Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987 ’é Frá f östu- degi Bjarni Tryggva og Bjartmar mættu í beina útsendingu hjá rás 2 síðastliðinn föstudagsmorgun og slógu á raddbönd og gítarstrengi. Hin beina snerting við listamennina er kærkomin hvíld frá poppiðnaðarsuð- inu hversdagslega og takið eftir textum þeirra Bjama Tryggva og Bjartmars ekki síður en orðsmíð Bubba og Megasar. Að morgni Dagskrárstjórar Stöðvar 2 hafa að undanfömu efnt til svolítillar veislu fyrir yngstu kynslóðina á laugardags- og sunnudagsmorgnum frá kl. 9.00 til 11.00, en þá hefjast sýningar á oft ágætum unglingamyndum. Bömin fögnuðu í fyrstu þessari nýbreytni en ekki leið á löngu þar til lítil andlit birtust við rúmgaflinn. Undirritaður á bakvakt einsog venjulega og kemur þá ekki í ljós að teiknimyndimar vom skeyttar saman með músíkmynd- böndum og óþýddum (!) íþróttamynd- um. Ég hef oft ritað um bamaefni ríkis- sjónvarpsins og vona að sú langloka hafi rétt eitthvað hlut yngstu sjón- varpsáhorfendanna. Illa unnin bama- dagskrá er ætíð til vansa. Veit ég vel að Stöð 2 er enn í reifum en þó er nú kominn tími til að þar verði hafín framleiðsla á innlendu bamaefni og ekki má gleyma textun bamaefnisins, en ríkissjónvarpið hefír í auknum mæli látið lesa inná bamamyndir. Finnst mér við hæfí að selja slíkar myndir á myndbandaleigur ef samn- ingar nást við hina erlendu rétthafa. Hér leita ummæli Brynju Benendiks- dóttur frá síðasta Menningar- og listablaði Moggans á hugann: Böm á þessum aldri (1 til 7 ára) eru einmitt þeir áhorfendur sem við íslendingar fömm verst með. Þau eru ólæs og við bjóðum þeim upp á erlent efni í sjónvarpi, með texta. Sex fyrstu ár ævi sinnar horfa bömin okkar á myndir og hlusta á útlensku. Það er hneyksli, og okkur til skammar, að sjónvarpið skuli ekki fá leikara til að lesa inn á allar myndir. Alveg hárrétt hjá þér Biynja og hvað fínnst þér um þann eina bama- tíma af innlendum toga sem bömun- um er boðið uppá? Síðasta sunnudag mældi ég röflið í honum Stulla í Stundinni okkar. í ríflega 15 mínútur vom bömin laus við gripinn. Korter af íslensku sjónvarpsefni var ætlað blessuðum bömunum í síðustu viku. Yfírmenn innlendar dagskrárgerðar virðast ekki hafa mikinn áhuga á yngstu áhorfendunum — nema hin innlenda dagskrárgerð ríkissjónvarps- ins sé komin úr böndunum? Stundin okkar lýsti í það minnsta algeru metn- aðar- og stjómleysi. Minnist þess ágætu sjónvarpsstjórar að rannsóknir í því mikla sjónvarpslandi Banda- ríkjunum sýna að oftast horfa menn á þá stöð er laðar að yngstu áhorfend- uma við upphaf dagskrár. Uppá þaki Satt að segja hálf vorkenndi ég kvikmyndagerðarmönnunum er dregnir vom í Geisla uppá þak Út- vegsbankans að lýsa sporslunum er hmtu úr Kvikmyndasjóði. Blessaðir mennimir vissu vart hvað gera átti við aurana; ræddu þó flestir um ein- hverskonar undirbúningsvinnu. Sárastur var tónninn í ræðu Eyvindar Erlendssonar, sem hafði þegar notað undirbúningsfjárhæðina til að hrinda af stað kvikmynd en svo stoppaði framkvæmdin vegna flárskorts Kvik- myndasjóðs og undirverktakamir sátu eftir með sárt ennið. Það er ekki mitt að dæma í þessu máli en f guðana bænum hættum því kaldastríði sem svo alltof lengi hefír tröllriðið hér menningunni og neytt margan góðan drenginn til austantjaldsþjónkunar. Bjöm Br. Bjömsson stóð sig vel í hlut- verki spyrilsins þama á þaki ríkis- bankans. