Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987 Ifcveðjuorð: Tómas G. Hallgríms- son frá Siglufirði Fæddur 25. júlí 1911 Dáinn 19. janúar 1987 Fullorðnum, brottfluttum Sigl- fírðingi þarf ekki að bregða, þó heyrist í frétt að borinn og barn- fæddur íbúi þar sé látinn. Ég lagði við hlust er ég heyrði þá fregn, að vinur minn og æskufé- lagi Tómas G. Hallgrímsson hefði látist í Borgarsjúkrahúsinu í Reykjavík 19. janúar sl. Ég hafði _að vísu haft spurn af því, að hann hefði um skeið ekki gengið heill til skógar. Þó kom mér það á óvart, hve skammt var að skapadægri — en það var nú það. Ég var einum æskuvini fátækari — einum af mörgum frá Siglufirði — Siglufírði þeirra ára, þegar síld og tunnuvinna sameinuðu unglinga, fjölskyldur og síldarkaupmenn. Hinn mikli athafnamaður, Norð- maðurinn Ole O. Tynes, hafði byggt sér og konu sinni, frú Indíönu, stórt heimili við Aðalgötuna á Siglufirði skömmu eftir aldamótin og uppi á kvisti í þessu húsi fæddist fyrsta barn þeirra hjóna, nýskipaðs hér- aðslæknis Guðmundar T. Hall- Tgrímssonar og frú Camillu Terese, Thors Jensen, 25. júlí 1911 Tómas G. Hallgrímsson, sem þessar línur eru helgaðar að ævilokum hans. A meðan nýi héraðslæknirinn og trúlega ljósmóðirin í Siglufirði, Jak- obína Stær, voru að aðstoða frú Camillu við að koma frumburði sínum í siglfírskt umhverfi var byggingameistarinn í bænum, Kjartan Jónsson, að reisa stórhýsi fyrir þau hjón við Gránugötu, sem íðar varð framtíðarheimili læknis- ' i jónanna og barna þeirra upp frá i »ví. Auk Tómasar eignuðust þau hér- iðslæknishjónin 5 börn, en þau eru: Vlargrét Þorbjörg, gift Pétri John- .son, hagfræðingi. Þau eru búsett í Bandaríkjunum. Thor, kvæntur Ól- afíu G. Jónsdóttur, búsett í Reykjavík. Ásta Júlía, gift Jóni Stefánssyni, framkv.stj., búsett í Reykjavík. Eugenía, gift Samuel Bergin, fyrrv. major í Bandaríkja- her, þau eru búsett í Bandaríkjun- um, og Ólafur Kjartan Ríkharð Haukur, kvæntur Þórunni Guð- mundsdóttur, en hann andaðist 21. maí 1968. Sérstakur efnismaður og vinur vina. Við vorum um tíma -jjjnnufélagar. í þessum systkinahópi og með foreldrum sínum, Guðmundi T. Hallgrímssyni lækni og frú Camillu Hallgrímsson, ólst Tómas upp í hinu reisulega húsi við Gránugötu beint norður af svonefndum Kveldúlfs- bryggjum. Héraðslæknisfjölskyldan er mér enn í dag hugstæð. Hún lagði horn- stein að mörgu menningar- og framfaramáli á æskudögum Siglu- fjarðarkaupstaðar. En í dag er hugurinn staldrar við, er Tómas G. Hallgrímsson mér efstur í huga og er það ekki mót von. Hann var sá eini þeirra systkina, sem ekki yfírgaf Siglufjörð. Hann fæddist þar, ólst þar upp og starfaði þar til hinsta dags. Tómas G. Hallgrímssön var ekki langskólagenginn. Auk venjulegrar fræðslu á Siglufirði var hann við nám hjá séra Sveinbimi Högnasyni í Laufási við Eyjafjörð og á Breiða- bólstað í Rangárvallasýslu. En hann notaði gáfur sínar vel. Hann stund- aði verslunar- og skrifstofustörf í Reykjavík um skeið og einnig á Siglufírði. Lengst af var hann hjá síldarútvegsnefnd eða í 22 ár, þar til skrifstofa nefndarinnar var lögð niður og flutt til Reykjavíkur. Eftir það starfaði Tómas, sem fulltrúi verðlagsstjóra á Siglufirði, þar til hann lét af störfum aldurs vegna. Það var ekki nema 5 ára aldurs- munur á okkur Tómasi og áttum við því samleið á uppvaxtarárum okkar. Hann var drengur góður, fjölhæfur og félagslyndur. Hann vann íþróttahreyfingunni í Siglu- fírði mikið gagn. Var einn af hvatamiinnum að stofnun Knatt- spyrnufélags Siglufjarðar KS, og formaður þess lengi, og það mun vera honum einna mest að þakka að KS varð meistaralið í knatt- spyrnu árið 1964. Tómas var mikill áhrifamaður í félagi verslunar- og skrifstofufólks á Siglufirði og for- maður þess í 15 