Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987 25 Kristjáni Jóhanns- syni vel fagn- að 1 Toronto Toronto. Frá Stefáni Guðmundssyni, fréttaritara Morgunbiaðsins. KRISTJAN Jóhannsson, óperu- söngvari, fór nýlega með eitt aðalhlutverkið í óperunni Rigo- letto eftir Verdi í O’Keefe í Toronto og var þetta í fyrsta skipti, sem hann kemur fram í þeirri borg. Var frammistaða hans slík að segja má, að hann hafi sungið sig inn i hug og hjörtu áheyrenda í þessari há- borg kanadískra óperuunn- enda. Dagana 29. janúar til 8. febrú- ar söng Kristján sem gestasöngv- ari á vegum Kanadísku óperunnar og fór með eitt aðalhlutverkið í Rigoletto, hlutverk hertogans af Mantuca. Var hann þar í góðum félagsskap ýmissa frægra óperu- stjarna eins og t.d. enska söngvar- ans Johns Rownsley, sem fór með aðalhlutverkið í Rigoletto í Banda- ríkjaför Ensku óperunnar. I grein í The Globe and Mail, einu helsta dagblaði Kanada, seg- ir John Krugland, að „á hlutverki hertogans af Mantuca getur oltið hvernig til tekst með Rigoletto, bæði hvað varðar leik og söng, þar með taldar vinsælustu aríum- ar ... Kristján, sem kom nú í fyrsta sinn fram með Kanadísku óperunni, kom vel fyrir á sviði og hafði hinn rétta, bjarta tenór án þess að eiga í erfíðleikum með hæstu tónana." Kristján Jóhannsson Áheyrendur fögnuðu Kristjáni mjög vel og honum hefur nú einn- ig verið boðið að syngja í Montre- al. Engir vom þó eins stoltir af frammistöðu hans og landar hans, sem búsettir eru í Kanada, og lögðu margir mikið á sig til verða sér úti um miða. Það gekk þó misjafnlega því að þeir seldust strax upp á allar sýningarnar. Kristján er nú staddur á íslandi en mun brátt fara til Banda- ríkjanna þar sen gengið verður frá samningum um sönghlutverk allt til ársins 1991. Er ekki að veitast að Siglingamálastofnun - segir Halldór Ibsen, framkvæmdastjóri Utvegsmannafélags Suðurnesja VEGNA fréttar á baksíðu Morg- unblaðsins síðastliðinn sunnudag um óendanlega fjölgun smábáta, sem höfð var eftir Halldóri Ibs- en, hefur hann óskað eftir því að koma eftirfarandi á framfæri: „Ég vil taka það fram, að þegar ég sagði að frjálsræðið í veiðunum og stærðarmörkin byðu heim alls konar svindli og óréttlæti, var ég ekki að veitast að Siglingamála- stofnun ríkisins. Siglingamálastofn- un fer að lögum við stæðarmæling- ar á bátum og lögin heimila mönnum að byggja bátana með þeim hætti að setja í þá sérstök mælingarbönd og fá með því stærð- ina mælda niður. Hins vegar er það fiskveiðistefnan, sem er rótin að því að menn finna þama og notfæra sér smugu á lögunum. Mér finnst rétt að þetta kumi fram og jafn- framt að allt, sem eftir mér var haft í fréttinni, var rétt með farið." IJÓSRITUNARVÉLAR Þó að tækniframfarirá venjulegum ijósritunarvéium stefni írétta átt er alltaf þörf fyrirþær sem skara fram úr. Nýju SHARP Ijósrit- unarvélarnar eru framúrskarandi góðar. Þærauka framleiðni skrifstofunnar með háþróaðri tæknisem auðvelt er að stjórna. SHARP vélarnar tryggja þér óbrigðul Ijós- rit sem eru fullkomin eftirmynd frumrits. I Skrifbæ eru til 8 gerðir Ijósritunarvéla á lager. Verð frá kr. 79.900,- stgr. ÓKEYPIS HEIMSENDINGAR- ÞJÓNUSTA Á BLEIUM Mothercare býður ókeypis heimsendingar- þjónustu á bleium á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Bleiurnar hafa þótt afburða góðar enda er það sérgrein Mothercare að láta börnum líða vel. Bleiurnar fást í þremur stærðum: Fyrir börn undir 5 kg . kr. 2.000 Fyrir börn 5-12 kg . .. kr. 2.500 Fyrir börn yfir 12 kg . kr. 3.000 ( hverjum heimsendingarpakka eru 168 bleiur, en minni pakkningar eru fáanlegar í versluninni. Pantanasíminn er 91-26560, frá kl. 9.00-18.00 alla virka daga. Mothercare — Laugavegi 13-sími 26560 mothercare
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.