Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987 Lokadagur Meginbakhjarlar Skyttanna og leikarar af gnðsnáð! Eggert og Þórarinn í hlutverkum lánlausra lítilmagna. Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson SKYTTURNAR ☆☆>/2 Nýjasta skerf til þess merkilega fyrirbrigðis er nefnist íslensk kvikmyndagerð má einna helst flokka undir tragikómedíu. Skytturnar sýna okkur tæpan sólarhring í lífi tveggja sjómanna sem hafa orðið undir í lífsbarátt- unni. Grímur af sjálfseyðingar- hvöt öðru fremur. Búbbi einfald- lega heimskur. Þeir eru að hætta saman í skiprúmi á hvalveidibát, Búbbi fylgir foringjanum til höf- uðborgarinnar eins og þægur rakki, töffarinn Grímur er ekki illmenni og það tengir þá saman að hvorugur verður nokkurn tíma „stór“. Lokadagurinn verður Grími og félaga til lítillar lukku. Mótlætið hefst á heimstíminu þegar Grími er tilkynnt að sambýliskona hans hafi lokað á hann dyrum. Heimil- islaus sjómaður er hvergi umkomulausari en með fast land undir fótum, rétt eins og þorskur á þurru landi (sbr. sundlaugarat- riðið). Svo líða kvöldið og nóttin i gjálífi borgarinnar, að þjóðfélag- ið heldur áfram að hrækja framan í Grím og Búbbi eltir. Tilviljun ræður því svo að þeir standa allt í einu uppi með morðtól í höndun- um og endalokin eru að þeir eru ekki lengur veiðimennimir heldur bráðin. Þrátt fyrir þunga undirölduna er lengst af grunnt á gamninu í hefluðu og lífrænu handriti Frið- riks og Einars, annað hefði komið á óvart! Spaugsemin kemur ekki síst fram í þessum broslega fé- lagsskap, í kaldhæðni Gríms og heimóttarhætti sveitamannsins. Að nota viðvaninga í aðalhlutverk er sannkallað hættuspil, sem get- ur, ef illa tekst til, hreinlega gengið af kvikmynd dauðri. Á hinn bóginn veitt henni óborgan- legan ferskleika ef stjómendum ber gæfa til að hafa upp á réttum, auðtömdum manngerðum, sem tmfla ekki athygli áhorfandans með kunnugleikanum. Friðrik hefur svo sannarlega verið fundvís. Báðir tveir, Eggert Guðmundsson og Þórarinn Oskar Þórarinsson, em réttar týpur á réttum stað. Þetta em menn sem em sem sprottnir út úr landslag- inu. Og þó að nokkuð skorti upp á skýrari framsögn á stöku stað, þá er það eðlilegur leikur þeirra sem er sterkasti þáttur, burðarás Skyttanna. þeir em lítilmagninn uppmálaður. I minni hlutverkum bregður fyrir kunnum andlitum úr leikara- stétt sem fara vel með lítið, enginn þó betur en Hrönn Steingríms- dóttir, sem á góðan sprett með Leonard Cohen í einum hnignun- arþætti þeirra félaga. Þrátt fyrir nokkra vankar.ta, sem virðast undantekningarlítið heldur hvimleiðir fastir fylgifiskar íslenskrar kvikmyndagerðar, þá sanna Skyttumar að tími var komin til að Friðrik fengi aur til að gera leikna mynd í fullri lengd. Friðrik Þór hefur löngum virkað á mig sem einstaklingur í hópi kvikmyndagerðarmanna okkar eins og Kinks meðal gullaldar- hljómsveitanna! Síferskur, ósm- eykur við ólíklegustu viðfangsefni og almenningsálitið. Með kímnig- áfuna og sérviskuna í góðu lagi. Friðrik og félögum hefur tekist að gera raunsæja, hraða, grát- broslega mynd um persónur og málefni sem yfirleitt eiga ekki upp á pallborðið hjá