launatöflu BHMR og starfs- aldursreglum yrði breytt á þann veg að fyrstu tvö starfsaldurs- þrepin yrðu felld niður og tímalengd til að ná öðrum þrep- um stytt. Ennfremur að öðrum atriðum eins og t.d. reglum um röðun i launaflokka yrði breytt þannig að meðalhækkunin af þessum tölulið yrðu innan tiltek- inna marka til viðbótar við hækkanir skv. tölulið 1. Það þarf ekki mikla athugun eða skarpskyggni að sjá að sú breyting sem samninganefnd rfkisins lagði til að gerð yrði á launatöflunni hefði ein leitt til þess að byijunarlaun háskólamenntaðs framhaldsskóla- kennara yrðu um 38.000 kr. á mánuði við upphaf samningstimans og með áfangahækkunum um 40.000 kr. í árslok 1987. Sé um grunnskólakennara að ræða yrðu tölur þessar um 37.000 kr. og 39.000 kr. í tölum þessum eru ekki meðtaldar fastar aukagreiðslur til kennara. Ekki er ljóst hvert Heimir sækir sínar 34.000 kr. en eitt er víst að Iraninn farinn úr landi: Fékk vega- bréfsáritun til Bandaríkjanna Indriði H. Þorláksson ekki er það úr tilboði samninga- nefndar ríkisins. Hins vegar virðist það vera meira í ætt við hugmynd- ir samninganefndar BHMR en af óljósum tillögum hennar má helst ráða að hækka eigi hærri laun mun meira en þau lægri. Þeirri stefnu hefur samninganefnd BHMR reyndar fylgt um alllangt skeið og náð nokkrum árangri í því efni, sem komið hefur niður á byrjunarlaun- unum. Tillögur samninganefndar ríkis- ins um niðurfellingu fyrstu starfs- aldursþrepanna miðuðu að því að hækka byijunarlaunin mest þó að samningurinn yrði í heild í takt við þá samninga sem gerðir hafa verið að undanfömu. Ennfremur benti nefndin á að frekari hækkunum innan þess svigrúms sem fyrir hendi væri mætti beina í þau atriði sem aðilar legðu mesta áherslu á hvort sem það væru byijunarlaunin eða annað. Tillögum þessum hafnaði samn- inganefnd BHMR enda eru þær andstæðar þeirri stefnu BHMR að hækka hæstu launin mest. Hjal þeirra um byijunarlaunin er því vart annað er uppgerðarumhyggja og áhuginn svo mjög bundinn við áróðursgildi þeirra að staðreyndir eru léttvægar fundnar ef henta þykir. Sem dæmi um það eru til- raunir Heimis o.fl. til að telja mönnum trú um að ágreiningur standi um það hvort laun kennara eigi að vera 34.000 kr. í árslok 1987 eða ekki. Nú vita þeir jafnvel og ég að í árslok 1986 var innan við einn tugur háskólamenntaðra kennara á launum undir 34.000 kr. og væru nú engir ef tillögum samn- inganefndar ríkisins hefði verið tekið. Að lokum. Fullyrðingu Heimis um svör mfn sem formanns samn- inganefndar rikisins við svokallaðri „endurmatsskýrslu" um markleysi hennar vegna aðildarskorts fjár- málaráðuneytisins ber að skrifa á reikning skáldskaparhneigðar hans. Hún á sér engan stað f raunveru- ieikanum. Höfundur er skrifstofustjóri í fjirmálaráðuneytinu og formaður samninganefndar ríkisins. ÍRANINN, sem dvalið hefur hér á landi sfðan f desember sfðast- liðnum, fór með Flugleiðavél til Bandaríkjanna sfðdegis á laugar- dag. Að sögn Þorsteins Geirssonar fékk íraninn vegabréfsáritun hjá bandaríska sendiráðinu og ákvað hann þá að fara til bróður síns, sem búsettur er í Salt Lake City. Sá mun hafa haft símasamband við íslensk yfírvöld vegna þessa máls og taldi hann góðar líkur á að bróð- ir hans fengi framlengt þeirri ferðamannaáritun sem hann hafði til Bandaríkjanna og fengi þar dval- arleyfí til lengri tíma. Ellefu fyrirtæki taka þátt í hugbún- aðarsýningu IBM SÝNING á hugbúnaði fyrir Sýnendur eru ellefu fslensk System/36 tölvur verður haldin hugbúnaðarfyrirtæki, auk IBM á dagana 12.