Morgunblaðið - 10.02.1987, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987
V ertí ðarf réttir
Ólafsvík:
Erfið sjósokn
Ólafavík.
SJÓSÓKNIN var fremur erflð
frá Ólafsvík síðustu viku vegna
slæmra sjóveðra. Vikuna þar á
undan voru aftur á móti ein-
Hnpina blíður. Vikuafiinn var ekki
nema 463 tonn en frá áramótum
eru komin 1422 tonn á land. Yfir-
leitt var mun tregari afli þessa
vikuna nema helst hjá stærri
linubátunum sem eru fímm tals-
ins og réru þeir alla dagana.
Afli þeirra var þetta 5 til 8 tonn
en Garðar II hafði tvívegis tæp
8 tonn. Hann er hæstur línubát-
anna frá áramótum með 127,5
tonn í 18 róðrum. Níu bátar eru
bytjaðir með net. Aflahæstur
þeirra eru Auðbjörg með 136
tonn í 24 róðrum og Ólafur
Bjarnason með 80 tonn í 12 róðr-
um.
Um afia Auðbjargar er þó þess
að geta að hún réri með dragnót í
verkfallinu og er sá afli meðtalinn
sem fékkst þá. Þá réru þeir á bátn-
um eigendumir, íjórir talsins. Slíkt
er auðvitað umdeilt og er ekki vel
séð af verkfallsmönnum að farið sé
á svig við aðgerðir þeirra. Mörgum
þótti þó langt seilst í gagnrýninni
á eigendur Auðbjargar þegar frétt
kom í einu dagblaðanna þess efnis
að fengin hefði verið undanþága til
vélavörslu fyrir mann á áttræðis-
aldri til þess að báturinn kæmist í
róðra. Hefði verið helst að skilja á
fréttinni að settur hefði verið af-
ruglari á einhvem karlægan vesal-
ing, skellt upp í hann tönnunum
og hann hífður um borð. Hið rétta
væri það að tii þess að skrá mætti
lögiega á bátinn hefði verið fengin
undanþága fyrir einn eigandann en
hann er að verða 72 ára. Það hefði
verið auðsótt mál enda maðurinn
reyndur sjómaður frá bamæsku og
verið skráður allt frá kokki upp í
skipstjóra þar með talin vélgæsla.
Þar að auki gengi hann enn tein-
réttur að skipi og hefði róið í allt
haust á Auðbjörgunni sem fullgild-
ur háseti og ekkert verið upp á
hann að klaga. Þeir sömu menn
segja að ekki sé víst að sögumaður
blaðsins sé á neinn hátt klárari sjó-
maður en sá gamli og ef þeir reyndu
með sér við glas væri ekki minnsti
vafi á hvor færi fyrr undir borðið.
Hið eina fi-éttnæma í þessari sögu
hefði því verið það að svona fullorð-
inn maður stæði enn í róðrum. Það
væri þó alls ekki einsdæmi.
Síðasta vika var sem sagt ekki
gjöful fyrir netabátanna, næstum
ördeyfa, 1 til 3 tonn á dag í erfiðum
veðrum. Þó fékk Ólafur Bjamason
8,7 tonn á föstudaginn og 6,5 á
laugardag. Menn hafa samt engar
áhyggjur vegna tregðunnar því hér
er algengt að aflalítið sé í febrúar
þó janúar væri sæmilegur. Það
hýmaði þó vel yfir strákunum á
einum netabátnum þegar þeir fóru
í netakassann til að bæta neti í
trossu. Út úr netinum valt heil
flaska af „sterku". Netameistari
bátsins virðist ekki hafa haft alveg
á hreinu hvar stungið var í heyið
og því fór sem fór. Við bryggju var
svo skipt á milli skipveijanna og
mælt í krúsimar eins og þegar
krakkamir skiptu appelsíninu í
gamla daga. Afli dragnótabátanna
sem em fimm talsins hefur verið
misjafn. Þorgrímur Benjamínsson á
Skálavíkinni er þar aflahæsti skip-
stjóri með 47 tonn í 14 róðmm frá
áramótum. Hann hefur verið í góðu
stuði allt frá því í haust og fékk á
föstudaginn 23,5 tonn. Dagsafli
dragnótabátanna í sfðustu viku var
annars yfirleitt 2 til 5 tonn. Litlu
bátamir em þrír í róðmm og fara
með línu. Þeir róa með þetta 15 til
20 bjóð og hafa fengið 1 til 3 tonn
í róðri. Aflahæstur þeirra er Bylgja
I með 34 tonn í 13 róðmm. Togskip-
ið Jökull hefur landað tvívegis á
árinu og fengið 115 tonn alls. At-
vinna hefur verið allgóð og horfir
vel. Allmargt aðkomufólk er í Ól-
afsvík og er enn að fjölga
— Helgi
Örn KE í Sandgerðishöfn á sunnudaginn þar sem verið var að landa 350 tonnum af loðnu úr bátnum.