skapandi lista- mönnum. En enn og aftur finnum við fyrir þessari bagalegu íjar- lægð milli áhorfandans og persón- anna á tjaldinu, hún virðist ætla að verða illbrúanleg hjá hérlend- um kvikmyndagerðarmönnum. Ekki er laust við að kvikmynda- takan sé nokkuð muskuleg og helst til dökk, vanlýst í einstaka myndskeiðum. Þá er það leiðinleg gleymska að geta þess ekki sér- staklega að neðansjávarmynda- takan er aðkeypt. Lokaatriðið er glæsilegt í alla staði og þar er komið að kjama málsins. Spyr okkur ekki aðeins hvort það megi ekki fullt eins drepa menn eins og hvali — held- ur öllu frekar kunnrar spumingar um þessar lífvemr, hvalina og lítil- magnann í þjóðfélaginu, sem af einhveijum ástæðum hefur orðið utangátta; er nauðsynlegt að skjóta þá? IBM — ERGO — VICTOR — ERICSSON IBM Facit-prentarar ganga við flestar gerðir af tölvum. Þeir eru áreiðanlegir, mjög fljótvirkir og prentun er íháum gæðaflokki. Hver leturhaus endist fyrir meira en 100.000.000 stafi og blekborðinn fer mttmeð 4. OOO. OOO stafa. % & CQD A 9P tk WM i t&iM Nýbýlavegi 16. Sími 641222. Hertar reglur um frambjóð- endur í rík- isfjölmiðlum FRAMBJÓÐENDUR í aðalsætum í almennum kosningum skulu ekki koma fram í almennum dagskrám rikisfjölmiðlanna frá þvi að fram- boðslistar eru birtir þar til kosning hefur farið fram. Með sama hætti skulu starfsmenn Ríkisútvarpsins sem eru í fram- boði, leystir frá dagskrárstörfum og falin önnur verkefni tímabund- ið. Reglur þessar voru samþykktar á fundi útvarpsráðs á föstudag og þar með voru þær reglur, sem í gildi hafa verið, hertar. Áður miðuðust þær við þann tíma er framboðsfrest.i lauk. Reglumar eiga þó ekki við þeg- ar um er að ræða sérstakar dagskrár eða fréttapistla, sem dagskrárstjóm RUV hefur samþykkt í tilefni af kosn- ingaundirbúningi eða í öðrum tilvik- um þegar beinlínis er gert ráð fyrir þátttöku frambjóðenda og fyllstu óhlutdrægni er gætt eins og megin- reglur RUV mæla fyrir um. Fréttastofu ber að varast að leiða frambjóðendur fram í fréttum eða fréttatengdum þáttum eftir að fram- boð hefur verið tilkynnt og þar til kosningar em um garð gengnar nema unnt sé að leiða sterk rök að nauðsyn þess að viðkomandi komi fram í frétt- um eða í hann sé vitnað vegna sérstaklega fréttnæmra atvika. Regl- ur þessar taka ekki alfarið til þátta, sem byggjast á sameiginlegu fram- lagi margra flytjenda, svo sem í leikritum eða tónlistarþáttum. Deild- arstjórar skulu vísa vafaatriðum til útvarpsstjóra. Útvarsstjóri metur hvort vísa skuli þeim áfram til út- varpsráðs til_ úrskurðar. Markús Á. Einarsson, útvarps- ráðsmaður, sagði að fresta hefði þurft nokkrum þáttum að undanfömu vegna komandi kosninga þar sem umsjónarmenn þeirra hafa verið á framboðslistum. Sjónvarpsþáttum Áma Johnsen_ var frestað fram yfir kosningar og Ásdís Skúladóttir hefur látið af störfum sem einn umsjónar- manna þáttanna „í dagsins önn, sem eru á dagskrá útvarpsins. Þá átti Markús von á breytingum á starfí Margrétar Heinreksdóttur, frétta- manns á sjónvarpinu, á meðan á kosningabaráttu stendur, en hún er nú á framboðslista Alþýðuflokksins í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.