Morgunblaðið - 10.02.1987, Page 18

Morgunblaðið - 10.02.1987, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987 TÖLVUBÓKHALD Byrjendanámskeið í notkun PC-tölva við bókhald. Kennd er undirbúningsvinna fyrir tölvukeyrslu og kynnt er notkun tölvubókhaldskerfisins. Dagskrá: ★ Upprifjun á gömlu góðu bókhaldsreglunum. ★ Uppsetning reikningslykla. ★ Merking fylgiskjala. ★ Verklegar æfingar í notkun bókhaldsforrits. ★ Notkun bókhaldsins við áætlanagerð. Lelðbeinandl: Ellert Steindórsson hagfræðingur. Tími: 16.—19. febrúar kl. 17—20. Innritun í símum 687590 og 686790. Tölvufræðslan Borgartúni 28, Reykjavík. Námskeiðið hefst 18. febrúar kl. 9-12 og stendur yfir í 6 miðvikudagsmorgna. Nokkur höfuðatriði sem Qallað er um: 1. Hvernig skipuleggja skal með hagnaði — bæði til skammtíma og langtíma. 2. Hvernig tryggja skal, að markmiðum verði náð. 3. Gera áætlanir um forgangsatriði — á mánaðarlegum, vikulegum eða daglegum grundvelli. 4. Hvernig efla skal aðgerðir til hagnaðar á öllum athafna- sviðum. 5. Hvernig valddreifing fer fram á réttan hátt og byggja upp eftirlitskerfi, til að tryggja framkvæmd þeirra verka, er framseld hafa verið. 6. Hvernig samræma skal átök alls starfsliðs — svo að úr verði hópátak og samstilltar aögerðir. 7. Hvernig leysa skal vandamál og taka ákvarðanir með hjálp „innbyggðra" matsmælikvarða. 8. Hvernig efla skal fólk — hvetja það til meiri afreka — auka starfsáhuga — tryggja vöxt og viðgang. 9. Hvernig gera skal fólk ábyrgt fyrir árangri — og hvern- ig meta skal afköst. 10. Hvernig stjórna skal með ásetningi — og hvernig gæða skal störfin tilgangi og mikilvægi. 11. Samræming starfsliðs — aðferðir til að ná slíku fram á samfelldan, friðsaman hátt, svo að árangurinn verði hópá- tak. 12. Langtímaverkefni — aðferðir til að tryggja framgang þeirra með áætlanagerð og eftirliti. 13. Eftirfylgd — skrefaskipulagning, til að tryggja, að farið sé eftir þeim hugmyndum, er kynntar hafa veriö í stjórnun- aráætluninni. 0 STJÓRNUIMARSKÓLINN Konráð Adolphsson Einkaumboð fyrir Dale Carnegie námskeiðin* SOGAVEGI 69 108 REYKJAVÍK O 82411 Húsnæðiskerfið riðar til falls eftirJóhönnu Sigurðardóttur Nú þegar nokkur reynsla hefur fengist af nýja húsnæðislánakerfinu er ástæða til að meta hvert stefnir. Munu áætlanir sem byggt var á um fjárhagslegar forsendur og útlána- þörf standast? Og kannske það sem mest er um vert — geta húsbyggj- endur og íbúðakaupendur treyst á að við þau fyrirheit og stóru loforð, sem gefin voru með húsnæðislög- gjöfinni, verði staðið? Hér verða raktir nokkrir megin- þættir sem nú blasa við í fram- kvæmd húsnæðislaganna og hvers megi vænta fyrir húsbyggjendur og íbúðakaupendur: 1. Hvaða áhrif hafa nýju lögin haft á verðþróun fasteigna. 2. Biðtími lántakenda eftir lánafyr- irgreiðslu. 3. Fjármögnun húsnæðiskerfísins. 