Morgunblaðið - 10.02.1987, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 10.02.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987 37 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Málæði og fjörugt félagslíf — samband Tvíbura (21. maí- 2. júní) og Vogar (23. segt.-22. okt.). í dag ætla ég að íjalla um samband dæmigerðs Tvíbura og Vogar. Lesendur eru beðnir að hafa í huga að hver maður er samsettur úr nokknim stjörnumerkjum og því hafa aðrir þættir einnig áhrif hjá hveijum og einum. Tvíburi og Vog eru lík merki og ættu því að eiga ágætlega saman. Bæði eru loftsmerki, þ.e. lífsorka þeirra beinist inn á hugmyndaleg og félagsleg svið, og bæði eru jákvæð, opin og úthverf. Vogin er síðan frumkvæð en Tvíburinn breytilegur. Hreyfing Samband þessara merkja einkennist af stórkostlegum, hugmyndalegum fímleikum. Bæði merkin lifa að miklu leyti fyrir hugmyndir og eru á stöðugri hreyfíngu til allra og engra staða. í raun getur allt gerst í þessu sambandi og það eina örugga er að mikið verður um breytingar. Vogin misskilin Að mörgu leyti er Vogin sérstakt merki og mjög auð- velt er að misskilja eðli hennar. í fyrsta lagi eru Vog- ir blíðar og mjúkar í fram- komu, eru þægilegar og tillitssamar. Þegar við það bætist að þær eiga til óákveðni er freistandi að segja: „Já, Vogin. Hún er indæl en ósjálfstæð, það er hægt að spila á hana eftir vild.“ Okkur verður því iðu- lega á sú skyssa að afgreiða hana of auðveldlega. Mjúka leiðin Ástæðan fyrir óákveðni Vogarinnar er sú að hún vill sjá allar hliðar á hverju máli. Hún þarf að skoða andstöðu hvers máls áður en hún tekur ákvörðun. Hún er því óákveð- in á meðan hún er að velta málum fyrir sér. Þegar ák- vörðun hefúr hins vegar verið tekin er hún ákveðin og óhagganleg. Vogin er frumk- vætt merki. Hún tekur því oft forystu og þar sem hún er félagslynd lendir hún oft í félagslegri stjórnunarstöðu. Hún notar mjúku leiðina til að ná völdum. Hún brosir og ræðir málin, en er jafnframt að spila á þína veiku punkta. Við skulum því ekki halda að mýkt Vogarinnar sé veik- leiki. Staðreyndin er sú að margar Vogir snúa fólki í kringum sig. Þær heilla menn til hlýðni við málstað sinn! Mismunur Samband þessara merkja einkennist af tvennu. Stöð- ugu málæði og vangaveltum og fjörugu félagslífí. Erfítt er að sjá hver leiðir hvem á því sviði. Það sem helst skilur á milli er að Tvíburinn er eirð- arlausari og breytilegri. Þegar Vogin hefur loksins tekið ákvörðun, eftir að hafa vegið og metið allar hliðar, heldur hún sig yfirleitt við hana. Til hvers að breyta um skoðun, þegar þú ert búinn að skoða alla möguleika? Tvíburinn getur aftur á móti skipt um skoðun á tveggja mínútna fresti ef því er að skipta. Svigrúm Til að halda þessu sambandi góðu þurfa þau að lifa at- hafnasömu félagslífi og hafa nóg af umræðuefnum. Þau þurfa að gefa hvort öðm frelsi og svigrúm. Að öðm leyti þykja þessi merki heppi- leg saman. Það sem helst gæti amað að er skortur á andstæðum og spennu. Áhuginn gæti því dofnað með tímanum. GARPUR HVA£> EfS PETTAPcSAfSP. JK NOTAR AFL SITT TIL AP áTýHA áEI VI SKIP/N'J Í jTJÓfgNKLEFA ÚEI.VISICIRaMS--- Þlj Ei?r Al>mi, e>ABPORi FÚÓÆTIR STEFNT vráf?