ár. Hann átti drjúgan þátt í stofnun Landssam- bands ísl. verslunarmanna, sem stofnað var í júní 1957, og var þar fulltrúi í mörg ár. Eins og Tómas G. Hallgrímsson átti kyn til var hann ötull sjálfstæð- ismaður og starfaði mikið fyrir þann flokk, en öll þau störf á því sviði vann hann með þeirri drenglund er honum var meðfædd. Sjaldan voru svo dansleikir haldnir að Tómas léki ekki fyrir dansinum. Hann var að mestu sjálf- menntaður tónlistarmaður og lék á píanó, stundum einn, en oft með félögum sínum með önnur hljóðfæri er höfðu hinn rétta tón í blóðinu eins og hann. Slíkur „músikant" sem Tómas var starfaði að sjálfsögðu með hin- um þekkta karlakór Vísi og setti svip sinn á störf kórsins ásamt fleir- um, þó það væri ekki lengi. „Hver er konan sem stóð á bak við þennan mann?“ er gömul spurn- Fæddur2.júlí 1904 Dáinn 27. janúar 1987 í dag, 6. febrúar, er vinur minn, Þorlákur Bernharðsson, borinn til grafar. Mig langar að minnast Láka frænda með því að hripa niður á blað nokkuð af hugrenningum mínum. Hann fæddist í Valþjófsdal 2. júlí 1904 og kvaddi þetta líf 27. janúar 1987, árla dags, og var það alveg eftir hans lífsmunstri að taka daginn snemma. Ég kynntist Láka tíu ára gamall er hann var að heyja hjá föður mínum, fyrir nokkrum ám er hann fóðraði fyrir hann. Á ungl- ingsárum mínum átti ég athvarf á heimili Láka er ég kom til Flateyr- ar, hvort heldur var til lengri eða skemmri dvalar, og eru minning- arnar frá þeim tíma Ijós á vegi mínum. Sumarið 1979 komu hann og Þóra til okkar í Hraun, og var meiningin að stoppa dagstund, en þau urðu hjá okkur í mánuð. Ef litið er til baka til þess sumars, þá er ég ekki viss um hvor okkar ætti ing. Því er fljótsvarað. Á gamlárs- dag 1955 gengu þau í hjónaband Björk Jónsdóttir og Tómas G. Hallgrímsson. Þau stofnuðu heimili sitt á Siglufirði. Foreldrar Bjarkar voru heiðurshjónin, Jón Jóhanns- son, skipstjóri, og kona hans, María Hjálmarsdóttir. Með þessu hjónabandi stigu þau bæði mikið gæfuspor, því þau lifðu saman í ást og einlægni til hinstu stundar Tómasar. Um hjónabandið segir Jesús: „Það, sem Guð hefír tengt saman.“ Já, Guð tengdi þau vissulega saman og það var gaman að fylgjast með hamingju þeirra, ástúð lýsti af þeim báðum. Þegar Tómas fann að ævikvöld sitt nálgaðist og sól lífs síns var að hníga til viðar sneri hann starfs- kröftum sínum að því að rita niðjatal forfeðra sinna, Thors Jen- sen og hinnar íslensku konu hans, Margrétar Þorbjargar, en hinn 3. desember 1983 hefði hinn merki maður orðið 120 ára. Tómas var elsta barnabarn þeirra hjóna. Tómas þurfti að ganga í gegnum mikinn reynsluskóla síðustu æviár- in, þegar heilsan bilaði og sjúk- dómsstríðið tók við: í helgri bók að þakka fyrir þær samverustundir. Þau urðu fleiri sumrin sem þau komu til okkar og síðast sumarið 1985. Það var gaman að hafa Láka nálægt sér. Athafnaþráin sem hon- um var í blóð borin kom svo skemmtilega fram er hann bar sam- an þær breytingar í búskaparhátt- um sem orðið höfðu frá þeim tíma er hann var stjálfur bóndi. Ársgamall fluttist Láki með fjöl- skyldu sinni í Hraun. Þar ólst hann upp til fullorðinsára. Þar fann hann lífsförunaut sinn, Þóru Guðmunds- dóttur Ijósmóður frá Brekku. Láki hóf búskap hér í Hrauni og var 6. bóndinn af sama ættlegg er hóf búskap þar. Það var gaman að hlusta á hann rifja ýmislegt upp frá sínum yngri árum og þá áttaði ég mig á því að það er ekki tilviljun ein hve margir einstaklingar þeir eru af þessum meiði, sem hafa orð- ið miklir athafnamenn í íslensku þjóðlífi. Láki eignaðist góðan lífsföru- naut, eignaðist góð og marinvænleg börn. Hann var sáttur við Guð og stendur skrifað: „Gull prófast í eldi.“ Tómas tók mótlæti sínu með mikilli reisn, fól hag sinn Drottni, þakkaði hvem dag, sem honum var gefínn, bjó sig undir dauða sinn, svo vel sem hann gat. Og þama stóð kona hans, Björk Jónsdóttir, við hlið hans og hjálpaði. Veitti honum þá blessun, sem elskandi kona fær veitt. Séra Ragnar Fjalar Lámsson flutti minningarorð um Tómas G. Hallgrímsson 28. janúar 1987 í Fossvogskapellu og lauk máli sínu með þessum orðum: „Fallinn er einn úr flokki vorum góður - gætinn og göfuglyndur. Þótt skyggi sorg á sætið auða, Ijós er þar yfír, sem látinn hvilir." Ég bið hinum látna Tómasi G. Hallgrímssyni Guðs blessunar. Sendi eiginkonu hans, systkinum og ættingjum samúðarkveðju. „Vinir mínir deyja ekki, þeir hverfa bara í bili.“ Björn Dúason menn. Þau vistaskipti, sem hafa orðið, vom honum eðlileg og sjálf- sögð, það kom oft fram í umræðu við hann. Þóra mín, við vottum þér og börnum þínum og fjölskyldum þeirra dýpstu samúð við fráfall eig- inmanns, föður og afa. Minningin um Láka frænda mun lifa hér í Hrauni svo lengi sem við verðum hér. Guðmundur Hagalínsson, Hrauni, Ingjaldssandi. Kveðjuorð: Þorlákur Bernharðs- son frá Hrauni raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Landsmálafélagið Vörður Straumhvörf í íslenskum landbúnaði Landsmálafélagiö Vöröur efnir til ráðstefnu um landbúnaöarmál föstudaginn 20. febrúar nk. Ráðstefnan verður háldin i sjálfstæðis- húsinu Valhöll og hefst kl. 16.00 og lýkur kl. 20.00. Á ráðstefnunni verða eftirfarandi framsöguerindi flutt: 1. Þróun i landbúnaði seinustu órin. Doktor Sigurgeir Þorgeirsson. 2. Stjórnkerfi landbúnaðarins. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson lögfræðingur. 3. Afleiðingar afurðasölu og verðlagsskipulagsins. Steingrímur Ari Arason hagfræðingur. 4. Staða bændastéttarinnar. Jóhannes Torfason bóndi. 5. Áhríf kvótakerfisins og núverandi framleiðslustýringar. Guðmund- ur Stefánsson landbúnaðarhagfræðingur. 6. Hvernig er hægt að leysa núverandi vanda? Ketill A. rlannos- son landbúnaðarhagfræðingur. 7. Stefnumörkun i landbúnaði. Jón Magnússon hdl. Að loknum framsöguerindum verða umræður og fyrirspurnir. Ráð- stefnustjóri verður Sigurbjörn Magnússon lögfræðingur. ( III IVIDAIHIR F U S Allir á skíði Skólanefnd Heimdallar mun standa fyrir skíöaferö um næstu helgi (föstudag til laugardags). Farið verður frá Valhöll föstudaginn 20. febrúar kl. 19.00 og haldiö í hinn mjög svo notalega Valsskála í Hamragili. Margt verður til gamans gert. Að sjálfsögðu verður farið á skíði og mun formaöur skólanefndar leiðbeina byrjendum. Á föstu- dagskvöldinu verður kvöldvaka með misvönduðum skemmtiatriöum, söng og gítarleik. Haldið veröur heim um kl. 17.00 á laugardaginn. Heimdellingar eru hvattir til að mæta eldhressir og renna sér nokkr- ar bunur eða njóta bara samveru og vetrarrómantikur til fjalla. Verð er aðeins 600 krónur. Skráning og nánari upplýsingar í Valhöll í síma 82900 fyrir föstudag. Skiðanefnd Heimdallar. Sauðárkrókur Aðalfundur Sjáifstæðiskvennafélags Sauðárkróks verður haldinn í Sæborg sunnudaginn 22. febrúar 1987 kl. 15.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á landsfund. | 3. Önnur mál. Kaffiveitingar. Mætum vel og ræöum málin á kosningaári. Hafnfirðingar Stefnir FUS heldur félagsfund i Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu fimmtudaginn 19. febrúar kl. 18.00. Efni: Kosning landsfundarfulltrúa. Félagsmenn hvattir til að mæta. Stjórnin. Seltirningar Aðalf undur f ulltrúaráðsins Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi heldur aðalfund þriðjudaginn 24. febrúar nk. i húsnæði félagsins að Austurströnd 3, kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kostning fulltrúa á landsfund. 3. Önnur mál. Funda- og ráðstefnunefnd Varðar. Stjórnin. Stjón fulltrúaráðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.