Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987 3 Ekki nóg til að snúa tapi í hagnað - segir Ragnar S. Halldórsson for- stjóri ISAL um hækkun á verði á áli „AUÐVITAÐ hefur það góð áhrif hjá okkur þegar álverðið hækkar, við lifum á þessu. Ál- verðið hækkaði þarna um 10% í dollurum en þá ber þess að geta að dollarinn hefur lækkað um 20% frá því fyrr i vetur og er þetta þvi engin bylting," sagði Ragnar S. Halldórsson, forstjóri íslenska álfélagsins hf. i Straumsvik, þegar hann var spurður um áhrif hækkunar á heimsmarkaðsverði á áli i síðustu viku á hag álversins. Ragnar sagði að þó þessi breyt- ing væri skref í rétta átt nægði hún ekki til að snúa tapi i hagnað hjá álverinu. En tapið minnkaði og ef þessi þróun héldi áfram kæmi að því að fyrirtækið hætti að tapa á framleiðslunni. Hann sagði að of snemmt væri að draga víðtækar ályktanir af breytingu álverðs í síðustu viku, sveiflur væru alltaf á þessum markaði. Menn vonuðu þó að áfram þokaðist í rétta átt. Al- birgðir í Bandaríkjunum væru orðnar mjög litlar og í heiminum almennt hefðu álbirgðir minnkað um 10% á síðasta ári. Hefðu þær ekki verið minni síðan 1980. Orkunotkun til hit- unar vex um fjórð- ung til aldamóta ORKUNOTKUN til hitunar vex um fjórðung til aldamóta, sam- kvæmt nýrri húshitunarspá Orkuspárnefndar sem nær til ársins 2015. Hlutur jarðvarma í notkuninni er nú um 84%, hlutur raforku 12% og olíu 4%. Spáð er að hlutur jarðvarma aukist aðeins eða í 85% og að olíunotkun til húshitunar hverfi að mestu. Hlutur raforku verður þá í lok spátímabilsins 15% og gæti num- ið rúmum fjórðungi almennrar raforkunotkunar árið 2015. Samkvæmt spánni vex orkunotk- un til húshitunar að meðaltali um 2,1% á ári á tímabilinu 1985 til 1990, 1,3% á ári tímabilið 1990 til 2000 og frá 2000 til 2015 er með- al-aukningin 0,8% á ári. Frá 1985 fram til aldamóta vex notkunin um fjórðung en til loka spátímabilsins um 41%. Þessi spá er nokkru lægri en spá Orkuspámefndar frá 1980 sem var ?rsta húshitunarspá nefndarinnar. nýju spánni er miðað við að fólks- fjölgun minnki línulega úr 1,0% árið 1986 niður í 0,6% árið 2000 - verði óbreytt eftir það til 2015. uert er ráð fyrir að eftir 1995 verði sama hlutfallslega Qölgunin í öllum landshlutum. Fyrir árið 1995 er miðað við að fjölgunin innan lands- hlutanna breytist línulega frá meðaltali síðustu fímm ára. Ekki er því gert ráð fyrir að um verulega flutninga á fólki_ milli landshluta verði að ræða. Á svæðum innan landshlutanna fjölgar fjólki mis- hratt og er almennt gert ráð fyrir minni aukningu í dreifbýli en þétt- býli. KRON reynir að selja eignir KAUPFÉLAG Reykjavíkur og nágrennis (KRON) reynir nú að selja húseignina við Laugaveg 91, þar sem verslunin Domus er til húsa til sölu, og Stórmarkað- inn í Kópavogi. Þröstur Ólafsson formaður stjórnar KRON sagði í samtali við Morgunblaðið að það hefði alltaf legið fyrir, eftir að Kaupstaður var keyptur, að KRON yrði að selja aðrar eignir. „Við gerðum alltaf ráð fyrir þeg- ar Kaupstaður var keyptur, að við myndum þurfa að selja aðrar eign- ir, annað hvort Stórmarkaðinn, Dómus eða báðar eignimar," sagði Þröstur. „Við þurfum að brúa ákveðið bil í rekstrinum á annan hátt, meðan það hefur ekki gerst, annað hvort með því að taka fé úr rekstrinum eða með lánum.“ Þröstur var spurður hvort við- skipti hefðu minnkað í verslun KRON í Mjóddinni, sem heitir Kaupstaður, eftir að KRON keypti Víði í Mjóddinni: „Nei, viðskiptin hafa ekki dottið niður, miðað við þær upplýsingar sem við fengum um veltu verslunarinnar, þegar við keyptum hana,“ sagði Þröstur og bætti við að Kaupstaður gengi eins og stjómendur KRON hefðu búist við að hann myndi ganga. Þröstur sagði að afkoma Mikla- garðs á liðnu ári væri þolanleg, eða „réttu megin við strikið," eins og hann orðaði það. Þessari leið verður að loka - segir Krislján Ragnarsson um óhefta fjölgun smábáta „SÓKN allra fiskiskipa nema smábáta er takmörkuð og menn eru sammála um, að það sé fjarri lagi að skilja eftir opna leið til þess að fjölga bátum undir 10 tonnum,“ sagði Kristján Ragn- arsson, formaður LÍÚ, i samtali við Morgunblaðið. „Það er afturför hvað varðar öryggi sjómanna og brýtur gegn markmið- inu að stækka ekki flotann. Það verður að taka á þessu með sama hætti og gagnvart fjölgum stæm báta og skipa. Þessari leið verður að loka, eigi aðrir að geta sætt sig við takmarkanir, sem menn telja flestir skynsamlegar. Menn una því ekki að svona verði áfram, það er á öllum sviðum afturför," sagði Kristján. EiN VfDÁTTUMESTA STÓRSÝNING HÉRLENDIS UM ÁRABIL, ÞAR SEM TÓNLIST, TJÚTT OC TfDARANDI SJÖTTA ÁRA- TUGARINS FÁ NÚ STEINRUNNIN HJÖRTU TIL AÐ SLÁ HRAÐAR. SPÚTNIKKAR EINS OG BJÖRGVIN HALLDÖRS, EIRfKUR HAUKS, EYJÓLFUR KRISTJÁNS OG SIGRÍDUR BEINTEINS SJÁ UM ÖNGINN. ROKKHUÓMSVEIT GUNNARS ÞÓRÐARSONAR SEM FÆR HVERT BEINT TIL AÐ HRISTAST MEÐ OG 17 FÓTFRÁIR FJÚLLISTAMENN OG DANSARAR SEM SÝNA ÓTRÚLEGA TILBURÐI, SAMAN SKAPAR PETTA HARÐSNÚNA LIÐ STÓR- SÝNINGU SEM SEINT MUN GLEYMAST. * EYJÓLFUFI grínland gunnar björn HANDRIT OG HUGSUN: GRÍNLAND - LEIKMYND: ÞÓR ÁRNASON OG TUMI MAGNÚSSON - BÚNINGA: ANNA ÁSGEIRSDÓTTIR OG RAGNHEIÐUR ÓLAFSDÓTTIR — FÖÐRUN: ELÍN SVEINSDÓTTIR - LÝSING: MAGNÚS SIGURÐSSON - HLJÓSTJÓRN: SIGRURÐUR BJÓLA - ÚTUT: BJÖRN BJÖRNSSON - GUNNAR ÞÓRÐARSON STJÓRNAR TÖNLISTARFLUTNINGI OG LEIKSTJÖRI SÝNINGARINNAR ER EGILL EÐVARÐSSON. BPO\DW> MIÐASALA 0G BORÐAPANTANIR DAGLEGA i SÍMA 77500 - HÚSIÐ 0PNAR FÖSTUD. KL. 20.00 LAUGARDAG KL. 19.00 - MIÐAVERÐ KR. 2.300 INNIFALIÐ SÝNINGIN 0G KVÖLDVERÐUR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.