Morgunblaðið - 17.02.1987, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987
Ríkissaksóknari
víkur ekki úr sæti
í Hafskipsmálinu
RÍKISSAKSÓKNARI, Hallvarð-
ur Einvarðsson, hefur ákveðið
að verða ekki við óskum Jóns
Magnússonar, lögmanns Ragnars
Kjartanssonar, um að víkja úr
Sinubrunar
í landi Mikla-
holtssels
Borg, Miklaholtshreppi.
SVO óheppilega vildi til á föstu-
daginn að eldur komst í sinu í
landi Miklaholtssels. Þar eru
víðáttumiklir flóar og barst þvi
eldurinn brátt um allstórt svæði.
Um nóttina var unnið að slökkvi-
störfum og tókst að hefta
útbreiðslu eldsins þegar hann
átti skamman veg að húsunum í
Syðra-Skógarnesi. Ekki er full-
kannað hversu mikið tjón hefur
orðið á varnarlínu sauðfjárveiki-
varna sem er á þessu svæði sem
eldurinn fór um.
Eldsins varð vart á föstudags-
morgun. Er líða tók á daginn herti
vindinn og um leið magnaðist út-
breiðsla eldsins verulega. Rétt fyrir
miðnætti lægði svo aftur og var
talið að ekki væri mikil hætta. Um
kl. 5.30 á laugardagsnótt hafði
hvesst meira. Var þá beðið um hjálp
frá Miklaholti. Atti eldurinn þá
stuttan spöl að húsum þar. Tíu
menn mættu fljótlega og gátu þeir
ráðið niðurlögum eldsins gagnvart
þessum húsum, en þá var eldurinn
kominn langleiðina að Syðra-Skóg-
amesi.
Var síðan fylgst vel með út-
breiðslu eldanna allan laugardaginn
en á sunnudagskvöld lægði vem-
lega. Mikið frost var þá um nóttina
og héla myndaðist á jörðunni. Allir
eldar voru dauðir á sunnudags-
morgun.
Páll
embætti sem ríkissaksóknari í
Hafskipsmálinu er tekið fyrir hjá
ákæruvaldinu. Hallvarður Ein-
varðsson sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi að
dómsmálaráðuneytið hefði ritað
sér bréf þess efnis að það teldi
ekki ástæðu til þess að rikissak-
sóknari víki úr sæti á meðan
Hafskipsmálið er til meðferðar.
Eins og kunnugt er af fréttum,
ritaði Jón Magnússon Hallvarði bréf
þess efnis að hann víki úr sæti ríkis-
saksóknara í Hafskipsmálinu þar
sem hann hefði verið rannsóknar-
lögreglustjóri þegar málið kom fyrst
fram í sviðsljósið og hefði hann þar
af leiðandi rannsakað það sjálfur.
Jón sendi samrit af bréfí sínu til
dómsmálaráðherra.
Þorsteinn Geirsson, ráðuneytis-
stjóri, sagði að samkvæmt lögum
gæti dómsmálaráðherra kveðið á
um hæfni eða vanhæfni saksókn-
ara. Niðurstaða ráðuneytisins hefði
hinsvegar verið sú að vanhæfni
ríkissaksóknara væri ekki fyrir
hendi í þessu tiltekna máli.
Morgunblaðinu tókst ekki í gær-
kvöldi að ná tali af Jóni Magnús-
syni.
Ungviðið skoðað
Morgunblaðiö/Þorkell
Gengíð að auknum kröfum
Japana við loðnufrystingu
Breytingin frá fyrri samningi felur í sér talsverða hækkun framleiðslukostnaðar
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna og helztu kaupendur frystr-
ar loðnu og loðnuhrogna í Japan
hafa komizt að samkomulagi um
breytingu á fyrri samningi um
Ríkisútvarpið:
Útvarpsstjóri flytur
fyrstur í nýja húsið
NÝJA útvarpshúsið við Efsta-
leiti er nú sem næst tilbúið og
verða fyrstu skrifstofur RUV
fluttar frá Skúlagötu 4 í nýja-
húsið næstkomandi laugardag.
Það er aðsetur Markúsar Arnar
Antonssonar, útvarpsstjóra,
sem fyrst verður flutt og í lyöl-
farið skrifstofur fleiri yfir-
manna RUV.
Elva Björk Gunnarsdóttur,
framkvæmdastjóri, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að flutning-
urinn gæti tekið allt upp í tvo
mánuði og að hljóðstofumar yrðu
fluttar síðastar. Hún sagði að ein-
hver seinkun yrði á afgreiðslu
hljóðborða frá Noregi, en um leið
og þau yrðu komin á sinn stað í
nýja húsinu, yrði hægt að fara
að senda út dagskrá rásar 1 frá
Efstaleitinu, en nú eru liðin tæp
þijú ár síðan rás 2 hóf starfsemi
sína í nýja útvarpshúsinu.
sölu þessara afurða til Japans.
Breytingin er tilkomin vegna
aukinna krafna Japana um
gæðaflokkun og ferskleika loðn-
unnar í kjölfar boða frá Kanada-
mönnum um mikið magn af
frystri loðnu í sumar á lægra
verði en hér samdist um og með
strangari skilyrðum. Samkomu-
lagið felur ekld í sér breytingar
verði en talsverða kostnaðar-
aukningu framleiðenda, sem
rýrir kjör þeirra og lækkar
mögulegt verð til sjómanna fyrir
loðnuna.