-14. febrúar nk. hjá íslandi. Á sýningunni verður lögð IBM á íslandi. Tilgangur sýn- áhersla á hagnýt verkefni og nýj- ingarinnar er m.a. að gefa ustu tækni fyrir þessar tölvur. heildarmynd af þeim fjölþætta Sýningin verður opin kl. 10. hugbúnaði, sem fáanlegur er 00-18.00 sýningardagana og eru hér á landi fyrir IBM S/36. allir velkomnir. STÓRAR 4RA HERB. ÍBÚÐIR Vl.RllJ TOHJ [5 E EE ID. ■- □ cm □ mm □ mm m c irm^ í þessu vandaða húsi sem nú er að rísa í Frostafold 14-16 verða til sölu óvenju rúmgóðar íbúðir. ATH. Öll sameign utandyra og inn- an verður fullfrágengin, þ.m.t. malbikuð bílastæði, tyrfð og hellu- lögð lóð með leiktækjum. Tegund Stærð Nettó Bnlttó Verð Fjöldl Einstaklib. fm 37,32 45,23 kr. 1.825 þús. 1 Einstaklib. fm 43,05 52,18 kr. 1.930 þús. 1 2ja herb. fm 55,14 66,83 selt 2ja herb. fm 66,10 80,11 selt 3ja herb. fm 90,43 109,55 selt 4ra herb. fm 101,24 122,68 kr. 3.230 þús. 5 4ra herb. fm 111,71 136,29 kr. 3.335 þús. 4 5 herb. m. bilsk. fm 137,50 166,61 kr. 3.960 4 Penth. m. bllsk. fm 132,00 160,00 selt Möguloiki er á að bflskýli fylgi ftoirl íbúöum. Vorö bflskýlis kr. 366.000. ö Húsafell FASTFIGNASALA Langhoitsvegi 115 (Bæjarkiðahúsmu) Stmi: 681086 í hverri íbúð verður dyrasími og dregið í fyrir sjónvarpsloftneti. Sér þvottaherbergi verður í öllum 3ja herbergja íbúðum og stærri. Lyfta verður í húsinu. íbúðirnar af- hendast tilbúnar undir tréverk í nóvember 1987. Dæml um grkjör 4ra herb. íbúöar: ef viðkomandi er að kaupa í fyrsta sinn og hefur fullan lánsrótt. Við undirr. kaupsamn. kr. 350.000 Með tilkomu húsnláns kr. 2.460.000 Með 12 jöfnum mángr. (12x35.500) kr. 420.000 kr. 3.230.000 28611 Nýjar eignir á skrá Kaplaskjólsvegur. Stórglœsil. 5 herb. íb. um 120 fm á 4. hœð í lyftuhúsi. Tvennar svalir. Bílskýti. Gufubað o.fl. Ákv. sala. Fornhagi. Falleg 4ra herb. I ca 100 fm ib. á 3. hœð. Suður svalir. Mikil sameign s.s sér- frystigeymsla. Ákv. sala. Hraunkambur Hafnf. Járnvarið timburhús. Kj., hœð og ris um 130 fm. Töluvert endum. Laust fljótl. Baldursgata. 3ja herb. I ib. á 1. hæð i tvibhúsi. Allt sér. Verð ca 2 millj. Víðimelur. 2ja herb. ca 60 I fm kj.íb. Borgarhraun Hvera- gerðí. Einbhús á einni hœð. Tvöf. bllsk. Sundlaug. Verð ca 4,2 mlllj. Dynskógar Hvera- gerði. Eldra einbhús, ein hæð og ris. 1000 fm ræktuð lóð. Laust. Verð ca 2 millj. Grenimelur. 2ja herb. es fm kjib. Sérínng. Ákv. sala. Spóahólar. 2ja herb. 65 fm á 3. hæð. Suðvsv. Falleg Ibúð. Þingholtsstræti. un 3ja-4ra herb. falleg 65 fm sérhæð I tvfbhúsl. Laus. Kj. fylgir. Furugrund. 3ja herb. ca 90 fm ásamt herb. f kj. með snyrtingu. Vesturgata. 4ra-5herb. 117 fm íb. á 2. haeð m. suðursv. í lyftuhúsi. 2 saml. stofur og 2 stór svefnherb. Mikið útsýni tll norðurs. Skólabraut Seltjn. 4raherb. 85 fm rísib. Geymsluris yfir. Suðursv. Kambasel. 200 fm raöhús á tveimur hæöum. m. innb. bflsk. Garðabær. 360 fm einbhús á tveimur hæðum þar af 70 fm Innb. bilsk. , nær tilb. u. trév. Teikn. á skrifst. Húsog Eignir Bankastræti 6, s. 28611. Lúðvfc Gizuraraon hrL, *. 17S77. r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.