Morgunblaðið - 10.02.1987, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987
17
Ríkissjónvarpið:
Böðullinn og skækjan
eftir Hrafn Gunnlaugsson
Stephanie Sunna Hockett og Niklas Ek í hlutverkum skækjunnar
og böðulsins í mynd Hrafns Gunnlaugssonar.
Sjónvarp
Amaldur Indriðason
Böðuliinn og skækjan (Bödeln
och skökan). Sýnd í ríkissjón-
varpinu 9. feb.
Sænsk. Leikstjóri og hand-
ritshöfundur: Hrafn Gunn-
laugsson. Framleiðandi:
Sænska sjónvarpið. Kvikmynda-
taka: Peter Fischer. Tónlist:
Hans-Erik Philip. Helstu hlut-
verk: Niklas Ek, Stephanie
Sunna Hockett, Kjell Bergkvist,
Per Oscarsson, Kjell Tovle og
Sune Mangs.
Sænska sjónvarpsmyndin Böð-
ullinn og skækjan eftir Hrafn
Gunnlaugsson, sem sýnd var í
ríkissjónvarpinu í gærkvöldi, var
framan af næstum yfirþyrmandi
leiðangur um mannlegan dýragarð
ofbeldis, afskræmingar og hór-
dóms. Hrafn hefur fundið sér stíl
í ofurraunsæjum umhverfís- og
mannlýsingum miðaldanna, nið-
umíðslu og eymd, myrkri þeirra
og vonleysi.
Það má sjálfsagt margt segja
um þessa nýjustu mynd hans, sem
gerð er eftir sögu Ivars Lo-Johans-
sons, og þá fyrstu sem hann gerir
í útlandinu. Og það á örugglega
margt eftir að verða sagt um hana
en aldrei það að Hrafn skorti hug-
rekki til að gera akkúrat það sem
honum sýnist þótt það geti vakið
hneykslan manna.
Hann hefur verið umdeildur
kvikmyndagerðarmaður frá því
Blóðrautt sólarlag leit dagsins ljós
og hispurslaus framsetningarmát-
inn í Böðlinum og skækjunni á
ekki eftir að róa hneykslunar-
gjarna. Myndir hans hafa verið
Hrafn Gunnlaugsson
misjafnar í gegnum tíðina en með
Hrafninn flýgur urðu kaflaskil;
hann hafði ekki áður gert mynd
af sömu fagmennskunni, ákveðn-
inni og þunganum. Böðullinn og
skækjan er ánægjulegt og rökrétt
framhald þess.
Myndin, sem gerist í Svíþjóð í
upphafi 18. aldar, er um ást og
fómfysi í guðsvoluðum heimi. Hún
dregur upp andstæður ljótleika og
fegurðar í miskunnarlausu um-
hverfi og Hrafn er í essinu sínu
þegar hann lýsir soralegu mannfé-
laginu með blóðugum aftökum,
skítugum hórum og forljótu fólki
yfír höfuð. Útlit þess og hegðun
kallar á líkingu við dýraríkið.
Menn slafra í sig mat eins og svín
með tilheyrandi búkhljóðum og
slefi, hórast og slengjast um
dauðadrukknir í drullu og skít.
Hjá Brittu í hóruhúsinu fæst „mik-
ið hold fyrir lítið“.
Hrafn er spar á textann framan
af. Sá litli texti sem er, er ekki
aðeins klámfenginn og ruddalegur
heldur vekur hann beinlinis ógeð
í atriðinu þar sem böðlamir ræða
saman um starf sitt undir kjöt-
pottunum. En ákafí Hrafns við að
lýsa niðurdrepandi umhverfinu og
draga upp andstæðu við fallega
ástarsögu böðulsins og skækjunn-
ar verður til þess að ástarsagan
er alls ekki eins sterk og hún
gæti orðið og tilefni er til, heldur
hálfgert aukanúmer.
í stað textans kemur sterkt
myndmál. Leikmyndin er fimagóð
og búningar Karls Júlíussonar
einnig, vandaðir og viðeigandi.
„Böðullinn" er gerð fyrir sjónvarp
og umgjörð hennar hæfir því vel
í bráðgóðri kvikmyndatöku sem
fangar svo vel hinn myrka og
drungalega heim sögunnar.
Niklas Ek leikur böðulinn og
minnir stundum á franska leikar-
ann Gerard Depardieu í útliti. Ek
er ástríðufullur leikari og lýsir af
tilfinningahita þessum manni sem
hefur enga stjóm á örlögum
sínum, er hataður af öllum og
hafður að háði og spotti. Eina
vonarglætan í lífi hans er hóran
Úrsúla. Stephanie Sunna Hockett
leikur hana blíðlega en átakalaust
og ekki af neinni sérstakri innlif-
un. Aðrir leikarar koma minna við
sögu en standa sig vel.
Böðullinn og skækjan á sjálf-
sagt eftir að kveikja leiftur í
augum siðapostula lesendadálk-
anna, þeirra sömu og hrópuðu
klám og svívirða út af ágætu hand-
bragði Kristínar Jóhannesdóttur í
sjónvarpsuppfærslu á leikriti Nínu
Bjarkar, Líf til einhvers. En Hrafn
er vanur slíkum látum. Hann er
upp á sitt besta þessa stundina.
„Böðullinn“ er aðeins undanfari
að enn stærra verki sem er Tristan
og Isold, sem hann gerir einnig í
samráði við Svía. Það verður gam-
an að sjá hvað úr því verður.
BV
Hcmd
lyfH-
vttgnar
Eigum ávallt fyrirliggjandi
hinavelþekktu BV-hand-
lyftivagna með 2500
og 1500 kílóa lyftigetu.
UMBOÐS OG HEILDVERSLUN
BÍLDSHÖFOA 16 SÍML6724 44
Sérstakt tækifæri!
Skrifstofuhúsnæði
Til sölu er skrifstofuhúsnæði í nýju vönduðu húsi í Skipholti.
Er hér um að ræða skrifstofuhúsnæði í eftirfarandi stærðum:
★ 2. hæð 275 fm. ^eld-
★ 3. hæð 325 fm + 325 fm = 650 fm.
★ 4r hæð (;:Denthou3o“V-533 -fm. Seld.
Húsnæði þetta er nú í smíðum og verður fokhelt 30. aprfl 1987,
en verður afhent 31. október 1987 í eftirfarandi ástandi:
★ Tilbúið að innan til innréttinga og málningar.
★ Með fullfrágenginni sameign og vönduðum frágangi eftir hönnun Sturlu
Más Jónssonar innanhússarkitekts.
★ Húsið verður fullfrágengið að utan með vönduðum frágangi á lóð eftir hönn-
un Guðmundar Sigurðssonar landslagsarkitekts.
Verð og greiðsluskilmálar:
★ Verð pr. fm er kr. 32.950 miðað við staðgreiðslu og byggingavísitölu 1. jan-
úar 1987, 293 stig.
★ Gert er ráð fyrir ýmsum möguleikum á greiðsluskilmálum, sem allir verða
reiknaðir til núvirðis miðað við ofangreint verð.
Hér er um sérstakt tækifæri að ræða m.a. vegna þess, hve stað-
ur er góður og allur frágangur sérlega vandaður. Nánari
upplýsingar verða veittar alla virka daga milli kl. 9 og 14 í
símum 31965 og 82659.