Morgunblaðið - 10.02.1987, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 10.02.1987, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987 27 Reuter Ár liðið frá falli Duvaliers Á laugardag var liðið eitt ár frá því Jean-Claude Duvalier, sem lýst hafði sjálfan sig forseta til lífstíðar, hrökklaðist frá vöidum á Haiti. Minntust menn þessa merkisatburðar með miklum hátíð- arhöldum. Á myndinni sést hvar Henri Namphy herforingi, núverandi leiðtogi Haitibúa, heilsar að hermannasið. Bandaríkin: Pravda: Harðorð lesendabréf gagnrýna kerfiskarla Moskva. Reuter. PRA VDA, málgagn sovéska kommúnistaflokksins, birti i gær harðorð iesendabréf þar sem þess var m.a. krafist að skýrt yrði frá starfsemi forsætisnefnd- ar sovéska kommúnistaflokksins og kvartað yfir því, að eingöngu meðlimir kommúnistaflokksins fengju þau störf er eftirsóknar- verðust þættu. í einu bréfmu voru kerfískarlar sakaðir um að reyna að kæfa fer- skar hugmyndir ráðamanna í Kreml og er litið svo á, að blaðið hafi með þessu verið að setja ofan í við and- stæðinga Mikhails Gorbachev, aðalritara. Alls voru birt 27 lesenda- bréf og þöktu þau heila síðu í flokksmálgagninu. Er birting þeirra í samræmi við yfirlýsta stefnu Gorbachevs, að fá venjulega so- véska borgara til þess að taka þátt í þjóðfélagslegri og efnahagslegri endumýjun. Einn lesandi talaði um nauðsyn þess að hæft fólk fengi stöðuhækk- anir og kæmist til áhrifa, jafnvel þótt það væri ekki í kommúnista- flokknum. „Ég er orðinn fertugur, en veit ekki um einn einasta verk- smiðjustjóra, eða bæjarstjóra sem ekki er meðlimur í flokknum", sagði Gashev, verkamaður frá norður Kákasus og fleiri bréfritarar tóku í svipaðan streng. Gorbachev, aðal- ritari, sagði á fundi miðstjómar flokksins í síðasta mánuði, að flokk- urinn þyrfti að losa sig við henti- stefnumenn og mætti ekki standa í vegi fyrir frama manna, þótt þeir væm ekki í kommúnistaflokknum. Annar lesandi er fjallaði um vilja flokksforystunnar til breytinga, vildi fá að vita meira um starfsemi forsætisnefndar kommúnista- flokksins, hvemig ákvarðanir væm teknar og hversu lýðræðisleg vinnu- brögðin væm. í allmörgum bréfanna var kvart- að jrfir sinnuleysi kerfískarla og andstöðu þeirra við breytingar og einn bréfritari sagði þá marga í mótmælaskyni „gera hreint ekki neitt — og mætti líkja slíkri hegðan Stj órnin breytir túlkun sinni á ABM-samningnum við skemmdaverk". Gengi gjaldmiðla London, AP. Uggur meðal bandamanna í Evrópu Washington, Briissel, AP. Reuter. GEORGE Shultz, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, segir að „lykilhlutir" í geimvamaráætl- uninni séu tilbúnir og tímabært sé að gera tilraunir með þá. Yfir- lýsingar hans þykja til marks um að Bandaríkjamenn séu að hverfa frá svokaUaðri „þröngri" túlkun á samningnum, sem tak- markar gagneldflaugakerfi (ABM-samningnum) frá 1972. Hefur það mætt lítilli hrifningu meðal bandamanna þeirra í Evr- ópu. Samkvæmt upplýsingum emb- ættismanna hjá Atlantshafsbanda- laginu (NATO) er óttast að ný túlkun Bandaríkjamanna á ABM- samningnum kunni að draga úr möguleikum á afvopnunarsamning- um við Sovétmenn. í gær sagði Hans-Dietrich Genscher, utanríkis- ráðherra Vestur-Þýzkalands, að það