Morgunblaðið - 17.02.1987, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987
Kosið á írlandi í dag:
Útilokað að Haughey
hljóti þingmeirihluta
D>flinni, AP.
TALIÐ er útilokað að einn flokkur fái meirihluta í þingkosningunum
á írlandi í dag. Ólíklegt þykir að flokkur Garrets FitzGerald, forsæt-
isráðherra, sigri og er búizt við að annað hvort verði mynduð
samsteypustjórn eftir kosningar eða að minnihlutastjórn taki við.
Stjórnmálaskýrendur eru þegar farnir að tala um að hugsanlega
verði að kjósa aftur á þessu ári.
Skoðanakannanir, sem gerðar
voru um helgina, benda til að fylgi
stærsta stjómarandstöðuflokksi.’is,
Fianna Fáil, hafi minnkað síðustu
daga úr um 50% og sé nú um 38%.
Charles Haughey, flokksformaður,
hefur biðlað til kjósenda um að fá
hreinan meirihluta í þingi. Hefur
hann sagt að allt annað bjóði heim
„sömu ringulreiðinni" og verið hef-
ur í þinginu. Haughey sagði í bytjun
kosningabaráttunnar að heiður sinn
væri að veði og nú stefnir í að hon-
um verði ekki að ósk sinni.
Flokkur Garrets FitzGerald, for-
sætisráðherra, Fine Gael, nýtur
«. Þriðji kosturinn:
cAarm viðvörunarkerfi
- Varðstaða allan sólarhringinn
EFF EFF vidvörunarkerfid býdur
upp á fjölmarga möguleika, og getur
staðið vörð um nánast hvað sem er.
Kerfið byggist upp á stjórnstöð,
skynjurum og símboða sem hringir
skilaboð hvert sem þú óskar
milliliðalaust eða tengdur beintt.d. til
lögreglu, slökkviliðs eða vaktfyrir-
tækja. Þetta er þó bara einn
möguleikinn af fjölmörgum.
Kynntu þér kostina - og verðið.
T/EKNIf
Höfðabakka 9, 112 Reykjavík. S. 672122.
fylgis um 25% kjósenda, samkvæmt
könnunum, sem birtar voru um
helgina. Fine Gael hlaut 70 þing-
sælti af 166 í kosningunum 1982
og Fianna Fáil 75. Myndaði Fitz-
Gerald stjóm með Verkamanna-
flokknum, sem hlaut 16 sæti.
Ástæðan fyrir fylgistapði Haug-
hey síðustu daga er m.a. ósigur,
sem hann beið, að mati stjóm-
málaskýrenda, í kappræðu við
FitzGerald í sjónvarpi í síðustu viku.
Búizt er við sigri Fianna Fáil í kosn-
ingunum og að Haughey verði falin
stjómarmyndun. í því sambandi
yrði hann að snúa sér til hins ný-
stofnaða flokks, Framfarasinnaða
lýðræðisflokksins, og/eða Verka-
mannaflokksins.
Stjórnarmyndunarviðræður
gætu orðið erfiðar því Desmond
O’Malley, formaður Framfarasinn-
aða lýðræðisflokksins, hefur sett
það skiiyrði fyrir samsteypustjóm
með Fianna Fáil að Haughey verði
settur af sem formaður. Hafa þeir
löngum verið pólitískir féndur.
Verkamannaflokkurinn er og ólík-
legur samsteypuflokkur því stefna
hans og Fianna Fáil em talin of
ólík. Verkamannaflokkurinn hefur
t.d. sett á oddinn að opinber út-
gjöld verði stóraukin á tímum
mikillar kreppu í efnahagslífi lands-
ins.
Þegar aðeins er miðað við þá sem
tóku afstöðu í skoðanakönnunum,
sem birtar vom um helgina, fengi
Fianna Fáil 77 sæti, Fine Gael 62,
Reuter
Garret FitzGerald, forsætisráð-
herra, (tv) á tali við kjósanda í
stórverzlun í Castleknock, út-
hverfi Dyflinnar, á laugardag.
