Morgunblaðið - 17.02.1987, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRUAR 1987
19
íslensku þjóðlífí og sérkennum þess
með kostum og göllum.
Til frumstæðra þjóða þekktu
Frakkar vel á þessum tímum. Það
hefur því vakið bæði undrun þeirra
og eftirtekt að hitta hér fyrir fólk
prýðilega læst og skrifandi, og þar
að auki tiltölulega vel upplýst um
það sem var að gerast í heiminum,
í allri eymdinni sem annars blasti
við á landi hér.
Finnbogi Guðmundsson ritar
stuttan en skilmerkilegan formála
fyrir bókinni Chants Islandais og
sýnir þar fram á tengsl milli nátt-
úrulýsinga Gaimards og kvæðis
þess sem Jónas orti honum til heið-
urs í Kaupmannahöfn. Viðhafnar-
stfll Frakka naut sín vel í ljóðlist
þessara tíma.
Skylt er að geta að útgáfa þessi
er mjög glæsilega úr garði gerð.
Ljósprentun kvæða þeirra, sem
prentuð voru í Kaupmannahöfn,
minnir á að bókagerðarmenn geta
enn lært af dönskum 19. aldar
prenturum. Aferð og skýrleiki let-
urs gerist varla betri nú.
Hrossaskip
kemur í apríl
BÚVÖRUDEILD SÍS og Félag
hrossabænda hafa gert sam-
komulag um áframhaldandi
samvinnu í markaðsmálum
hrossa og hrossaafurða. Sigurð-
ur Ragnarsson, sem annast
hefur um þessi mál í búvöru-
deildinni, mun starfa þar áfram.
Ákveðið hefur verið að halda
áfram að flytja reiðhross og slátur-
hross út með sérstökum gripaflutn-
ingaskipum. Næsta skip kemur í
apríl og tekur það um 300 hross.
Magnús Friðgeirsson, fram-
kvæmdastjóri búvörudeildarinnar,
sagði að reynt yrði að taka sem
mest af reiðhestum til Evrópu en
síðan fyllt upp með sláturhrossum.
Erlend-
ur gesta-
kennari í
líkamsrækt
LÍKAMSRÆKTARKONAN
Lisser Frost-Larsen kom hingað
til lands um helgina og mun
dvelja sem gestakennari í
Líkamsræktarstöðinni Borgar-
túni 29 næstu tvær vikurnar.
Lisser hefur tvívegis komið
hingað áður og þá sem kennari
og dómari í líkamsræktarmótum.
Hún hefur unnið til margra verð-
launa í líkamsrækt. Hér mun hún
leggja áherslu á að kenna konum
og einnig körlum sem hafa áhuga
á að gera eitthvað fyrir líkama
sinn án þess þó að vera með
keppni í huga. Mun hún gefa ráð-
leggingar um matarræði og
æfingar sem henta hverjum og
einum.
Félag áhugamanna
um réttarsögu:
Fundur í
Lögbergi
FELAG áhugamanna um réttar-
sögu efnir til fundar þriðjudag-
inn 17. febrúar í stofu 103 í
Lögbergi, húsi lagadeildar Há-
skóla íslands, kl. 20.30.
Á fundinum mun Sigríður Th.
Erlendsdóttir sagnfræðingur flytja
erindi er nefnist „Breytingar á rétt-
arstöðu íslenskra kvenna á 20. öld“.
Fundurinn hefst eins og áður
segir kl. 20.30 og er öllum opinn.
Auglýsing um áburðarverð 1987
Efnainnihald Verð í Verð í Verð í Verð í Verð í Verð í Verð í Verð í
Tegund N-P205-K20-Ca-S febrúar mars apríl ma£ Júní Júlí ágúst sept.
