Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987
íslenskir myndlistar-
menn sýna í Stokkhólmi
Stokkhólmi. Frá Ásdísi Haraldsdóttur fréttaritara Morgunblaðains.
ÍSLENSKIR myndlistarmenn eru
óvenju atkvæðamiklir hér i
Svíþjóð þessa dagana. Siðasta dag
janúarmánaðar, sem að þessu
sinni bar upp á laugardag, voru
opnaðar tvær sýningar á verkum
þeirra i Stokkhólmi.
Að morgni laugardagsins var sýn-
ingin „Kex — Konst frán Island och
Norge" opnuð í sýningarsal Kultur-
huset í miðborg Stokkhólms. Þar
sýna tólf íslenskir listamenn og jafn
margir norskir verk sín.
KEX er skipulögð fyrir utan allar
listastofnanir og er unnin í samein-
ingu af listamönnum frá íslandi,
Noregi og Svíþjóð. Enginn listamaður
mun sýna verk sín í eigin heimalandi
og er þetta í eina skiptið sem lista-
menn frá tveimur löndum sýna
samtímis.
Undirbúningsvinnan hefur mest
mætt á þremur umsjónarmönnum,
einum frá hveiju landi. Guðrún Hrönn
Ragnarsdóttir var umsjónarmaður
fyrir hönd íslendinganna. Að sögn
Guðrúnar er hugmyndin upphaflega
komin frá sænsku listakonunni Car-
ina Hedén. Henni þótti áhugavert að
koma á meiri samskiptum á milli
listamanna á Norðurlöndum.
„Ef við tökum okkur íslendinga
sem dæmi eru tengslin mun meiri við
meginland Evrópu en við önnur Norð-
urlönd," segir Guðrún. Ákveðið var
að velja á sýninguna verk eftir fólk
sem ekki hefur sýnt á Norðurlöndum
áður og fyrir valinu urðu ungir lista-
menn. Guðrún sagði að leitast hafí
verið við að sýna sem fjölbreytileg-
asta list og hefði reyndin orðið sú
að sýningin spannar yfír vítt svið.
Þar væru málverk, teikningar,
grafísk verk, skúlptúrar, hljóðverk
(audio) og „video“-listaverk.
íslendingamir sem taka þátt í sýn-
A tímum aukins hraða og skipulagningar eru
#% Victor einmenningstölvurnar sterkur
bakhjarl. Þær eru fljótvirkar, öruggar og tækni-
lega fullkomnar. Reynslan hefur sýnt að Victor
tölvurnar eru vandaðar, sterkbyggðar og hafa
lága bilanatíðni.
Nú kynnir Victor nýtt og enn fullkomnara lykla-
borð, þrátt fyrir að það gamla hafi þótt eitt af
þeim bestu sem fyrir voru á markaðinum.
Breytingarnar felast meðal annars í að að-
gerðatakkamir hafa verið færðir efst á borð-
ið og örvatakkarnir orðnir algjörlega sjálf-
stæðir og óháðir talnatökkunum. Victor fylgist vel með
nýjungum og kappkostar að vera leiðandi í þróun ein-
menningstölva.
yem
i.) I I I l uj.i i.ji
/ýangurinn hefur heldur ekki látið á sér standa.
Á síðari helmingi síðasta árs bættust á sjöunda
hundrað nýir Victor eigendur í hópinn.
Nýlega millilentu 500 Victor tölvur hjá okkur að
Grensásvegi 10. Þessa dagana eru þær óðum að
flytja sig yfir á skrifborð landsmanna til að létta
þeim pappírsvinnuna, auka nákvæmnina og
auðvelda stjórnendum fyrirtækja að taka
réttar ákvarðanir.
Victor tölvurnar eru á mjög hagstæðu verði
og sölumenn okkar eru sveigjanlegir í samningum.
Kynntu þér málið - það borgar sig.
EinarJ. Skúlasonhf.
Grensásvegi 10, sími 68-69-33
Um síðustu helgi komu 500 Victor tölvur flugleiðis til landsins. Ekki í vikufrí - heldur til að vera.
ÞEGAR TIMINN ER PENINGAR...
SPARAR VICTOR HVORT TVEGGJA!
ingunni eru þau Kristinn G. Harðar-
son, Eggert Pétursson, Ingólfur
Amarson, Sólveig Aðalsteinsdóttir,
Tumi Magnússon, Þór Vigfússon, Jan
yoss, Steigrímur E. Kristmundsson,
Ásta Ólafsdóttir, Helgi Friðjónsson,
Finnbogi Pétursson, Rúna Þorkels-
dóttir. Hrönn Ragnarsdóttir.
Sýningin í Kulturhuset stendur til
15. mars næstkomandi. íslenska sýn-
ingin fer þá til Noregs og verður
opin frá 28. mars til 26. apríl. íslend-
ingum gefst síðan kostur á að sjá
norsku listaverkin í Reykjavík 22.
maí til 7. júní og þau sænsku 12.
júní til 28. júní.
ísbrot í Hasselby-höll
Eftir hádegi þennan sama dag
var opnuð sýning níu íslenskra lista-
kvenna í Gallerie Plaisiren sem
stendur við Hásselby-höll í einu af
úthverfum Stokkhólms.
Konumar tilheyra allar þeim hópi
sem sýndi verk sín í Gallerí Lang-
brók í Reykjavík. Þær eru Kolbrún
Björgólfsdóttir, Sigrún Guðjóns-
dóttir (Rúna), Guðrún Guðmunds-
dóttir, Edda Jónsdóttir, Guðný
Magnúsdóttir, Borghildur Óskars-
dóttir, Jóhanna Þórðardóttir, Lísbet
Sveinsdóttir og Sigrid Valtingojer.
Fimm kvennanna voru við opnun
sýningarinnar og sagði Guðný
Magnúsdóttir að þær sem sýndu
verk sín þama væm aðeins lftill
hluti af þeim hópi sem sýndi í Gall-
erí Langbrók. Þær hafí verið valdar
með tilliti til þess hve þær nota fjöl-
breytilega tækni.
„Hugmyndin að þessari sýningu
vaknaði fyrst þegar einn af stjóm-
armönnum í Hásselby-höll kom í
Gallerí Langbrók," sagði Guðný.
„Eftir það fóm hjólin að snúast,
því hann var víst mjög hrifinn af
þeirri blöndu listar og listiðnaðar
sem hann sá í Gallerí Langbrók.
Sýningarstjórinn hér, Hans Blid-
berg, kom svo til íslands í ágúst á
síðasta ári og valdi hann úr hópnum
með tilliti til að sýningin sýndi áður-
nefnda fjölbreytni. Hann heimsótti
síðan listakonumar á vinnustofur
þeirra og valdi þau verk sem nú
em á sýningunni."
í Hásselby-höll er menningar-
miðstöð höfuðborga Norðurland-
anna. Þar era haldnar listsýningar,
tónleikar, bókmenntakynningar,
fyrirlestrar og fleira. Einnig em
haldin námskeið, ráðstefnur og
fundir til að efla samskipti þjóðanna1
og þekkingu manna á þessum lönd-
um og fólkinu sem í þeim búa. í
höllinni er einnig gistiaðstaða og
bjuggu íslensku listakonumar þar
á meðan þær unnu við að setja upp
sýninguna.
Sýningunni lýkur 1. mars næst-
komandi.
- ÁH
ÆaeamMBSMH■&.
STÝRtLIÐAR
SEGULROFAR
YFIRÁLAGSVARNIR
STJORNUÞRI-
HYRNINGSROFAR
TÍMALIÐAR
ROFAHUS
gæði
Hagstættverð
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA