Morgunblaðið - 17.02.1987, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987
Hörkukeppni lauk með sigri
Svíanna Bennet og Wirgren
Pálmi Kristmannsson og Guðmundur Pálsson komu mjög á óvart
í toppbaráttunni. Björn Theodórsson forseti BSÍ afhenti verðlaun-
in.
Jonny Rasmussen 227
Jón Baldursson —
Sigurður Sverrisson 225
Matt —
Pam Granovetter 203
Jon Andreas Stovneneg —
Roger Woll 196
Keppnisstjóri var Agnar Jörg-
ensen og reiknimeistari Vigfús
Pálsson.
Sú nýbreytni var á Bridshátíð
að gefið var út mótsblað og var
ábyrgðarmaður þess Guðmundur
Sveinsson.
Sveitakeppnin
Þegar 4 umferðir voru búnar í
sveitakeppninni leiddi sveit Sam-
vinnuferða/Landsýnar mótið með
83 stigum, Alan Sontag hafði 82
stig, sænska og danska sveitin
hafði 81 stig svo og Ármann J.
Lárusson. í sjötta sæti var svo
_________Brids____________
Arnór Ragnarsson
SÆNSKU landsliðsmennirnir
Johan Bennet og Andres Wir-
gren sigruðu af öryggi í 50
para tvímenningskeppninni á
Bridshátið sem lauk sl. laugar-
dag. Keppnin um 1. sætið var
annars mjög jöfn og spennandi
og þegar tveimur umferðum
var ólokið áttu milli 6 og 8 pör
möguleika á að sigra. Bennet
og Wirgren voru í efsta sæti
eða meðal efstu para alla
keppnina og gleði þeirra leyndi
sér ekki i leikslok.
íslenzku pörin stóðu sig með
miklum ágætum, urðu i 2., 4., 6.
og 8. sæti í mótinu. Það kom hins
vegar á óvart að þetta voru pör
sem alla vega hafa ekki hingað
til einokað toppbaráttuna. Stefán
Pálsson og Rúnar Magnússon
urðu í öðru sæti og held ég að
þeir hafí aldrei komist svo ofar-
lega í mótinu fyrr en í lokaum-
ferðinni — góð tímasetning það.
Páll Valdimarsson og Magnús
Ólafsson voru í toppbaráttunni
allt mótið. Þeir voru þekktir bar-
áttumenn í tvímenningi en vantaði
aðeins herzlumuninn hjá þeim.
Guðmundur Pálsson og Pálmi
Kristmannsson eru óumdeilanlega
það par sem kom mest á óvart
af íslenzku pörunum. Þeir höfn-
uðu í 6. sæti með 238 stig yfír
meðalskor sem er mjög góður
árangur. Guðmundur og Pálmi
komust inn í mótið sem par fyrir
Austurland. Jón Baldursson og
Sigurður Sverrisson urðu svo í 8.
sæti. Þeir voru meðal efstu para
í upphafi mótsins en gekk verr
síðari daginn.
Það fyrirfínnst lítið af nöfnum
hinna heimsþekktu þegar litið er
yfír 10 efstu pörin. Alan Sontag
og Billy Eisenberg urðu að láta
sér nægja 20. sætið og Belladonna
og Sartie urðu í 16. sæti. Sveitar-
félagar Sontags, Granovetter-
hjónin, komust þó á verðlaunapall,
urðu í 9. sæti. Bretlands/Asíu—
sveitin kom hins vegar mjög vel
út úr mótinu. Zia Mahmod og
Shivdasani urðu í 5. sæti og sveit-
arfélagar þeirra Greenwood og
Fishpool urðu í þriðja sæti.
ítalska parið Gullotta og Petr-
oncini spiíuðu af miklu öryggi
fyrri daginn og höfðu afgerandi
forystu. Síðari dagurinn var svo
hrein martröð fyrir þá. Þeir voru
komnir með 262 stig yfír meðal-
skor eftir 20 umferðir en enduðu
svo með 127 stig og urðu í 15.
sæti.
Norðmenn mættu með harð-
snúið lið, á annan tug keppenda
og uppskáru 7. og 10. sætið.
Veitt voru 10 verðlaun á mót-
inu. 1. verðlaun 1500 dalir, 2.
verðlaun 1000 dalir, 3. verðlaun
800 dalir, 4. verðlaun 500 dalir,
5. verðalun 400 dalir, 6. verðlaun
300 dalir, 7. verðlaun 200 dalir,
8-10. verðlaun 100 dalir.
Stefán Pálsson og Rúnar Magnússon urðu í öðru sæti. Þeir áttu
góðan lokasprett í mótinu.
Lokastaða 10 efstu para:
Johan Bennet — Andres Wirgren 356
Rúnar Magnússon — Stefán Pálsson 303
Greenwood — Fishpool 287
Magnús Ólafsson — Páll Valdimarsson 282
Zia Mahmood — Shivadsani 263
Guðmundur Pálsson — Pálmi Kristmannsson 238
Arild Rasmussen —
sveit Jörgen Munk frá Grænlandi.
Allsérstætt mál kom upp í 4.
umferð þegar ítalimir mættu Zia
Mahmood og félögum hans. Þrátt
fyrir að leikurinn væri spilaður á
töflu sátu bæði pörin eins við
spilaborðin, þ.e. að enginn saman-
burður fékkst út úr leiknum.
Þegar þetta er skrifað var ekki
búið að fínna lausn á þessu máli
en fyrir leikinn hafði Zia fengið
55 stig en ítalska sveitin 53 stig.
Nánar verður sagt frá sveita-
keppninni í miðvikudagsblaði.
Lánlausir ítalir spila hér gegn Dönum. Guttola og Petroncini
gegn Schou og Hulgaard.
Tvímenningur á Bridshátíð:
NÚ SELJUM VIÐ FULLT AF NÝLEGUM VÖRUM
Á VERKSMIÐJUVERÐI PRÁ GEFJUN.
ALLT Á AÐ SELJAST.
HERRARÍKI, GLÆSIBÆ ÞAKKAR
VIÐ SKIPTAVINUM SÍNUM
FYRIR VIÐSKIPTIN Á LIÐNUM ÁRUM.
GLÆSIBÆ 5=34350