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP/SJÓNYARP Rás 1: 2. Passíusálmur ■■ í kvöld heldur 20 Andrés Bjöms- son, fyrrverandi útvarpsstjóri, áfram lestri sínum á Passíusálmum, en hann hófst í gærkvöldi. Lesturinn mun halda áfram fram að páskum á sama tíma. Upplestur Passíusálma á föstu er rótgróin hefð í Ríkisútvarpinu og hafa þeir verið lesnir árlega frá árinu 1944. Andrés Bjömsson hefur lesið sálmana einu sinni áður, en það var fyrir réttum fjörutíu ámm, árið 1947. Er ekki að efa að margir munu leggja eym við lestri Andrésar, því auk fegurðar og trúarhita sálmanna, sem margir hrífast af, hefur Andrés verið einn helsti ljóðalesari Ríkisútvarpsins um ára- tugaskeið. Fyrstur til þess að lesa Passíusálma í útvarp varð herra Sigurbjöm Einars- son, biskup, en meðal þekktra upplesara á seinni ámm em Jón Helgason, Sigurður Nordal, Sverrjr Kristjánsson, Þorsteinn O. Stephensen, Ami Krist- jánsson og Halldór Lax- ness. ■■ Pétur Steinn 00 verður á sínum stað á Bylgjunni í dag klukkan tvö. Upp úr klukkan þijú verður Pétur Steinn með nýjung í þætti sínum, en þá verður kynnt það sem Pétur vill kalla „forstjórapopp“. Hann ætl- Andrés Björnsson ar að fá ýmsa háttsetta menn í þjóðfélaginu til sín, spyija þá í þaula um hvem- ig tónlist þeir hlusti dags daglega og leika sýnishom. Fyrsti gestur Péturs verður Gunnar M. Hans- son, forstjóri IBM á íslandi. Athygli skal vakin á því Séra Gunnar Björnsson og David Knowles. að Gunnar verður einungis með tónlist af leysidiskum svokölluðum, eða CD-disk- um. Hljómgæði af þeim em eins fullkomin og hægt er að fara fram á í útvarpi og munu þess háttar út- sendingar verða algengari á Bylgjunni á næstunni. Rás 1: Islensk tónlist ■■ Séra Gunnar 30 Bjömsson, selló- leikari og David Knowles, píanóleikari, flytja úr „Dagbók haf- meyjunnar“ eftir Sigurð Egil Garðarsson undir liðn- um Islensk tónlist. Gunnar hefur kynnt þetta verk bæði hér heima og erlendis. Það var samið á ísafirði árið 1977, þegar höfundur var kennari við Tónlistarskólann þar. Hljóðritunin var gerð fyrir Ríkisútvarpið hinn 4. janúar 1985. Bylgjan: Forstjórapopp ÚTVARP . ... . j;.:. . I J' .... .. .................... 3 V..------------------- . -V. ...........'------------- ..... -lii..................'-----------------------------: V '- ÞRIÐJUDAGUR 17. febrúar 6.45 Veðurfregnir. Bæn 7.00 Fréttir 7.03 Morgunvaktin Jón Baldvin Halldórsson, Sturla Sigurjónsson og Lára Marteinsdóttir. Fréttir eru sagöar kl. 7.30 og 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Til- kynningar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. 9.00 Fréttir 9.03 Morgunstund barn- anna: „Fjörulalli" eftir Jón Viðar Gunnlaugsson. Dóm- hildur Sigurðardóttir les (2). (Frá Akureyri.) 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. 9.35 Lesið úrforustugreinum dagblaöanna. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir 10.10 Veöurfregnir 10.30 Ég man þá tið. Her- mann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir 11.03 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stefánsson. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar 12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 í dagsins önn — Félags- leg þjónusta. Umsjón: Hjördís Hjartardóttir. 