Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987 15 Hamrahlíð- arkórinn Tónlist Egill Friðleifsson Langholtskirkja 13. febrúar 1987. Flytjendur: Hamrahlíðarkór- inn. Pétur Jónasson, gítar. Stjórnandi: Þorgerður Ingólfs- dóttir. Efnisskrá: Lög úr ýmsum átt- um. Hamrahlíðarkórinn undir stjóm Þorgerðar Ingólfsdóttur efndi til tónleika í Langholtskirkju sl. föstudagskvöld, en auk kórsins kom þar fra_m Pétur Jónasson, gítarleikari. Á efnisskránni vom lög úr ýmsum áttum, innlend og erlend, sum þeirra hafa prýtt söngskrá kórsins oft áður en ann- að var nýtt af nálinni. Þegar þessar línur em skrifaðar er kór- inn að leggja í stranga söngferð til ísraels og er ekki eða efa að kórinn verði landi og þjóð til sóma nú sem jafnan áður. Á þessu ári munu vera rétt 20 ár liðin síðan Þorgerður stofnaði Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og geta víst allir verið sammála um að með frábæm starfi sínu hefur kórinn öðlast verðuga viður- kenningu og frægð, ekki aðeins hérlendis heldur og einnig erlend- is. Það er ekki ætlunin að skrifa hér afmælisgrein né rekja glæsi- legan feril kórsins í þessum pistli. Þó er ástæða til að minna á það afrek er kórinn vann árið 1984 keppnina „Let the Peoples Sing“ sem BBC-útvarpsstöðin efnir til árlega, og vakti athygli um allan hinn tónmenntaða heim. Það væri e.t.v. að bera í bakka- fullan lækinn að hlaða lofi á frammistöðu kórsins í Langholts- kirkju sl. föstudagskvöld. Söngur- inn ber sem fyrr þekkingu og listrænum vinnubrögðum stjóm- andans fagurt vitni. Samræmið var í góðu jafnvægi milli radda, söngurinn sveigjanlegur og blæ- brigðaríkur, þar sem hinn fislétti svífandi sópran trónir sem gylling á fögm listaverki. Þorgerður hef- ur alveg sérstök tök á sínu fólki og virðist sem hver einasti kórfé- lagi leggi sig allan fram og hver taktur er fylltur fágun og þokka. Hér er ekkert ofsögum sagt. Það vita þeir sem vom svo lánsamir að deila kvöldinu með Hamrahlíð- arkómum í síðustu viku. Sem fyrr segir vom lögin úr ýmsum áttum. Á fyrrihluta efnisskrárinnar vom eingöngu íslensk verk og mörg þeirra samin sérstaklega fyrir kórinn. Þar af var eitt frumflutt við þetta tækifæri, „Kvöldvísur um sumarmál" eftir Hjálmar H. Ragnarsson við kvæði eftir Stefán Hörð Grímsson. Hjálmar undir- strikar myndríkan textann og upphafna stemmningu ljóðsins með rólyndislegu lagferli og fínlegum blæbrigðum. Raunar hljómuðu í huga mér síðustu línur ljóðsins lengi á eftir fágaðan og innilegan flutning kórsins á þessu verki: „hljóð og fögur sem minning hrein og hvít eins og bæn.“ Þama heyrðum við einnig jap- önsku ljóðin, sem Atli Heimir tónsetti fyrir kórinn og gítar, sem hér var í höndum Péturs Jónas- sonar, sömuleiðis „Umhverfi“ eftir Jón Nordal og „Recessionale" eftir Þorkel Sigurbjömsson svo að dæmi séu nefnd. Eftir hlé voru erlend verk tekin til umfjöllunar, nema hvað Pétur Jónasson lék með ágætum „Five Studies for Jacob’s Ladder" eftir Hafliða Hallgrímsson. Þama mátti m.a. heyra hið magnaða verk „Wam- ing to the Rich“ eftir Thomas Jennefelt, sem kórinn flutti fyrst með eftirminnilegum hætti sl. haust. Héðan fylgja kómum bestu ámaðar- og afmælisóskir. „Syngj- andi ambassadorar" mætti hann gjaman kallast. Kammersveitin Ensemble 4: Inke Kessler, Atli Sigfússon, Finn