Það voru þeir Gylfí Þór Magnús-
son og Hjalti Einarsson, fram-
kvæmdastjórar hjá Sölumiðstöð-
inni, sem gerðu þetta samkomulag.
Gylfí sagði, að þegar samningar um
sölu loðnu og loðnuhrogna hefðu
verið gerðir fyrr á þessu ári í Jap-
an, hefðu Japanir lýst ánægju sinni
með gæði og mat á loðnunni, sem
keypt hefði verið árið áður, og ekki
farið fram á breytingar. Hins vegar
hefðu þeir nú krafízt hertari reglna
um stærðarflokkun, hlutfa.ll hrygnu
í loðnunni og aukins ferskleika.
Þessar kröfur hefðu komið fram
vegna tilboða frá Kanadamönnum,
sem fælu í sér að þeir gengju að
meiri gæðakröfum og byðu jafn-
framt lægra verð fyrir loðnuna.
Sindri seldi í
Bremerhaven
Togarinn Sindri VE seldi á
mánudag 127,7 lestir, mest
karfa í Bremerhaven. Heild-
arverð var 7,2 milljónir
króna, meðalverð 56,74.
Ennfremur hefði komið fram hjá
Kanadamönnum, að þeir hygðust
frysta 38.000 til 40.000 lestir á
vertíðinni í sumar, en árleg neyzla
frystrar loðnu í Japan væri um
30.000 lestir.
Með því að ganga að auknum
kröfum Japana yxi framleiðslu-
kostnaður talsvert og bitnaði það
bæði á afkomu framleiðenda og sjó-
manna. Hins vegar hefðu þeir ekki
séð sér annað fært en að ganga
að þessu, meðal annars til að reyna
að viðhalda hlutdeild okkar í sölu
á loðnu til Japans og varðveita
áframhaldandi samningsstöðu. Það
væri einfaldlega lögmál markaðar-
ins, að þegar einhver byði hagstæð-
ari kjör en aðrir, yrðu hinir að fylgja
í kjölfarið. Að þessu sinni hefði þó
ekki að fullu verið gengið að kröfum
Japana, báðir aðilar hefðu gefíð
eitthvað eftir.
Höfum ekki lagaheimild
lestuð fyrir til að takmarka f| oldauu
Rússlandsmarkað _segir Halldór Ásgrímsson um fjölgun smábáta
Keflavík.
LAGARFOSS lestaði um 4000
tunnur af Rússlandssíld I
Keflavik á dögunum. Ferðinni
er heitið til Murmansk i Sov-
étríkjunum og siglir skipið með
21 þúsund tunnur. Áætlað er að
siglingin til Murmansk taki 5 til
6 sólarhringa.
Frá Keflavík fór Lagarfoss sem
er 3600 smálestir að stærð til Þor-
lákshafnar og þaðan til Vestmanna-
eyja, síðasta viðkomustaðar fyrir
siglinguna yfir hafið.
Fyrstu síldartunnumar tók skipið
á Akranesi og þaðan sigldi það fyr-
ir Reykjanes til Grindavíkur og tók
þar 10 þúsund tunnur. Síðan sigldi
Lagarfoss aftur fyrir Reylqanes og
til Keflavíkur. Ástæðan var sú að
skipið hefði ekki flotið út úr höfn-
inni í Grindavík með Keflavíkur-
farminn til viðbótar við Akra-
nessfldina.
- BB
„VIÐ höfum ekki heimildir til
þess í lögum að takmarka smiði
báta undir 10 brúttólestum inn-
anlands, svo framarlega sem þeir
eru smiðaðir samkvæmt gildandi
reglum. Því var hafnað á síðast-
liðnu ári að framlengja núgild-
andi lög um stjómun fiskveiða
og endurskoða þau eins og ég
lagði til. Þar af leiðandi bíður
það fram yfir kosningar, að end-
urskoða þessa löggjöf. Ég taldi
þetta mjög miður, en við þvi var
ekkert að gera,“ sagði Halldór
Ásgrimsson, sjávarútvegsráð-
herra, er Morgunblaðið spurði
hann hvort stjómvöld hygðust
stemma stigu við fjölgum smá-
báta.
„Hitt er svo annað mál," sagði
Halldór, „að það er mjög miður að
skipasmíðastöðvar í landinu skuli
ganga á lagið með smíði bátanna
með þessum hætti. Það getur ekki
endað öðruvísi en að algjört stopp
verði sett á smíði þessara báta. Það
hiýtur að vera mjög óskynsamlegt
fyrir viðkomandi aðila, að standa
þannig að málum. Ennfremur vakn-
ar spuming um það hvemig menn
ætla sér að fjármagna svona mikla
smíði. Hvað öryggismál varðar í
þessu tilviki, er Siglingamálastofn-
un skyldug samkvæmt lögum til
að fylgjast með því að öryggi þess-
ara báta sé ekki ábótavant. Það er
nánast ótrúlegt, ef rétt er, að hægt
sé að smíða bát, sem á að vera
með einn gám en engar lestar. Það
getur tæpast samræmzt öryggiskr-
öfum,“ sagði HalldórÁsgrímsson.