14.00 Miðdegissagan: „Það er eitthvað sem enginn veit." Líney Jóhannesdóttir les endurminningar sínar sem Þorgeir Þorgeirsson skráði (5). 14.30 Tónlistarmaður vikunn- ar. Clarence Gatemouth Brown. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn. Frá Suðurlandi. Umsjón: Hilmar Þór Hafsteinsson. 16.00 Fréttir. Dagskrá 16.15 Veðurfregnir 16.20 Barnaútvarpið 17.00 Fréttir 17.03 Síðdegistónleikar Tónlist eftir Ludwig van Beethoven. a. „Prometheus", forleikur op. 43. Fílharmoníusveit Berlínar leikur; Herbert von Karajan stjórnar. b. Sinfónía nr. 4 í B-dúr op. 60. Columbia-sinfóníu- hljómsveitin leikur; Bruno Walter stjórnar. 17.40 Torgiö — Menningar- straumar. Umsjón: Stein- unn Helga Lárusdóttir. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir 19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni sem Guð- mundur Sæmundsson flytur. Tónleikar. 20.00 Lúðraþytur. Umsjón: Skarphéðinn H. Einarsson. 20.40 íþróttaþáttur. Umsjón: Ingólfur Hannesson og Samúel Örn Erlingsson. 21.00 Perlur. Gitte Hænning og Four Jacks. 21.30 Útvarpssagan: „Heima- eyjarfólkið" eftir August Strindberg. Sveinn Víkingur þýddi. Baldvin Halldórsson les (4). 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Lestur Passíusálma. Andrés Björnsson les 2. sálm. 22.30 Leikrit: „19. júni" eftir Iðunni og Kristínu Steins- dætur. Leikstjóri: Hallmar Sigurðsson. Leikendur: Hanna María Karlsdóttir, Harald G. Haralds, Vilborg Halldórsdóttir, Kristján Franklín Magnús, Steinunn Þorsteinsdóttir, Þóra Frið- riksdóttir, Róbert Arnfinns- SJÓNVARP ÞRIÐJUDAGUR 17. febrúar 18.00 Villispætaogvinirhans Fimmti þáttur. Bandariskur teiknimyndaflokk- ur. Þýðandi Ragnar Ólafsson. 18.20 Fjölskyldan á Fiörildaey Tólfti þáttur. Ástralskur framhalds- myndaflokkur fyrir börn og unglinga um ævintýri á Suð- urhafseyju. Þýðandi Gunnar Þorsteins- son. 18.45 íslenskt mál Tólfti þáttur um myndhverf orðtök. Umsjón: Helgi J. Halldórs- son. 18.55 Sómafólk — (George and Mildred) 15. Feröahugur í fólki Breskur gamanmyndaflokk- ur. Þýðandi Ólöf Pétursdóttir. 19.20 Fréttaágrip á táknmáli 19.25 Poppkorn Umsjónarmaður Þorsteinn Bachmann. 20.00 Fréttir og veöur 20.30 Auglýsingarogdagskrá 20.35 Fröken Marple (A Pocketful of Rye) Bresk sakamálamynd i tveimur hlutum. Aðalhlutverk: Joan Hickson. Þýðandi Veturliöi Guðna- son. 21.30 I kvöldkaffi Edda Andrésdóttir og Sonja B. Jónsdóttir spjalla við nokkra af kunnustu spaug- urum landsins um þá list og atvinnu að koma fólki til að hlæja. 22.15 Nútímaplágan eyðni (Panorama: Living with AIDS) Bresk heimildarmynd um þá ógn sem mannkyninu stafar af eyðni. Fjallað er um út- breiðslu sjúkdómsins og viðbrögð yfirvalda, sérfræð- inga, sjúklinga og almenn- ings í Bretlandi, Banda- ríkjunum og Afríku. Þýðandi Jón 0. Edwald. 23.05 Fréttir í dagskrárlok. ÍÆstödi fp’ ÞRIÐJUDAGUR 17. febrúar § 17.00 Bræðrabönd (Broth- erly Love.) Bandarísk sjón- varpsmynd frá CBS með Judd Hirch í aðalhlutverki. Geðveikur maður losnar af hæli og hyggst eyöileggja líf tvíburabróður síns. §18.30 Myndrokk. 19.00 Furðubúarnir. Teikni- mynd. 19.30 Fréttir 20.00 I Návígi. Yfirheyrslu- og umræðuþáttur f umsjón Páls Magnússonar. 