Morgunblaðið - 17.02.1987, Side 58

Morgunblaðið - 17.02.1987, Side 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987 Húsfyllir á fundi Þorsteins Pálssonar á ísafirði: Isfirðingar óttast áfram- haldandi byggðaröskun Byggðastefnan verði aðalmál landsfundar Sjálfstæðisflokksins ísafirði. BYGGÐAMÁL, með fiskveiði- stefnuna í fyrirrúmi, varð aðalmálið á mjög fjölmennum fundi Þorsteins Pálssonar for- manns Sjálfstæðisflokksins með ísfirðingum á laugardaginn. Að framsöguræðu Þorsteins lokinni tóku 12 menn til máls og fjölluðu þeir um ýms málefni sem Þorsteinn hafði drepið á, en þem- að í öllum ræðum þeirra var óttinn við áframhaldandi fólks- flótta frá Vestfjörðum og þá erfiðleika sem því væru samfara. Hans Georg Bæringsson, form- aður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag- anna á ísafirði, setti fundinn og skipaði Óla Lúðvíksson fundar- stjóra. Fundarboðandinn Þorsteinn Pálsson flutti yfirgripsmikla ræðu um sijómarfar núverandi ríkis- stjómar og bar saman við aðgerðir -næstu ríkisstjóma á undan. Auk þess ræddi hann stjómmálavið- horfín almennt. Stjómarandstæð- ingar með Alþýðuflokksmenn í fararbroddi héldu nú marglitar flugeldasýningar, sem ætlaðar voru til að ná kjósendum yfír fyrir miðju stjómmálanna. Varaði hann fund- armenn við afleiðingum þess, þvf kæmu vinstri flokkamir vel út úr næstu kosningum, þýddi það ekkert annað en ávísun á nýja vinstri stjóm með vaxandi verðbólgu, rýmandi • .kaupmætti og almennt verri lífskjör. Gat hann þar sérstaklega Alþýðuflokksins, sem hann sagði að hefði það venjulega að kosninga- loforði að vinna ekki með kommún- istum eða treysta styrk niðurrifsaf- lanna í landinu, en væri þó fyrstur undir sængina hjá þeim að kosning- um loknum. „Ef fólk vill tryggja áframhald- andi uppbyggingu atvinnulífsins í landinu og bætt lífslqor launþega þá verður það að tryggja að styrkur Sjálfstæðisflokksins eftir næstu kosningar verði svo mikill að ekki verði komist hjá að hann taki þátt i næstu stjóm landsins," sagði Þor- steinn. Síðan fór hann yfír pólitfska sögu síðustu fjögurra ára og sýndi með dæmum hvemig upplausn og óáran með 130% verðbólgu var snúið til betri vegar þrátt fyrir að í upphafí hafí viðskiptalqör og ýmsar ytri aðstæður verið erfíðar. Þjóðin var þá komin á barm efnahagslegs sjálfstæðis svo vitað var fyrir að þær aðgerðir sem þurfti að gera yrðu erfíðar og sársaukafullar. Itar- legur málefnasamningur var gerður við samstarfsflokkinn í ríkisstjóm. Við þennan samning hefði verið staðið í grundvallaratriðum. Farið var inn á nýjar brautir í stjóm efna- hagsmála sem leitt hafa til stöðug- leika í þjóðfélaginu. Aðilum vinnumarkaðarins hefur verið gert skylt að bera sjálfum ábyrgð á samningum sín á milli og gengi hefur verið haldið stöðugu. Við- skiptajöfnuðurinn við útlönd, sem var orðinn neikvæður um 10%, er nú kominn í jafnvægi. Jákvæðir vextir hafa svo leitt til vaxandi spamaðar, sem dregur úr þörfínni fyrir erlendar lántökur. Nú er svo komið eftir aðeins fjögurra ára starf að kaupmáttur lægstu launa er orð- inn eins og hann hefur bestur verið áður og sama er að segja með elli- lífeyri og örorkubætur. Eitt af loforðum Sjálfstæðis- manna fyrir síðustu kosningar var að afnema telquskatt af almennum launatekjum. Tekist hefur að lækka tekjuskatt um 2.800 milljónir króna og nú liggur fyrir alþingi stjómar- frumvarp um staðgreiðslukerfí skatta, þar sem gert er ráð fyrir að hjón með 2 böm greiði ekki tekjuskatt af 800 þúsund króna árstekjum. Verði fmmvarpið sam- þykkt er það að sögn Þorsteins eitt mesta framfaraspor í skattamálum sem stigið hefur verið í landinu. Það sem athyglisverðast er við umfjöllun þessa frumvarps er það að Alþýðusamband íslands hefur lagst mjög með því að frumvarpið verði samþykkt, en formaður Al- þýðuflokksins er með allskonar útúrsnúninga til að tefla málið, og ber meðal annars fyrir sig einhvem huldumann í fjármálaráðuneytinu, sem á að hafa sagt að þetta væri óframkvæmanlegt á svo skömmum tíma. Staðreyndin er, að enginn maður í ábyrgðarstöðu hefur látið hafa þetta eftir sér, enda alveg til- hæfulaust. Þorsteinn gat þess að útúr púður- reyk flugeldasýninga Alþýðuflokks- manna á þingi hefðu