væri forsenda árangurs í af- vopnunarviðræðum stórveldanna í Genf að gildandi samningar um takmörkun vígbúnaðar væru virtir. Voru orð hans túlkuð sem gagnrýni á Bandaríkjamenn. Shultz hefur fram til þessa lýst annarri skoðun á ákvæðum ABM- samningsins en Caspar Weinberger vamarmálaráðherra. Ummæli Shultz í sjónvarpsþætti á sunnudag voru á hinn bóginn skilin á þann veg að Bandaríkjastjóm hallist nú að „nímri" túlkun á samkomulag- inu. í gær lofaði Shultz fulltrúum NATO að Bandaríkjamenn muni ráðfæra sig við bandamenn sína í Evrópu áður en lengra yrði haldið. Þá staðfesti hann, að Reagan- stjómin hefur ákveðið að túlka ABM-samninginn rúmt. Yfírlýsingar Shultz hafa mætt lítilli hrifningu í Evrópu og er það sagt til marks um ugg manna að Carrington lávarður, framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins, hefur ritað Bandaríkjastjóm bréf í nafni bandalagsins vegna málsins. Telja Evrópuríkin að ný túlkun stjómarinnar á samkomulaginu geri að engu vonir um árangur í afvopnunarviðræðum við Sovét- menn það sem eftir er valdatíma Reagans. Fulltrúar hjá NATO spá því að breyti Bandaríkjastjóm af- stöðu sinni til ABM-samningsins kunni það að valda örðugleikum innan bandalagsins. Ymis aðild- arríki, einkum þó Noregur og Danmörk, settu það sem skilyrði fyrir stuðningi við geimvamaáætl- un Reagan-stjómarinnar að hún færi í einu og öllu eftir gagnflauga- samningnum. GENGI Bandaríkjadollars lækk- aði gagnvart öllum helstu gjald- miðlum Evrópu. Gerðist það í kjölfar þess að James Baker, fjármálaráðherra Banda- ríkjanna, bar til baka orðróm um að fulltrúar fimm helstu iðnríkja heims hygðust koma saman til að koma á stöðugleika í gengis- málum. í London kostaði sterlingspundið 1,5165 dali (1,5081) þegar gjald- eyrisviðskiptum lauk í gær. Gengi dollarans var annars þannig að fyr- ir hann fengust:l,8290 vestur-þýsk mörk (1,8565), 1,5407 svissneskir frankar (1,5668), 6,0975 franskir frankar (6,1850), 2,0640 hollensk gyllini (2,0965), 1.300,50 ítalskar lírur (1.319,75), 1,3337 kanadískir dollarar (1,319,75) og 153,37 jap- önsk jen (154,45). Gullverð hækkaði vegna lækkun- ar dollarans. í London kostaði gullúnsan 405,85 dollara (403,25). Ballett Helga Tomas- sonar fær góða dóma HELGl Tómasson fær góða dóma hjá Önnu Kisselgoff, hinum kunna ballettgagnrýnanda New York Times, er hún fjallaði um sýningar San Francesco-ballettsins í blaði sínu. Helgi er sem kunnugt er fram- kvæmdastjóri og aðal danshöfundur ballettsins. Anna Kisselgoff segir að San Francisco-ballettinn hafí tekið stórstígum framförum á því hálfu öðru ári, sem liðið er frá því Helgi Tómasson tók við stjóm hans. Hafí klassískri tækni dansaranna fleygt fram, einkum táhreyfingum kven- dansaranna, og hafí það skilað sér rækilega og með eftirminnilegum hætti í þremur nýjum ballettum, sem sýningar eru nýhafnar á. Seg- ir að hin nýja tækni hafí notið sín einna bezt og að dansinn hafi náð hvað hæst í ballettnum „Innri radd- ir“ eftir Helga. Anna Kisselgoff segir að ballett- inn Innri raddir sé tileinkaður Erik Bruhn, kennara Helga í Danmörku, sem hvatt hafí Helga til að leita fyrir sér í danslistinni í New York. Kisselgoff segir Innri raddir frá- brugðnari fyrri ballettum