-' k Éó .VIEINA OKKJR i hættu! „,/g -p McNaught Synd. ^ iliZL X-9 té&S/A/A/'Pé <&&?///>/ ypo ■>' AfíXSf TOMMI OG JENNI 7— * 7~. -7 \ I V " , 7 ^ UOSKA ÉS E/S AÚKA-' ) > þú 6REIE>SUUA <( ÆTTII? > Þessu aru / Vað fjár/ jp?A/A E-Kl PAB HlUSTj AR. ENQIMM f V- SMAFOLK UJHAT PIP VOU PO (JUITH THE PICTURE OF ME THAT I 6AVE VOU 7 Hvað gerðirðu við mynd- Ég fleygði henni! ina af mér sem ég gaf þér? Með eigin höndum? Auðvitað. Hann snertí myndina af mér! Umsjón: Guðm. Páll Amarson Sagnir þróðustu nákvæmlega eins á báðum borðum í fyrsta spili „úrslitaleiks" Polaris og Sigtryggs Sigurðssonar í síðustu umferð Reykjavíkurmótsins. Fyrstu tveir slagimir gengu einnig eins fyrir sig, en svo skildu leiðir. Og munaði þar fjór- um slögum! Norður gefur; enginn á hættu. Norður ♦ ÁK92 ♦ G8 ♦ K8632 ♦ 108 rCDVMM ARin rtKUIlMAIMU BRIDS Vestur ♦ 1074 ¥ K105 ♦ G10954 ♦ 72 Austur ♦ D863 ♦ D76 ♦ ÁD7 ♦ KDG Suður ♦ G5 ¥ Á9432 ♦ - ♦ Á96543 Ásmundur Pálsson í sveit Pol- aris og Hrólfur Hjaltason í sveit Sigtryggs héldu á spilum aust- urs og sögðu báðir eitt grand ofan í opnum norðurs á tígli. Margar sagnir koma til greina á spil suðurs, en það kom á óvart. að jafn ólíkir spilarar og Hjalti Elíasson (Polaris) og Oli Már Guðmundsson skyldu velja sömu sögnina — DOBL. Svar var pass- að út. Útspilið var Iauffimma, fjórða hæsta. Sagnhafi átti slaginn og spilaði tíguldrottningunni. Norð- ur getur nú tekið samninginn beint einn niður með því að drepa og spila laufi, en eðlilega dúkkuðu báðir norðurspilaram- ir. Suður kastaði hjarta. Næst spiluðu sagnhafarnir v tveir, Hrólfur og Ásmundur, hjartadrottningu. Óli Már var ekki viðbúinn, hikaði aðeins og upplýsti þar með ásinn. Hann drap á ásinn eftir nokkra yfír- Iegu og spilaði spaðagosa, sem Ásmundur fékk að eiga á drottn- ingu. Ásmundur sótti nú sjálfur laufslaginn sinn, fór inn á hjartakóng (gosinn datt) tók tígulsvíninguna og fékk átta slagi. 280 í AV. Á hinu borðinu dúkkaði Hjalti hjartadrottninguna umhugsun- arlaust, svo Hrólfur spilaði næst hjarta á tíuna og spilið hrundi. Tveir niður og 300 til NS, sam- tals 11 punktar til Polaris. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Á alþjóðlegu skákmóti í Tall- inn í Eistlandi í haust kom þessi staða upp í skák alþjóðlegu meistaranna Smagin, Sovétríkj- unum, sem hafði hvítt og átti leik, og Stohl, Tékkóslóvakíu. Byijun skákarinnar var athygl- isverð: 1. e4 — c5, 2. c3 — d5. 3. exd5 — Dxd5, 4. d4 — Rf6, 5. Rf3 - e6, 6. Ra3 - a6, 7. Rc4 - Rbd7, 8. Bg5 - Be7, 9. Be2 - b5?I, 10. Bxf6 - Bxf6? 11. Rfd2! (Svartur hlýtur nú að tapa liði) — bxc4 (Sízt betra var 11. - Hb8, 12. Bf3 - Dg5, 13. Rd6+ - Ke7, 14. R2e4 - Df4, 15. dxc5) 12. Bf3 - Dd6, 13. Bxa8 — Bb8, 14. Bc6 og svart- ur gafst skömmu síðar upp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.