komið 70 tillögur um spamað í ríkisrekstrin- um útfært í krónum og aurum. Aðeins eitt hafði þeim þó láðst að gera, það var að leggja saman og draga frá, því niðurstöður tillagn- anna sýndu að allur spamaðurinn var orðinn að 500 milljóna aukaút- gjöldum. Alþýðubandalagið sem var lengi höfuðandstæðingur Sjálfstæðis- flokksins virðist nú lifa í pólitísku tiigangsleysi, að sögn Þorsteins. Aður höfðu þeir skýrt markaða stefnu, sögðust vera málsvarar verkalýðs og sósíalisma og and- stæðingar hers í landi. Nú hrapa verkalýðsforingjamir niður met- orðastiga _ bandalagsins, ekki er minnst á ísland úr NATO, herinn burt í stjómarsamstarfsviðræðum og nú hreykja þeir sér mest af því að einn aðalmaðurinn á lista þeirra í Reykjaneskjördæmi er sjálfstæður atvinnurekandi." Að lokum sagði Þorsteinn Páls- son, að ekkert væri hægt að segja um hveijir störfuðu saman í ríkis- stjóm eftir næstu kosningar. „Sjálfstæðisflokkurinn þarf á styrk að halda frá kjósendum sínum til frekari uppbyggingar. Við viljum frelsi atvinnurekstursins, festu og öra uppbyggingu. Á fundum undan- farið hef ég fundið að fólk metur það sem við erum að gera. Við verð- um að ná jöfnuði í ríkisfjármálum og við verðum að vinna að byggða- þróun í landinu. Stöðugleiki er undirstaða þess að árangur náist. Eg hef ástæðu til bjartsýni. Ný framtíðarsýn á íslandi er í sjón- máli,“ sagði Þorsteinn í niðurlags- orðum. Einar K. Guðfinnsson, þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum í næstu Alþingis- kosningum tók næstur til máls. í ræðu sinni lagði hann megináherslu á að stöðva byggðaröskunarskrið- una, sem komst á mesta ferð 1981 í einhveiju mesta góðæri sem verið hefur í sjávarútvegi og fískiðnaði. Hann taldi megin ástæðuna vera viðskiptahallann, þar sem útflutn- ingsvörumar væru seldar of lágu verði til að standa straum af gróða heildverslunar og annarra innflutn- ingsaðila. Þjónustustigið væri yfír- leitt mikið lægra í dreifbýlinu en í Reykjavík og hefði það mikið að segja um afkomu fólksins. „Nú stendur þjóðin á tímamótum. Hefð- bundin byggðastefnumarkmið dugðu ekki, nú verður Sjálfstæðis- flokkurinn að hafa forystu í framsetningu nýrrar og framsæk- innar byggðastefnu, sem byggði á viðurkenningu á mikilvægi undir- stöðuatvinnuveganna sjávarútvegs og landbúnaðar," sagði Einar. Halldór Hermannsson, fram- kvæmdastjóri á ísafírði, talaði um að ýmsir flokksmenn gerðu komm- unum allt of hátt undir höfði. Þessi §andi á fjósbita lýðveldisins ætti ekki skilið þá athygli sem Matthías og Styrmir væru sífellt að gefa Einar K. Guðfinnsson. Halldór Hermannsson. Kristján Guðjónsson. Kristján Jónsson. Ólafur Helgi Kjartansson. Magnús Reynir Guðmundsson. Ragnar Haraldsson. Theodór Nordquist. Þorsteinn Pálsson flytur ræðu sína. þeim í umræðu um hermang og kommúnisma. Besta leiðin til að losna við þá væri einfaldlega að þegja þá í hel. Hann lagði þó meg- ináherslu á, að ef Sjálfstæðisfíokk- urinn ætti aðild að næstu ríkisstjóm þá yrðu ráðherrar flokksins að fara með sjávarútvegsmál og landbún- aðarmál, ekki dygði að hafa einræðisherra á borð við Halldór Ásgrímsson í starfí sjávarútvegs- ráðherra. Hann sagðist taka þátt í Samtökum um jafnrétti milli lands- hluta af heilum hug, en vildi alls ekki að samtökin færu út í sérfram- boð, því þau væru þverpólitísk, en hann sagði að það dygði ekki leng- ur, að sveitarstjómarmenn dreif- býlisins lægju kylliflatir á fullum hótelum í Reykjavík, við betlidyr valdsins. Kristján Jónsson, hafnsögu- maður, ísafírði, sagðist gefa lítið út á patentlausnir Jóns Baldvins Hannibalssonar, eða föður andanna eins og ’nann kallaði hann, sagðist þekkja ýmsar þeirra síðan þeir störfuðu báðir í bæjarstjóm Isa- íjarðar. Hann lagði áherslu á að Sjálf- stæðismenn hefðu kosið sína forystu og að hann ætlaði forystu- mönnum að stjóma, það væri svo hlutverk kjósenda að segja til um árangurinn. Það þýddi ekki fyrir skipstjórann að hlaupa niður á dekk og spyija hásetana ráða ef eitthvað bjátaði á. Ólafur Helgi Kjartansson, skattstjóri, ísafírði, sagði að skort hefði á mótun byggðastefnu með tilliti til raunvemlegra þarfa. Lagði Guðmundur Þórðarson. Arni Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.