Þingkosningar eru á írlandi í dag
og er búizt við stjórnarskiptum
i kjölfarið.
Framfarasinnaði lýðræðisflokkur-
inn 12 og Verkamannaflokkurinn
7. Óháðir kjósendur fengju átta
þingsæti. Að þessu sinni getur af-
staða óákveðinna kjósenda, sem
vom um 15% aðspurðra, samkvæmt
könnununum, hins vegar haft mikil
áhrif á niðurstöðumar. írskir kjós-
endur eiga þess kost á að raða
frambjóðendum í forgangsröð og
hefur FitzGerald hvatt stuðnings-
menn sína til að setja frambjóðanda
Framfarasinnaða lýðræðisflokksins
í annað sæti. Talið er að með því
sé hann að opna möguleika á nýju
bandalagi eftir kosningar.
Svíþjóð:
Holmer sak-
aður um
að hafa
brotið lög
Stokkhólmi, frá Erik Liden, fréttaritara
Morgunblaðsins.
FARIÐ hefur verið fram á að
saksóknaraembættið í Svíðjóð
hefji rannsókn á því hvort Hans
Holmer, lögreglustjóri í Stokk-
hólmi, hafi gerst brotlegur við
lög þegar hann lét gera húsleit
hjá fjölda kúrda, sem grunur
féll á þegar Olof Palme, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, var myrtur.
Jo Anders Wigelius, umboðsmað-
ur dómsmálaráðuneytisins, segir að
gmnur leiki á að Holmer hafi brot-
ið af sér þegar hann lét gera húsleit
og setja kúrda í gæsluvarðhald við
ýmis tækifæri og krefst þess að
lögregla og saksóknari rannsaka
málið.
Sten Wickbom dómsmálaráð-
herra hefur einnig verið sakaður
um að láta stjórnarandstöðuna ekki
vita að ganga ætti lengra gegn
kúrdum en lög leyfa.
Fundist hafa skjalfestar sannanir
fyrir því að Holmer hafi sjálfur
gefíð út húsleitarheimildir, en slíkt
er aðeins á valdi saksóknara. Að
sögn Wigelius er ýmislegt athuga-
vert við aðra þætti málsins og ekki
útilokað að þar hafí einnig verið
brotin lög. Dögum saman hafi lög-
fræðingar ekki fengið að ræða við
skjólstæðinga sína og sagði Wigel-
ius að það væri lögbrot. Meðan á
yfirheyrslum stóð hafí verið gerð
húsleit án þess að sá yfirheyrði
vissi. Dómsmálaráðherra hefur ekki
viljað láta hafa neitt eftir sér um
þessi mál.
íran:
7.000 manns tekin af
lífi á árunum 1979 til 1985
- segir í skýrslu Mannréttindanefndar SÞ
Genf, AP.
Að minnsta kosti 7000 manns
voru tekin af Iífi í íran frá árinu
1979 til 1985, að því er segir í
nýrri skýrslu sem unnin var á
vegum Mannréttindanefndar
Sameinuðu þjóðanna. Þá stað-
festir skýrslan einnig ásakanir
um að pyntingar séu viðhafðar
í fangelsum landsins með sam-
þykki stjórnvalda.
Reynaldo Galindo Pohl frá E1
Salvador tók skýrsluna saman fyrir
Mannréttindanefnd Sameinuðu
þjóðanna en í henni sitja fulltrúar
43 ríkja. í skýrslunni segir að þús-
undir manna hafi verið teknir af
lífi á árunum 1979 til 1981 en nokk-
uð hafi dregið úr þeim á undanföm-
um árum. Segir að 500 manns hafi
verið tekin af lífi árið 1984, 470
árið eftir og að svo virðist sem tal-
an hafí enn lækkað á síðasta ári.