4. Félagslegi hluti húsnæðiskerfís- ins. 5. Staða þeirra sem byggðu eða keyptu íbúðir fyrir gildistöku laganna, og eru í miklum greiðsluerfíðleikum. Sanitas MEÐEINU SÍMTALI er hægt að breyta innheimtu- aðferðinni. Eftir það verða áskriftargjöldin skuldfærð á viðkomandi greiðslukorta- reikning mánaðarlega. SÍMINN ER 691140 691141 „Flestir þeir sem sóttu um í desember sl. þurfa að bíða fram á næsta ár, nema forgangs- hóparnir sem fá fyrri hlutann e.t.v. í lok þessa árs. I það virðist því stefna að fjármagn þessa árs nægi ein- göngu til að mæta lánsumsóknum sem bárust í sept., okt. og nóv. sl.“ V er ðhækkanir á íbúðum Frá því í ágúst sl. og fram í jan- úarmánuð, eða á sl. 5—6 mánuðum, hafa verðhækkanir á fasteignum á höfuðborgarsvæðinu orðið um 30%. Þetta jafngildir um 60% verðbólgu á fasteignamarkaðnum á ári. Hver er skýringin og hvaða áhrif hefur þetta fyrir húsbyggjendur og íbúða- kaupendur? Dæmi: 3ja herbergja íbúð sem í júlí sl. kostaði 2,2 milljónir króna kostar í dag 2,8—2,9 milljónir. Hún hefur því hækkað um 6—700 þús- und krónur. M.ö.o. rúmlega þriðjungur eða 6—700 þúsund af lánnnum hefur horfið í verð- hækkun & fasteignamarkaðnum, en lán til kaupa á eldri íbúð til for- gangshópa er nú 1.723 þúsund kr. Að auki hefur útborgun hækkað úr 71% í 75%. Það ásamt verð- hækkun fasteigna þýðir að útborgun sem reiða þarf fram í þessari íbúð, sem var 1.560 þús. er orðin 2,1 miljj., eða um 500 þús. kr. hærri en áður fyrir sam- bærilega íbúð. Reynslan hefur sýnt að þegar lán hækka skyndilega i hús- næðiskerfinu, þá fylgir þvi hækkun á fasteignaverði. En þetta er þó ekki meginskýríngin á þeirri verðþenslu sem nú liefur orðið á fasteignamarkaðinum. Ákvæði laganna gera ráð fyrir að þeir sem eru að kaupa og byggja í fyrsta skipti hafi for- gang. Aðrir verði að bíða. Og hvað þýðir það? Þeir sem eiga íbúðir fyrir og vijja stækka við sig halda meira og minna að sér höndum vegna þess að biðtimi eftir lánum er nú orðinn mjög langur (vegna desemberumsókna um 1 '/% ár). Þetta eru þeir hópar sem eiga íbúðirnar sem forgangshóparnir leita helst eft- ir. Framboð er því lítið af t.a.m. þríggja og fjögurra herbergja íbúðum og það spennir upp verð- ið. Á fasteignamarkaðinn verður að líta sem eina heild vegna keðjuverkandi áhrífa í íbúða- kaupum. Ef fjármagninu er stýrt í ákveðinn farveg, eins og til forgangshópa, án þess að gæta að því að nokkuð eðlilegt sam- ræmi sé einnig á stýringu láns- fjár til þeirra sem þurfa að stækka við sig, þá leiðir það til óeðlilegra verðhækkana fast- eigna. Verulega hefur veríð ofmetin sú aukning á fjármagni sem áætlað var með nýju lögun- um að kæmu á fasteignamarkað- inn. Skýríng þess er m.a. sú að lffeyrissjóðimir beina nú miklu af ráðstöfunarfé sínu í húsnæðiskerfíð og í það stefnir að sjóðfélagar hafa takmarkaðan eða engan aðgang að láni frá lífeyrissjóðunum til íbúða- kaupa. í mörgum tilfellum höfðu t.a.m. hjón áður fengið tvö Iífeyris- sjóðslán og G-lán frá Húsnæðis- stofnun, sem samtals má áætla að hafí verið fast að V% af því sem það nú er frá Húsnæðisstofnun. Nettóaukning fjármagns í hús- næðiskerfið í heild virðist því vera mjög ofmetin. Því hefur verið hald- ið fram, m.a. af Stefáni Ingólfssyni, sem starfaði hjá