Morgunblaðið - 10.02.1987, Page 35

Morgunblaðið - 10.02.1987, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987 35 Atvinnu- leysi minnkar mikið í FYRRA voru atvinnuleysis- dagar á Akureyri alls 17.679 og fækkaði frá árinu 1985 um 3.908. Fram kemur í skýrslu frá Vinnumiðlunarskrifstofu Akur- eyrar að 31. desember síðastlið- inn voru 79 atvinnulausir í bænum, 64 karlar og 15 konur, og svarar það til þess að 56 hafi verið atvinnulausir allan mánuðinn. Stal krítarkort- um flugfreyju: Handtek- inná Akureyri EINN farþega í vél Flugleiða frá Færeyjum til Egilsstaða um helgina stal veski með krítarkortum flugfreyjunnar. Ætlaði maðurinn að nota kort- in sér til framdráttar en hafði ekki hafist handa þegar hann var handtekinn hér á Akureyri, en hingað kom hann frá Egilsstöðum. Morgunblaðiö/Guðmundur Svansson Kristján Kristjánsson, hinn nýi eigandi H-100, fyrir utan skemmtistaðinn við Hafnarstræti. Nýr eigandi að H-100 EIGENDASKIPTI hafa orðið á veitinga- og skemmtistaðnum H-100 í göngugötunni Hafnar- stræti. Nýr eigandi er Kristján Kristjánsson og sagði hann i stuttu viðtali við Morgunblaðið, að hann myndi gera nokkrar breytingar á staðnum en reka hann áfram í svipuðu formi og verið hefur. Kristján starfaði áður sem skrifstofustjóri hjá Trésmiðjunni Þór á Akureyri. Aðspurður sagð- ist hann hafa hug á að lífga upp á skemmtiiðnaðinn og jaftivel Ieita eftir skemmtikröftum erlendis frá. Skemmtistaðurinn var opinn um helgina en verður nú lokaður fram á fimmtudag vegna lagfær- inga og breytinga. Handbolti: Bogdan leiðbeinir á Akureyri BOGDAN Kowalczyk, landsliðs- þjálfari í handknattleik, er væntanlegur til Akureyrar í dag og mun hann mæta á æfingar allra flokka hjá KA í dag og á morgun auk þess sem hann mæt- ir í leikfimitíma í Gagnfræða- skóla Akureyrar og leiðbeinir í handknattleik. Þar sem tími er knappur í þess- ari ferð landsliðsþjálfarans til Akureyrar eru litlir möguleikar á að hann geti heimsótt fleiri skóla en gagnfræðaskólann en að sögn Jóhanns Karls Sigurðssonar, for- manns handknattleiksdeildar KA, gæti þó hugsast að Bogdan færi einnig í leikfímitíma í Lundarskól- anum og Bamaskóla Akureyrar. Jóhann sagði, í samtali við Morg- unblaðið, að Bogdan kæmi senni- lega aftur til Akureyrar, annað hvort seinna í vor eða næsta haust, og myndi þá heimsækja fleiri skóla og einnig mæta á æfingar hjá hand- knattleiksmönnum í Þór. Heimsókn Bogdans hingað norð- ur er liður í þeirri starfsemi Handknattleikssambandsins að kynna íþróttina sem best úti um land. Framboðshugleiðingar innan Sam- taka um jafnrétti milli landshluta: Bjóða ekki fram í eigin nafni - segir Pétur Valdimarsson formaður ÞVÍ hefur enn einu sinni heyrst fleygt nú að undanförnu að Samtök um jafnrétti milli lands- hluta hyggi á framboð fyrir næstu alþingiskosningar, en Pétur Valdimarsson, formaður samtakanna, þvertók fyrir slíkt í samtali við blaðamann. „Samtökin bjóða ekki fram. En það er engjn launung að um- ræður hafa átt sér stað um þetta milli einstaklinga í samtökunum, fólks sem er flokksbundið í stjóm- málaflokkun og ýmsir hafa sýnt því áhuga að bjóða fram, en það er ekkert nýtt að frétta af því,“ sagði Pétur. Pétur sagði þó að einstaklingar innan samtakanna ætli að boða til fundar á næstunni en ekki hefur verið ákveðið hvar og hvenær sá fundur verður hald- inn. Pétur tók skýrt fram að aldrei yrði boðið fram í nafni samtak- anna og að ef ákveðið yrði um framboð í anda samtaka um jafn- rétti milli landshluta yrði lagður Gjöld til bæjarsjóðs: Hægftað greiða með gíróseðli I DAG er fyrsti eindagi fasteig- nagjalda hér í bæ. Akureyrar- bær býður nú upp á nýbreytni við greiðslu gjalda til bæjar- sjóðs því sérprentaðir hafa verið giróseðlar til greiðslu bæjargjalda, og munu þeir liggja frammi í