Morgunblaðið - 10.02.1987, Page 26

Morgunblaðið - 10.02.1987, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987 Valentin Falin, yfirmaður Novosti-fréttaþj ónustunnar: Umbætur Gorbachevs jafngilda byltingu Bonn, Reuter. UMBÆTUR sem Mikhail Gorba- chev, formaður sovézka komm- únistaflokksins, hefur beitt sér fyrir jafngilda byltingu, að þvi er Valentin Falin, yfirmaður Novosti-fréttaþjónustunnar sovézku, sagði í viðtali, sem birt- ast mun í dag i vestur-þýzka blaðinu Die Welt. V-Þýskaland: Ráðherra græningja vikið úr starfi Stjórnin í Hessen fallin Frankfurt, AP. RÍKISSTJÓRI Hessen, Holger Börner, rak Joschka Fischer, umhverfismálaráðherra úr flokki græningja, úr stjóm sinni í gær. Þar með er fyrsta stjórn, sem græningjar eiga aðild að í Vestur-Þýskalandi, fallin. Fischer var rekinn úr stjóminni vegna deilna sem upp komu um hvort heimila bæri byggingu nýrrar plútóníumverksmiðju. Fischer var eini ráðherra græningja 5 stjóminni í Hessen. Þegar tilkjmnt var að hann hefði verið settur af kröfðust flokksbræður hans að þingið yrði leyst upp og efnt til nýrra kosn- inga. Stjómarandstöðuflokkamir studdu kröfu þeirra. Græningjar mynduðu sam- steypustjóm með jafnaðarmönnum í Hessen í desember árið 1985. Fischer var skipaður ráðherra um- hverfísmála og vakti mikla athygli er hann sór embættiseiðinn klæddur gallabuxum, vindjakka og striga- skóm. „Afleiðingar umbótanna eiga eft- ir að hafa gífurleg áhrif og rista djúpt í sovézku þjóðlífi. Breytingar kreíjast þess að menn tileinki sér nýjan hugsunarhátt og hegðan og framundan er aðlögunartími," sagði Falin. „I framtíðinni verður kosið í áhrifastöður, um stöðu verksmiðju- stjóra, stöðu deildarstjóra, í starf forstöðumanna stofnana og kosið verður milli manna í áhrifastöður í deildum flokksins um land allt,“ sagði Falin ennfremur. Hann gaf til kynna að jafnvel væri þess að vænta að látnar yrðu fara fram leynilegar kosningar til miðstjómar Kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Falin var inntur álits á því hvort Gorbachev væri ekki að taka óþarfa áhættu með umbótunum. Hann við- urkenndi að ágreiningur væri um stefnu Gorbachevs innan helztu stofnana flokksins en þær nytu þó almenns fylgis. „Eina sem ég hef áhyggjur af varðandi Gorbachev er að hann taki óþarfa áhættu með óvenjulegri vinnuhörku. Það getur ekki gengið mjög lengi og hlýtur að höggva skarð í starfsþrek manns að vinna 16 stundir á dag og taka sér aldrei frídag," sagði Falin. „Sósíalisminn þrífst ekki með því að halda fjöldanum í flarlægð frá þeim sem ákvarðanimar taka. Miklu heldur þarf hann að taka þátt í ákvarðanatökunni," sagði Falin. Þegar hann var spurður hvort þetta þýddi að pólitískum föngum og andófsmönnum yrði veitt sakar- uppgjöf sagði Falin að útilokað væri að sovézkir borgarar yrðu dæmdir fyrir að láta skoðanir sínar í ljós. „Eg geri ráð fyrir því að meira lýðræði hafi í för með sér göfugra dómkerfís. Það er verið að skoða þessi mál vandlega og einnig afstöðuna til þessa fólfs, sem hagað hefur sér ranglega," sagði Falin. Myndin var tekin er sovéska geimfarinu var skotið upp frá stjóm- stöðinni í Baikonur. Sovéskir geimfarar um borð í„Mir“ Moskvu, Reuter, Ap. SOVÉSKIR geimfarar hafa gangsett tækjabúnað geimstöðvarinn- ar „Mir“ að þvi er Tass fréttastofan sovéska sagði í gær. Um borð í „Mir“ era tveir geimfarar, Yuri Romanenko, 42 ára og Alexander Laveikin, 25 ára. Geimfari þeirra af Soyuz-gerð var skotið upp frá stjómstöðinni í Baikonur í Kazakhstan á föstudagsmorgun. A sunnudag tengdu þeir geimfarið geimstöðinni, sem er á braut umhverfís jörðu. í fréttum sovéska sjónvarpsins í gær voru sýndar myndir af geimförunum um borð í „Mir“. Brostu þeir sínu breiðasta og veifuðu til landa sinna á jörðu niðri. Haft er eftir vestrænum sérfræðingum, að sennilega muni geimafar- amir dveljast ekki skemur en 290 daga úti í geimnum og fara þannig fram úr fyrra dvalarmeti þar, sem er 237 dagar og var sett af geim- förunum Leonid Kizim, Vladimir Soluvyov og Oleg Atkov árið 1984. Bretland: Síma- verkfalli að ljúka London. AP. TVEGGJA vikan verkfalli 110.000 símamanna lýkur líklega í vikunni en í gær- morgun samþykktu formenn félaganna „með miklum meirihluta" að ganga að nýju kauptilboði Breska símafé- lagsins. Tilboðið er um 12,75% kaup- hækkun á tveimur árum og ætla forsvarsmenn símamanna að hvetja þá til að ganga að því. Mike Brett, einn af forstjór- um Símafélagsins, sagði, að samkomulagið gæfi félaginu færi á að „breyta vinnutilhögun- inni eins og við höfum lengi stefnt að“. Eftir að kauphækk- unin er að fullu komin til munu árslaun flestra símamanna verða frá 11,775 pundum upp í 13,276 pund, 700-800.000 ísl. kr. Var Liberace með alnæmi? Los Ang-eles. AP. Pianóleikarinn Liberace hafði smitast af alnæmi. Kom það í ljós þegar lík hans var krufið en ekki er þó víst, að sá sjúkdómur hafi átt nokk- ura þátt í dauða hans. Liberace lést 4. febrúar sl. og var banameinið hjartabilun, sem aftur mátti rekja til sýkingar í heila. Við krufningu kom í ljós, að hann hafði smitast af al- næmisveirunni en óvíst er og jafnvel ólíklegt, að hann hafí í raun verið orðinn veikur af þeim ástæðum. Aðdáendur píanóleik- arans látna hafa tekið þessum upplýsingum yfirvaldanna illa og finnst sem stundum megi satt kyrrt liggja. „Mér varð óglatt þegar ég heyrði þetta," sagði Edie Peterson, einn aðdá- endanna. „Það er óþarfí að vera að róta upp einkalífí manna eft- ir að þeir eru látnir." Noregnr: Saltfiskur til Brasilíu Ósló. Fr& Jan Erik Laure, fréttaritara Mbl. Saltfiskútflutningur til Brasilíu, sem áður var mesti salfiskmarkaður Norðmanna, mun hefjast aftur nú í febrú- ar. Bjame Haagensen hjá Brödr- ene Jangaard, sem flytur út saltfísk, segist búast við, að yfír- völd í Brasilíu gefí leyfi fyrir saltfískinnflutningi nú í mánuð- inum. Verðið verður líklega 25% minna en síðast þegar þeir keyptu af Norðmönnum en við- unandi samt og ekki ólíkt því, sem er á öðrum mörkuðum. Fróðleikur og skemmtun fyrir háa sem lága!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.