Fasteignamati ríkisins, að nettóaukning fjármagns með tilkomu nýju laganna hafi mest orðið 4% af veltu fasteigna- markaðarins eða 500—600 millj. kr. 30% hækkun á verði fasteigna á hálfu ári þýðir að sá hópur sem keypti á þessu tímabili hafí þurft að leggja fram rúmlega 700 milljón- um króna meira í reiðufé en ella vegna þessara hækkana. Því er spurt: Er nettó aukningin á flár- magni í húsnæðiskerfinu öll horfín í verðhækkanir á íbúðum? Biðtími lántakenda — Fjármögnun húsnæðis- kerfisins Á fyrstu 4 mánuðum eftir að lögin tóku gildi bárust 4.000 um- sóknir eða um 1.000 á mánuði. Áætlanir, sem nýja húsnæðislög- gjöfin byggði á, gerði ráð fyrir rúmlega 300 á mánuði fyrstu tvö árin eftir gildistöku laganna. Ljóst er því að forsendur útlánaáætlunar og flármögnunar voru stórlega van- metnar. Fjármagn til útlána úr Bygging- arsjóði ríkisins er á þessu ári 4,3 milljarðar kr. Ætla má að meðallán allra hópa (nýbygginga og eldri íbúða) sé að meðaltali um 1.500 þús. Það vantar því um 1,2—1,7 milljarða króna til að hægt sé á þessu ári að afgreiða þær umsóknir sem bárust fyrir áramótin, en upp- hæðin ræðst af því hve margar umsóknir falla út, sem uppfylla ekki skilyrði fyrir láni. Óvarlegt er þó að ætla að mikill fyöldi umsókna séu ekki lánshæfar. Þegar hefur því verið ráðstafað stórum hluta af flármagni næsta árs eða 1,2—1,7 milljörðum eingöngu vegna um- sókna sem bárust fyrir áramótin. Þar sem fjármagn mætir ekki út- lánaþörf á þessu ári þá er fjárskorti mætt með lengingu biðtímans sem nú er að meðaltali 15 mánuðir. Flestir þeir sem sóttu um í des- ember sl. þurfa að biða fram á næsta ár, nema forgangshópamir sem fá fyrri hlutann e.t.v. í lok þessa árs. í það virðist því stefna að fjármagn þessa árs nægi ein- göngu til að mæta lánsumsóknum sem bárust sept., okt. og nóv. sl. Þessi staða er mjög alvarleg því margir hafa treyst á að fá lánin miklu fyrr en nú stefnir í. Því er stór hópur í þeirri stöðu að hafa tekið skammtimalán f bönkum og treyst á húsnæðislán til að greiða þau lán niður. í janúarmánuði dró heldur úr umsóknum, sem voru milli 500—600 á móti 1.000 á mánuði fyrstu fjóra mánuðina áður. Ef var- lega er áætlað má gera ráð fyrir að það berist um 4.500 umsóknir á þessu ári eða um 375 á mánuði. Það er varieg áætlun ef til þess er litið að 1.000 umsóknir bárust á hveijum mánuði fyrstu flóra mán- uðina frá gildistöku laganna og 500—600 í janúarmánuði. Á verð- lagi ,í janúar 1987 þarf því 6,7 milljarða til að standa undir flár- þörf 4.500 umsókna. Þetta þýðir að þó gert sé ráð fyrir um 700 milljón króna viðbótaifyármagni frá lífeyrissjóðunum á næsta ári frá því sem nú er og að óbreyttu ríkis- framlagi, þá verður aðeins hægt að véita lán til 2.600 umsækjenda á árinu 1988 af 4.500, þar sem þegar hefur verið ráðstafað stórum hluta af fjármagni næsta árs vegna umsókna sem bárust fyrir áramót. Verði ekkert að gert verður meðal- biðtfmi nú f árslok orðinn um 20 mánuðir. Biðtími forgangshópa +

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.