Kjarni 33- 0- 0- 2- 0 10220 10360 10500 10640 10780 10920 11060 11200
Magni 1 26- 0- 0- 9- 0 8440 8560 8680 8800 8920 9040 9160 9260
Magni 2 20- 0- 0-15- 0 6940 7020 7120 7220 7320 7420 7500 7600
Móði 1 26-14- 0- 2- 0 12140 12300 12480 12640 12800 12980 13140 13320
Móði 2 23-23- 0- 1- 0 13060 13240 13420 13600 13780 13960 14140 14320
Græðir 1 14-18-18- 0- 6 13140 13320 13500 13680 13860 14040 14220 14400
Græðir 1A 12-19-19- 0- 6 12840 13020 13200 13380 13560 13740 13920 14100
Græðir 2 23-11-11- 0- 0 11760 11920 12080 12240 12400 12560 12720 12900
Græðir 3 20-14-14- 0- 0 11800 11980 12140 12300 12460 12620 12800 12960
Græðir 4 23-14- 9- 0- 0 12160 12320 12500 12660 12820 13000 13160 13340
Græðir 4A 23-14- 9- 0- 2 12760 12940 13120 13300 13480 13660 13840 14000
Græðir 5 17-17-17- 0- 0 11860 12040 12200 12360 12520 12680 12860 13020
Græðir 6 20-10-10- 4- 1 11020 11180 11320 11480 11640 11780 11940 12100
Graíðir 7 20-12- 8- 4- 1 11220 11360 11520 11680 11840 12000 12140 12300
Græðir 8 18- 9-14- 4- 1 10680 10820 10980 11120 11260 11420 11560 11720
Græðir 9 24- 9- 8-1,5-2 11980 12140 12320 12480 12640 12820 12980 13140
Þrífosfat 0-45- 0- 0- 0 9640 9780 9900 10040 10180 10300 10440 10580
Kalíum kls 0- 0-60- 0- 0 6960 7060 7160 7260 7360 7460 7560 7640
" brst 0- 0-50- 0- 0 11220 11360 11520 11680 11840 12000 12140 12300
Ofangreipt verð er heildsöluverð miðað við staðgreiðslu í hverjum mánuði. Áburðar-
verksmiðjan selur einungis til búnaðarfélaga, samvinnufélaga, verslunarfélaga, hrepps-
og bæjarfélaga og annarra opinberra aðila. Áburðarverksmiðjan afhendir áburð þann sem
hún selur til framangreindra aðila á sama verði, miðað við afhendingu úr vörugeymslu í
Gufunesi eða vörugeymslu áburðarflytjanda á eftirgreindum höfnum:
ólafsvík
Grundarfjörður
Stykkishólmur
Patreksfjörður
Bíldudalur
Þingeyri
Flateyri
Suðureyri
Boiungarvík
ísafjörður
Norðurfjörður
Hólmavík
Hvammstangi
Blönduós
Sauðárkrókur
Hofsós
ólafsfjörður
Siglufjörður
Dalvík
Akureyri
Grenivík
Svalbarðseyri
Húsavík
Þórshöfn
Kópasker
Vopnafjörður
Borgarfjörður eystri
Seyðisfjörður
Mjóifjörður
Neskaupsstaður
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Breiðdalsvík
Djúpivogur
Hornafjörður
Vestmannaeyjar
óski kaupandi áburðar, sem búsettur er utan svæðis sem takmarkast af Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu, Kjósarsýslu, Gullbringusýslu, Árnessýslu, Rangárvallasýslu, að fá áburð
afhentan í Gufunesi og annast flutning áburðarins sjálfur skal hann fá endurgreitt
sem nemur flutningskostnaði Áburðarverksmiðjunnar á næstu höfn ásamt uppskipunar-
vöru- og sjótryggingargjaldi.
Áburðarverksmiðjan mun ekki annast flutninga til Dalasýslu og Austur-Barðastrandasýslu
eins og verið hefur. Ennfremur mun Áburðarverksmiðjan ekki annast flutninga til
Vestur-Skaftafellssýslu. Hinsvegar mun Áburðarverksmiðjan greiða flutningsstyrk til
áburðarkaupenda í framangreindum sýslum og ákvarðast flutningsstyrkurinn hverju sinni
með hliðsjón af flutningskostnaði til næstu hafnar.
Greiðslukjör.
Árið 1987 eru greiðslukjör vegna áburðarviðskipta sem hér segir:
a) Staðgreiðsla á staðgreiðsluverði viðkomandi mánaðar.
b) Kaupandi greiðir áburðinn með tíu (10) jöfnum greiðslum, sem hefjast £
febrúar en lýkur í nóvember.
c) Kaupandi greiðir áburðinn með átta (8) jöfnum greiðslum, sem hefjast í mars
en lýkur í október.
d) Kaupandi greiðir 25% við afhendingu áburðar og þrjár (3) jafnar greiðslur í
júní, júlí og ágúst.
Gjalddagi er 25. hvers mánaðar.
Sá hluti áburðar sem afhentur er á lánskjörum skuldfærist á staðgreiðsluverði sem
í gildi er í afhendingarmánuðinum en frá og með fyrstá degi næsta mánaðar eftir
afhendingarmánuð reiknast vextir á höfuðstól skuldarinnar.
Gerður skal viðskiptasamningur um lánsviðskipti.
Vextir skulu á hverjum tíma vera þeir sömu og afurðalánavextir sem auglýstir eru
hjá Landsbanka Islands, sem eru í dag 16,5%. Vextir greiðast eftir á, á sömu
gjalddögum og afborganir.
Kaupandi skal leggja fram tryggingu fyrir þeim hluta viðskiptanna sem eru láns-
viðskipti. Tryggingar skulu vera í formi ávísunar á væntanleg rekstrar og/eða
afurðalán eða með öðrum þeim hætti sem Áburðarverksmiðjan metur fullnægjandi.
Gufunesi 13. febrúar 1987
ABURÐARVERKSMIÐJA RIKISINS