Morgunblaðið - 10.02.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987
29
Sovétríkin:
Leons Trotsky getið
í flokksmálgagninu
Moakvu, Reuter.
I grein sem birtíst í Pravda,
málgagni sovéska kommúnista-
flokksins, í gœr er byltingarleið-
togans Leons Trotsky getið. Allt
frá dögum Stalíns hefur hann
verið úthrópaður sem „svikari
og þorpari“ í Sovétríkjunum.
Greinin fjallar um Vasily
Chapayev hershöfðingja í Rauða
hemum en í gær var öld liðin frá
fæðingu hans. Sagt er frá því er
Trotsky kom í eftirlitsferð til borg-
arinnar Nikolayevsk nærri Volgu í
september árið 1918. Chapayev féll
í bardaga við andstæðinga bolsé-
vikka árið eftir og hafa ráðamenn
og flölmiðlar í Sovétrílqunum lýst
honum sem þjóðhetju fyrir framlag
hans til byltingarinnar.
í greininni er þess ekki getið að
Trotsky var um þetta leyti yfirmað-
ur hersins, sem hann raunar setti
á stofn og skipulagði. Greinina ritar
hermaður, sem barðist með
Chapayev, og segir í henni að Trot-
sky hafi skipað honum að láta af
skæruhemaði, sem hann hafði beitt
gegn svonefndum hvítliðum með
góðum árangri. Mun Trotsky hafa
þótt skæruhernaður hershöfðingj-
ans einkennast af skipulagsleysi.
Flugumaður Jósefs Stalín myrti
Leon Trotsky í Mexíkó árið 1940.
Trotsky hafði þá orðið undir í valda-
baráttu við Stalín og verið gerður
útlægur. Margir helstu leiðtogar
bolsévikka voru myrtir í tíð Stalíns
og vom nöfn þeirra afmáð af spjöld-
um sögunnar. Væri þessara manna
Leon Trotsky, sem raunar hét
Lev Davidowich Bronstein.
getið var þeim lýst sem svikurum
og þorpumm.
Frá því Mikhail Gorbaehev komst
til valda í Sovétríkjunum hefur
sagnfræðingum verið leyft að
rannsaka sögu Stalíns og hinna fjöl-
mörgu fómarlamba hans. Á næstu
mánuðum munu verða gefnar út
nokkrar bækur um valdaskeið
Stalíns. Ein þeirra er eftir Anatoly
Rybakov og fjallar hún um Sergei
Kirov, sem háði valdabaráttu við
Stalín og var myrtur árið 1934.
Ráðamenn í Kreml hafa boðað
útgáfu nýrrar bókar um sögu sov-
éska kommúnistaflokksins. Frétta-
skýrendur telja margir hveijir að
hún komi til með að skýra að hve
miklu leyti ráðamenn em reiðubún-
ir til að líða endurskoðun sögunnar.
Búist er við að bókin komi út fyrir
70 ára afmæli byltingarinnar í nóv-
embermánuði.
Hlekkjaði sig við
tré fyrir framan
Berlínarmúrinn
Vestur-Berlín, AP.
VESTUR-Berlínar-búi hlekkjaði sig
við tré í nágrenni landamærastöðv-
ar á mörkum Austur- og Vest-
ur-Berlinar á laugardag til að
mótmæla reglum austur-þýskra
stjómvalda um vegabréfsáritanir.
Vestur-þýska lögreglan sagði, að
maðurinn, sem var áður austur-þýskur
borgari, hefði verið að mótmæla því,
að stjómvöld í Austur-Þýskalandi neit-
uðu honum um leyfi til að koma austur
yfir til að vera við útför móður sinnar.
Samkvæmt venju er Austur-Þjóð-
veijum, sem fengið hafa leyfi til að
flytjast vestur yfir, meinað að koma
til Austur-Þýskalands aftur.
Lögreglan sagði, að maðurinn hefði
hlekkjað sig við tré í nágrenni landa-
mærastöðvarinnar Checkpoint Charlie
snemma laugardags og hafst þar við
þangað til á sunnudagskvöld.
Reuter
Hálfnað er verk...
Hluti fresku eftír Michelangelo úr hvelfingu sistínsku kapellunn-
ar í Vatikaninu. Verið er að hreinsa myndii a og er verkið
hálfnað. Búið er að hreinsa höfuð og handlegg og kvið og hluta
vinstri lapparinnar. Má sjá á bijóstkassanum að hreinsunin var
orðin tímabær.
HINN EINI OG SANNIl
tórútsölumarkaður
HELDUR ÁFRAM
í NÝJA
BÍLABORGA RHÚSINU
Á FOSSHÁLSI 1
(Gengið inn Dragháismegin)
Opnunartími:
Föstudaga 13—19.
Laugardaga: 10—16.
Aðra daga: 13—18.
Strætisvagnaferðir á
15 mín. fresti
- leið 15B,
stanzar beint við
dyrnar.
Vöfflur með rjóma
Frítt kaffi
Videóhorn fyrir
börnin
GÍFURLEGT VÖRUÚRVAL
Steinar: Bezta úrvalið af hljómplötum og kassettum frá upphafi. Hummel: Dúnúlpur, barnaúlp-
ur, barnaskíðagallar, skíðastretchbuxur, skíðavattbuxur, íþróttaskór, jogginggallar, æfingagallar,
topphúfur, lúffur, T-bolir, stuttbuxur. Rafkaup: Borðlampar, standlampar, hangandi Ijós, kastar-
ar, kastarabrautir, vegglampar, Ijóshundar o.fl. TopphúslA: Kvenfatnaður, sokkabuxur, skartgripir.
Yrsa: Snyrtivörur, slæður, treflar, skartgripir. Theodóra: Kápur, dragtir, jakkar, buxur, peysur,
pils. íslenzki verAlistlnn: Dömufatnaður. Garbó: Dömuhátískufatnaður. FrlArlk Bertelsen:
Fata- og gardínuefni í miklu úrvali, sængurfatnaður, handklæði. Kárl: Garn, leikföng, gjafavörur.
TorgiA: Skór, skór, skór, herraskyrtur, bindi, buxur, peysur, nærfatasett, dömublússur, pils, kjól-
ar, barnafatnaður, sokkar. Blanda: Barnafatnaður, vinnufatnaður, gjafavörur. Magna: Andlits-
myndir, þrykktar á boli eftir þinni ósk. Blómabásinn: Blóm á tilboðsverði. Z-brautlr og
gluggatjöld: Gífurlegt úrval af efnum og gardínuefnum. Karnabær: Tískufatnaður og efni i miklu
úrvali. Bonaparte: Herrafatnaður í sérflokki.
Fjöldi fyrirtaakja
KARNABÆR - FRIÐRIK BERTELSEN - HUMMEL - STEINAR - RAFKAUP - THEODÓRA - TOPPHÚSIÐ - TORGIÐ - KÁRI -
BLANDA - YRSA - GARBÓ - BONAPARTE - BLÓMABÁSINN -ÍSLENZKI VERÐLISTINN - Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD