Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987
4
Gagnrýni hermálanefndar:
Slæleg framganga Reagans
vegna Reykjavíkurfundarins
samlega mynd af niðurstöðum
hans, sýnir að ruglandi og upplausn
settu svip á störfm í Hvíta húsinu."
í skýrslunni er lögð áhersla á
það, að Caspar Weinberger, vamar-
málaráðherra, hafí ekki verið í
fylgdarliði forsetans til Reykjavík-
ur. Aspin segir, að með forsetanum
hafí verið 67 sérfræðingar frá ut-
anríkisráðuneytinu en aðeins tveir
frá vamarmálaráðuneytinu.
Þá segir í skýrslunni, að samn-
ingamenn Bandaríkjanna hafí
samið við Sovétmenn um brottflutn-
ing allra meðaldrægra eldflauga frá
Evrópu, þótt þeim væri ljóst, að
bandamenn Bandaríkjanna innan
NATO myndu ekki fallast á slíkan
samning. Þá telur neftidin, að tillög-
ur Bandaríkjamanna um útrýmingu
á öllum langdrægum kjamorkueld-
flaugum auk brottflutnings Evrópu-
eldfíauganna myndu hafa alvarleg-
ar afleiðingar fyrir vamarstefnu
NATO og draga úr fælingarmætti
í þágu vama í Evrópu.
Telur nefndin, að ijórum mánuð-
um eftir fundinn ríki enn „furðuleg
óvissa um það, hvað raunverulega
gerðist þar“. Menn séu alls ekki á
einu máli um, hvað var til umræðu
meðal leiðtoganna og hvað það var,
sem þeir höfðu nærri samþykkt.
„Þegar litið er til baka, er unnt að
færa rök fyrir því, að Reagan-
stjómin hafí verið illa búin undir
samningaviðræðumar og það hefði
þess vegna komið sér illa fyrir hana,
ef niðurstaða hefði náðst,“ segir í
skýrslunni og ennfremur: „Embætt-
ismenn greindi beinlínis á um það,
hver hefði orðið niðurstaðan í jafn
mikilvægum atriðum og því, hvort
þeir hefðu samþykkt að útrýma á
10 árum — langdrægum kjamorku-
eldflaugum eða öllum kjarnorku-
vopnum — og hvort þeir hefðu átt
von á því, að allt sigldi í strand
vegna geimvamaáætlunarinnar,
eða þeirri lokaákvörðun Gorbachevs
að tengja öll umræðuatriðin sam-
an.“
Leiðrétting
TVÖ orð misrituðust í bréfí Guðríð-
ar Magnúsdóttur í Velvakanda á
sunnudag og breyttu merkingu við-
komandi setningar. Lok bréfsins
átti að vera þannig:
„En var þá ekki á þeim tíma til
fólk sem heldur en gjarnan hefði
viljað baða sig í lýsingum á ein-
hveijum ólánsmanneskjum. Vissu-
lega. Munurinn er bara sá að þá
veittu áhrifamestu fjölmiðlunum
forystu þeir menn sem ekki vildu
verða valdir að fjölgun í þeim hópi,
menn sem gerðu sér ljósa þá gífur-
legu ábyrgð sem því fylgir að vera
skoðanamyndandi í siðferðilega við-
kvæmum málum og notuðu ekki
samvisku sjna sem skiptimynt fyrir
aukinn áskrifendafjölda.
Burt með ábyrgðarmenn þeirra
fjölmiðla, sem reyna að draga okk-
ur niður á stig sora stórþjóðanna.
Höldum vöku okkar og horfum ekki
aðgerðarlaus á það sem við vitum
að leiðir til hnignunar á siðgæðisvit-
und þjóðarinnar.
Það hafa verið stofnuð samtök
af minna tilefni en því að veita fjöl-
miðlum nauðsynlegt aðhald með
mætti skipulagðra fjöldaupp-
sagna."
Washington, Reuter, AP.
FULLTRÚUM Bandaríkjahers
var meinaður aðgangur að leið-
togafundinum í Reykjavík í
orðsins fyllstu merkingu. Banda-
ríska viðræðunefndin vissi, að
málatilbúnaður hennar á fundin-
um nyti ekki stuðnings á vett-
vangi Atlantshafsbandalagsins
(NATO). Innan bandarísku sendi-
nefndarinnar var hart deilt um
þær víðtæku afvopnunartillögur,
sem ræddar voru á fundinum.
Þetta eru meðal annars niður-
stöður skýrslu hermálanefndar
fulltrúadeildar Bandaríkjaþings
um fund þeirra Ronalds Reagan
og Mikhails Gorbachev í
Reykjavík í október síðastliðn-
um, sem birt var á sunnudag.
Fulltrúar beggja flokka, demókrata
og repúblíkana, eiga sæti í nefnd-
inni, en andstæðingar forsetans,
demókratar, eru þar í meirihluta. I
jrfírlýsingu, sem fylgir skýrslunni,
segir formaður nefndarinnar demó-
kratinn Les Aspin meðal annars:
„Yfirlit yfír allan gang málsins frá
þvf að boði Sovétmanna um skyndi-
leiðtogafund var tekið og þar til
tekið var til við að draga upp vin-
AFMÆUSfyÁMSKE!© HEFST 23 FE8RÚAR
1. KERFI
LÍKAMSRÆKT OG MEGRUN
Fyrir konur á öllum aldri. Flokkar sem hæfa öllum
2. KERFI
FRAMHALDSFLOKKAR
Þyngri tímar, aðeins fyrir vanar.
3. KERFI
RÓLEGIR TÍMAR
Fyrir eldri konur, eða þær, sem þurfa að fara varlega.
4. KERFI
MEGR UNARFLOKKAR
Fjórum sinnum í viku fy'rir þær sem þurfa og vilja missa
aukakílóin núna.
5. KERFI
AEROBIC J.S.B.
Okkar útfærsla af þrektímum með góðum teygjum. Hörku
púl- og svitatímar fyrir ungar og. hressar.
ALDAHiiv—- ^
20 ÁM
3. apríl Hótel Sögu
Nú verða sýnd í þetta eina sinn stutt atriði úr öllum helstu
stórsýningum JSB.
Ath.: þetta verður ekki endurtekið.
Dagskrá:
Fordrykkur við Ijúfa tónlist.
Matarveisla.
Stuttávörp og viðurkenningar.
Dans- og söngvasýning aldarinnar.
Dansaðtilkl. 3.00.
.A
Simant»«'en
t&frt
Innritun alla daga í
símum 79988, Hraun-
berg, og 83730,
Suðurver.
Afmælisgjöfin:
20% afmælisafsláttarkort verða
afhent viðskiptavinum skólans á
afmælisnámskeiðinu og gilda þau
fré 1. aprfl - 1. sept. ’87.
LÍKAMSRÆKT
Jassballettskóla
Báru
Höfðar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!