Winslov og Palle Christensen. Ensemble 4 Tónlist Egill Friðleifsson Norræna húsið 14. febrúar 1987. Flytjendur: Ensemble 4 Efnisskrá: Píanókvartettar eft- ir W.A. Mozart, Herman D. Koppel og J. Brahms. Danska kammersveitin „En- semble 4“ hélt tónleika í Norræna húsinu sl. laugardag. Kammer- sveitina skipa þau Inke Kesseler, píanó, Atli Sigfússon, fíðla, Finn Winslov, fíðla, og Palle Christen- sen, selló. Strengjaleikaramir eru allir meðlimir í Suður-jósku sin- fóníuhljómsveitinni, en kammer- sveitin var stofnuð árið 1983 og hafa þau leikið saman síðan. Þess má geta að Atli Sigfússon er son- irsonur Sigfúsar Einarssonar, tónskálds, og hefur áður komið hingað með Sigfússon-kvartettin- um árið 1970. Á efnisskránni voru kvartettar eftir Mozart, H.D. Koppel og Brahms. Norræna hús- ið býður okkur alltaf öðru hvom að hlýða á norræna músíkanta og em þar jafnan ágætir tónlistar- menn á ferðinni. Svo var einnig nú. Félagamir í „Ensemble 4“ em auðheyrilega vel samæfðir og gerðu marga góða hluti á þessum tónleikum, sem því miður vom illa sóttir. Það var píanókvartettinn í g- moll K 478 eftir Mozart, sem „Ensemble 4“ réðst fyrst til atlögu við, og lögðu hljóðfæraleikaramir áherslu á létt og leikandi spil, sem hæfði Mozart ágætavel. Þó leikur þeirra væri ekki sérlega tilþrifa- mikill var hann áferðarfallegur og hnökralítill. Áhugaverðasta verk efnis- skrárinnar var nýr píanókvartett eftir danska tónskáldið Hermann D. Koppel op. 114, saminn á síðasta ári. Auk þess að vera tón- smiður er Koppel ágætur píanisti og man undirritaður vel eftir því er hann kom hingað og hélt tón- leika fyrir rúmum tveimur áratug- um og lék þá m.a. ítalska konsertinn eftir Bach. Þó Her- mann D. Koppel sé nú fullorðinn maður em engin ellimörk á píanó- kvartettinum op. 114, þvert á móti. Hann er bæði spennandi og skemmtilegur, fullur af snjöllum hugmyndum og tónhendingum, oft stuttum, sem höfundur vinnur úr snöggt og vafningalaust, og var hér sérlega rösklega fluttur af „Ensemble 4“. Eftir hlé heyrðum við svo ábúð- armikinn píanókvartett í c-moll op. 60 eftir Brahms og brá víða við vel útfærðum leik, ekki síst í fjörugum scherzo-þættinum. Von- andi sjá fleiri sér fært að hlusta á „Ensemble 4“ næst þegar þau koma. Þau eiga það skilið. SVÆÐISÚTVARP Útrásin 10.00 Upp og niður. Umsjón: Arnar Bjarnarson og Teitur Atlason. (KV). 12.00 Matargat. Umsjón: Tryggvi Thayer og Ingi Þór Ólafsson. (KV). 14.00 Smá útrás. Umsjón: Páll Guöjónsson og Viðar Halldórsson. (FÁ). 16.00 Styrkur. Umsjón: Sig- uröur Ólafsson og Hallur Ingólfsson. (FÁ). 18.00 Á bakvakt. Umsjón: Eva Ingadóttir og Kristín Þor- geirsdóttir. (FÁ). 20.00 Vinsældalisti Útrásar. Umsjón: Birgir Birgisson og Arnar Erlingsson. (FÁ). 22.00 Afgangar. Umsjón: Trausti Kristjánsson og Ragnar Agnarsson. (FÁ). , FÁ — Fjölbrautaskólinn við Ármúla. KV — Kvennaskólinn í Reykjavík. MITSUBISHI (S&IlT COLT er skutbill meö framdrif, faanlegur ýmist þrennra dyra eö fimm dyra. COLT er sérlega lipur í akstri, afar sparneytinn og hagkvæmur í rekstri. COLT er mjög notadrjúgur vegna þess aö hægt er aö leggja aftursætiö niöur og auka þannig farangursrýmiö stórlega. Verð frá kr. 347.000. HEKLAHF Laugavegi 170-172 Simi 695500 o V r*) / v_y I /
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.