Skýrslan byggir á uppiýsingum
frá mannréttindasamtökunum
Amnesty Intemational og samtök-
um andstæðinga klerkastjómarinn-
ar í íran. Skýrslunni mun hafa verið
komið á framfæri við ráðamenn í
íran en þeir hafa ekki séð ástæðu
til að tjá sig um innihald hennar.
Þetta er þriðja skýrslan sem unn-
in er um ástand mannréttindamála
í íran og staðfestir hún að þau eru
fótum troðin. Stjómvöld hafa m.a.
skorið upp herör gegn læknum eft-
ir að samtök þeirra mótmæltu nýrri
löggjöf sem samþykkt var á síðasta
ári og tryggir stjóminni aukin ítök
í samtökum þeirra. Mun stjóm
þeirra hafa verið leyst upp og marg-
ir helstu talsmenn lækna verið
fangelsaðir og pyntaðir.
Samkvæmt stjómarskrá írans er
með öllu óheimilt að pynta menn
til sagna en í skýrslunni segir að
heimildir fyrir því að ákvæði þetta
sé þverbrotið séu óyggjandi. Það
eru einkum pólitískir andstæðingar
og ýmsir minnihlutahópar sem fá
að kenna á pyntingameisturum
klerkastjómarinnar. Þá eru sértrú-
arsöfnuðir ofsóttir og segir í
skýrslunni að 188 Baháíar hafí ver-
ið teknir af lífí frá árinu 1979 auk
þess ijölmargir þeirra hafi verið
pyntaðir í fangelsum.
Höfundur skýrslunnar hvetur til
þess að stofnuð verði sérstök nefnd
til að fylgjast með mannréttinda-
málum í íran og bætir við að beita
verði stjómvöld þar þrýstingi til að
heimila eftirlitsmönnum að ferðast
um landið og afla upplýsinga.
Vestur-þýski seðlabankinn:
Efnahagslíf lam-
aðist um áramót
Frankfurt, AP.
SEÐLABANKINN í Vestur-Þýskalandi segir að efnahagslíf í landinu
hafi staðnað skömmu fyrir siðustu áramót vegna þess að útflutning-
ur hafi minnkað við gengissig Bandaríkjadollara.
í mánaðarlegri skýrslu, sem
bankinn gaf út á fimmtudag, var
dregin upp dökk framtíðarsýn af
auknu atvinnuleysi, samdrætti í
framleiðslu og fjáríestingu fyrir-
tækja. Sagði að lífskjör Vestur-
Þjóðveija væm aftur á móti óbreytt
og einkaneysla mikil.
Hagfræðingar sögðu að Vestur-
Þjóðveijar þyrftu hvað sem öðru
liði að laga sig að breyttum tímum
í viðskiptum við útlönd. Á síðasta
ári hefði viðskiptajöfnuður verið
hagstæður um 112 milljarða marka
(2480 milljarða ísl.kr.) á síðasta ári
og árið 1985 hefði hann verið hag-
stæður um 73 milljarða marka (um
1620 milljarða ísl.kr.)
Skýrsla bankans sýndi að erfítt
yrði að laga sig að breytingunum
og þyrfti stjóm Helmuts Kohl kansl-
ara, sem var endurkjörin í kosning-
um 25. janúar, að glíma við
vandann.
Loðmulla í efnahagslífí hefur
vakið ugg hjá sérfræðingum við-
skiptaráðuneytisins í Bonn um að
spá stjómarinnar um 2,5 prósent
hagvöxt á þessu ári standist ekki.
Ymsir hagfræðingar hafa þegar
sagt að hagvöxtur verði ekki nema
tvö prósent eða undir því.
Helsta ástæðan fyrir þessari
stöðnun er sú að útflutningur
minnkaði lítillega bæði að gæðum
og í magni þegar dollarinn lækk-
aði. Undanfarin tvö ár hefur dollar-
inn lækkað um 40 prósent gagnvart
markinu og þar af um tíu prósent
síðan um miðjan desmeber.