Helga að hann hafi á sér frásagnarblæ. Helgi hafí sótt innblástur í ljóð Richards Monckton Milnes við samningu ball- ettsins, sem sé ljóðrænn og laus við alla væmni. Segir Kisselgoff ballett- inn hinn fegursta. Á verkefnaskránni var annar ballett eftir Helga Tómassonar, „Bizet Pas de Deux“, sem Kissel- goff segir hafa verið sérstaklega samin með það í huga að hæfíleikar Ludmila Lopukhova, fyrrum sóló- dansara við Kirov-ballettin í Len- ingrað, nytu sín sem bezt. Þriðji ballettinn, sem sýndur var í upp- hafí leikársins var „Sinfonia" eftir George Balanchine og Lew Christ- ensen. Christensen var forstöðu- maður San Francisco-ballettsins mjög lengi, en hann lézt árið 1984. I ballettnum njóta kvendansaramir sín vel, að sögn Kisselgoff og held- ur hún því fram í greininni í New York Times að líklega hafí ballett eftir Christensen aldrei verið gerð jafn góð skil og dansaramir í San Francesco, ballett Helga Tómasson- ar, gerðu. Ritkerfið WORD Vandað námskeið í notkun ritkerílsins WORD. Dagskrá: * Grundvallaratriðið við notkun PC-tölva. * Almennt um ritvinnslu með tölvum. * Ritkerfið WORD. * Æfingar í notkun kerfisins. * Helstu atriði við skrárvinnslu. * Umræður og fyrirspurnir. Að loknu námskeiði eru þátttakendur færir um að nota kerfið hjálparlaust. Leiðbeinandi: Margrót Pálsdóttir, Tími: 18., 19., 25. og íslenskukennari. 26. febrúar kl. 17—20. Innritun í símum 687590 og 686790. Tölvufræðslan Borgartúni 28, Reykjavík. TSítamatízadutinn ffý-iettitgötu 1-2-18 Sýnishorn úr söluskrá V.W Jetta C 86 19 þ.km. Hvítur, 2ja dyra. Gulifallegur bíll. VerÖ 440 þús. MMC Colt GLX 1.5 86 18 þ.km. Hvítur. 5 gíra, Ijóskastarar, gardínur o.m.fl. Verð 380 þús. Toyota Hi-Ace 1984 hvítur. Sæti f/5 farþega. Gullfallegur sendibíll. Verö 500 þús. Ford Econoline húsbill 1980 37 þ.km. Einn meÖ öllu. Tvöfallt rafkerfi, eldavél o.m.fl. Orginal húsbíll. Tilboð. Citroen CX 2000 Pallas 1983 Grásanseraöur, 5 gíra, rafm. i rúðum o.fl. Gullfallegur bfll. Verð 485 þús. Nissan Patrol Diesel 1984 _ Langur, 6 cyl., ekinn 93 þ.km. Ný dekk, ný ryðvarinn o.fl. Verð 650 þús. Skipti á ódýrari. Subaru 4x4 st. 1985 Grænsans., ekinn 34 þ.km., 5 gíra, afl- stýri, útvarp * segulband, 2 dekkjagangar. Verð 525 þús. Opið laugardag kl. 10-5 Mazda 929 st. 84 Sjálfsk. Vökvastýri o.fl. BMW 320 82 Ýmsir aukahlutir. V. 420 þ. Mazda 323 GT 1500 83 Rauður, ekinn 69 þ.km. V. 350 þ. Opel Ascona GL 84 32 þ.km. 5 gíra. V. 410 þ. Lada Lux 84 23 þ.km. Sílsalistar. V. 145 þ. Suzuki Fox 410 Yfirb. 84 25 þ.km. Klæddur. V. 525 þ. Subaru 1800 st. 4x4 86 Vökvastýri, útv.+kass. V. 580 þ. Fiat Uno 70S 85 21 þ.km. Sóllúga. V. 340 þ. M. Benz 230 E 83 Sjálfsk. m/öllu. V. 750 þ. Volvo 240 GL 84 60 þ.km., 6 gíra, spotrf. o.fl. V. 460 þ. Mazda 323 5d 82 65 þ.km. Sjálfsk. V. 230 þ. M. Benz 230 E 83 75 þ.km. Sjðlfsk. m/öllu. V. 750 þ. Saab 900i 85 32 þ.km. Bein innsp. o.fl. V. 550 þ. B.M.W. 730 79 Fallegur bfll. V. 460 þ. Cherokee 4x4 77 8 cyl. Sjálfsk. Gott eintak. V. 360 þ. Honda Prelude EX 85 28 þ.km. Sóll. A.B.S. o.fl. V. 630 þ. M.M.C Galant Turbo Diesel 86 30 þ.km. sjálfsk. m/öllu. V. 640 þ. Ath: Úrval bifreiða á 10- 20 mán. greiðslukjörum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.