öllum bönkum, sparisjóðum og á pósthúsinu þannig að á öUum þessum stöð- um getur fólk greitt gjöld sín en þarf ekki að gera sér ferð á bæjarskrif stofumar eins og hingað til. fram listi sem þá yrði hugsanlegá skipaður til helminga fólki í og utan samtakanna. „Annars þyrfti að minnsta kosti að verða mikil breyting á því á síðasta landsfundi okkar var samþykkt að fara ekki í framboð. Og ég lít þannig á málin að ef einhver í stjórn sam- takanna færi í slíkt framboð sem um ræðir yrði hann að gjöra svo vel að segja úr stjóminni," sagði Pétur Valdimarsson. Sjónvarp Akureyri ÞRIÐJUDAGUR 10. febrúar 18.00 Uppreisnarmaður á fljótinu (White Water Rebels). Bandarísk sjónvarpskvikmynd frá CBS með James Brolin og Catherine Bach í aðalhlutverkum. Blaðamaöur sem starfar sjálfstsett fer í við- burðarríka ferð niður fljót. Þar vingast hann við þrekmikinn kanó- '< t ræðara sem berst gegn byggingu raforkuvers sem gæti breytt fljót- inu. Leikstjóri er Reza Badiyi. 19.35 Teiknimynd, glæframúsin. 20.10 Allt er þá þrennt er (3’S Company). Mjög á móti vilja sinum er Jack ráðinn sem hús- vörður þegar Mr. Furley er rekinn. En sá hlær best sem síðast hlær. 20.40 I Návígi. Yfirheyrslu- og um- ræðuþáttur í umsjón Páls Magnússonar. 21.26 Martröð (Deadly intensions). Bandarísk sjónvarpsmynd í tveim- ur hlutum. Fyrri hluti. Ungt par gengur í hjónaband. Brátt kemur í Ijós að eiginmaöurinn er hrotta- fenginn og ekki með öllum mjalla. * Hjónabandiö, slit þess og eftirmál reynast martröð líkust. Mynd þessi er byggð á sannsögulegum atburöum og verður seinni hlutinn sýndursunnudaginn 15.febrúar. 23.10 Bandariski körfuboltinn (NBA). Umsjónarmaöur er Heimir Karlsson. 00.40 Dagskrárlok. Mývatnssveit: Bókasafnið í nýtt hús Björk, Mývatnssveit. SÍÐASTLIÐINN föstudag var Bókasafn Mývatnssveitar opn- að i nýjum húsakynnum f kjallara nýbyggingar í Félags- heimilinu Skjólbrekku. Þetta bókasafn var stofnað árið 1858. Búið er það að vera til húsa á ýmsum stöðum. Allmörg ár var það i sérstakri byggingu á Skútustöðum. Það húsnæði var óupphitað þannig að safnið lá þar undir skemmdum. Þegar Skjólbrekka var reist á sínum tíma var áformað að bóka- safnið fengi þar eitt herbergi. Hins vegar varð aldrei af því að það yrði flutt þangað. Ennfremur var bókasafninu ætlaður staður í Bamaskólanum á Skútustöðum, en var heldur aldrei flutt í það húsnæði. í rúmlega hálfan annan áratug fékk safnið eitt herbergi í einkahúsnæði á Grænavatni. Þar fór vel um það en húsakostur í þrengra lagi enda fjölgar bókatitl- um með hverju árinu, sem líður. Nú er sem sagt búið að flytja bókasafnið í rúmgóð og þægileg húsakynni og aðstæður allar eins og bezt verður á kosið. Fyrir nokkrum árum var bóka- safn Amþórs Ámasonar frá Garði keypt. Þetta safn er mikið að vöxt- um og er margt hið merkilegasta. Ekki hefur verið hægt fyrr en nú að gefa almenningi kost á að skoða þetta bókasafn Amþórs. í því eru margir fágætir bókatitlar. Safnvörður Bókasafns Mý- vatnssveitar er Þórhildur Bene- diktsdóttir á Grænavatni. Hún er búin að rækja þetta starf af mik- illi trúmennsku um árabil. Vert er að óska henni allra heilla með þá bættu aðstöðu, sem hún hefur nú fengið, sem safnvörður við bókasafnið. Kristján Ný snyrtivöruverslun opnar við Rofabæ NÝLEGA opnaði snyrtivöru- í snyrtivöruversluninni er jafn- verslunin Tara áð Rofabæ 39. framt á boðstólum sýnishom til I versluninni veitir snyrtisér- að auðvelda viðskiptavinum frek- fræðingur ráðgjöf við val á ar við val á vörutegundum við förðunar- og húðsnyrtivörum. hæfi, af helstu vörutegundum má Eigendur verslunarinnar eru nefna Clarins, Dior, Max Factor Margrét Stefánsdóttir og Sig- og Gallery. Auk snyrtivara fást urður Jónsson. einnig skartgripir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.