Agætur afli hjá
Sandgerðisbátum
SandnnkrAi
Sandgerði.
AFLABRÖGÐ Sandgerðis-
báta voru ágæt í síðustu viku
og alls lönduðu bátarnir 607,8
tonnum af bolfiski. Fjórir bát-
Yfirleitt góður afli
AlmnMÍ ^ *
Akranesi.
AFLI Akranesbáta hefur yfir-
leitt verið góður það sem af er
þessu ári. I liðinni viku lönduðu
þrir togarar afla sínum, Harald-
ur Böðvarsson 4. febrúar 95
tonnum sem að mestu var þorsk-
ur, Krossvík 5. febrúar 117
tonnum og Skipaskaginn sama
dag 66 tonnum.
Skímir sem stundar línuveiðar
landaði þrisvar í vikunni alls 25
tonnum og hefur hann aflað um
100 tonna frá því hann hóf veiðar
að loknu sjómannaverkfalli. Allur
afli hans er slægður um borð.
Loðnubátamir fjórir héðan frá
Akranesi hafa aflað vel þó litlu af
því sé landað í heimahöfn. Aðeins
Höfrangur landaði í síðustu viku
og var hann með 920 tonn. Afli
smábáta sem stunda línu og neta-
veiðar hefur verið góður sérstak-
lega hjá línubátunum. Hrólfur AK
sem er 10 lesta bátur fékk í vik-
unni tæpar 14 lestir og hefur frá
áramótum aflað alls 53,5 tonnum.
Af netabátunum fékk Anna Hall-
dórs AK mestan afla í vikunni tæp
6 tonn sem var að mestu þriggja
nátta fiskur. Sólfari mun á næstu
dögum heija netaveiðar og Akur-
nesingur AK hefur verið á rækju-
veiðum en hefur ekki enn komið inn
til löndunar.
- JG
Þorlákshöfn:
Vikuaflinn var
tæplega 700 tonn
Þorlákshöfn.
HEILDARAFLI vikunnar var
696,4 tonn hjá 25 bátum sem
byijað hafa róðra. Aflinn skiptist
þannig: 18 netabátar með 550,2
tonn í 68 róðrum, fjórir línubátar
með 6,9 tonn í 8 róðrum, tveir
dragnótabátar með 106,4 tonn í
6 róðrum og einn trollbátur með
2,8 tonn í einum róðri.
Mestan afla í vikunni fékk neta-
báturinn Þorleifur Guðjónsson HR
350 eða 72,5 tonn i þremur róðmm,
netabáturinn Jóhann Gíslason HR
42 með 64,4 tonn í 3 róðmm og
dragnótabáturinn Dalaröst HR 63
með 62,2 tonn í 3 róðmm.
Mestan afla frá áramótum hefur
Höfmngur III HR 250 fengið, eða
179.3 tonn.
Afli togaranna frá áramótum
skiptist þannig: Þorlákur HR 5 með
207.3 tonn og Jón Vídalín HR 1
með 126 tonn.
Uppistaðan í afla netabátanna
hefur verið ufsi og línubátamir
hafa fengið þorsk og ýsu. En togar-
amir hafa að mestu fengið þorsk.
JHS
ar lönduðu loðnu rúmlega
2000 tonnum. Veður var ágætt
og sækja bátarnir mislangt,
allt frá Eldey norður í Jökul-
dýpi og Kolluál.
