Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987
Félög — Félagasamtök
Inghóll, Selfossi, er kjörinn staður fyrir árshá-
tíðir ykkar og þorrablót.
Góður matur, glæsileg húsakynni, diskótek
eða hljómsveit. Getum annast útvegun á rút-
um fyrir hópa. Gerum föst verðtilboð í mat,
skemmtun og flutninga ef þess er óskað.
Leitið nánari upplýsinga hjá veitingastjóra í
síma 99-2585 milli kl. 10 og 12 fyrir hádegi
virka daga eða í síma 99-1356 utan þess tíma.
Veitinga- og skemmtistaðurinn
Selfossi
HVER
HÆKKAÐI
MINHST?
AUÐVITAÐ MAZDA!
Könnun Verðlagsstofnunar, sem gerð var nýlega
leíddí í ljós að frá því að tollar voru lækkaðir á bíf-
reíðum í mars 1986 hefur verð MAZDA BIFREIÐA
HÆKKAÐ MINNST ALLRA EÐA UM AÐEINS 7%
meðan aðrar nýjar bifreíðar hækkuðu um allt að
29%!!
Á sama tíma hækkaði japanska yenið um tæp 10 %
svo að verð MAZDA bifreiða er hlutfallslega lægra
núna en þegar tollarnir lækkuðu.
Það sannast því híð fomkveðna, að þú færð alltaf
mest fyrír peningana þegar þú kaupir MAZDA!!
Nú gengur óðum á þ»r sendíngar, sem við eigum
væntanlegar fram á vorið. Tryggíð ykkur því bíl
straz!
BÍLABORG HF
SMIÐSHÖFÐA 23, SiMI 68-12-99
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐMUND HEIÐAR FRÍMANNSSON
Mikilvægar auka-
kosningar í Greenwich
26. febrúar nk. verða aukakosningar í kjördæminu Greenwich
í Lundúnaborg. Þær eru til komnar vegna þess, að fyrrverandi
þingrnaður þess, Guy Barnett þingmaður Verkamannaflokksins,
lézt um jólin. Allt bendir til þess að í þessum kosningum verði
tekizt á um þau mál, sem eiga eftir að skipta miklu máli í kosn-
ingabaráttunni, sem í hönd fer siðar á þessu ári að öllum líkindum.
Fáir búast lengur við, að kosningar verði fyrr en í júní og ýmsir
hallast að því að þær verði ekki fyrr en í október. í upphafi
kosningabaráttunnar í Greenwich virðist Verkamannaflokkurinn
hins vegar stefna á, að kosningabaráttan verði á lægri nótunum
og ekki rnikið gert úr stærri málum. Ýmislegt í sambandi við
þessar kosningar gæti skipt máli við að meta niðurstöður al-
mennra kosninga.
lengur, hvað sem gerist í þessum
kosningum.
Það fer ekkert á milli mála, að
íhaldsflokkurinn og Bandalagið
voru mjög ánægð, þegar Deirdre
Wood var valin frambjóðandi
Verkamannaflokksins. Hún er
álitin vera yzt til vinstri í brezkum
stjómmálum og valin gegn óskum
flokksleiðtogans, að því er sagt
er. Það má þess vegna búast við
því, að í þessum kosningum verði
tekist á um það, að sú hófsama
Meðaltími í heiminum er kenndur við Greenwich. Hér sést í bak-
grunni hinn Konunglegi flotaskóli (Royal Naval College), þar sem
allt er í föstum skorðum, þótt hart sé barist í pólitíkinni.
Isíðustu kosningum árið 1983
féllu atkvæði þannig: G. Bam-
ett (V) 13.361 (38,2%); A. Rolfe
(í) 12.150 (34,8%); T. Ford
(Bandalagið) 8.783 (25,1%). Aðrir
vom með minna en eitt prósent.
Meirihluti Verkamannaflokksins
var því 1.211 atkvæði. Það virðist
ekki mikið fyrst í stað og íhalds-
flokknum ætti því að vera
hægðarleikur að þjarma svolítið
að Verkamannaflokknum í þessu
kjördæmi. En það er margs að
gæta. í þeim fernum kosningum,
sem fóru á undan kosningunum
1983, fékk Verkamannaflokkur-
inn aldrei minna fylgi en 50%. Og
í kosningunum 1983 fékk Verka-
mannaflokkurinn minnst fylgi í
nokkrum kosningum frá upphafi.
Það er því óvarlegt að draga
nokkrar ályktanir af fylgi Verka-
mannaflokksins í kosningunum
1983. Það fyrsta, sem ber að at-
huga, er, að Neil Kinnock, leið-
toga flokksins, hefur tekizt að rífa
hann úr þeirri lægð, sem hann
var í, þegar Michael Foot lét af
embætti flokksleiðtoga. í skoð-
anakönnunum á sl. ári hefur
flokkurinn ævinlega verið með
fylgi á bilinu 35—40%. í auka-
kosningum er það regla að stjóm-
arflokkurinn á í vök að verjast.
