Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987
37
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri stjömuspekingur.
Mig langar að spytja þig um
stjömukort drengs (sonur
minn) sem er fæddur 30.
desember 1978, kl. 9.45 að
morgni í Reykjavík. Ég vil
að þú segir mér það sem þér
dettur í hug varðandi
stjömukort hans. Takk fyrir.
Júlí 1959.“
Svar:
Hann hefur Sól, Tungl og
Mars í Steingeit, Merkúr og
Rísandi í Bogmanni og Ven-
us og Miðhiminn í Sporð-
dreka. Steingeit, Bogmaður
og Sporðdreki.
Alvörugefinn
Margar plánetur í Steingeit
benda til þess að sonur þinn
sé alvörugefinn og frekar
hlédrægur persónuleiki.
Sterk ábyrgðarkennd er ein-
kennandi sem og góðir
skipulagshæfileikar.
Jarðbundinn
Hann er jarðbundinn, þarf
öryggi og þarf að fást við
gagnleg og uppbyggileg
málefni. Metnaður er tölu-
verður.
FróÖleiksfús
Bogmaður Rísandi táknar
að framkoma hans er opnari
og eirðarlausari en innri
maður hans. Hann hefur
þörf fyrir að hreyfa sig, ríka
þörf til að tjá sig og ræða
málin. Hann er því forvitinn
og fróðleiksfús. Nauðsynlegt
er að gefa honum tækifæri
til að svala þessari fróðleiks-
þörf, m.a. með því að gefa
honum bækur, gefa sér tíma
til að svara spumingum
hans og fara með hann á
sýningar o.þ.h.
Imyndunaraj7
Neptúnus er í samstöðu við
Merkúr og Rísandi. Það
táknar að hugsun hans er
draumlynd, að hann hefur
sterkt ímyndunarafl. Agætt
er að hvetja hann til að
þroska þessa hæfileika,
hvetja hann t.d. til að teikna
eða gefa honum kost á að
spila á hljóðfæri.
Dulur
Það sem helst gæti háð hon-
um er að hann er tilfinninga-
lega dulur, formfastur og
inn í sig. Þú þarft að hvetja
hann til að opna sig og segja
frá því sem honum finnst
eða mislíkar. Hvetja hann
til að sýna ástúð. Þetta get-
ur þú best gert með þvf að
gefa honum hlýju og ást, og
tala við hann um tilfínninga-
mál. Hann er tilfinningalega
íhaldssamur og þarf öryggi
og reglu í daglegu lífi. Það
fer t.d. ekki sérlega vel með
litlar Steingeitur að skipta
oft um umhverfi og skóla.
Það að skapa honum ömggt
umhverfí kemur í þinn hlut.
Ábyrgöarstörf
Ég tel að hann hafi hæfíleika
á skipulags- og stjómunar-
sviðum. Verkfræði, bygg-
ingafræði, tæknifræði á vel
við Steingeitina, einnig við-
skiptafræði og það að fást
við fyrirtækjarekstur og þ.h.
Hann þarf að fást við hag-
nýt verkefni og takast á við
ábyrgð. Best er fyrir þig að
láta hann sjálfan fínna sína
stefnu, en gefa honum já-
kvæða hvatningu og stuðn-
ing, sérstaklega tilfinninga-
lega. Þar sem hann er
metnaðargjam er nauðsyn-
legt að styðja hann hvað
varðar skólanám og mennt-
un. Þú ættir að hjálpa
honum að þroska ábyrgðar-
kennd sína, m.a. með því að
treysta honum fyrir ákveðn-
um verkefnum, láta hann
skipuleggja og axla ábyrgð
sem hentar aldri hans hveiju
sinni.
GARPUR
X-9
TOMMI OG JENNI
FtREFTlR
þvi HVEC
AV\LTÍP-
UÓSKA
FERDINAND
SMAFOLK
Are we walking
5CHOOL A6AIN
THI5 VEAK ?
~r
NQWELL BE KIPIN6 IN A
"MOBILE ATTENPANCE
MOPULE.'I.THAT'S UJHAT
THEV CALL A 5CH00L BUS
MOU) UIILL UJE KNOUJ
UJHERE TO GET ON ?
L00K FOR A 5IGN THAT
5AY5/M0BILE ATTENPANCE
MOPULE 5T0P "
Förum við aftur gangandi
í skólann í vetur?
Nei, við ökum í tæki sem
er kallað „Hreyfanleg
mætingarfeija" ... það er
fínt nafn á skólabílnum.
Hvernig vitum við hvar við
eigum að taka hann?
Með því að finna skilti sem
stendur á „Hreyfanleg
mætingarferja — stanz.“
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Fyrrum heimsmeistari, Billy
Eisenberg frá Bandaríkjunum,
tók skakkan pól í hæðina í leik
Bandaríkjamanna gegn Sam-
vinnuferðum/Landsýn í fjórðu
umferð sveitakeppni Bridshátíð-
ar sl. sunnudag. Eisenberg og
félagi hans, Alan Sontag, kom-
ust í ijóra spaða á þessi spil, sem
Eisenberg stýrði í suður:
Norður
♦ G104
V 8654
♦ ÁK2
*D54
Suður
♦ Á7652
VKD3
♦ 76
♦ ÁKG
Jón Baldursson í vestur spil-
aði út lauftíunni.
Fyrsta spuming: Hvað viltu
gera í öðrum slag?
Hættan í spilinu er að gefa
tvo slagi á tromp og tvo á hjarta
ef ásinn er í vestur. Eisenberg
ákvað að drepa fyrsta slaginn
heima á ás og spila litlu trompi
á blindan. Sú íferð tryggir hon-
um fjóra slagi á tromp ef vestur-
á Kx eða Dx.
Jón tók á trompdrottninguna
og spilaði laufníunni.
Önnur spuming: Hvað nú?
Eisenberg drap slaginn á
drottningu blinds og lét spaða-
gosann rúlla yfir. Jón fékk á
kónginn, spilaði laufi, sem Sig-
urður Sverrisson trompaði og
hámaði í sig hjartaásinn. Einn
niður!
Spilamennska Eisenbergs er
í sjálfu sér ekki óeðlileg. Ef
hjartaásinn er í vestur má ekki
gefa nema einn slag á spaða,
svo honum er vorkunn að reyna
svíninguna.
Einhver benti á að betra hefði
verið að spila strax hjarta á
kónginn í öðnim slag — til þess
eins að kanna hvoru megin ásinn
er. En það er hæpin spila-
mennska. Bæði hlýtur það að
vera sjálfsögð vöm hjá vestri
að dúkka með ásinn, og ef vöm-
in drepur strax á hjartaásinn em
meiri líkur á því að laufstunga
náist.
Svo kannski hefur Eisenberg
sagt eins og svo oft í þessum
stöðum: „Right in theory, wrong
;n practice.“
Leiknum lauk annars með
17—13 sigri Bandaríkjamann-
anna.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlega mótinu í Wijk
aan Zee í Hollandi í janúar
kom þessi staða upp í viður-
eign stórmeistaranna
Korchnoi, Sviss, sem hafði
hvítt og átti leik, og Gut-
man, ísrael.
34. Rf5+! - gxf5, 35. Dh5
I mótsblaðinu er hér rang-
lega sagt að svartur hafi
gefist upp. Virðuleg uppgjöf
er auðvitað orðin um seinan
því svartur er mát. Korchnoi
sigraði á mótinu ásamt
Short, en Gutman varð
langneðstur.