21.10 Klassapíur. (Golden Girls.) Bandarískur gaman- þáttur. §21.35 öfugt jafnrétti. (Maid in America.) Bandarísk gamanmynd frá árinu 1982. Fjölskylda nokkur ræður sér karlmann sem húshjálp og fylgir margt spaugilegt í kjöl- farið. Aöalhlutverk: Susan Clark og Alex Karras. §23.10 Bandaríski körfubolt- inn (NBA). Umsjónarmaður er Heimir Karlsson. 00.40 Dagskrárlok. son, Herdís Þorvaldsdóttir og Rósa G. Þórsdóttir. 23.30 íslensk tónlist. a. Sembalsónata eftir Jón Ásgeirsson. Helga Ingólfs- dóttir leikur. b. „Úr dagbók hafmeyjunn- ar" eftir Sigurð E. Garðars- ÞRIÐJUDAGUR 17. febrúar 9.00 Morgunþáttur i umsjá Kolbrúnar Halldórsdóttur og Sigurðar Þórs Salvarssonar. Meðal efnis: Tónlistarget- raun og óskalög yngstu hlustendanna. 12.00 Hádegisútvarp með fréttum og léttri tónlist i umsjá Margrétar Blöndal. 13.00 Skammtað úr hnefa. Jónatnn Garðarson stjórnar þætti með tónlist úr ýmsum áttum. 15.00 i gegnum tiðina. Þáttur um íslensk dægurlög í um- sjá Vignis Sveinssonar. son. Gunnar Björnsson og David Knowles leika á selló og píanó. c. Fiölusónata eftir Jón Nordal. Guðný Guðmunds- dóttir og Halldór Haralds- son leika. 00.10 Fréttir. Dagskrárlok 16.00 Allt og sumt. Helgi Már Barðason kynnir gömul og ný dægurlög. 18.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9.00, 10.00, 11.00, 12.20, 15.00, 16.00 og 17.00. SVÆÐISÚTVARP REYKJAVÍK SVÆÐISÚTVARP VIRKA DAGA VIKUNNAR 17.30-18.30 Svæðisútvarp fyrir Reykjavik og nágrenni - FM 90,1 AKUREYRI 18.00-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 Trönur. Umsjón. Finnur Magnús Gunnlaugsson. Fjallað um menningarlíf og mannlíf almennt á Akureyri og í nærsveitum. ÞRIÐJUDAGUR 17. febrúar 07.00—09.00 Á fætur með Sigurði G. Tómassyni. Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður lítur yfir blöðin og spjallar viö hiustendur og gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00. 09.00—12.00 Páll Þorsteins- son á léttum nótum. Palli leikur uppáhaldslögin ykkar. Afmæliskveðjur, matarupp- skriftir og spjall til hádegis. Síminn er 61 11 11. Fréttir kl. 10.00, 11.00 og 12.00. 12.00—14.00 Á hádegismark- aði með Jóhönnu Harðar- dóttur. Fréttapakkinn. Jóhanna og fréttamenn Bylgjunnar fylgjast með því sem helst er í fréttum, spjalla við fólk og segja frá. Flóamarkaöur er á dagskrá eftirkl. 13.00. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00—17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd. Pétur spil- ar síðdegispoppið og spjall- ar við hlustendur og tónlistarmenn. Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00. 17.00-19.00 Hallgrímur Thorsteinsson í Reykjavík siðdegis. Hallgrímur leikur tónlist, litur yfir fréttirnar og spjallar við fólkiö sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00. 19.00—20.00 Tónlist með léttum takti. 20.00—21.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Helgi Rúnar Óskarsson kynnir 10 vin- sælustu lög vikunnar. 21.00—23.00 Ásgeir Tómas- son á þriðjudagskvöldi. Ásgeir leikur rokktónlist úr ýmsum áttum. 23.00-24.00 Vökulok. Þægi- leg tónlist og fréttatengt efni i umsjá Braga Sigurössonar fréttamanns. 24.00—07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Tónlist og upp- lýsingar um veður. ALFA IriitUef FM 102,9 ÞRIÐJUDAGUR 17. febrúar 13.00 Tónlistarþáttur lestri úr Ritningunni. 16.00 Dagskrárlok.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.