Kjósendur eru reiðubúnari í þeim
en í almennum kosningum að
refsa honum fyrir það, sem illa
gengur. Nýleg skoðanakönnun
Verkamannaflokksins metur fylgi
frambjóðanda flokksins í 52%,
frambjóðanda íhaldsflokksins í
28% og frambjóðanda Bandalags-
ins í 18% og annarra 2%. Skoðana-
könnun í Observer í síðasta
mánuði sagði fylgi Verkamanna-
flokksins vera um 60% í kjördæm-
inu og nýleg könnun á vegum
BBC segir það vera um 48%: Flest
bendir því til, að Verkamanna-
flokkurinn sigri þessar aukakosn-
ingar, þótt ýmislegt eigi enn eftir
að gerast.
Frambjóðendur flokkanna í
þessu kjördæmi gætu skipt mjög
miklu máli í þessum kosningum.
Frambjóðandi Verkamanna-
flokksins er Deirdre Wood, fjög-
urra bama móðir á fimmtugsaldri.
Hún hefur starfað fyrir yfírvöld
menntamála í Lundúnaborg og
stutt róttæka vinstrimenn þar.
Hún tók þátt ásamt ýmsum leið-
togum Verkamannaflokksins í
borgarstjóm Lundúna, í að bjóða
einum meðlimi Sinn Fein, sem er
pólitískur armur IRA, til að flytja
ræðu. Hún hefur verið eindreginn
stuðningsmaður friðarhreyfíngar-
innar, sem berst fyrir einhliða
afvopnun, og hún hefur stutt, að
svertingjar gætu stofnað sérfélög
innan Verkamannaflokksins, en
flokksþingið sl. haust úrskurðaði
það ólöglegt. Deirdre Wood var
tekin fram yfír Glenys Thomton,
sem talin var vera frambjóðandi,
sem nyti stuðnings Neil Kinnocks.
John Antcliffe, frambjóðandi
Ihaldsflokksins, er 25 ára gamall
og starfar við Rothschild-bankann
í Lundúnum. Hann hefur búið
lengi í Greenwich, situr í borgar-
stjóminni í Greenwich og telur
að stefna Verkamannaflokksins
verði aðalmál þessara kosninga,
því að Deirdre Wood sé í rauninni
fulltrúi öfgahópa yzt á vinstri
kanti Verkamannaflokksins.
Menntamál telur hann að muni
hafa áhrif og varnarmál. Það má
einnig búast við því, að hneykslis-
mál úr City verði kosningamál,
þar sem Antcliffe starfar þar og
stjómarandstæðingar hafa kennt
stefnu stjómarinnar um þessi fjár-
málahneyksli. Rosemary Barnes
er fulltrúi Bandalags fijálslyndra
og sósíaldemókrata. Hún hefur
starfað fyrir flokkinn að mennta-
málum. Hún telur að menntamál,
húsnæðismál og atvinnuleysi verði
aðalmál þessara aukakosninga.
Hún, eins og John Antcliffe, telur
að Deirdre Wood muni hræða fólk
frá Verkamannaflokknum.
Greenwich er í suðausturhluta
Lundúna rétt suður af Thames-
ánni. Þar má finna umtalsverða
fátækt en þar er líka mikið af vel
stæðu fólki. Þar er frægt sjó-
minjasafn og þar er heimavöllur
Charlton-knattspymufélagsins.
Það hefur farið vaxandi, að í kjör-
dæmið flytjist ungt, vel efnað fólk
og búizt er við að þjónusta fari
vaxandi þar í framtíðinni og
ferðamannaþjónusta. Það bendir
því ýmislegt til þess, að þetta kjör-
dæmi verði ekki öruggt Verka-
mannaflokkskjördæmi mikið
stefna, sem Neil Kinnock hefur
barizt fyrir, sé einungis yfirborð-
ið, en þeir sem raunverulega ráði
flokknum séu róttæklingar, sem
velji frambjóðendur á borð við
Deirdre Wood. Þetta tengist því,
að ýmsar borgarstjómir í Lundún-
um, í Brent og Haringey til
dæmis, hafa reynzt flokksfor-
ustunni mjög erfíðar. Þær hafa
barizt fyrir málstað kynvilltra
karla og kvenna og krafízt þess
jafnvel, að í félagsfræðikennslu í
skólum í þessum borgarhlutum
verði kynning á fjölskyldulífi kyn-
villtra lögð að jöfnu við kynningu
á hefðbundnu fjölskyldulífí. Þetta
og ýmislegt annað hefur valdið
miklu írafári í fjölmiðlum og gefíð
íhaldsflokknum tækifæri til að
ráðast á „the loony left“, eins og
það er kallað. Það hefur komið
illa við forystu Verkamanna-
flokksins.
Deirdre Wood hefur kosið að
eyða öllum spumingum um skoð-
anir sínar og svarað því til að hún
styddi stefnu flokksins. Stjóm-
endur kosningabaráttu hennar
hafa lagt áherzlu á, að hún verði
ekki með stórpólitískar yfirlýsing-
ar og kosið að hún hitti kjósendur
persónulega til að vinna gegn
því, að áróður andstæðinganna
um að hún sé ofstækisfullur öfga-
maður hafí áhrif. Þetta skipulag
hefur gengið fyrstu dagana og
blaðamenn segja, að kosningabar-
áttan sé heldur litlaus. Aðrir
frambjóðendur nota einnig tíma
sinn til að hitta kjósendur. A þess-
um tíma er ómögulegt að segja,
hvaða áhrif kosningabaráttan
hefur.