Mestan afla í vikunni var
netabáturinn Amey með, 52,8
tonn í 5 sjóferðum, en Skagaröst
sem líka er á netum var með
mestan afla í einni sjóferð, 33,9
tonn og var sá afli að mestu
ufsi. Þuríður Halldórsdóttir var
með 40 tonn og Bergþór 33,3
tonn eftir vikuna.
Afli línubátanna var einnig
ágætur og voru efstu bátar eftir
vikuna Víðir II með 42 tonn og
Mummi með 34,3 tonn, þeir fóru
í 3 róðra og síðan Freyja með
34,2 tonn, í 2 róðrum. Mestan
afla í einni sjóferð var Freyja
með, 18,6 tonn.
Reynir sem er á trolli landaði
22,7 tonnum í tveim sjóferðum
og Þröstur landaði 7,8 tonnum
í einni sjóferð. Fjöldi smærri
báta sem eru 10 til 14 tonn og
eru á netaveiðum leggja upp í
Sandgerði og í vikunni lönduðu
18 netabátar og 4 færabátar af
þessari stærðargráðu 91,3 tonn-
um.
Loðnubátamir sem lönduðu í
Sandgerði vom: Ljósfari 556
tonn, Dagfari 523,5 tonn, Húna-
röst 599 tonn og Öm 350 tonn.
- BB
Bifreiðaverkstæði opnar í Sandgerði:
Þjónusta sem menn hafa
sótt marga kílómetra
Suðumes.
SANDGERÐINGAR hafa að und-
anfömu orðið að fara til
Keflavíkur til að fá gert við
sprungið dekk eða til að láta
gera við bilinn sinn. Þjónustu af
þessu tagi hefur ekki veríð hægt
að fá í mörg ár þar I bæ, þvi
bifreiðaverkstæði hefur ekki
verið til staðar. Hægt hefur ver-
ið að leita til laghentra manna í
bænum með minniháttar við-
gerðir heima í „skúr“ eins og
gengur og geríst, en ekki hægt
að ganga að þeim vísum.
En nú hefur orðið breyting á. í
janúar sl. hóf ungur maður, Arsæll
Armannsson, starfræksiu Bifreiða-
og vélaverkstæðisins Drifáss — og
nú geta Sandgerðingar sparað sér
að keyra marga kílómetra til að fá
almenna bifreiðaviðgerðaþjónustu.
Ársæll er lærður vélvirki og
starfar hann einn við fyrirtækið.
Hann sagðist vera Keflvíkingur en
hafa búið í Sandgerði sl. 15 ár og
unnið sem verkstjóri í Vélsmiðjunni
áður en hann tók þá ákvörðun að
gerast sjáifs síns herra.
„Þessa þjónustu hefur vantað
lengi héma í Sandgerði, menn hafa
tekið mér vel og ég er bjartsýnn
með áframhaldið," sagði Arsæll.
Hann sagðist ennfremur ætla að
vera með smurþjónustu og væri
aðeins að bíða eftir tækjabúnaði
sem til þyrfti. Bifreiða- og vélaverk-
stæðið Drifás er við Strandgötu 21a
í Sandgerði.
- BB
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Ársæll Armannsson við dekkjavélina sem á vafalaust eftir að spara
Sandgerðingum marga ekna kílómetra ef að líkum lætur.
Bræla
BRÆLA er nú á loðnumiðinum
og veiði hefur veríð lítil undan-
farna daga. Heildaraflinn frá
upphafi vertíðar er orðinn um
745.000 lestir og eru því eftir
af kvótanum um 260.000 lestir.
Norðmenn hafa fengið hér
rúmlega 50.000 lestir.
Á laugardag vom eftirtalin skip
með afla: Börkur NK 400, Svanur
RE 650, Guðmundur VE 300,
Víkingur AK 600, Hilmir SU
1.200, Helga IIRE 300, Skarðsvík
SH 300, Grindvíkingur GK 300
og Öm KE 310.
Enginn afli var á sunnudag en
síðdegis á mánudag höfðu eftirtal-
in skip tilkynnt um afla: Gísli
Ámi RE 100, Huginn VE 590,
Húnaröst ÁR 620, Hrafn GK 620,
Helga II RE 460, Víkurberg GK
400, Víkingur AK 1.100, Pétur
Jónsson RE 330, Þórður Jónasson
EA 190, Sigurður RE 350,